Morgunblaðið - 28.05.1966, Side 18
18
MORGUNBLADIÐ
Laugardagur 28. mai 1966
Kristín Jósefsdóttir Ijós-
móðir —
MEÐ ÖRFÁUM orðum minmist
ég nú ijmrnu minnar, sem jarð-
sett verður frá Kirkjuvogs-
kirkju í Höfnum laugardaginn
28. maí. Hún var fædd 11. maí
1878 að Syðrivöllum á Vatnsnesi
í V-Húnavatnssýslu, eða liðlega
88 ára, þegar hún lézt þann 2i2.
þessa mánaðar, í þann mund, er
við, sem heilsu nutum, gengum
að kjörborðinu og neyttum at-
'kvæðisréttar okkar. Kristín ólst
upp hjá foreldrum sínum, sem
þá bjuggu á fæðingarheimili
hennar, þeim Þóru Jónsdóttur og
Jósef Guðmundssyni. En skamm-
an aldur naut hún móðurástríkis
'því á fermingardag sinn missti
hún móður sína. Já, shemma
komst hún í kynni við lögmál
lífsins, sem er dauði. >ví átta
voru þau alls systkinin, en að-
eins Guðmundur bróðir hennar
og hún náðu fullorðins aldri.
Eina systur átti amma mín er
náði tvítugsaldri og hét hún Sig-
ríður. Tveggja hálfbræðra henn-
ar er mér Ijúft að minnast,
Lofts, sem nú er látinn og Guð-
jóns, sem er bóndi á Ásbjarnar-
stöðum í Vestur-Húnavatns-
sýslu.
Minning
í föðurhúsum var Kristín þar
til hún fluttist til Reykjavikur
1898 og ári seinna hóf bún þar
ljósmæðranám, sem hún átti eft-
ir að gegna í nærfeilt 40 ár. Að
námi loknu fluttist hún suður i
Hafnir til að taka að sér ljós-
mæðrastörf. Þó mun hugurinn
hafa stefnt til heimahaganna, en
örlögin réðu því, að í aðra átt
var haldið.
Þegar suður kom, var hún
fyrst í Kirkjuvogi hjá frú Stein-
unni Sivertsen eða þar til hún
giftist manni sínum, Magnúsi
Pálssyni árið 1906. Fljótlega
festu þau kaup á jarðnæði % úr
Kirkjuvogsiandi. Byggðu þau
sér hús er þau nefndu Staðarhól.
Stóð hann skammt þaðan, sem
aðaluppsátur Hafnamanna var.
Þegar ég segi % úr Kirkjuvogs-
landi vil ég benda á, að býlið
Kirkjuvogur átti tuttugu og sjö
hundruð að fornu mati af
sextiu og fjögur hundruð, sem
Kirkjuvogstorfa er.
Aiimikill aldursmunur var
með þeim hjónum Kristínu og
Magnúsi eða um 20 ár. Nutu þau
ekki samvista nema í 20 ár, því
árið 1923 lézt Magnús. Og það
hafa mér kunnugir sagt, að
sjónarsviptir hafi verið við frá-
fall hans. Magnús gegndi og trún
aðarstörfum fyrir sveit sína,
t.d. hreppstjórn. Margt stór-
menna átti hann innan sinna
ættarbanda, en þau verða ekki
hér upp talin.
Þau hjónin Kristín og Magn-
ús eignuðust þrjú börn, Guð-
mund, sem hún sá að baki tví-
tugum, man ég glöggt, hve mik-
ill harmur þá var að ömmu
kveðinn; frú Þóra, gift Guð-
mundi Jónssyni lögregluvarð-
stjóra, og Guðrúnu, móður mína,
gifta Þórði Guðmundssyni sjó-
manni og verkamanni úr heima-
byggð sinni. Búa þau nú í Kefla-
vík.
Það var Kristínu ömmu mik-
ill styrkur og lán, að Guðmund-
ur bróðir hennar lét sér svo annt
um hennar hag. Það má með
sanni segja, að vart fór hún úr
sjónmáli hans, nema þegar hann
var að afla bjargar í bú. Ég
veit, að margur hefur fórnfúst
starf af höndum ieyst, en frændi
minn, þú, sem nú tregar hjart-
Tilkynníng um stimar-
skrifstofutíma
Frá 1. júni til 1. september verður skriftstofutími
vor: mánudag til fimmtudags kl. 8.00 til 16,30.
