Morgunblaðið - 15.03.1966, Blaðsíða 2
2
MORGU N BLAÐIÐ
Þriðjudagur 15. marz 1966
PaJIe Morgensen.
Réttarhöld yfir lög-
reglumorðingjanum
1 dag hófust í Kaupmannahöfn
réttarhöld í máli Palle Mogens
Fogde f|>rensen, sem í septemb-
er í fyrra myrti fjóra lögreglu-
menn í höfuðborginni. Gripið
hafði verið tll víðtækra varúðar
ráðstafana, áður en réttarhöldin
hófust.
Öflugur lögregluvörður var
um vestan af Bræðrapartstúni
við dómshúsið, og'leitað var á
öllum, sem hleypt var inn í rétt-
arsalinn. Gerði lögreglan allt til
að koma í veg fyrir tilraun að
„frelsa“ fjirensen, sem á marga
fylgismenn í undirheimum Kaup
mannahafnar.
Palle Sörensen myrti lögreglu
þjónana fjóra aðfaranótt 1. sept-
ember sl. Skaut hann þá alia til
bana með skammbyssu sinni
Hann er 38 ára. Að þessu sinni
er hann ekki eingöngu sakaður
um morðin, heldur einnig um
14 þjófnaði, að bera vopn án
heimildar og ógnanir. Hefur
hann í stórum dráttum játað
afbrotin, en í einstökum atriðum
borið fyrir sig minnisleysi.
Morðnóttina var annar maður,
Norman Viggo Bune, með Sör-
ensen, en átti engan þát í morð-
unum. Ber hann vitni í réttinum.
Palle Sörensen hefur margsinn
is hlotið refsingu fyrir ýmis af-
brot, í fyrsta sinn árið 1947.
Verkfræðingum fjölg-
aði um 35 s.l. ár
Árni Snævarr kosinn formaður
Verkfræðingafélags íslands
AÐALFUNDUR Verkfræðinga-
félags fslands var haldinn 23.
febr. sl. Þá gengu úr stjórn þeir
Einar B. Pálsson, sem hefur
verið formaður undanfarin 2 ár,
Egill Skúli Ingibergsson og dr.
Gunnar Sigurðsson, sem hafa
verið meðstjórnendur á sama
tíma, og varamaður Ríkarður
Steinbergsson. í þeirra stað voru
kosnir í stjórn til næstu tveggja
ára: Árni Snævarr, bygginga-
verkfr., formaður, Bragi Þor-
steinsson, byggingaverkfr., með-
stjórnandi, Haraldur Ásgeirsson,
efnaverkfr., meðstjórnandi, Guð
mundur Pálmason, eðlisverkfr.,
varamaður.
Fyrir í stjórninni eiga sæti til
eins árs: Agnar Norland, skipa-
verkfr., Baldur Líndal, efna-
verkfr., Gunnar Ólason, efna-
verkfr., varamaður.
í byrjun starfsársins var fé-
lagatalan 342 en er nú 378.
Eftir starfsgreinum flokkast fé-
lagsmenn þannig, í sviga eru
tölur fyrra árs:
Byggingaverkfr. 154 (134)
Efnaverk- og efnafr. 60 ( 55)
Rafmagnsverkfr. 64 ( 62)
Skipa- og vélaverkfr. 65 ( 60)
Ýmsir verkfr. o. fl. 35 ( 31) __
Samtals: 378 (342)
Eftirtaldar deildir starfa inn-
an félagsins:
Byggingaverkfræðideild,
Efnaverkfræðideild,
Rafmagnsverkfræðingadeild,
Lífeyrissjóður VFÍ,
Stéttarfélag verkfræðinga.
