Morgunblaðið - 26.06.1966, Síða 5
Sunnudagur 26. júní 1966
MORGU NBLAÐIÐ
5
ÞAÐ HEFUR aS vonum vak-
ið mikla athygii, er Carl Sæ-
mundsen stórkaupmaður frá
Blönduósi gaf Alþingi Is-
lendinga 17. júni hús það í
Kaupmannahöfn, er Jón Sig-
urðsson forseti bjó í frá 1852
—1879. Gjöf þessi var gefin
til minningar um hinn látna
Alþingisforseta og baráttu
hans fyrir endurheimt frels-
is og sjálfstæðis íslenzku
þjóðarinnar. Það þótti því
ekki úr vegi að kynna gef-
andann, Carl Sæmundsen stór
kaupmanna fyrir lesendum
Morgunblaðsins og skýra frá
ætt hans og umhverfi hér á
landi, og frá því, er hann hélt
til Danmerkur.
í viðtali við Mbl. skýrði
Carl Sæmundsen frá því, að
hann væri fæddur 14. febrúar
1886 á Blönduósi. Foreldrar
hans voru hjónin Magdalena
Margrét og Pétur Júlíus Sæ
mundsen. Carl ólst upp í for-
eldrahúsum, en las undir Lat
ínuskólann hjá séra Hjörleifi
Einarssyni á Undirfelli 1
Vatnsdal og varð stúdent
1905. í hópi samstúdenta hans
voru m.a. Páll Eggert Ólafs-
son og próf. Ólafur Lárusson,
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
„Minning Jóns Sigurðs-
sonar er mér eitt og allt"
Stutt viðtal við Carl Sæ-
mundsen, stórkaupmann
Carl Sæmundsen
en enn á lífi eru aðeins þeir
próf. Guðmundur Thoroddsen
og Björgúlfur Ólafsson, lækn-
ir.
Carl Sæmundsen kvaðst
hafa haldið utan þá um haust
íð til háskólans í Kaupmanna
höfn með þá ætlun í huga að
verða augnlæknir, en þar
sem það var einn augnlæknir
í Reykjavík og fjórir stúd-
entar úr fyrri árgöngum
höfðu byrjað á augnlæknis-
námi, áleit hann, að í því væri
engin framtíð, — en alltaf
Ihefði það verið áform sitt að
snúa aftur heim til íslands.
Stungið hefði verið upp á, að
hann legði stund á lögfræði,
en þar sem alltof margir hefðu
byrjað' á þeirri grein áður, til
þess að hann gæti hugsað sér
hana, varð niðurstaðan sú, að
hann ákvað að kynna sér hag
fræði við háskólann. Því
námi hætti hann eftir að hafa
tekið próf við Griiners hand
elsakademi í Kaupmannahöfn
og hætti þá við frekara nám,
þrátt fyrir það að hann hefði
haft rétt á námsstyrk við
Kaupmannahafnarháskóla í
tvö ár í viðbót.
Eftir þetta byrjaði Carl
sína eigin verzlun í Kaup-
mannahöfn, sem hann hefur
haldið áfram síðan. Carl sagði
að lokum að frekari atriði
varðandi lífsferil sinn skiptu
litlu máli í sambandi við minn
ingu Jóns Sigurðssonar, sem
væri sér eitt og allt í sam-
bandi við gjöf þess húss, sem
forsetinn bjó svo lengi í, til
Alþingis íslendinga. fslending
um yrði þessi gjöf vafalaust
kærkomin, því að sjálfsagt
hefði vaknað mikill áhugi á
því eftir hans dag, að íslend
ingar eignuðust þetta hús og
myndiu þeir þá ef til vill hafa
orðið að kaupa það dýrum
dómum.
-k
Sex bátar fá
net í skrúfu
f FYRRADAG aðstoðaði Goða-
nesið 6 báta eftir að net höfðu
farið í skrúfur þeirra út af Her-
disarvík í Selvogi.
MlbL hafði samband við skip-
stjórann á Goðanesinu, Jón
Eyjólfsson og spturði, nánar um
þetta. Jón sagði, að mikill straum
ur væri við landið á þessum
slóðum og bátarriir væru mjög
nálægt landi. í fyrradag hefði
verið mjög stórstreymt og ættu
bátarnir erfitt með að athafna
sig í fallaskipl^num og átta sig
ekki á straumskiptunum, sem af
þeim leiða.
Jón kvað Goðanesið hafa að-
stoðað 13 báta í þessum mán-
uði og dregið tvo til lands. Um
borð eru tveir kafarar.
Olivetti
Audlt
ER BÓKHALD YÐAR í FULLKOMNU LAGI?
ÞARFNAST ÞAÐ ENDURSKIPULAGNINGAR?
Bezta lausnin er gott kerfi og
olivetti
BÓKHALDSVÉL
Við aðstoðum yður við uppsetningu bókhaldsins.
G. Helgason & Melsteð hf.
Rauðarárstíg 1 — Sími 11644.
Styrkir á sviði
tæknifr. og heil-
brigðisþjónustu
EVRÓPURÁÐH) veitir á árinu
1967 styrki til náms og kynnis-
ferða fyrir lækna og starfsfólk
í heilbrigðisiþjónustu.
Tilgangur styrkjanna er að
styrkþegar kynni sér nýja tækni
í starfsgrein sinni í löndum inn-
an ráðsins.
Styrkurinn er veittur hverjum
einstaklingi í einn til 12 mán.
og er að upphæð franskir frank-
ar 850 til 1000 á mánuði, auk
ferðakostnaðar.
Styrktímabilið hefst 1. apríl
1967 og lýkur 31. maxz 1968.
Umsóknareyðublöð ásamt upp-
lýsingum fást í skrifstofu land-
læknis og í dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu.
Umsóknir skulu sendar dóms-
og kirkjumálaráðuneytinu fyrir
1. okt. n.k.
LOGl GUÐBRANDSSON
héraðsdómslögmaður
Laugavegi 12 — Sími 23207.
Viðtalstími kl. 1—5 e.b.
ATHUGIB
Þegar miðað er við útbreiðslu.
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
LITAVER SF.
Neodon plastgólfdúkur með filt undirlagi. Verð pr. ferm. kr. 147,00. — Margir litir.
Linoleum parket dúkur. — Verð pr. ferm. kr. 157,00. — Margir litir.
Enskur pappadúkur. — Verð pr. ferm. kr. 40,00. — Parketlitir.
Kanadískt og hollenzkt
Veggfóður í viðarlitum og fl. — ódýrt
Linoleum parket gólfflísar. — Verð pr. ferm. kr. 128,00 og 135,00.
Einnig enskar, þýzkar og amerískar gólfflísar í úrvali.
Ennfremur lím fyrir alla ofangreinda liði.
Litaver sf. Grensásveg 22 og 24