Morgunblaðið - 18.03.1966, Page 12
12
MORGUNBLAÐID
i
Föstudagur 18. marz 1966
HeildartillQgur Sjálf stæöis
manna í húsnæðismálum
samþykktar ■ borgar-
stjórn
Á FtTNDI borgarstjórnar í andi:
gær voru heildartillögur borg
arfulltrúa Sjálfstæðisflokks- 1.
ins í húsnæðismálum til ann-
arrar umræðu og voru þær
samþykktar með nokkrum
breytingum og viðaukum,
sem borgarstjóri hafði borið
fram í borgarráði. Heildartil-
lögur Sjálfstæðisflokksins í
húsnæðismálum eins og þær
voru endanlega sámþykktar í
borgarstjórn eru svohljóð- 2.
Byggðar verði 100 litlar
en hagkvæmar íbúðir
fyrir aldrað fólk samkv.
áætlun er samin hefur
verið um málefni aldr-
aðra. Fyrsti áfangi verð
ur byggður við Austur-
brún.
Byggðar verði 200 litlar
íbúðir tveggja, þriggja
og fjögurra herbergja
að stærð. Verði þær
eign Byggingarsjóðs
Reykjavíkurborgar og
leigðar efnalitlum fjöl-
skyldum, þ.á.m. ungum
lijónum.
3. Byggðar verði um 50
íbúðir, tveggja, þriggja
og fjögurra herbergja
að stærð og þær seldar
með hagkvæmum kjör-
um eða leigðar sbr. 2.
Stórhýsi í byggingu við Austurbrún á vegum Reykjavíkur-
borgar, með 69 íbúðum, ætlað öldruðu fólki, öryrkjum og
einstæðum mæðrum og lokið verður við í vor.
Fjölbýlishús, sem Reykjavíkurborg hefur látið byggja við Kleppsveg með 54 íbúðum til
útrýmingar heilsuspillandi húsnæði. Tvær bygginganna eru komnar í notkun, þriðju bygg-
ingunni verður lokið n.k. mánaðamót.
lið skv. nánari ákvörC-
un borgarráðs.
4. Byggingarsjóður Reykja
víkurborgar veiti hag-
stæð lán út á 300—400
íbúðir allt að kr. 100.
000.00 á íbúð, enda sé
um að ræða litlar íbúð-
ir er falla undir lán-
veitingu Húsnæðismála
stjórnar.
5. Lán skv. 4. lið verði
m.a. veitt ungu fólki er
stofnar til samtaka um
byggingu fjölbýlishúsa,
félögum og stofnunum
sem byggja leiguíbúðir
fyrir tiltekna hópa
fólks, t.d. gifta stúdenta,
aðra námsmenn eða ör-
yrkja.
Borgarstjórn felur borgar-
ráði að sjá um framkvæmd á
tillögum þessum þar á meðal
að afla lánsfjár sbr. 1. nr.
10/1965 sbr. reglugerð dags.
20. jan. 1966 og ákveða leigu-
og söluskilmála, lánskjör og
annað, er máli skiptir. Frá
umræðum og tillögum minni-
hlutaflokkanna verður skýrt
síðar.
Miklar umræður í borgar
stjórn um togaraútgeri
- Skúii IViagnússon seldur
grískum aðilum
Á FUNDI borgarstjórnar í gær
spunnust allmiklar umræður um
vandamál togaraútgerðarinnar
vegna samþykktar borgarráðs í
gær að taka kauptilboði, sem
borizt hefur í togarann Skúla
Magnússon, en hann hefur verið
á sölulistum erlendis um eins árs
skeið. Grískur aðili hefur nú
gert kauptilboð í skipið að fjár-
hæð 12.500 sterlingspund.
Útgerðarráð Reykjavíkur sam
þykkti á fundi sínum í gær, að
taka kauptilboði þessu og var
það staðfest af borgarráði og
borgarstjórn síðar um daginn.
