Morgunblaðið - 15.03.1966, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLADID
i
Þriðjudagur 15. marz 1966
IVSesstaraEnófið I frjálsíþróttum:
ísl. met í stangarstökki,
reynt við heimsmet í hástökki
•<•:• ,
Vðlbjörn stökk 4,3 7m og Jón Þ.
I >~
Olðfsson vann 4 greinar
MEISTAKAMÓT fslands í frjáls-
um íþróttum innanhúss fór fram
í KR-húsinu um helgina. Val-
bjöm Þorláksson KR setti þar
nýtt ísl. met í stangarstokki,
stökk 4,37 og bætti eldra fslands
met sitt um 1 sm. Jón Þ. ólafs-
son ÍR sem sigraði í f jórum grein
um mótsins, reyndi hæst við 1,77
m. í hástökki án atrenmu, en það
er sama hæð og heimsmetið, en
fór ekki yfir. Átti hann þó góðar
tilraunir við þá hæð og aðeins
spuming um hvenær hann stekk
ur þá hæð.
Bjöm Viknundarson varaform.
FRÍ setti mótið með nokkrum
orðum, þar sem hann vék að
erfiðri aðlstöðu inniíiþrótta, sem
Körfuknatt-
leikslands-
liðið valið
ILandsIið fslands í körfu-
knattleik sem tekur þátt í
Polar Club, í Kaupmannahöfn
um páskana, var valið um
helgina. Leikur liðið fjóra
leiki í ferðinni, við Fnna Dani
og Norðmenn, en mót þetta
er Norðurlandamót og jafn-
framt úrtökumót fyrir Evrópu
meistarakeppni, og komast
tvö efstu liðin áfram á þeim
vettvangi.
Þessir leikmenn voru valdir:
Framherjar:
Einar Bollason, K.R., Agnar
Friðriksson Í.R. Einar Matt-
híásson K.F.R., Hallgrímur
Bjarnason Ármanni.
Miðherjar:
,Birgir Öm Birgis Á, Kristinn
Stefánsson K.R.
Bakverðir:
Kolbeinn Pálsson K.R. Gunn-
ar Gunnarsson K.R. ólafur
Thorlacius K.F.R., Hólmsteinn
Sigurðsson f.R. og Þorsteinn
Hallgrímsson sem nú leikur
með danska liðinu SISU í
Kaupmannahöfn.
myndi gjönbreytast til batnaðar
er íþróttalhöllin í Laugardal yrði
tekin í notkun.
Valbjöm Þorláksson hafði yfir
Iburði í stangarstökkinu og virt-
ist hann vera að ná valdi á
sveigjanlegu trefjastönginni.
Jón Þ. Ólafsson sigraði í öll-
um atrennulausu stökkunum svo
og í hástökki með atrennu. Var
keppnin í öllum atrennulausu
stökkunum skemmtileg og bar
þó þrístökkið nokkuð af. Jón
nóði forystu með 9,50 m. stökki
í 1. umferð, en aðrir voru nálægt
honum. í fjórðu stökktilraun
stökk Guðmundur Jónsson HSK
9,01 og tók forystu. En Jón Þ.
ótti svar á reiðum höndum og
stökk í fimmtu umferð 9,77 og
í síðasta stökki 9,82 m. og var
það sigurstökkið.
Guðfnundur vakti mikla at-
hygli, en hann var stighæsti mað
ur Landsmóts XJMFÍ á s.l. sumri.
Af öðrum athyglisverðum kepp-
endum má nefna ólaf Ottósson
ÍR; Skúla Hróbjartsson HSK; Pál
Eóríksson í stangarstökki og Pál
Öagbjartsson HSÞ í kúluvarpi
drengja.
