Morgunblaðið - 28.05.1966, Síða 30
MUKUU N B LAOIO
Laugardagur 28. maí 196ð
3U
Enskur atvinnumaður í
golfi ráðinn hingað til lands
Kennir h]á Golfklúbbi IMess
og á Suðurnesjum
GOLFKLÚBBUR NESS hefur
ráðið til sín í sumar enskan at-
vinnugolfmeistara, Mr. F. Riley,
sem mun taka að sér golfkennslu
við klúbbinn í sumar. Hann starf
ar mestan hluta dagsins og tekur
á móti nemendum í golfskálan-
um. Hann hóf kennslu í gær.
Félagar í golfklúbb Ness buðu
blaðamönnum á fuind Mr. Rileys
í gær. Kynnti forim. klúbbsins,
Pétur Björnsson, hann með þess-
um Orðum:
Mr. Riley er 26 ára gamall og
hefur starfað við golfkennslu við
Golfklúbb Hamborgar síðastliðið
ár. >ar áður kenndi hann við
G-roningen-klúbbinn og Hilvers-
um klúbbinn í Hollandi, meðal
anmars með Gerry de Witt, sem
er einn frægasti atvinnugolf-
leikari Evrópu. Mr. Riley hefur
einnig kennt við Bristol Golf
Club í Leichester, Bnglandi, en
það er heimaborg hans.
Áður en Riley kom hingað til
lands, tók hann þátt í keppnum
atvinnugolfleikara í Englamdi, en
iþær keppnir eru einar þær erfið
ustu sem um er að ræða í Eng-
landi, enda eru háar peningaupp-
ræðir í verðlaun. >að er afar
skemmtilegt að horfa á Mr. Riley
leika golf og langt síðan menn
hafa séð slí'kan golfleik hér á
íslandi. Hann hefur afar fallega
golfsveiflu og högg hans nákvæm
og teigskotim löng. Hann er sér-
staklega reyndur í golfkennslu
og fljótur að sjá hvað nemand-
inm þarf í tilsögn.
Vonir standa nú til, að Lslenzk
ir golfleikarar geti nú öðlast þá
leiðsögm í golfi, sem lengi hefur
verið beðið eftir. Mr. Riley mun
taka meðlimi Golfklúbbs Suður-
nesja í kennslu í sumar, jafn-
framt meðlimum Nessklúbbsims.
Næstu daga mun kennaranum
sýndir golfvellir Golfklúbbs Suð
umesja og Golfklúbbs Reykja-
víkur.
Riley sagðist hafa gerzt at-
vinnumaður fyrir 6 árum, hins
— Ermarsund
Framhald af bls. 1
Vegna verkfallsins hefur
orðið að fækka ferðum úr
42 í 22, því að brezk skip,
sem sigla þessa leið, eru nú
öll bundin.
Gert er ráð fyrir, að aðeins
verði hægt að flytja 1400—1500
bifreiðir yfir sundið um helgina,
en venjulega eru um 5000 bif-
refðar fluttar sjóleiðina um þessa
helgi.
Frönsk og belgísk skipafélög
hafa reynt að fjölga ferðum, svo
að hægt verði að koma til móts
við óskir ferðamanna, en Ijóst er
þó, að hvergi nærri verður hægt
að flytja alla, sem flutnings óska.
Brezka stjórnin skipaði í morg
un fjögurra manna nefnd, sem
kanna á nánar orsakir verkfalls-
ins. Skal nefnd þessi gefa at-
vinnumálaráðherranum, Ray
Gunter, skýrslu eftir hálfan mán
uð, og því vir'ðist ekkert benda
til þess, að lausn deilunnar sé á
næstu grösum.
Brezki flotinn er nú reiðúbú-
inn að grípa inn í deiluna, og
draga úr höfnum brezk skip, sem
taka upp hafnarpláss fyrir erlend
um skipum, sem halda uppi ferð-
um til og frá Bretlandi
vegar hefði hann hafið golfiðk-
um 14 ára gaimall. Kvað hann
ingspund og færi eftir þeim verð
launum er ynnust.
Mikil grózka er nú hjá Golf-
klúbbi Ness. Um 70—80 félagar
eru í klúbbnum. Keppni sumars-
ins hefur verið ákveðin og sú
fyrsta stóra verður 18 júní við
Golfklúbb Suðurnesja, en milli
þeirra golfklúbba er mikið og
gott samstarf og klúbbarnir
standa saman að Islandsdvöl
Rileys.
