Morgunblaðið - 15.03.1966, Blaðsíða 27
^Þriðjudagur 15. marz 1966
MORGUNBLADID
Þessi bátur, sem var a® koma úr Engey, er ljósmyndari blaðs-
ins var á gangi niður við höfn, var með heldur óvenjulegan
farm. Þar voru á ferð menn með hest, sem virtist ekkert
kunna illa við sig á sjó.
Innbrot og
skemmdarverk
TJM helgina voru framin 3 inn-
brot í Reykjavík, í rakarastofu
Péturs og Vals, í mjólkurbúð og
ó einkaheimili. Lítið höfðu þjóf-
arnir upp úr krafsinu.
Þá var unnið skemmdarverk
fi bíl á Klapparstíg, brotinn
spegill og dælduð hurð.
— Indónesla
Framhald af bls 1
Nærvera dr. Súbandrio hjá
forsetanum verði auk þess
hindrun í vegi fyrir að takast
megi að víkja frá völdum öll-
um þeim, sem fylgja komm-
únistum að málum. Það var
dr. Subandrio, sem myndaði
nýja stjórn fyrir rúmum mán-
uði, en í henni tóku sæti
fleiri kommúnistar en í nokk-
urri annarri stjórn í Indó-
nesíu.
Þá segir i fréttum frá Dja-
karta, að stúdentar hafi, er
þeir réðust til inngöngu í ut-
anríkisráðuneytið, fyrir
skemmstu, fundið leynisamn-
ing, sem gerður hafi verið
milli Indónesíu og Alþýðu-
lýðveldisins Kína. Hafi Suk-
arno verið sýndur samningur-
inn, og hafi hann átt mikinn
þátt í því, að hann hafi fallizt
á að afhenda Suharto hers-
höfðingja, öll stjórnmálavöld
í landinu.
Enn er ekki ljóst, hve marg-
ir fyrrverandi ráðherrar, sem
íylgdu kommúnistum að mál-
um, hafa verið handteknir. í
sumum fréttum segir, að tala
þeirra sé 24, í öðrum, að þeir
handteknu séu 18.
Suharto, hershöfðingi, gaf í
dag til tilskipun um, að allir
kommúnistar í landinu skuli
gefa sig fram við yfirvöld
landsins innan eins mánaðar.
Þeir, sem ekki hlíti þessari
tilskipan, megi búast við þvi,
að þeir verði beittir hörðu.
Það vakti mikla athygli, er
eiginkona Sukarno, forseta,
sem er 25 ára og japönsk,
bauð fjölda eiginkvenna hers
höfðingja til bústaðar síns í
dag, til að halda upp á bann-
ið gegn kommúnistaflokkn-
um. Sagt er, að Sukarno hafi
reiðzt ógurlega, er hann
heyrði um uppátækið, og
bannað konu sinni að taka
á móti gestunuiu.
Þýzkt skip rakst
á Röðul
í GÆRMORGUN rakst þýzkt
skip á Hafnarfjarðartogarann
Röðul í minni Weser. Mun þýzka
skipið Seefalke hafa siglt aftan
á togarann, og beyglaðist við
það plata í hekkinu.
Röðull var á leið Bremerhav-
en með 90—100 lestir af fiski, er
áreksturinn varð, og var um það
bil að taka hafnsögumann. Veður
var bjart og ekki vitað hvað
olli þessum árekstri.
Röðull er eign hlutafélagsins
Venus í Hafnarfirði. Útgerðin
hafði fengið þær fregnir að
skemmdir á skipinu væru litlar.
12 teknir ölvaðir
Á SUNNUDAGSNÓTTI'NA stálu
tveir piltar bíl á Þórsgötunni.
Lögreglan varð bílsins vör á
Njarðargötu. Piltarnir ætluðu að
stinga af og óku mikið, en hált
var og snerist bíllinn til hjá þeim
svo lögreglan gat stokkið út og
náð þeim. Voru þeir ölvaðir og
viðurkenndu brot sitt.
Mikil ölvun var í bænum um
’helgina. Tók lögreglan 12 menn
undir áhrifum við stýri _frá því
á föstudagskvöld til mánudags-
morguns.
Loðnubingur
minnkar á
Akranesi
Akranesi, 14. marz — Óskar
Halldórsson landaði í morgun
1800 tunnum af loðnu. Verk-
smiðjumennirnir byrjuðu í morg
un að aka í þrærnar úr loðnu-
bingnum og ljúka því á morgun.