Úrslit í einstökum greinum
urðu þessi:
Stangarstökk:
Valbjöm Þorláksson KR 4,37
Páll Eiríksson KR 3,86
Ólafur Guðm. KR 3,30
Magnús Jakobsson UBK 3,30
Róbert Þorláksson KR 3,15
Einar Þorgrimsson ÍR 3,15
Langstökk án atrennu:
Jón Þ. Ólafsson ÍR 3,30
Ólafur Ottósson ÍR 3,20
Guðmundur Jónsson HSK 3,16
Valbjöm Þorláksson KR 3,05
Þergþór Halldórsson HSK 3,05
Úlfar Teitssön KR 3,00
Þrístökk án atrennu:
Jón Þ. Ólafsson ÍR 9,82
Guðm. Jónsson HSK 9,61
Úlfar Teitsson KR 9,48
Ólafur Ottósson ÍR 9,30
Skúli Hróbjartsson HSK 9,21
Stefán Þormar ÍR 9,02
Kúluvarp:
Guðm. Hermannsson KR 16,27
Kjartan Guðjónsson ÍR 13,70
Erlendur Valdimarsson ÍR 13,23
Valbjöm Þorláksson KR 12,98
Ármann Lárusson UBK 12,78
Jón Þ. Ólafsson ÍR 12,75
Hástökk án atrennu:
Jón Þ. Ólafsson ÍR 1,71
Skúli Hróbjartsson HSK 1,60
Erlendur Valdimarsson ÍR 1,60
Haraldur Ingvason ÍR 1,55
Karl Hólm ÍR 1,50
Ingimundur Ingim.son H;SS 1,45
Hástökk með atrennu:
Jón Þ. ólafsson ÍR 2,06
Kjartan Guðjónsson ÍR 1,86
Ingim. Ingimundarson HSS 1,75
Bergþór Halldórsson HSK 1,75
Erlendur Valdimarsson ÍR 1,76
Valbjörn Þorláksson KR 1,75
Kúluvarp drengja:
Pá’ll Dagbjartsson HSÞ 16,04
Hjálmar SigurðssOn ÍR 15,03
Kjartan Kolbeinsson ÍR 13,86
Jón Þ. Ólafsson
Islandsmðtið í körfuknattleik
Islandsmótinu í köruknattleik
var haldið áfram að Hálogalandi.
Voru leiknir sex leikir, í 4. 3. 2.
og 1. flokki karla. Markverðust
úrslit urðu þau að KFR sigraði
ÍR í II. flokki, en ÍR-ingar eru
margfaldir islands- og Reykja-
víkurmeistrar undanfarinna ára,
KFR hafði undirÚkin í leiknum
allan tímann og vann örugg-
lega 44-39.
4. flokkur: ÍR-Ármann 11:3.
Leikur þessara ungu drengja
var eins og úrslitin bera með
sér nokkuð ójafn, og raunar var
munurinn á liðunum rneiri en
stigamunurinn segir til um. ÍR
liðið er efnilegt og allvel leik-
andi og sýndi mörg skemmtileg
tilþrif. Ármannsliðið var á hinn
bóginn ósamstillt og greinilega
minna æft en andstæðingarnir.
HI. flokkur: ÍR-Ármann 25:16.
Barátta var alsverð í þessum
leik og stóðu stig 6:5 fyrir ÍR
í hálfleik. í byrjun síðari hálf-
leiks ná ÍR-ingar góðum spretti
og komast í 14:7 og þrátt fyrir
hetjulegar tilraunir tekst Ár-
manni ek-ki að jafna metin kom-
ust þó í 19:16, en ÍR reyndist
sterkari aðilinn í lokn og sigr-
uðu örugglega 25:16.
2. flokkur: Ármann-KR 45:40.
Skemmtileg barátta, og hressi-
legur sviptingur undir körfu,
voru einkenni þessa leiks. Ár-
mann hafði í hléi tryggt sér for-
ystu 25:17, sem nægði þeim til
Danska landsliðið valið
Danska handknattleiks-
landsliðið sem leika á lands-
leik við íslendinga 2. apríl
n.k. hefur verið valið. Leik-
urinn er sem kunnugt er síð-
aðsti leikurinn í riðli þeim
er ísland, Danmörk og Pól-
land skipa . í undankeppni
heimsmeistarakeppninnar.
Staðan í riðlunum er þann-
ig að Pólverjar hafa 4 stig,
Danir 4 en íslendingar 2. Hafa
öll liðin unnið sína heima-
leiki en tapað „útileikjum“.
Pólverjar eru þegar öruggir
um að komast í lokakeppn-
ina en vinni íslendingar Dani
með 9 marka mun komast
íslendingar áfram annars
Danir.
Fréttamaður Mbl. í Kaup-
mannahöfn hringdi í danska
landsliðið í gær en það er
skipað öllum sterkustu leik-
mönnum Dana. Liðið er þann
ig skipað:
Markverðimir, Erk Holst og
Leif Gelvad. Aðrir leikmenn
Arne Andersen, Gert Ander-
sen, fyrirliði og leikur hann
nú sinn 50. landsleik. Ivan
Christiansen, Ove Ejlertsen,
Björn Peter Hansen (og leik-
ur sinn 92. landsleik og er
engin reyndari honum í lið-
inu), Claus Koe, Max Nielsen,
Jörn Petersen, Ole Sandhoj,
Wickman og Vestergaard.
