Morgunblaðið - 18.03.1966, Síða 26
26
MORGUNBLADIÐ
Föstudagur 18. marz 1966
Inter mætir Real
og Manch. Utd Partizan
Dreg/'ð um lokaleíki um Evrópubikara
1 GÆR voru lið dregin saman
í undanúrslit um Evrópubikar-
ana í knattspyrnu. Sigurvegar-
amir frá í fyrra, Inter frá Milano
fá Real Madrid (sem 5 sinnum
hefur unnið bikarinn). í hinum
undanúrslitariðlinum mætast
ensku meistararnir Manch. Utd.
og júgóslavneska liðið Partizan
frá Belgrad.
í undanúrslitum um bikar bik-
armeistara mætast Borussia frá
Þýzkalandi og núverandi hand-
hafar bikarsins, West Ham. Hinn
undanúrslitaleikurinn verður
„brezkur“. Þar mætast Liver-
pool og Celtic.
Inter Milano hefur mikla mögu
leika til að vinna Evrópubikar-
MOLAR
inn í þriðja sinn í röð. Fyrir
tveim árum vann liðið Real
Madrid í úrslitaleik þessarar
keppni með 3-1 og í fyrra vann
liðið Benefica í úrslitum með
1-0. Inter et enn bezta lið ítalskr
ar knattspyrnu, og liðið sem
byggt er upp kringum Spánverj-
ann Luis Suarez, er í mjög góðri
þjálfun. Sex leikmenn liðsins
eru í ítalska landsliðinu sem
mætir Frökkum á laugardaginn.
Real Madrid er hins vegar það
liðanna er mesta reynslu hefur,
en liðið hefur ekki sama styrk-
leik og á frægðardögum Pusk-
asar.
Hinn undanúrslitaleikurinn er
óráðnari. En 8-3 sigur Manch.
Utd. yfir Benefica á dögunum
(tveir leikir) sýnir að ætla má
enska liðinu sigur. Hvorugt lið •
anna hefur leikið í úrslitaleikj-
um unri Evrópubikar fyrr og eru
því nýliðar í lokabaráttunni.
Ármann og ÍR yfirburða-
sigurvegarar,
Sigruðu IKF og KFR 82: 56
og 104:82
„INGO“ Johannsson er ekki
alveg hættur. Hann ráðgerir
að leika sýningarleik gegn
þýzka Evrópumeistaranum
Karl Mildenberger. Fer leik-
urinn fram í sambandi við
mikið hnefaleikamót sem Ingi
mar stendur að og fcr það
fyrsta stórverkefni hans síð-
an hann gerðist framkvæmda
stjóri hnefaleikamanna.
FINNSKI langstökkvarinn
Rainer Stenius stökk 7.80 m á
innanhúsmóti í Detroit á dög-
unum. Er árangurinn met á
háskólamóti innanhúss í
Bandaríkjunum. Þetta er
fjórða ár Steiniusar við nám
i Bandaríkjunum.
Bikarkeppni í
körfuknattleik
BIKARKEPPNI Körfuknatt-
leikssambands fslands fer fram
á tímabilinu 1. apríl til 1. nóv.
1966.
Þátttökutilkynningar skulu
hafa borizt til stjórnar K.K.Í.
fyrir 1. apríl n.k. Pósthólf 864,
Reykjavik.
Á miðvikudagskvöld voru leikn-
ir tveir fyrstu leikir síðari um-
ferðarinnar á íslandsmótinu í
Körfuknattleik I. deild. Áttust
við Ármann og ÍKF og sigruðu
Ármenningar með yfirburðum
82:56. Hinn leikurinn var milli
ÍR og KFR sem á undanförn-
um árum hafa marga harða
hildi háð. Að þessu sinni lauk
leiknum með yfirburðasigri ÍR
104:82, sem er mjög há stigatala
hjá íslenzkum körfuknattleiks-
liðum, og bendir til þess að
varnir liðanna hafi ekki verið
í lagi.
Ármann — ÍBK 82:56.
Rétt í upphafi voru liðin nokk-
uð jöfn en síðan tóku Ármenn-
ingar góðan sprett og náðu al-
gerum yfirburðum, og var ekki
um neina keppni að ræða milli
liðanna. ÍKF liðið sýndi þó góða
baráttu og missti aldrei kjark-
inn og er það afrek út af fyrir
sig. Beztir í liði Ármanns voru
Birgir, Davíð og Hallgrímur, en
hjá ÍKF bar mest á Friðþjófi
sem skoraði 29 stig, en hann var
þó full skotdjarfur, einnig átti
Einar góðan leik.
ÍR—KFR 104:82.
tökum á leiknum og höfðu í
hálfleik náð yfirburðastöðu 52:30
Síðari hálfleikur var mun jafn-
ari og beittu KFR-ingar nú
maður mann vörn og gafst hún
mun betur en svæðisvörnin sem
þeir léku í fyrri hálfleik. Stig
í síðari hálfleik féllu jöfn 52:52,
svo aldrei er að vita hvernig
farið hefði ef KFR hefði notað
rétta vörn allan leikinn. Flest
stig hjá ÍR skoruðu Hólmsteinn
28, og Agnar 26. Hjá KFR skor-
uðu Þórir 34 og Einar 21.
Ionanlélogsinót
MIÐVIKUDAGINN 9. marz var
haldið innanfélagsmót í KR-
heimilinu. Keppt var í þremur
greinum frjálsra íþrótta.
