Morgunblaðið - 28.04.1966, Side 31
f’immtuíagur 28. apríl 1966
MORGUNBLAOIO
31
Ríkisstjóinin lstur undirbún
bumvnip um höiunduiiétt
SVO sem áður hefur komið fram
í fréttum, samþykkti almennur
fundur Rithöfundasambands Is-
lands, haldinn 18. janúar 1966,
þau tilmæli til félaga þess og
annarra er við bókritun og þýð-
ingar fást, að láta frá og með
1. maí 1966 prenta á bækur sín-
ar bann við því að þaer verði
lánaðar út af almenningsbóka-
söfnum.
Hinn 22. apríl sl. tilkynnti
menntamálaráðherra stjórn Rit-
höfundasambands Islands þá
ákvörðun ríkisstjórnarinnar, að
láta þegar undirbúa frumvarp til
laga „úm höfundarétt rithöfunda
vegna útlána og afnota íslenzkra
bóka í almennum söfnum“, er
að meginstefnu verði byggt á
þeirri löggjöf, sem nú gildir á
Norðurlöndum á þessu sviði.
Verði slíkt frumvarp lagt fyrir
Alþingi, er það kemur saman í
haust.
Stokkhólmi, 25. apríl — AP'
— Mynd þessi er frá fundi I
utanríkisráðherra Norður-1
landanna, sem haldinn var í,
Stokkhólmi. Á henni eru talið
frá vinstri: Emil Jónsson, ‘
utanríkisráðherra, Per Hækk- |
erup frá Danmörku, J. O. |
Söderhjelm frá Finnlandi, .
Thorsten Nilsson frá Sviþjóð,
og John Lyng frá Noregi.
Londsþíng S.Í.
LANDSÞING Slysavarnafélags
íslands, hið 13. í röðinni hefst í
dag með guðsþjónustu kl. 2. Dr.
Jakob Jónsson predikar.
Verður síðan þingað í húsi
Slysavarnarfélagsins á Granda-
garði. Á landsþinginu, sem vænt
anlega stendur yfir í fjóra daga,
eru mættir fulltrúar slysavarna-
félaga og deilda á öllu landinu.
Gromyko fær áheyrn hjá Páli páfa
— Gromyko leggur til að haldiun
verði fisndur uan öryggismát
Páfagarði, 27. apríl — NTB —
Páll páfi VI. og Andrei Grom
yko, utanríkisráðherra Sovétríkj
anna ræddust við í 40 mínútur
á miðvikudag. Þetta er í fyrsta
skiptið, sem valdamaður frá
kommúnistaríki fær áheyrn
hjá æðsta leiðtoga kaþóisku
kirkjunnar. Talið er hugsaniegt,
að heimsókn þessi geti markað
tímamót i samskiptum páfadórns
og kommúnistiskra rikja. Heim-
sókn Gromykos var sögð vera
— Evelyn Waugh
Framhald af bls. 17.
Eliots, yfirborðsglæsimennska
og andlegt tómlæti samtfara
siðleysi í þjóðfélagi því er
Waugh þekkti bezt til, heimi
brezku yfirstéttarinnar á ár-
unum milli heimsstyrjaldanna.
Bækur þessar eru létt og lipur-
lega skrifaðar en kaldhæðnin
er þegar komin til skjalanna,
aðalsmerki Waughs. í „Black
Mischief“ sögu um Afríku, sem
Waugh skrifaði nokkru síðar
eftir dvöl í Ethíópíu, sem
fréttaritari Daily Mail, lýsir
hann því t.d. hvernig sögu-
hetjan, Basil Seal, leitar unn-
ustu sinnar í landi mannæta,
sem fagna honum vel og leiða
til borðs með sér. Er ljúffeng
máltíðin er á enda fær hann
að vita að aðalrétturinn hafi
einmitt verið hin horfna unn-
usta.
Er frá leið urðu sögur
Waughs æ innhverfari og heim
spekilegri og í „A Handful of
Dust“ lýsir hann til dæmis
manni sem er svo fanginn af
fortíðinni að hann getur ekki
lifað í nútíðinni og lýkur loks
þar sögunni, sem frægt er orð-
ið að hann sér fram á að verða
að dveljast um aldur og ævi í
frumskógarrjóðri með vitfirr-
ingi einum sem neyðir hann til
þess að lesa fyrir sig úr verk-
um Dickens sýknt og heilagi.
