Morgunblaðið - 15.03.1966, Page 17

Morgunblaðið - 15.03.1966, Page 17
Þriðjudagur 115. warz 1966 MORCUNBLAÐIÐ 17 Landbúnaður og hagfræði ÞBGAR við athugum og met- um land/búnaðarstefnu okkar, þá er nauðsynlegt að hafa þau markmið í huga, sem stefna ber að. Flokkun á markmiðum er að vísu erfið, en eftirtalin fjögur atriði munu líklega helzt vera aðkeppnisverð: 1) að auka þjóðartekjurnar sem mest. 2) að tryggja okkur matvæli á öllum tímum. 3) að draga úr sveiflum á tekjum bænda. 4) að minnka mismun á tekjuöflun stétta þjóðfé- lagsins. Fyrsta markmiðið, að auka þjóðartekjurnar sem mest, er almennt viðurkennt. Með því næst það, að þegnar þjóðfélags- ins geta notið aukins vörumagns og þjónustu. En það er ekki erfiðleikalaust að keppa að þessu marki. Við þurfum t.d. að spara við okkur neyzlu til þess að geta aukið framleiðslutækin. Gin og klaufaveiki Framhald af bls. 12 Og enn sagði Páll A. Páls- son: — Ekki þarf að eyða orðum að því né lýsa nártar því hörmungarástandi, sem mundi skapast hér, ef gin- og klaufa- veiki næði fótfestu hér á landi og breiddist út um byggð ir'landsins. f>ví er þess fast- lega vænzt, að allir sem hlut eiga að máli, sýni þeim var- úðarráðstöfunum, sem stjórn- arvöld hafa fyrirskipað, full- an þegnskap og skilning. Bólusetning dugar skammt Yfirdýralæknir sagði að vel flestar þjóðir á meginlandi Evrópu freistuðu þess að verj ast veikinni með bólusetningu. Bólusetningin varir þó aðeins eitt ár, sem fyrr er sagt, og þarf því að framkvæma nýja bólusetningu árlega. Þetta er gert, einkum á jaðarsvæðum landanna eða þar sem mest er hætta á, að veikin kunni að berast inn í löndin. Þannig fara t.d. Hollendingar, Frakk- ar, ítalir og Svisslendingar að og tekst þeim að verjast hin- um venjulegu veirustofnum á þennan hátt. En svo skeður það alltaf af og til, eins og nú síðast, að upp koma afbrigði- legir stofnar og þá dugar það bóluefni, sem fyrir er, ekki til. Er þá gripið til þess ráðs að búa til nýtt bóluefni, en það tekur sinn tíma og á með an fer veikin eins og logi yfir akur. Niðurskurður Yfirdýralæknir sagði enn- fremur að þar sem minni hætta væri á smitburði, svo sem í Bretlandi, írlandi, Nor- egi, Kanada og Bandaríkjun- um, væri viðhafður niður- skurður á hinum sýktu býl- um en nota ekki bólusetn- ingu. Allir gripir væru aflíf- aðir og þeir síðan grafnir djúpt í jörð niður, en síðan væri allt sótthreinsað þar sem gripirnir hefðu verið og heim- ilið einangrað og sett í algera sóttkví. Þar sem bólusetning er við- Bólga á grönum höfð er bólusett allt í kring- úm hið sýkta svæði eftir að skorið hefir verið niður. Þetta er þó því miður ekki algild vörn þar sem fyrir kemur að bólusettur gripur getur verið smitberi, sýkist þá lítillega en ber með sér lifandi veirur. Það eru þvi ýmsir annmarkar á bólusetningunni. Hins vegar verkar bólusetning betur bæði á nautgripi og sauðfé heldur en á svín. Hollending- ar hafa nýlega fengið hættu- legt afbrigði af C-stofni gin- og klaufaveikinnar og hafa þeir orðið að slátra nær 200 þúsund svínum af þessum sök um. Sýnir þetta hve gífur- legu tjóni veikin veldur. Við spurðum yfirdýralækni hvað yrði til ráða hér á landi ef veikin bærist hingað. — Ef svo illa tækist til sagði yfirdýralæknir, — myndi verða byrjað á því að skera niður alla gripi á hinu sýkta héimili og það síðan sett I sóttkví. Til niðurskurð- ar og sótthreinsunar þyrfti að fá sérstakan vinnuflokk, þar sem ihver maður er búinn gúmmígalla, sem auðvelt er að