Morgunblaðið - 10.07.1966, Blaðsíða 21
Sunnudagur 19. JfiM 19M
MORGUNBLADÍÐ
21
Julie Chr istie
í KVIKMYNDAHEIMI'NXJM vill
það oít verða þannig að nafni
skýtur upp eins og leiftri, síð-
an lognast það út af svo sem
kertaljósið. En það er ekki þar
með sagt að þessi heimur glits
og skrauts sé ekki staðfastur í
eðli sínu, þegar dæma skal um
komandi stjörnu.
í>að er ekki svo ýkja langt
síðan einni þvílíkri stjörnu
skaut upp á himininn, ungri
enskri stúlku, Julie Christie. Við
eigum áreiðanlega eftir að hafa
af henni meiri kynni á komandi
árum.
Julie Christie er 26 ára og nú
orðin heimsfræg fyrir leik sinn
í „Darling“ sem hún hlaut Oscar
verðlaunin fyrir, og þegar við
höfum séð hana leika Láru i
wDr. Zivago“ mun hún hljóta
íastan sess í meðvitund okkar.
Um Julie segir Ingrid Berg-
man:
__ Hún hefur til að bera meiri
persónuleinka en allar ungar
kvikmyndaleikkonur í dag.
Dirk Bogarde segir um hana:
__ Hún er gædd hæfileikum
til leiklistar, og öflugra aðdrátt-
arafli en nokkur leikkona á
hvíta tjaldinu í dag.
Laurence Hatwey á bæði við
það innra og ytra þegar hann
segir:
— Julie er alltaf syfjuð, —
bæði þegar hún kemur á morgn
ana og fer á kvöldin. Á vissan
hátt var hún það líka í starfinu,
en samt kemur hún manni ætíð
á óvart, hún er dásamleg, hún
er ögrandi og „sexy“ hún er
smellin í kænsku sinni og vitur.
Omar Sharif sem svo snilldar-
lega fór með hlutverk sitt I
Arabiu Lawrence, sagði um
hana eftir samleik þeirra í „Dr.
Zivago", að hún væri dæmigerð
ur fulltrúi þessa vaknandi til-
finningasama ungdóms.
En hvað segir hún sjálf, þessi
dálítið hjólbeinótta, ljóshærða,
síðhærða, brjóstalitla, vaknandi
stjarna, sem lifir svo hátt. Með-
al annars þetta:
— Engum skal auðnast að
breyta mér. Það einasta sem ég
beygi mig fyrir er krafan um
aga í starfi mínu.
Ég lifi í nútíðinni, því að ég er
hrædd um að lifið kunni að
liða fram hjá mér.
— Ég er 25 ára, en óskaplega
hrædd um að lífið kunni að liða
fram hjá mér.
— Mér hryllir við hugsuninni
um að við séum öll eins.
— Ég veit nákvæmlega hve-
nær það var, sem mest umskipti
áttu sér stað í lífi mínu. Það
var þegar ég sem unglingur
lenti hjá franskri fjölskyldu,
sem var frönsk í sínu innsta
eðli. Það gerði mig frjálsa.
Hún varð svo frjáls að hún
innritaðist í listaskóla, gekk um
áberandi klædd, vildi sigra
heiminn og varð ástafangin í
tíma og ótima. Smám saman bar
hana inn í listaheiminn og
henni varð Ijóst áð hún gat án
mikilla erfiðleika látið í ljós
hinar ólíkustu tilfinningar.
Nú er Julie Christie í fullu
fjöri. Rakettunni hefur verið
skotið á loft.
— Vinur minn hefur gefið
mér hring, sem ég geng með,
segir Julie. Hjónabanið er bara
pappírsbútur og nýr hringur. Ég
vil ekki gifta mig, því ég óttast
hjónaskilnaðinn. Sumir kunna
e.t.v. að líta á það sem veik-
leika, þeir um það.
— Ég vil komast hærra,
hærra, ekki vera bundin af einu,
ekki einu sinni hjónafoandinu.
Franski snillingurinn Francois
Truffaut segir um Julie:
— Andlit hennar býr yfir svo
miklum svipbrigðum að manni
finnst líf hennar sjálfrar og leik
ur hennar á tjaldinu ósjálfrátt
renna út í eitt. Hennar mikil-
vægasti eiginleiki sem leikkonu,
er að hún er fær um að túlka
sérhverja tilfinningu skáldsins
fyrir áhorfendur.
