Morgunblaðið - 10.07.1966, Page 11
Sunnudagur 10. júl? 1968
MORCU NB LADÍD
11
Úr Austur-Skagafirði
' Bæ, Höfðaströnd, 3. júlí.
’IÚÐAftFAR hefir verið frekar
kalt undanfarið og meiri úrkom-
ur en oft áður á þessum árstíma.
Ekki er haegt að segja að spretta
sé góð, þó á nokkrum stöðum sé
ibyrjað að slá og eru það þá aðal-
lega blettir, sem varðir hafa ver-
ið fyrir skepnum. Er því ekki
von til að mikill heyskapur verði
ef ekki breytist til hlýinda á
næstu dögum. Kal er líka óvenju
mikið á flötum túnum svo að
víða skiptir hekturum sem ekki
kemur til nota á þessu sumri.
Kartöflur er allstaðar búið að
Telpnaskór
hvítir og mislitir.
Laugavegi 116.
Skrifstofustúlka
Viljum ráða skrifstofustúlku, sem vön er
vélritun og öðrum algengum skrifstofu-
störfum. — Enskukunnátta æskileg.
RAFHA - Hafnarfirði
Vegna sumarleyfa verður verksmiðja vor
lokuð
frá og með 13. júlí til 8. ágúst.
RAFHA — Hafnarfirði
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 21., 22. og 24. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1966 á hluta í Grettisgötu 71, hér í borg,
þingl. eign Ewalds Berndsen, fer fram eftir kröfu
Jónasar A. Aðalsteinssonar lögfr. f.h. Árna Guð-
jónssonar, á eigninni sjálfri, fimmtudaginn 14. júlí
1966 kl. 3,30 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 74. og 76. tbl. Lögbirtingablaðs-
ins 1965 og í 1. tbl. þess 1966 á hluta í Bræðratungu
við Holtaveg, viðbv-ggingu, talin eign Jónu Ágústs-
dóttur, fer fram eftir kröfu Búnaðarbanka íslands
á eigninni sjálfri, föstudaginn 15. júlí 1966, kl.
3,30 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 21., 22. og 24. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1966 í hluta í Háaleitisbraut 40, hér í
borg, talin eign Friðriks Lindberg, fer fram eftir
kröfu Guðlaugs Einarssonar hrl. og Jóns N. Sig-
urðssonar hrl. á eigninni sjálfri, föstudaginn 15.
júlí 1966, kl. 10 árdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
setja í jörðu þó seinna kæmust
þær í mold en oft áður. Fyrst
eftir að ísa tók af Höfðavatni
var dágóð silimgsveiði af mjög
vænum og feitum silungi en nú
síðan kuldar voru daglega hefir
lítið . aflast, sömu sögu er að
segja af veiði í sjó, þar hefir ver-
ið óvenju lítil umferð í vor.
Valgarð Björnsson, héraðslækn
ir á Hofsósi, var með nokkurt
laxaklak í vetur sem heppnaðist
vel. Sleppti hann í vor nokkrum
þúsundum seiða í læk sem renn-
ur í Höfðavatn en það er nú opið
ti.1 sjávar, einnig sleppti hann
nokkru í Hrolleifsdalsá í Fells-
hreppi. Aukinn áhugi er nú um
ræktun vatnsfalla hér í austur-
sýslunni, og hefir nú verið sett
seiði í þær flestar.
Fimmtánda júní var leyfð
dragnótaveiði hér á Skagafirði
eins og víðar. Afkoma fólks við
sjávarsíðuna byggist mikið á
aflabrögðum, en enn sem komið
er, er ekki unnið í frystihúsunum
nema annan hvorn dag vegna
aflabrests. Sumir kenna þessa
ördeyðu dragnótinni ,sem skefur
brotinn og. fælir burtu, en hér
er verið að afla sem mest af hrá-
efni svo að fólkið og fyrirtækin
geti lifað.
Miklar breytingar hafa orðið
að undanförnu hér í austursýsl-
unni. Við höfum misst öndvegis-
fólk í dauðann. Breyting varð
á framkvæmdastjórastarfí við
kaupfélag Austur-Skagfirðinga
þar sem Geirmundur Jónsson,
sem verið hefir framkvæmda-
stjóri í 11 ár, hættir en tekur að
sér útibússtjórastarf við Sam-
vinnubankann á Sauðárkróki.