sótthreinsa. Um þetta gild- ir sérstök reglugerð, sem sett var 1952. Samkvæmt henni er framkvæmd verksins lög- reglumál, en geta má þess að framkvæmídin er erfið hér á landi. Þegar sótthreinsun er lokið er gripahúsum lokað í 3 mánuði, síðan eru nýir gripir settir í þau til reynsiu og kannað hvort um smitnæmi er að ræða. Að lokum sagði yfirdýra- læknir, að það væri óhugnan- leg tilhugsun ef veikin bærist hingað, ekki hvað sízt nú með vorinu er sauðfé fer að hafa samgang á afréttum. Gripir hér á landi hefðu ekkert mót- stöðuafl gegn þessum sjúk- dómi og því gætu afleiðingar hans orðið hroðalegar. CUDO IMIRKIKOSBYGGJANDANS SKÚLAGÖTU 26 — SÍMI 12056 - 20456 Það krefst líka þess, að fólk flyt- ist milli stétta og landsvæða. Það getur kostað stjórn óvinsældir og atkvæði. Megin ástæða fyrir þeirri stefnu, að gera verzlun landa á milli sem haftaminnsta, er sú ■ auknng þjóðartekna, sem er því samfara. Vænta má, að þróunin verð sú, að margvísleg verzlun- arhöft landa á milli hverfi. Það er því ekki ótrúlegt, að við ís- lendingar gerumst í framtíðinni einhvers konar aðilar að tolla- bandalagi. Verði svo. þá verður óneitanlega gott að vera ekki með marga lítt samkeppnisfærar atvinnugreinar, sem aðeins dafna í skjóli hafta. Haftalitum milliríkjaviðskipt- um fylgir oftast sérhæfng þjóða í vissum framleiðslugreinum. Sérhæfing hefur hins vegar í för með sér nokkra áhættu, bæði vegna þess, að samgöngur geta rofnað, greðslukerfi milli- ríkjaviðskipta geta orðið óvirk og vissar vörutegundir orðið ó- fáanlegar. Mörgum þykir því skynsamlegt, að matvæli séu framleidd sem mest innanlands. En þeir, sem ætla að taka af- stöðu til þessa atriðis, verða að glíma við margar erfiðar spurn- ingar, svo sem: Hversu mikið mundi innlend landbúnaðar- framleiðsla lamast, ef skortur yrði á innfluttum hráefnum? Hversu fljótt gætum við aukið landbúnaðinn við vissar aðstæð- ur, svo sem á stríðstímum? o.s. frv. Það er því Ijóst. að hjá þeim þjóðum, sem framleiða tiltölu- lega dýr matvæli, getur mark- miðið að tryggja þjóðinni mat- væli á öllum tímum (markmið 2) orðið á kostnað þjóðartekn- anna þ.e. stangast á við mark- mið 1. Þegar atvinnulíf þjóðar er mjög einþætt, verður einum at- vinnuvegi oft úthlutað nær allri aukningu á fjármagninu og öðr- um framleiðsluþáttum þjóðar- innar. En þegar atvinnulífið verður fjölþættara, skapast sá vandi að skipta framleiðsluþátt- um milli hinna ýmsu atvnnu- greina. Hjá þeim þjóðum, sem búa við vestrænt hagkerfi er greiðslugeta hinna ýmsu atvinnu greina til framleðsluþáttanna ætl að að leysa vandann. Greiðslu- getan er í réttu hlutfalli við verðið á framleiðslunni. Lögin um framleiðsluráð land- búnaðarins voru sett til þess að tryggja bændum sambærileg laun við aðrar stéttir. Þau mæla svo fyrir, að verð helztu land- búnaðarvara skuli vera fram- leiðslulkostnaðarverð. Framleið- endur landbúnaðarvara eru því ekki sérstaklega hvattir til fram leiðslu þeirra vara, sem eru hag- kvæmastar fyrir þjóðarbúið. Það er þvi ótryggt, að fram- leiðslan lagi sig eftir óskum neytenda og valdi því lækkun þjóðartekna. Markmiðið, að tryggja bænd- ■ um sambærilegri laun við aðrar stéttir getur því orðið á kostnað þjóðarteknanna. (Markmið 1 og 4 geta stangast á). Eitt nauðsynlegt atriði til þess að þjóðartekjurnar séu í algeru hámarki er, að síðustu hundrað krónurnar sem varið er til sér- hevrs atvinnuvegar. gefi jafnt af sér. Núna þegar útflutningsupp- bætur -og niðurgreiðslur land- búnaðarvara valda