Pétur Björnssom sagði að flest-
ir félagar klúbbsins hefðu óskað
eftir tilsögn og yrði mikið að
gera hjá Riley fynstu vikurnar,
en hann mun hins vegar ekki
óvanur því að eiga langan vinnu-
dag.
Riley golfkennari
iþað ekki snemma byrjað, margir
í Englandi lærðu 5—6 ára gaml-
ir; ég var 19 ára atvinmunaður.
Aðspurður um laun atvinnu-
manna í golfi í Ecnglandi sagði
hann að miðlungsmenn hefðu um
2000 sterlingspund á ári en hæstu
laun væru á að gizka 6000 sterl-
— Mutesa
Framhald af bls. 1
Bardaginn um höllina stóð
daglangt, en er stjórnarhernum
tókst loks að ná henni á sitt
vald, kom í ljós, að Mutesa var
allur á burtu.
Obote sagði í tilkynningu sinni
í dag, að ekki væri vitað um nú-
verandi dvalarstað Mutesa. Óstað
festar fregnir herma þó, að kon-
ungur hafi komizt úr landi.
Átökin sl. þriðjudag, kunna því
að vera sfðustu átökin milli Mut-
esa og Obote, en þeir hafa eldað
grátt silfur saman um nokkurt
skeið.
Degi fyrr hafði Obote lýst yfir
neyðarástandi, en áður hafði Mut
esa krafizt þess, að stjórnarher
Uganda færi frá Kampala, sem
er í Buganda.
Obote forseti sagði einnig í til-
kynningu sinni í dag, að hann
hefði ekkí ætlað stjórnarhernum
að handtaka Mutesa sl. þri’ðju-
dag, heldur hefði verið ætlunin
að leita falinna vopna í höll
hans.
Um 20 manns munu hafa látið
lífið í átökunum um höllina.
ATHUGIÐ
>egar miðað er við útbreiðslu.
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
'■ V/V ■ ■ .y.-tsrs's.'. '
Hér eru tveir af snjöllustu knattsþyrnumönnum okkar í
dag, Eyleifur og Hermann í „vígahug".
Ármann J. Lárusson vann
Grettisbeltið í 14. sinn
Hann lagbi alla sína keppinauta
fallega
(Greinin hér á eftir varð út-
undan í kosningabaráttunni. En
betra er seint en aldrei).
íslandsglíman 1966 fór fram í
Austurbæjarbíó laugardaginn 14
maí. Mótið átti að hefjast kl.
2.30, en byrjaði ekki fyrr en
2.50. Orsökin var sú að glímu-
völlurinn var ekki fullkom-
Iega löglegur, einn glímumaður-
inn Kristján Lárusson glímdi
ekki af þeim sökum.
Gylfi >. Gíslason mennta-
málaráðherra flutti ávarp, en
síðan setti Gísli Halldórsson for-
seti Í.S.Í. mótið.
Glímustjóri var Eysteinn >or-
valdsson, en yfirdómari Gunn-
laugur J. Briem, mótsnefnd
stjórn glímudeildar Ármanns,
umsjón Hörður Gunnarsson.
Átta glímumenn voru mættir
til leiks. Úrslit urðu þau að
glímukóngur íslands varð Ár-
rnann Lárusson UBK með 7 v,
annar Sigtryggur Sigurðsson
K.R. 6 v, þriðji Ingvi Guðmunds
son UV 5 v, fjórði Gunnar Pét-
ursson K.R. 4 v, fimmta til
sjötta sæti Hannes >orkelsson,
ívar Jónsson UBK og Valgeir
Halldórsson Á með 2 v hver,
áttundi Gísli Jónsson Á engan.
Armann Lárusson vann nú
Grettisbeltið í fjórtánda sinn.
Hann lagði alla, glímdi vel og
lagði menn á hreinum brögðum.
Vafasamt var fall það er Sig-
tryggur Sigurðsson hlaut fyrir
honum, en sú glíma var til úr-
slita um fyrsta og annað sæti
mótsins. All flestum áhorfend-
um sýndist Sigtryggur koma
réttum vörnum við úr bragði
hjá Ármanni, en fall er, snerti
glímumaður glímuvöll fyrir of-
an hné eða olnboga. >etta vafa-
atriði má ekki skyggja á sigur
Ármanns, heldur verður að
skrifa það á reikning dómar-
anna. Óneitanlega hefði það
verið skemmtilegra fyrir hann
að fá að glíma aftur við Sig-
trygg og leggja hann tvímæla-
laust.