Við síðastliðin áramót var
skuldabréfaeign Lífeyrissjóðs
VFÍ kr.: 26.355.426.03, Á árinu
var 23 félagsmönnum veitt lán
samtals að upphæð kr.:
5.548.00.00. Einn félagsmaður
naut bóta úr lífseyrissjóðnum á
árinu. Stjórn sjóðsins skipa nú
Rögnvaldur Þorláksson, for-
maður, Páll Ólafsson, efna-
verkfr., varaform., Haukur
Pálmason, ritari, Hinrik Guð-
mundsson, gjaldkeri og Leifur
Hannesson, meðstjórnandi. Þeir
Páll og Haukur eru tilefndir af
stjórn VFÍ, en hinir kosnir af
sjóðfélögum.
I félaginu starfa ýmsar nefnd-
if, m. a. gjaldskrárnefnd, sem
leiðbeinir um notkun gjaldskrár
verkfræðinga og sker úr ágrein-
ingi um túlkun ákvæða hennar,
tæknivísindanefnd, ritnefnd, sem
sér um útgáfu tímarits VFÍ, og
nefnd til undirbúnings ráðstefnu
VFÍ um vinnslu sjávarafurða,
sem gert er ráð fyrir að halda
síðar á þessu ári.
Félagið hefur gerðardóm inn-
an vébanda sinna til þess að
skera úr ágreiningi manna um
tæknileg mál og er prófessor
Theódór B. Líndal dómsfor-
maður, en stjórn VFÍ skipar
verkfræðinga meðdómendur
eftir málavöxtum hverju sinni.
Verkfræðingafélag íslands á
aðild að Bandalagi háskóla-
manna, Norræna byggingarmála
deginum og fleiri samtökum hér
og á Norðurlönduna.
þar af erlendis 24 (18)
— — 9(8)
— — 6(7)
. — — 11 ( 7)
— — 3(2)
53 (42)
í undirbúningi er útgáfa nýs
Verkfræðingatals á vegum fé-
lagsins, en Stefán Bjarnason,
verkfræðingur, annast ritstjórn
þess.
Námssjóður I. C. Möllers frá
6. okt. 1938 er í vörzlu Verk-
fræðingafélags íslands. Sjóður-
inn veitti styrki á árinu Stefáni
Einarssyni, rafmagnsverkfræði-
nema við N.T.H. í Þrándheimi,
og Þorsteini Vilhjálmssyni, eðlis
fræðinema við háskólann í Kaup
mannahöfn, dkr. 1000.—, hvor-
um þeirra. Sjóðsstjórnina skipa
Steingrímur Jónsson, fyrrv. raf-
magnsstjóri, Sigurður Briem,
stjórnarráðsfulltrúi og Hinrik
Guðmundsson, verkfræðingur.
46 málverk eltir Monet
fundust í Frakkiandi
Chartres, Frakklandi,
14. marz — (AP) —
FUNDIZT hafa 46 málverk
eftir Claude Monet, sem
enginn vissi að væru til.
Eru málverkin metin á 10
milljónir franskra franka
(um 88 millj. kr.) Verða
þessi málverk, ásamt 92
málverkum öðrum, er fund
ust heima hjá Michel Mon-
et, syni listamannsins, að
honum látnum, gefin
frönsku listaakademíunni.
Michel Monet fórst í um-
ferðarslysi 8. febrúar sl., 87
ára að aldri. Lögfræðingur
hans, Yves Boudon, skýrði þá
frá þeirri ákvörðun Monets að
arfleiða listaakademíuna að
þeim 92 málverkum, er
geymd voru á heimili hans í
Sorel-Moussel í Normandy.
Þegar svo málverkin 46 fund-
ust, var ákveðið að þau færu
sömu leið. Hefur listaaka-
demían ákveðið að koma öllu
safninu fyrir í Mormottan
listasafninu, 1 vesturhluta
Parísar.
Málverkin 46 fundust í húsi
því í Giverny, þar sem lista-
maður lézt árið 1926. Voru
sum þeirra í stöflum uppi und
ir súð, önnur í herbergjum,
sem staðið hafa ónotuð frá
dauða Monets. Öll eru þau
máluð á árunum 1905—1926.