ríkissjóði til- finnanlegum útgjöldum hefur margur tekið að hugleiða, bvort um misskiptingu á framleiðslu- þáttunum milli hinna ýmsu at- vinnuvega sé að ræða. Til þess að gefa hugmynd um þetta má t.d. reikna út hvað vísitölubúið muni auka mikið þjóðartekjurn- ar. Vísitölubúið er éhr sérstak- lega hugsað sem takmarkabýli (a marginal farm.). Vegna þess að alla aukningu á landbúnaðarframleiðslunni verður að flyt-ja út, þá verðum við að rekna með erlendu mark- aðsverði að frádregnum öllum áföllnum kostnaði eftir að var- an fer frá búinu sem einingar- verð. Við rekning þennan nota ég verðlagsgrundvöllinn, sem samið . var um haustið 1964. Tekjum - vísitölubúsins breyti ég ekki að öðru leyti en því, að mjólkur- liðurnn 20250 ltr. og dilkakjöts- liðurinn 2096 kg. eru reiknaðir á verði því, sem fæst fyrir þá, þegar þeir eru seldir á erlendan markað. Þá fást um 2:20 kr. fyrir hvern lítra mjólkur og um 25:80 kr. fyrir kg. kjötsins. Ef gert er ráð fyrir, að vinnslukostn . aður pr. ltr. sé 1,20—1,60 kr. þá verður verðmæti hvers mjólk- urlítra fyrr þjóðarbúið, þegar hann er fluttur frá bóndanum 70—100 aurar. Slátur- og vinnslu kostnaður á kjötinu er um 10-10 kr. og verðmæti kjötsins, þegar það er flutt frá býlinu 15.70 kr. pr. kg. Heildartekjur visitölu- búsins verða þá um 112.885 kr. Heildarkostnaður að frádregn- um vinnulaunum og vöxtum af fjármagni búsins er 105.287 kr. Vinnukraftur búsins og fjármagn þess auka því þjóðartekjurnar aðeins um 7600 kr. samkvæmt þessum verðlagsgrundvelli. Þessi útreknjngúr er með fyrirvara, vegna þess að töiulegar upp- lýsingar eru takmarkaðar, en það dylst þó engum, hve óhag- kvæmur rekstur þetta er. Árið 1964 reiknast mér, að það hafi verið um 1000 býli, af sömu stærð og vísitölubúið, sem fram leiddu fyrir erlendan markað og eru því jafn óhagstæð þjóðhags- lega, og ofangreindum útreikn- ingur sýnir. Það er því brýn spurning. hvort stjórnarvöldin geti ekki varið fjármagni þjóð- arnnar og vinnuafli til sveita betur en til stofnunar nýbýla. Það er líka eðlilegt að þeirri spurningu sé varpað fram, hvort stjórnarvöldin eigi ekki að breyta um stefnu og nota ný- býlafjármagnið til að kaupa upp jarðir og leggja þær í eyði. Slík jarðarkaup eru réttlætan- leg vegna þeirrar aukningar þjóðartekna, sem þeim yrði sam- fara, auk mannúðarsjónarmiða í þeim tilfellum, þar sem gamalt og heilsuiaust fólk býr og getur ekki selt jarðir sínar fyrir við- unandi verð. Einnig má hafa í huga, að með því að veita lán og styrki til stofnunar nýbýla, hefur söluverð gamalla jarða lækkað. Einnig má hafa þá kenningu í huga, að hin lögboðna framleiðslukostnaðarverð hafi aldrei náðst og valdi því hinu lága söluverði jarða. Árið 1965 var i Árbók Land- búnaðarins talið að fjárfesting í landbúnaðinum fyrir árið 1964 hafi verið um 500 millj. króna. Ljóst er að fari þetta fjármagn til aukningar útflutningsfram- leiðslunnar er þetta nær glatað fé. Að sjálfsögðu getur þessi fjárfesting lækkað framieðslu- kostnaðinn, en hve mikið hún gerir það er órannsakað mál. Elías H. Sveinsson. (Jtgerðarmenn Til sölu eru netaveiðarfæri komplett á einn bát 150 nýfeld net á nýjum teinum með öllu tilheyrandi. Upplagning og önnur fyrirgreiðsla fyrir hendi í Vestmannaeyjum. Hagstætt verð og kjör. Upplýs- ingar gefnar hjá eigandanum, Sigurði Þórðarsyni, Vestmannaeyjum í síma 1123 og í Fasteignamiðstöð- inni, Austurstræti 12, sími 14120. Jóhann Sigfússon.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.