Úrslit urðu sem hér segir:
Langstökk án atrennu:
5 Ólafur Sigurðsson KR 2.88 —
KNATTSPYRNUMENN fást A
við fleira en að sparka bolta. 1
Hér er snillingurinn frægi frá I
Brasilíu, Pele, í áheyrn hjá
páfanum og heilsar honum á it
viðeigandi hátt.
Pele hefur verið í brúð- f
kaupsferð í Evrópu og farið v
um V-Þýzkaland, Austurríki, u,
Italíu og til Parísar. Ungu/j
hjónin urðu að stytta dvöíl
sína í París um fimm daga, K
því félag Peles, Santos, hafði U;
gengið mjög illa í kappleikj- J
um sínum heima fyrir meðan V
hann var á brott — og Pele V
var beðinn að flýta sér heim. u
Pele sagði að hann hefði í
ekki fengið tilboð frá neinul
liði í Evrópu og hann hefði ■
aðeins horft á knattspyrnu á£
sjónvarpsskermi. 7j
KR í frjalium
1 Úlfar Teitsson KR 3.05 m
2 Valbj. Þorláksson KR 3.02 —
3 Guðbr. Benditsson HSS 2.98 —«
4 Nils Zimsen KR 2.92 —
Þrístökk án atrennu:
1 Úlfar Teitsson KR 9.12 m
2 Ólafur Guðmundss. KR 8.84 —
3 Ólafur Guðmundss. KR 8.51 —
Stangarstökk:
1 Valbj. Þorláksson KR 3.7 o m
2 Páll Eiríksson KR 3.70 —
3 Ólafur Guðmundss. KR 3.40 —
(Keppendur voru 11 alls).
Brummel
meiddist oitur
VALERY Brummel, sovézkl
heimsmethafinn í hástökki hefur
orðið fyrir því óhappi að slasast
öðru sinni á hægra fæti.
Brummel lenti í bílslysi fyrir
nokkrum mánuðum og meiddist
þá mjög illa á fætinum. Hefur
hann hvað eftir annað verið til
aðgerða á skurðarborði, en var
nú á batavegi. Gekk hann um
á hækjum og var að reyna að
ganga niður stiga er hann féll
og meiddist aftur. Er hætta talin
á að þetta síðasta slys muni binda
endi á allar vonir um, að hann
keppi framar.
ÍR-ingar náðu strax í upphafi
Prúömannleg framkoma launuð
Bandarísk stúlka, enskt og þýskt knattspyrnu-
lið og ungverskur dómari fá UIMESCO bikarana
ÓVENJULEG verðlaunaveit-
ing fór fram við hátíðlega at-
höfn í gær. Bandarískri frjáls
íþróttakonu, ensku og vestur-
þýzku knattspyrnuliði svo og
ungverskum dómara voru af-
hent verðlaun og heiðruð fyr-
ir framúrskarandi íþrótta-
mannslega framkomu á árinu
1955. Bikarar þeir sem hér
um ræðir eru gefnir af
UNESCO til minningar um
stofnanda Olympíuleikanna í
nútímamynd, baron de Cou-
bertin.
Þeir sem heiðraðir voru
með bikurunum voru: Willye
White, bandarísk stúlka, sem
leggur stund á langstökk, fyr-
irliðar enska liðsins West
Ham, Bobby Moore, og fyrir-
liðl þýzka lðsins Múnchen
1860, Peter Radenkovic svo
og Ungverjinn Istvan Zsolt,
sá er dæmdi leik áðurnefndra
liða í úrslitakeppni um Ev-
rópubikar bikarmeistara 1965.
Willye White er 27 ára göm
ul, þeldökk hjúkrunarkona
frá Chicago. Hún hlaut helð-
urinn vegna framkomu henn-
ar á meistararhóti New York.
Sterkasti keppinautur hennar
var OL-meistarinn og heims-
meibhafinn Mary Rand frá
Bretlandi. Mary Rand var
óheppin í stökkum sínum og
tókst ekki að komast í úr-
slitakeppnina. En Willye
White gekk þá til og sýndi
dómurunum fram á að ólög-
lega hefði verið að stökk-
plankanum búið, og það vald
ið Mary Rand erfiðleikum.
Dómararnir gáfu henni ann-
að tækifæri og þá tókst bet-
ur til og svo fór að Mary
Rand vann keppnina, en
White hlaut 2. sætið.
Úrslitaleikurinn um Ev-
rópubikar bikarmeistara í
London milli West Ham og
Múnchen — sem margir
knattspyrnuunnendur hér
hafa séð á kvikmynd KSf —
er af mörgum talinn „leikur
aldarinnar" bæði vegna fag-
urs leiks og sérstaklega prúð-
mannlegrar framkomu beggja
liða og dómara. Einnig hlutu
áhorfendur mikið lof fyrir
prúða framkomu. Þessi ágæti
leikur og liðsmenn í honum
þótti svo af bera að hann er
verðlaunaður með þremur bik
aranna.
Því má við bæta að verð-
launaafhending sem þessi er
ekki einsdæmi þótt næsta ný-
stárleg sé. Og sannarlega er
það ekki síður tilgangur
íþróttanna að skapa prúða
framkomu en afrek ein unnin
á einhvern hátt. íþróttafólk
verður ekki síður eftirminni-
legt fyrir prúða framkomu
en góð afrek.