Árið 1930 tók Evelyn Waugh
kaþólska trú og hyllir hana í
„Brideshead Revisited”, sem
út kom 1945 og hefur að geyma
sumt það sem Waugh hefur
fegurst skrifað og ljóðrænast.
Sú bók hefur orðið einna vin-
sælust bóka hans. Próförkun-
um að henni var varpað niður
til Waugh í fallhlíf þar sem
hann hafðist við í helli einum í
Júgóslavíu með skæruliðum
Titós. Waugh gekk vasklega
fram í stríðinu og var sæmdur
heiðursmerkjum fyrir fram-
göngu sína. En stríðið víkkaði
líka sjóndeiidarhring hans.
stækkaðl manninn á vissan
hátt, eins og hið mikla ritverk
hans, 972 blaðsíðna Skáldsaga í
þremur bindum, „Men at
Arms“, „Officers and Gentle-
man“ og „End of the Battle"
ber með sér. Þetta ritverk er
af mörgum talið bezta brezka
skáldsagan sem skrifuð hefur
verið um heimsstyrjöldina síð-
ari.
Síðustu árin dró Waugh sig
æ lengra inn í skel sína, skildi
20. öldina, sem hann hafði allt-
af lagt á megna fæð, utangarðs
en bjó um sig í 18. aldar húsi
utan við Lundúnaborg með
börnum sínum sex sem hann
kvaðst tala við „í tíu, að ég
vona lotningarvekjandi mínút-
ur“ dag hvern en ekki meir.
Waugh harðneitaði að læra að
aka bifreið, svaraði yfirleitt
ekki í síma og lét stundum sjá
sig úti við með heljarlangt og
mikið heyrnartól að gömlum
sið. Hann hafði líka af því
staka skemmtan að ergja Am-
eríkumenn og lýsti þvi m.a.
einhverju sinni yfir, að eng-
- inn bandarískur rithöfundur
stæði Erle Stanley Gardner á
sporði.
Árið 1948 skrifaði Waugh
metsölubókina „The Loved
One“, þar sem hann skopast
að útfarasiðum og greftrana-
viðhöfn í Hollywood vestur,
en síðan hefur fátt eitt komið
frá hans hendi. Það tók hann
rúm tíu ár að ljúka ritverkinu
mikla um heimsstyrj Sldina
sem áður greindi því á þeim
tíma var hann farinn að kenna
taugaveiklunar, sem m.a. lýsti
sér í ofsjónum og ókennilegum
röddum. Um það tímabil skrif-
aði Waugh eina söguna til,
„The Ordeal of Gil'bert Pin-
fold“, ólíka öllum öðrum bók-
um hans. En 1964 var hann vel
á veg kominn með sjálfsævi-
sögu sína í þremur bindum og
þá kom út fyrsta bindið „A
Little Learning". Er hann lézt
á páskadag var hann að vinna
að öðru bindinu, sem átti að
heita „A Little Hope“.
óopinber, en þó hefur borizt sú
tilkynning frá páfagarði, að sið
ar verði gefin út opinber yfir-
lýsing varðandi viðræðurnar.
Gromyko ræddi við blaða-
menn eftir fundinn og lagði
hann til, að þjóðhöfðingjar allra
Evrópuríkjanna kæmu saman til
fundar, til að ræða öryggismál
Evrópu. Hann lagði áherzlu á
að Bandaríkin ættu ekkert er-
indi á þá ráðstefnu.
Undanfarna daga hefur Grom
yko verið í opinberri heimsókn
á ítalíu og hefur m.a. rætt við
Amitore Fanfani, utanríkisrað-
herra. Að sögn AP fréttastof-
unnar, undirrituðu þeir sam-
þykkt um efnahags- og vísinda-
leg samskipti Ítalíu og Sovét-
ríkjanna. Á miðvikudag fékk
Gromyko áheyrn hjá Páli páfa
VI. og ræddust þeir við í 40
mínútur. Heimsókn Gromykos
var sögð óopinber, en kurteisis-
heimsókn. Það vakti athygli
— Rhodesia
Framhald af bls. 1
vanda. Wilson svaraði og sagði
að allar hinar umdeildu aðgerð-
ir ríkisstjórnarinnar hefðu mið-
að að því að skapa ástand er
leitt gæti til lausnar málsins.