Við kaupfélaginu tekur gjaldkeri
félagsins Tryggvi Eymundsson.
Hreppsnefndarkosningar eru
nýafstaðnar með nokkrum breyt-
ingum á mannaskipan.
Verið er að byggja myndarlegt
félagsheimili á Hofsósi og næst-
um lokið byggingu á stóru véla-
verkstæði, sem Fjólmundur Karls
son er að byggja. Töluverð um-
ferð er um vegina en þó ekki
eins og vænta mætti þar sem síld
er ennlþá treg hér á Norðurlands-
höfnum og því minna um fólks-
flutninga. Mjög mikill undirbún-
ingur er á Hólum í Hjaltadal
undir væntanlegt hestamannamót
um miðjan júlí. Er búizt við
geysifjölmenni þá mótsdaga.
Úrslit hreppsnefndakosninga í
þrem hreppum í Austur-Skaga-
firði: Akrahreppur. Einn listi
sameiginlegur. Hreppsnefndar-
menn eru: Jóhann Jóhannesson
Silfrastöðum, Magnús Gísiason
Vöglum, Frosti Gíslason Frosta-
stöðum og Frímann Þorsteinsson
Brekkum. Sýslunefndarmaður:
Konráð Gíslason Frostastöðum.
Hólahreppur: Af 93 kjósendum
á kjörskrá kusu 56. í hrepps-
nefnd eru: Guðmundur Stefáns
son Hrafnhóli, Bergur Guð-
mundsson Nautabúi, Guðmundur
Gunnlaugsson Hofi, Guðmundur
Ásgrímsson Hlið og Trausti Páls-
son Laufskálum. Sýslunefndar-
maður Páll Þorgrimss. Hvammi.
Viðvíkurhreppur: Björn Gunn-
laugsson Brimnesi, Sigurmon
Hartmannsson Kolkuósi, Gísli
Bessason Kýrholti. Kristján
Hrólfsson Hofdölum og Kristján
Einarsson Enni. Sýslunefndar-
maður: Bessi Gíslason Kýrholti.
Aðalfundur Búnaðarsambands
Skagfirðinga var haldinn á Sauð
árkróki 1. og 2. júlí sl. Mættir
voru þar íulltrúar frá öllum
búnaðarfélögum sýslunnar auk
stjórnar og ráðunauta. Búnaðar-
sambandið er orðið öflugt og
vinnur stórvirki á hverju ári.
Síðastliðið ár var unnið með 5
skurðgröfum, 5 jarðýtum og
dráttarvélum. Dráttarvélareikn-
ingur varð 3 milljónir 164 þúsund
en skurðgröfureikningur 4 millj.
240 þúsund. Keyptar voru vélar
fyrir röskar 3 milljónir. Auk
ýmiskonar st'arfa við jarðvinnslu
Framh. á bls. 21.
Útgerðarmenn — Shipneigendur
Eftirlit með viðgerðum, breytingum og nýsmíði skipa. Önnumst tjónskröfur og fl.
RAGNAK BJARNASON, Skipaeftirlit,
Tryggvagötu 2 Hamarshúsi — Símar 19524—40547.
Tilboð óskast
í eftirfarandi notaðar bifreiðir og vélar:
Vörubifreið, International, árgerð 1959.
Vörubifreið, International, árgerð 1957.
Vörubifreið, Mercedes Benz, árgerð 1955.
Vélskófla, % cub. yd. með tækjum.
Vélskófla, % cub. yd. með tækjum.
Bílkrani með dragskóflu.
FólEsbifreið, Buick-station, árgerð 1955.
Fólksbifreið, Ford, árgerð 1959.
Mokstrarvél.
Hrærivél.
Tækin verða til sýnis á vélaverkstæði voru, Suður-
landsbraut 32, næstu daga. — Tilboðum óskast skil-
að fyrir 17. júlí nk.
Almenna Byggingafélagið h.f.
Timpson
karlmannaskór — nýtt úrval.
Hárgreiðslukonur
Hárgreiðslukona óskast (gott kaup). — Upplýsing-
ar í sima 12781 milli kl. 7 og 9 í kvöld og næstu
kvöld.
Stúlka
óskast á blaðaafgreiðslu vora. —
Næturvinna. — Upplýsingar á mánudag
kl. 9—11 f.h.
TELPU OG KVEN
GÖTUSKÓR
Skóhúsið