Við afgreiðslu málsins í útgerð-
arráði kvaðst Pétur Sigurðsson
telja sjálfsagt, að selja þau skip,
sem úrelt væru orðin, en jafn-
framt bæri að framkvæma alls-
herjarathugun á rekstrargrund-
-velli togaranna. BÚR bæri að
hafa samráð við aðrar togaraút-
gerðir og ríkisvaldið um leigu á
skuttogara svo að sjá mætti,
hvort sérstakir vankantar væru
á rekstri slíkra skipa við okkar
aðstæður.
í ræðu Geirs Hallgrímssonar,
borgarstjóra, á fundi borg-
arstjórnar í gær kom fram, að
það kostar árlega kr. IV2 milljón.
að hafa togarann Skúla Magn-
ússon bundinn við bryggju og
jafnframt að fyrir dyrum stæði
dýr klössun á honum. Taldi borg
arstjóri því eðlilegt að taka kaup
tilboði þessu.
Guðmundur Vigfússon (K)
sagði, að hér væri smánarverð
í boði. Er rétt að farga togur-
um án þess að taka ákvörðun
um endurnýjun flotans? Skut-
togarar eru framtíðin sagði borg-
arfulltrúinn. Ég mótmæli því, að
togarar séu gefnir úr landi. Þess
vegna flutti ég tillögu í útgerð-
arráði ásamt Björgvin Guð-
mundssyni um kaup á skuttog-
urum og flyt nú tillögu ásamt
Óskari Hallgrímssyni um kaup
eða leigu á skuttogurum.
Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri, sagði, að engum þyrfti
að koma á óvart, að tillaga væri
gerð um sölu á Skúla Magnús-
syni. Meira en ár væri liðið síðan
útgerðarráð og borgarstjórn
hefðu samþykkt að leita tilboða í
tvo togara. Annar hefur þegar
verið seldur, hinn hefur verið á
sölulistum víða og ekkert tilboð
komið fyrr en nú. Þetta er að
vísu ekki mikið verð en þetta
er ekki gjöf. í það minnsta hefur
enginn viljað þiggja þessa gjöf.
Geta má þess, að bókfært verð
skipsins, sem er 18 ára, er tæpar
400 þús. kr. Kostnaður við tog-
ara, sem liggur bundinn við
bryggju nemur nú IV2 millj. kr.
árlega. Ef hann liggur inn í Sund
um nemur kostnaðurinn um
milljón, ef viðhald er nægilegt.
Spurningin er því, hvort við
viljum selja skipið fyrir þetta
verð og losna við árlegan kostn-
að af því eða eiga skipið og láta
reykvíska skattgreiðendur greiða
kostnað af því. Því miður voru
allir togarar BÚR nema einn
reknir með halla 1964 og þ. á. m.
Skúli Magnússon, en hallinn á
honum nam 3,9 millj. kr. Minnst
hefur verið á verðmæti tækjanna
í skipinu. Skv. upplýsingum frá
forstjóra BÚR er það af og frá,
að hægt sé að selja tækin sér-
staklega Lítil eftirspurn er eftir
þeim og miklar breytingar á slík
um tækjum frá ári til árs.
Togararnir hafa mikla þýð-
ingu og geta verið mikilvægir
fyrir frystihúsin sérstaklega á
sumrin. En frystihúsin hafa ekki
nema að litlu leyti byggt á afla
togaranna, þótt til þess geti auð-
vitað komið í ríkara mæli. Það
breytir hins vegar ekki því, að
rétt er að selja gamalt skíp, sem
á að fara í dýra klössun. Ég fæ
ekki séð, að það sé skilyrði fyrir
ákvörðun um sölu á gömlu
skipi, svo að reykvískir skatt-
greiðendur séu firrtir kostnaði
við það, að taka ákvörðun um
kaup á öðru skipi. Áður en við
kaupum ný skip verður að liggja
fyrir að það borgi sig. Það er
engin ástæða til þess fyrir sveit-
arfélag að kaupa gjaldeyri, sem
slíkt skip skapar á svörtum mark
aði.