Loðnubátar fóru út á veiðar í
morgun.
Af Breiðafirði komu Sólfari í
dag með 43 tonn og í gær Sigur-
borg með 25 tonn og Sigurfari
með miklu minna.
París, 14. marz. — NTB.
Couve De MurviIIe, utan-
ríkisráðhera Frakka, lýsti því
yfir i dag, að franska stjórnin
væri hlynnt aðild Breta að
Efnahagsbandalagi Evrópu,
svo framarlega sem Bretar
vildu skipa sér á bekk með
íbúum meginlandsins, og tak-
ast á hendur . ) nvu skyldur
og þeir.
IITAN AF LAIMDI IJTAIM AF LAIMDI IJTAIM AF LANDI
Nýtt póst- og símstöðvarhús
og fleiri fram-
kvæmdir af
hálfu hins
opinbera
Flateyri, 1. marz.
Á SÍÐASTLIÐNU ári voru
framkvæmdar af hálfu hins
opinbera allmiklar. Tekið var
í notkun hér nýtt og glæsilegt
póst- og símstöðvarhús, enn-
fremur unnið hér allmikið af
hálfu Landsímans að lagfær-
ingu á simakerfi þorpsins. —
Auk þess, sem lagður var jarð
strengur um fjögurra kíló-
metra veg inn með firðinum;
ennfremur lögð lögn að flug-
skýlinu í Holti.
Þá voru talsverðar fram-
kvæmdir á vegum Rafmagns-
veitna ríkisins. Lagðar voru
rafmagnslínur að þeim bæj-
um, sem eftir áttu að fá raf-
magn, þannig að allir bæir,
sem í byggð eru hafa nú feng-
ið rafmagn. Þó hafa býli á
Ingjaldssandi ekki enn fengið
rafmagn frá Rafveitum ríkis-
ins, en úr því hlýtur að ræt-
ast á næstunni. Þá var Vega-
gerð ríkisins með nokkrar
framkvæmdir. Á Flateyrar-
vegi var unnið fyrir 470 þús.
kr. að endurbyggingu vegar-
ins. Unnið var að endurbygg-
Nýja póst- og símstöðvarhúsið. (Ljósm.: Trausti Magnússon.
ingu Ingjaldssandsvegar fyrir
125 þús. kr. Á ísafjarðarvegi
á Breiðdalsheiði var unnið fyr
ir 3,4 millj. kr. Áætlað er, að
kosta muni um 3 millj. kr. að
ljúka þeim ófanga, sem byrj-
að hefur verið á. Þurfa menn
nú ekki lengur að aka hinar
illræmdu Skógarbrekkur á
Breiðdalsheiði.
Þá hefur Byggingarfélag
alþýðu á Falteyri hafið fram-
kvæmdir. Hefur verið byrjað
á sex ibúðum, sem eiga að
verða fokheldar í ágúst 1960.
Flateyrarhreppur hefur lát-
ið setja upp nýja kvikmynda-
sýningarvél af gerðinni Zeiss
Ikon, og er það mjög vönduð
vél.
Dygging hafin á sex íbúðum Byggingarfélags alþýðu.
Á vegum hreppsins hófust
framkvæmdir við nýja skolp-
lögn í þorpinu, en það er fjár-
frek framkvæmd. Þar sem
erfitt er að fá nægan halla á
lögnina, verður að byggja
dælustöð. Voru dælur fengn-
ar erlendis frá og eru komn-
ar, en ekki hægt að ganga frá
dælustöðinni fyrr en i vor.
Unnið hefur verið að end-
urnýjun á lýsingu við höfn-
ina. Nýtt ljósamastur hefur.
verið fengið frá Danmörku og
bíður nú uppsetningar.
Hingað var keyptur vélbát-
urinn Þorsteinn frá Neskaup-
stað og verða þá gerðir út 5
bátar héðan á vertíðinni. Enn-
fremur er í smiðum nýtt 240
lesta stálskip fyrir Kaupfélag
Önfirðinga og er það væntan-
legt hingað í marz eða apriL
Helztu fyrirhugaðar fram-
kvæmdir eru stækkun á við-
leguplássi fyrir báta við hafn-
arbakkann, og er það mikið
nauðsynjamál fyrir okkur hér
með aukinni útgerð. — Fyrir-
huguð er viðbótarbygging við
barnaskólann, sem yrði í-
þróttahús og sundlaug fyrir
staðinn, en þessa aðstöðu
vantar tilfinnanlega hér. Hér
má geta þess, að í allri Vest-
ur-ísafjarðarsýslu eru starf-
ræktar tvær sundlaugar hluta
úr árinu. Önnur við Núps-
skóla, lítil innilaug, hin í Súg-
andafirði, útilaug, 'opin litinn
hluta úr sumrinu. — Kristján.