Kvaðst Boudon lögfræðingur
ekkert hafa vitað um þessi
listaverk. Telur hann að
Michel Monet hafi einn vitað
að þau væru til.
Albert Decartes, forseti
listaakademíunnar, sagði að
heildarsafnið, sem akademí-
unni er gefið, sé orðið svo
verðmætt, að gera verði mikl
ar endurbætur á húsi Mar-
mottan safnsins.
Málverkin 46 eru enn í Giv-
erny. Eru lögreglumenn með
hunda á verði við húsið. Það-
an verða listaverkin flutt
með bifreiðum til Parísar, og
fylgja bifreiðunum lögreglu-
menn á mótorhjólum og tal-
stöðvarbifreið. Alls eru þessi
138 málverk Moneets metin á
40 milljónir franka (um 350
milljónir króna).
Verkfall dæmt ólöglegt
Athyglisverður íélagsdómur um
réttarstöðu vörubílstjóra
FALLINN er dómur í Pélags-
dómi vegna máls, er reis út af
ágreiningi sem varð mil'li Vöru-
bílastjórafélagsins Þróttar og
Mjölnis í Þorlákshöfn um flutn-
inga á fiski til frystihúsa í
Reykavík úr bátum, sem frysti-
húsin hafa sjálf eða kaupa af
og leggja á land í Þorlákshöfn.
Er um þrjú frystihús að ræða,
Sænsk-íslenzka frysti'húsið, ís-
björninn og Bæjarútgerð Reykja
víkur, en þetta mál var rekið
fyrir ísbjörninn. Féll dómur
'þannig að verkfall, það sem varð
á Þorlákshöfn í febrúar 1965
var dæmt ólöglegt og málskostn-
aður felldur niður.
Forsaga málsins er 'sú, að fyrir
tækin mega flytja fisk á eigin
bílum en Þróttur í Reykjavík
hefur gert samninga við Vinnu
veitendasambandið, þar sem gert
er ráð fyrir að félagsmenn sitji
fyrir allri vinnu á félagssvæð-
inu. í umræddum flutningum er
miðað við atvinnustöðina, sem
er í Reykjavík. Er Mjölnir
hugðist ná samningum um flutn-
ingana á umræddum fiski við
frystihúsin þrjú, kom í ljós að
Vinnuveitendasambandið taldi
það ekki hægt, vegna þess að
búið væri að gera samninga um
Lögfræðingar
ræða barna-
verndarmál
LÖGFRÆÐINGAFÉLAG íslands
efnir til félagsfundar í veitinga-
húsinu Tjarnarbúð (niðri) þriðju
daginn 15. marz k. 20.30.
Fundarefni er „Barnaverndar-
mál og frumvarp til laga um
vernd barna og ungmenna".
Framsögumenn verða prófessor
Ármann Snævarr háskólarektor
og Ólafur Jónsson, fulltrúi.
Innbrot í Sand-
}>erði
SANDGERÐI, 14. marz — Brot-
izt var inn í Kaupíélagið í Sand
gerði í nótt. Höfðu þjófarnir
brotið rúðu í hurðinni og farið
inn í búðina. En áður höfðu þeir
reynt að komast inn í viðbygg-
ingu.
Þeir stálu í búðinni öl'lum finn
anlegum sígarettum af tegund-
unum Vice Roy og Camel, og
um 1000 kr. í skiptimynt. Málið
er í rannsókn. — PP.
þetta við Þrótt. Þetta rækist því
á. Greip þá Mjölnir til þess ráðs
að stöðva flutninga með bílum
Þróttar frá Þorlákshöfn, og var
sagt frá því í blöðum á sínum
tíma. Urðu af þessu málaferli.
Páll S. pálsson hrl. rak málið
fyrir Vinnulveitendasambandið
vegna Isbjarnarins h.f., en Egill
Sigurgeirssori hrl. var fyrir Al-
þýðusambandið vegna Lands-
sambands vörubílstjóra vegna
Mjölnis.