Föstudaga kl. 8.00 til 17,00. Laugardaga lokað.
ÍSL. SJÁVARAFURÐIR
Ámi Ólafsson & Co.
kæra systir. Laun okkar niðja
hennar voru ekki stór og verða
ekki stór, aðeins þakkartoæn til
þín fyrir aUt, það sem þú varst
benni. Ykkar tryggð og trú-
mennska eru okkur leiðarljós á
lifsgöngunni
Ekki get ég látið hjá liða að
þakka sér sérst^klega, amma,
allt sem þú gerðir fyrir mig og
öll þín barnabörn. Þakka það
veganesi, sem þú gafst okkur.
Trúna á guð, trúna á lífið og
það væri ekki sama, hvernig þtú
væri varið. Aiúð skyldi að
hverju verki iögð, þvi eftir verk-
um mannanna yrðu þeir dæmd-
ir. Og það segi ég og aðrir, sem
til þekktu, að verk þin voru til
fyrirmyndar. Svo mikil alúð var
í þau lögð. >ó ekki væri nema
leggja á borð og gefa kaffisopa,
svo mikil fágun var yfir því.
Já, átoyggilega var það þín lífs-
nautn að veita, þó ekki væri af
stórum efnum. Eitt atvik úr
samferð okkar get ég ekki látið
hjá líða að minnast. Þegar þú,
amma, á tvítugs afmæli mínu
gafst mér steinhring. Hringur-
inn var stór, en stærri voru
orðin, sem fylgdu og eru og
verða þau mér meira virði en
gull og perlur. Fann ég þá óðru
betur hvað þú vildir gera mig
og þína að góðum mönnum.
Eftir að þau systkinin fluttust
til Keflavíkur, en þar bjuggu
þau seinustu árin í íbúð bróður
míns, Emils. Voru heimsóknir
kunningja og vina vel þegnar.
Bæði voru bau systkinin svo
farin að heilsu síðastliðið ár, að
vart mátt milli sjá hvort væri
veikara. En alla tíð var unað
sínu hlutskipti án möglunar eða
æðru.
Niðurlag þessara setninga
skulu vera þakkir frá ættingj-
um til allra þeirra, sem með ein-
hverju móti greiddu lífsgötu
hennar. Sérstakar þakkir færum
við Ólafi Ormssyni, sem alla tíð
var heimilinu sannur vinur.
Guð varðveiti þig amma mín.
Þinn dóttursonur.
Magnús Þórðarson.
FUNDUR
verður haldinn í Flugfreyjufélagi fslands þriðju-
daginn 31. maí í Tjarnarbúð kl. 2,30.
Fundarefni: SAMNINGARNIR.
Áríðandi að allar mæti, eða skilji eftir umboð.
STJÓRNIN.
Vantar mann
til útkeyrslustarfa í Söebechverzlun, Háa-
leitisbraut 58—60.
Upplýsingar á staðnum (ekki í síma)
mílli kl. 12—4 í dag.
BELVEDERE
CHRYSLER
sumarsending
Bdaskipið „LA TRAVIATA“ er væntanlegt um nk. mánaða-
mót með sumarsendinguna af 1966 DODGE og PLYMOUTH.
Chrysler-umboðið á enn nokkra bíla óselda í þessari stærstu
bílasendingu sumarsins, þar af bjóðum við yður:
1. DODGE DART 270, tvílitur, 4ra dyra.
2. DODGE DART 170 einlitir 4ra dyra.
3. PLYMOUTH BELVEDERE II einlitir 4ra dyra.
4. PLYMOUTH VALIANT V2 00 tvílitir 4ra dyra.
Tryggið yður einn af þessum vinsælu og viðurkenndu
CIIRYSLER-bílum fyrir sumarið. Kynnið yður verð og kjör
sem allra fyrst hjá umboðinu.
Chrysler-umboðið Vökull hf.
HRINGBRAUT 121 — SÍMI 10 -600.
V A L I A N T