Það er illa farið, að svo virðist
sem meiri hluti Alþingis sé and-
vígur því að hleypa togurum inn
í landhelgi. Meðan svo er má
búast við því að úr togaraútgerð
dragi.
Óskar Hallgrímsson (A) spurði
hve marga togara þyrfti að selja
til þess, að meifi hlutinn áttaði
sig á því, hvort kaupa bæri ný
skip. Hann kvaðst ekki vilja
leggjast gegn því að selja gömul
skip en þau.þarf að endurnýja,
sagði borgarfulltrúinn. Ég er
ekki reiðubúinn til þess að sam-
þykkja þessa sölu meðan meiri
hlutinn vill ekki gera ráðstaf-
anir til öflunar nýrra skipa.
Kristján Benediktsson (F)
sagði, að ýmsir töluðu um það
sem lausn á vandamálum togar-
anna að hleypa þeim í landhelgi.
Ég óttast, að veiði togara í land-
helgi muni hafa skaðleg áhrif á
fiskstofninn. Ég tel ennfremur
að slíkar veiðar mundu ekki
breyta það miklu, að það gerði
togarana reksturshæfa.
Mér finnst liggja í loftinu að
næsta skrefið verði að selja
Pétur Halldórsson en það er
vissulega eðlilegt að tengja sam-
an sölu gamalla skipa og kaup
nýrra. Það er hlægilegt, að ekki
skuli vera hægt að fá meira fyrir
togara en IV2 millj.
Einar Ágústsson (F) sagði, að
tímabært væri að ákveða fram-
tíð BÚR. Aðrar þjóðir smíðuðu
ný og fullkominn skip og rekstur
þeirra á sömu miðum og okkar
virðist ganga vel. Við eigum að
ákveða nú þegar að kaupa ný og
hentug skip, sagði borgarfull-
trúinn.
Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri, sagði, að verðið væri lágt
en það væri það hæsta, sem
fengizt hefði fyrir þetta skip.
Menn yrðu að horfast í augu við
það, að hlutur væri ekki meira
virði víð sölu en kaup-
endur vildu gefa fyrir hann.
Ekki er hægt að búast við, að
útgerðarskilyrði þessa skips
batni í framtíðinni. Það eru ekki
nein bjargráð að ákveða nú að
kaupa einn eða fleiri skuttogara.
Til þess er ekki ástæða fyrr en
fyrir liggur að rekstur slíks skips
mundi bæta hag BÚR.
Vonandi eru erfiðleikar togar-
anna tímabundnir erv jafnvel
þótt birti í lofti erum við sam-
mála um, að þessi umræddu skip
eru úrelt. En minnihlutaflokk-
arnir virðst vilja, að útsvars-
greiðendur greiði árlega IV2
milljón kr. með þessu skipi.
Árið 1964 greiddu ríki og
Reykjavíkurborg 200% álag á
þann gjaldeyri, sem Skúli Magn-
ússon aí'laði það ár. Þorsteinn
Ingólfsson aflaði það ár fyrir
10.2 millj. Ríkissjóður greiddi til
hans 2,5 millj. og Borgarsjóður
4.2 millj. Til viðbótar því sem
skipið aflaði voru því greiddar
6,7 millj. eða 67% ofan á skráðu
gengi.
Ef við viljum halda togaraút-
gerð áfram er að vísu ekki um
annað að ræða en greiða ákveðið
álag á aflamagn skipanna. En þá
á að gera það úr sjóði lands-
manna allra en ekki leggja það á
íbúa eins sveitarfélags. Borgar-
stjóri ræddi síðan hugsanlegar
veiðar í landhelgi og sagði: Ég
veit ekki betur en fyrir liggi álit
fiskifræðinga þess efnis að það
mundi ekki skaða fiskstofnana
að leyfa togurum okkar að veiða
á ákveðnum svæðum í takmark-
aðan tíma ársins undir eftirliti
í landhelgi.
Ég er alveg sannfærður um
að það bætir afkomu BÚR að
Framhald á bls. 5