Lét páll leggja lögbann við að-
gerðum Mjölnis og er staðfest-
ingarmál lögbannsins rekið fyrir
aukarétti í Árnessýslu. En und-
ir Félagsdóm var lagt hvort
venkfallið • í Þorlákshöfn hefði
verið ólöglegt. Nú er dómur
fallinn. Meiri hluti dómsins eða
þeir Hákon Guðmundsson,
Gunnlaugur Briem og Einar B.
Guðmundsson, felldu þann úr-
skurð að verkfallið hefði verið
ólöglegt. í forsendum dómsins
kemur það fram, að þar sem
stéttarfélag hafði áður gert samn
ing við atvinnurekendur, þá geti
ekki annað stéttarfélag knúið
sama atvinnurekanda til samn-
inga við sig um svipað efni.
Páll S. Pálsson hafði borið það
fram sem meginástæðu, að nú
orðið hefðu bifreiðastjórar svo
dýr og mikil tæki, að vinnan
væri ekki nema lítill hundraðs-
hluti af því gjaldi, sem þeir fá.
Lægðin við S-Grænland dýpk
aði ekki í gær, en beindi þó
hlýju lofti til Islands, svo að
í Reykjavík tók upp allt snjó-
föl eftir élin í fyrradag. Var
kominn 6-10 stiga hiti fyrir
sunnan og suðvestan land.
Veðurhorfur í gærkvöldi:
Suðvesturland fil Breiða-
fjarðar og miðin A-kaldi og
slydda fyrst, en SV-kaldi og
Því væru þeir i rauninni at-
vinnurekendur en ekki vinnu-
þyggjendur. Þess vegna gæti
Mjölnir ekki knúð fram kröfur
sínar í þessu máli með verkfalli.
Um þetta komst dómurinn að
þeirri niðurstöðu, í samræmi við
hæstaréttardóm frá 1957 og fyrri
félagsdóma, að Mjönir sé í sjálfu
sér stéttarfélag. En þegar litið
sé til þess hve stór tæki bifreiða
stjóranna séu, 5 tonn og þar yfir
og kaupið 19% af leigugjaldinu
eða minna, þá nálgist bifreiða-
stjórnar íslikum tilfellum að vera
atvinnurekendur. Eins og þess-
um málum hafi verið háttað,
gagnvart ísbirninum, þá hafi
Mjölnir ekki átt rétt til þess
eftir vinnulöggjöfinni að knýja
fram kröfur sínar með verkfalli.
Þá komst félagsdómur að
þeirri niðurstöðu, að einstök fé-
lög bifreiðastjóra séu bundin
af samþykktum landssambands
vörubílstjóra, þar á meðal vinnu
skjptaregium, sem landssam-
band hefur sett.
Minni hluti dómsins var tví-
skiptur, Bjarni K. Bjarnason
komst að sömu niðurstöðu, að
verkfallið væri ólöglegt, en
byggði það á því að ekki hefðu
nægilega skýrar kröfur komið
fram frá Mjölni á hendur vinnu
veitendum áður en verkfallið var
boðað og þegar af þeim ástæðum
ætti að dæma verkfalið ólöglegt.
Árni Guðjónsson vildi aftur á
móti sýkna Mjölni af kröfum
og dæma Vinnuveitendasam-
bandið til að greiða 10 þús. kr. í
málskostnað.
rigning öðru hverju er líður
á nóttina. Norðurland og mið
in S-gola og viða snjókoma
fram eftir nóttu, SV-kaldi og
léttir til, Norðausurland og
miðin: hægviðri og víðast
bjart veður, Austfirðir og
miðin: léttir til í nótt með
SV-golu, Suðausturland og
miðin: SV-kaldi, þokuloft og
súld. Austurdjúp: hæg SV-
eða V-átt, skýjað.