Sigtryggur Sigurðsson féll
aðeins fyrir sigurvegaranum.
Hann er ekki í góðri æfingu
núna. Glíman hans við Ingva
var skemmtileg og drengileg.
Sigtryggur átti í nokkrum erf-
iðleikum með Hannes, sú glíma
fór í bið. í fyrri glímunni kom
það fyrir að Sigtryggur tekur
Hannes upp í vinstri fótar klof-
bragð, en þegar hann er búinn
að ná honum upp sleppir Hann-
es glímutökunum, Sigtryggur
heldur áfram með bragðið og
leggur hann réttilega, en viti
menn þeir eru látnir glíma aft-
ur, er varð til þess að glíman
fór í bið. >að er mjög alvarlegt
að gefa mönnum kost á að ó-
nýta bragð fyrir mótstöðumönn-
um sínum með því að sleppa
tökum svo augljóslega.
Ingvi Guðmundsson glímdi
vel, en hefði mátt vera fjöl-
brögðóttari því hann beitti nær
eingöngu sniðglímu hægri niðri,
en það bragð var vel tekið hjá
honum.
Gunnar Pétursson er léttur og
skemmtilegur glímumaður.
Hann stóð lengst í Armanni.
Gunnar hélt ekki tökum rétl eft
ir að Ármann tók bragð á hon-
um, en það var að mínu áliti
ekki viljandi gert að minnsta
kosti var það ekki eins áber-
andi og hjá Hannesi gegn Sig-
tryggi.
Hannes >orkelsson glímdi
ekki eins vel og í Skjaldaglím-
unni eða Landsflokkaglímunni,
er voru fyrr i vetur, hann var
full stífur .
ívar Jónsson hefur tekið mikl
um framförum í vetur ,en þetta
er annað árið em hann tekur
þátt í opinberum mótum.
Valgeir Halldórsson glímdi
létt og skemmtilega, hann virt-
ist alltaf 1 framför í glimunni,
Gísli Jónsson er kornungur og
sýndi mjög góð tilþrif, hann á
án efa eftir að ná mjög langt i
glímunnL
Glímumar voru margar góð-
ar og skemmtilegar, en mótið
einkenndist af fumi og hiki
dómaranna. Mótstjórnin var
heldur ekki góð. Verðlaunapen-
ingarnir voru ekki tilbúnir þeg-
ar mótinu var slitið, engin
kveðja fánabera í mótslok og
fl. Glímustjórinn kunni vel til
verka, ég tók eftir þvi að hann
sagði keppendum við hvern
'þeir ættu að glíma næst með
nokkrum fyrirvara, en það fyr-
irkomulag dregur mjög úr
taugaspennu keppenda um þá ó-
vissu við hvern þeir eigi að
glíma næst. E.Á.
Sýningu ó listaveikagjöl Mark-
ústu lýknr í Listasnfninu í kvöld
SÝNINGIN á listaverkagjöf
Markúsar Ivarssonar í Listasafni
ríkisins hefur nú staðið í hálfan
mánuð og lýkur í kvöld kl. 22.
Á sýningunni eru sem kunnugt
er 57 málverk úr eigu Markús-
ar, sem ekkja hans og dætur
gáfu Listasafninu. Og hafa þess-
ar myndir ekki sést fyrr á sýn-
ingu.
Málverkin eru máluð á tíma-
bilinu 1915 til 1942 og eru því
gott yfirlit yfir þátt í íslenzkri
myndlistarsögu. >ar eru myndir
eftir flesta okkar kunnustu mál-
ara, svo sem Kjarval, Ásgrim,
Jón Stefánsson, >órarin B. >or-
láksson, Jón >orleifsson, Mugg,
Snorra Arinbjarnar, >orvald
Skúlason, Svavar Guðnason,
Gunnlaug Scheving, Finn Jóns-
son, Gunnlaug Blöndal, Finn
Jónsson, Jóhann Briem, Guð-
mund Einarsson, Eyjólf Eyfells,
Svein >órarinsson, Agnete Þór-
arinsson, Höskuld Björnsson,
Grétu Björnsson, Gunnar Gunn-
arsson og Eggert LaxdaJ