Þessir koma til íslands en
um endanlega skipun liðsins
er ekki afráðið. Fréttamaður-
inn sagði að margir danskir
blaðamenn myndu sjá og
skrifa um leikinn.
sigurs. Þrátt fyrir góða spretti
KR liðsins, var sigur Ármenn-
inga aldrei í hættu og úrslitin
45:40, voru mjög sanngjörn eftir
gangi leiksins. Beztir Ármenn-
inga voru Hallgrímur, landsliðs-
maður ens og frá er sagt annars
staðar á síðunni, og Kristinn
sem er mjög skemmtilegur bak-
vörður með góða knattmeðferð
og yfirsýn. Hjá KR voru Ágúst
Brynjólfur og Stefán, beztir.
2. flokkur: KFR-lR 44:39.
Sennilega hafa ÍR-ingar geng-
ið of sigursælir til leiks gegn
KFR í þetta sinn. Náðu KFR-
ngar góðri byrjun og komu ÍR
liðinu greinilega úr jafnvægi,
komust þeir í 8:2 eftir skamma
stund og höfðu yfir 20:15 í hálf-
leik. ÍR-ingar gerðu jörvæntingar
fullar tilraunir til þess að jafna
í seinni hálfleik en KFR hélt
vel á sínu og þegar þrjár mín-
útur voru til leiksloka og stað-
an 41-33, var sigur þeirra tryggð
tor. ÍR liðið brenndi af átta víta-
'köstum í seinni hálfleik, og má
þar finna eina orsök fyrir tapl
þeirra. Geta KFR liðsins í þess-
um leik kom greinilega ÍR á ó-
vart og mega þeir vara sig á þvi
að bóka sigur gegn liðum fyrir-
fram. KFR sýndi mjög góðan
leik með Þórir og Rafn sem
beztu menn. ÍR liðið átti frem-
ur daufan dag og skaraði þar
enginn fram úr, nema Arnar
sem hitti mjög veL
I. flokkur: ÍS-ÍR 70:54.
Með tvo fyrrverandi landsliðs
menn í sóknarbroddi voru ÍR-
ingar of sterkir fyrir s'| identa-
liðið, sem þó sýndi góðan leik,
þrátt fyrir litla æfingu, Þeir
Anton Bjarnason og Guðmundur
Þorsteinsson sem um langt skeið
var einn allra sterkasti körfu-
knattleiksmaður okkar, voru að-
almenn ÍR í leiknum og skoruðu
megnið af stigum liðsins og náðu
óhemju af fráköstum. Stúdentar
með Sigurgeir, Hrafn og Jói*
sem beztu menn, áttu engan
mótleik gegn þessum stjörnum
Framhald á bls. 27
Islenzkir skíðamenn
til keppni í Noregi
Eins . og undanfarin ár fara
íslenzkir skiðameim til keppi í
Vestur-Noregi. Keppendur frá
Akureyri keppa við íþróttabanda
lagið í Voss helgina 19.-20. marz.
Keppendur frá Akureyri verða
7. . -
Ennfremur fara frá Reykjavík:
Bjarni Einarsson, Ármanni
Ásgeir Christiansen, Víking
Georg Guðjónsson, Ármanni
Haraldur Pálsson, Í.R.
Leifur Gíslason. K.R.
Þórir Lárusson, Í.R.
I kvennaflokki:
Martha B. Guðmundsdóttir.
K.R.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir,
Árm.
Sesselj a Guðmundsdóttir,
Arm.
í drengjaflokki:
Tómas Jónsson, Ármanni
Eyþór Haraldsson, Í.R.
Haraldur Haraldsson, Í.R.
Keppnin, sem Reykvíkingarnir
taka þátt í, er hin árlega bæjar-
keppni milli Bergen-Glasgow-
Reykjavík. DrengirnirfráReykja
vik keppa á hinu árlega Vestur-
Norska unglingamóti, sem er eitt
fjölmennasta mót, sem haldið er
í Vesur-Noregi. Tómas Jónsson,
Ármanni keppti 1 fyrra og varð
nr. 5 í sínum aldurflokki. Ölf
þessi mót fara fram 1 Bavallen
við Voss.
Fararstjóri fyrir Akureyring-
unum verður Ólafur Stefánssson
en fyrir Reykvíkingunum Lórus
Jónsson Skíðafélagi Reykjavik-
ur.
Keppendur frá Akureyri eru:
Karólína Guðmundsdóttir
ívar Sigmundsson,
Reynir Brynjálfsson,
Reynir Brynjólfsson,
Viðar Garðarsson,
Magnús Ingólfsson,
Þorlákur Sigurðsson.