Julie Christie er 172 cm. á
Dálítið hjólbeinótt og
brjóstalitil
hæð og of grönn miðað við hæð,
eða 58 kg. og ræðir sjaldan há-
fleyg málefni við leikmenn.
— Ég lifi í nútíðinni, segir
hún, — svo hrædd er ég um að
eitthvað kunni að líða fram hjá
mér að ég verð næstum því
vond ef tannpínan skyndilega
hættir.
— Hún er ekki ein stúlka,
segja vinir hennar, — í henni er
eitthvað af öllum stúlkum,
ásamt ofurlitlu af kryddi. Svip-
brigðin breytast svo ört í and-
liti hennar að það er eins og
að horfa á kvikmynd sem er
leikin of hratt. En samt er hún
aldrei kjánaleg.
Þó að Julie hafi ekki brjóst-
mál Ursulu Andress og mjaðm-
ir Marylin Monroe, getur hún
fengið alla á götunni til að horfa
á eftir sér.
Hún gæti auðveldlega horfið í
fjöldann án þess að nokkur
virti hana viðlits, ef hún ósk-
aði eftir því. En sjaldan gerir
hún það.
— en „s e x y“
Til leigu
húsnæði fyrir skrifstofur e. þ. h. á 1. hæð við Mið-
borgina. Stærð ca. 80 ferm. — Laust strax. —
Upplýsingar veittar í síma 16766 milli kl. 1 og 3
e.h. næstu daga.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 11., 14. og 16. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1966 á hluta í Fellsmúla 9, hér í borg, þing
lesin eign Hallgríms Magnússonar, fer fram eftir
kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni
sjálfri, fimmtudaginn 14. júlí 1966, kl. 10,30 árdegis.
Borgarfógetaenibættið í Reykjavík.
IMý 2ja herb. íbúð á 4. hæð
íbúð á 4. hæð í fjölbýlishúsi við Háaleitisbraut
til sölu. Upplýsingar í síma 33579 milli kl. 5—7
á sunnudag.
Iðnsýningin óskar að ráða stúlku, vana
skrifstofustörfum nú þegar. —
Vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu
Landssambands iðnaðarmanna, Lækjar-
götu 10B, 4. hæð. —
Upplýsingar ekki veittar í síma
Ég veit nákvæmlega hvenær
það var sem mestu unnskiptin
áttu sér stað í lifi mínu.
— Skagafirði
Framhald af bls. 18
var einn maður Við mælingar í
Fljótum og útsveitum héraðsins. l
Ákveðið var að hækka sjóð til
vélakaupa úr rúmlega 600 þús.
í 4,6 milljónir. Einnig var lagt
til að hækka árgjald félags-
manna úr kr. 100 í kr. 400 og
auka leiðbeiningaþjónustu. For-
maður samfoandsins er nú Gunn-
ar Oddsson, Flatatungu, en fram-
kvæmdastjóri Egill Bjarnason,
Sauðárkróki.
Skagfirðingar og Austur-Hún-
vetningar reka í félagi sæðingar-
stöð búfjár. Voru á siðasta ári j
sæddar 4662 kýr og 2500 fjár. i
Nú er ákveðið að öll Vestur-
Húnavatnssýsla verði með í
þessu fýrirtæki.
Hárþurrkur til sölu
Höfum til sölu þrjár vel með farnar Southwind
hárþurrkur og eina Windy-hárþurrku.
Upplýsingar í síma 32801.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 11., 14. og 16. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1966 á hluta í Hjallavegi 42, hér í borg,
þingl. eign Jens Ragnarssonar fer fram eftir kröfu
Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri,
föstudaginn 15. júlí 1966 kl. 10,30 árdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
N auðungaruppboð
sem auglýst var í 11., 14. og 16. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1966 á Háagerði 29, hér í borg, þingl. eign.
Helga Thorvaldssonar fer fram eftir kröfu Gjald-
heimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri, fimmtu-
daginn 14. júlí 1966, kl. 4 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 7., 8. og 9 tbl. Lögbirtingablaðs-
ins 1966 á Hofteig 8, hér í borg, þingl. eign Herlufs
Clausen o. fl. fer fram eftir krofu Gjaldheimtunn-
ar í Reykjavík á eigninni sjálfri, föstudaginn 15. júlí
1966, kl. 2,30 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
— Björn.