Hann kvað mestu hafa þar um
valdið olíubannið á Ródesíu,
sem komið var á í desemiber og
aðgerðir Breta í Beira nýverið í
umboði S.þ.
Ekki er vitað, hvað helzt verði
tekið til meðfeðar í undir'bún-
ingsviðræðum þessum og sagt að
margur þrándur sé enn í götu
samkomulags milli 'stjórna
Wilsons og Smiths. Er m.a. bent
á þá yfirlýsingu Wilsons í þing-
inu að brezka stjórnin geti ekki
fallzt á neina þá endanlega lausn
málsins er feli í sér þegjandi
samkomulag við ólögmætum að-
gerðum Ródesíustjórnar, er hún
lýsti einhliða yfir stjálfstæði 11.
nóvember í fyrra.
Leiðtogi stjórnarandstöðunnar
í Ródesíu, Chad Chipunza, sagði
í Salisbury í dag að hann fagn-
aði því að viðræður þessar hæf-
ust og kvaðst vona að þær yrðu
árangursríkar.
Ródesíustjórn hefur ekkert
um viðræðurnar sagt enn og tals
maður stjórnarinnar sagði í dag
að engrar yfirlýsingar væri að
vænta frá henni það seih eftir
væri kvölds.
Frá Jóhgnnesarborg berast
þær fregnir að S-Afríka taki
viðræðunum fagnandi og sé að
því mikill léttir að nú skuli
horfa til lausnar Ródesíumáls-
ins, sem mjög hafi bagað lands-
menn á ýmsan hátt.
fréttamanna, að frú Gromyko
gekk ekki fyrir páfa. Viðstadd-
ur fund páfa og Gromykos, var
sendiherra Sovétrík.janna. á ítal
íu. Fundurinn stóð yfir í mun
legri tíma en páfi er vanur að
verja í heimsóknir erlendra þjóð
höfðingja, og er honum lauk, var
gefin út tilkynning um það, að
síðar yrði birt yfirlýsing varð-
andi fundinn.
Að fundinum loknum boðaði
Gromyko fréttamenn á sinn
fund í sovézka sendiráðinu í
Róm. Þar sagði Gromyko að páf-
inn og hann hefðu orðið sammála
um, að hin ýmsu ríki yrðu að
vinna saman að varðveizlu frið-
ar í heiminum, án tillits til stjórn
málaskoðana. Gromyko gat þess,
að hann hefði hitt Pál páfa í
New York í október sl„ er
kirkjuleiðtoginn heimsótti Sam-
einuðu þjóðirnar. Þeir hefðu þá
skipts á fáeinum orðum og að
heimsókn sín til páfagarðs nú,
hefði verið farin til að treysta
þá vináttu, sem þá hefði tekizt
með þeim. Þegar Gromyko var
spurður hvort sovézka stjórnin
hyggðist bjóða Páli páfa til
Moskvu, kvaðst hann ekkert
geta sagt um það að svo stfiddu.
Gromyko sagði fréttamönnum,
að Sovétríkin legðu eindregið
til, að fulltrúar eða þjóðhöfð-
ingjar allra Evrópuríkjanna
kæmu saman til fundar, að ræða
öryggismál Evrópu. Hann kvað
brýna nauðsyn bera til þess, að
þjóðir þessar ræddu af einlægni
hin mörgu sameiginlegu vanda-
mál. í því sambandi nefndi
hann útbreiðslu kjarnorkuvopna
brottflutning erlends herliðs af
evrópskri grund og Þýzkalands
vandamálið. Gromyko lagði á-
herzlu á, að Bandaríkin ættu
ekkert erindi á þennan Evrópu-
fund. I desember árið 1964, báru
Pólverjar fram svipaða tillögu
um Evrópufund, en henni var
tekið fálega af flestum Evrópu-
ríkjunum vestan járntjaldsins.
— S-Vietnam
Framhald af bls 1
hvetja það til að veita Banda-
ríkjamönnum stuðning í barátt-
unni fyrir friði í landinu. Fund-
ur þessi var haldinn í úthverfi,
sem kaþólskir búa í. Ekki kom
til neinna óeirða.
Sprengingar urðu á þremur
stöðum í Saigon á miðvikudag.