IJTAN AF LANDI LTAN AF LANDI IJTANAF LANDI
— Mjög köldu
Framhald áf bls 1
v-þýzku stjórnarinnar yfir nokkr
um atriðum, varðandi afstöðu-
breytingu frönsku stjórnarinnar:
• Munu franskir hermenn
sem nú dveljast á v-þýzkri
grund, taka þátt í sameiginlegri
varnarbaráttu bandalagsríkj-
anna, komi til hennar?
• Mun franska stjórnin standa
við bandalagssamninginn um V-
Berlín, en þar halda nú franskir
bandarískir og brezkir hermenn
uppi gæzlu?
• Samþykkir franska stjórnin
hugmyndina um „framlínu“-
varnir, þ.e.a.s., munu franskir
hermenn verða staðsettir eins
nálægt landamærum A-Þýzka-
lands og þörf krefur, skv. því
kerfi?
Að lokum sagði ráðherrann, að
þegar svar hefði fengizt við þess
um spurningum, myndi Bonn-
stjórnin verða fús til að taka þátt
í hugsanlegum umræðum um
skipulagsbreytingar.
Kennedyhöfði, 14. marz NTB
Ákveðið hefur verið að
fresta um sólarhring geim-
skoti „Gemini 8“, en í ljós
hefur komið leki á eldsneytis
kerfi Atlas-eldflaugarinnar,
sem flytja skal geimskipið út
í geiminn.
- íþrótfir
Framhald af bls. 26
og hlutu ósigur 70:54, sem reynd
ar fullmikill munur eftir gangi
leiksins.
I. flokkur: Ármann KFR: 50:33.
Eftir slæman fyrri hálfleik hjá
KFR eða góðan leik Ármanns,
var síðari hálfleikur liðanna
mjjög jafn og náðu KFR-ingar að
breyta stöðunni úr 28:8, í 50:33
sem urðu lokaiýilur leiksins. Lið-
in voru reyndar bæði ólögleg
til keppni, KFR með marga ung-
linga í liðinu og Ármenningar
mættu með tvo Kanadamenn til
leiks, sem er ólöglegt samkvæmt
reglum ÍSÍ, en h’vað um það
leikurinn var skemmtun fyrir
þátttakendur og þá er tilgang-
inum náð.
FÉLACSHEIMILI
Opið hús
í kvöld
— Bændur
Framhald af bls. 28
greina. Hins vegar verður leitast
við að koma með ýmsar nýjung-
ar á markaðinn, sem mjög eru
vinsælar erlendis, en ekki hafa
verið framleiddar hér áður að
ráði. Auk þess verður stefnt að
því að gera framleiðslu osta-
gerðarinnar sem fjöbreyttasta í
öðrum greinum mjólkuriðnaðar-
ins. Eru þar miklir möguleikar
ónýttir, þar sem mjólk er aðal-
hráefnið í ýmsum gómsætum
neyzuvörum. Að lokum skal
tekið fram, að megintilgangur
félagsins er að auka fjölbreytni
framleiðsuvara mjólkuriðnaðar-
ins og freista þess að breikka
markaðinn ti hagsbóta bæði fyrir
neytendur og bændur.
— Osturinn er ætlaður á inn-
anlandsmarkað. Nú er talað
mikið um offramleiðslu á mjólk-
urvörum og því er nauðsynlegt
fyrir landbúnaðinn að auka sem
mest innanandsmarkaðinn. Það
er hann sem gefur mestan arð,
og erfitt er að byggja mjólkur-
framleiðsluna upp á útflutningi.
Ostagerðin nýja verður vænt-
anlega byggð í Hveragerði, og
munu framkvæmdir væntanlega
hefjast á vori komanda. Verður
stefnt að því að bygging hússins
og niðursetningu véla og öðrum
undirbúningi ljúki fyrir vetur-
inn.