Sjö manns létu lífið en um 30
særðust. Á síðustu tveimur ár-
um, hafa VietCong launmorð-
ingjar vegið meira en 4 þúsund
starfsmenn stjórnarinnar í S-
Vietnam, og eru í þeim hópi
mikið af embættismönnum í hin-
um ýmsu héruðum og bæjum.
Á fundi sínum sama dag fjall-
aði stjórn Rithöfundasambands-
ins um málið. Samþykkti hún
að falla frá áður boðuðum að-
gerðum um útlánabann bóka úr
almenningssöfnum og ákvað
jafnframt að tilnefna menn af
sinni hálfu til samningar frum-
varpsins.
— Úr borginni
Framhald af bls. 12
viku, fyrir 15 ára og eldri
og á sunnudögum frá kl. 4-7
fyrir 13-15 ára unglinga.
Unglingarnir verða að sýna
nafnskírteini við innganginn
til þess að sanna aldur sinn.
Skilyrði fyrir þátttöku í
starfi á vegum Æskulýðsráðs
er að sjálfsögðu algjört bind
indi og stranglega er bannað
að reykja í húsakynnum ráðs
ins. Ekki er gert ráð fyrir því
að Æskulýðsráð sjái um
íþróttaiðkanir unglinga —
það gerir íþróttaráð Reykja-
víkur. Ýmislegt fleira hefði
þurft að nefna en ég vil
hvetja foreldra og forráða-
menn unglinga til þess að
kynna sér starfsemi Æsku-
lýðsráðs, t.d. með því að lesa
upplýsingarit ráðsins, Unga
Reykjavík ,eða hafa samband
við skrifstofu ráðsins, sem
fúslega veitir allar upplýs-
ingar um starfsemina.
— En fer ekki sumarstarf-
ið að hefjast, Reynir?
— Jú, það fer brátt að
byrja. Við munum efna til
búvinnunámskeiða, rekin
verður ferðamiðlun og stanga
veiðiklúbbur. Nokkrir klúbb
ar hyggja á ferðalög, unnið
verður að æskulýðsbúðamál-
um og siglinga- og róðraað-
stöðu við Fossvog. Nánari
frásagnir af sumarstaiNfi
Æskulýðsráðs munu birtast í
upplýsingaritinu Unga Reykja
vík, sem koma mun út á
næstunni.
— Kvikmyndir
Framhald af bls. 14
in líður áfram í þögn sinni eða
klukka er sett af stað. Kvik-
myndatökumaður í þessari mynd
er Sven Nykvist, svo sem í seinni
myndum Bergmans, og þeijra
samstarf hefur náð góðum ár-
angri.
Ingrid Thulin fer með hlut-
verk Ester. Þessari ágætu leik-
konu tekst að skapa minnisstæða
persónu. Hún dregur upp sterka
og heilsteypta mynd af þessari
hrelldu og einmana sál. Gunner
Lindblom leikur Önnu. Hún nær
góðum tökum á þessari haturs-
fullu systur, sem virðist lialdin
óslökkvandi girnd. En hvað minn
isstæðastur verður Jörgen Lind-
ström í hlutverki Jóhanns. og er
það nánast furðulegt, hvað Berg
man hefur tekizt vel með hann.
Með hlutverk gamla þjónsins fer
Hákan Jahnberg og þjónsins af
veitingahúsinu Birger Malmst.en.
Sem í skuggsjá endar í tölu-
verðri von, þegar Minus segir:
Pabbi hefur talað við mig. En sú
von virðist slokknuð að endaðti
þessari.
Þi'gnin er þekktasta og um leið
umdeildasta mynd Bergmans. —
Hann liefui sætt mikilh gagn-
rýni fyrir þá sök, að hanr gangi
feti framar en velsæmið leyfi;
myndin sé klám. Víða hafa nokk
ur atriði myndarinnar verið stytt
eins og t.d. sjálfsfróunaratriðið
og það i kvikmyndahúsinu. (Hér
eru þessi atriði óstytt). — Berg-
man heldur því hinsvegar fram,
að listamaður hafi leyfi til að
segja og sýna það, sem hann
telur nauðsynlegt fyrir list sína.
Á það verði ekki lagðar neinar
hömlur. Það sé nauðsynlegt að
stjaka við fólki, neyða það til
sjálísskoðunar og að taka af-
stöðu. Og ef það hefur tekizt, þá
hafi myndin náð tilgangi sínum.
Jón Ormar Ormsson.