Morgunblaðið - 10.07.1966, Síða 26
du\J
.utuuu^ UA
W. jUU it/UU
Knattspyrnudagur
Víkings í dag
Tvö dönsk unglingalið i heimsókn
hjá íélaginu
A FIMMTUDAGINN komu tvð
dönsk unglingalið í heimsókn á
vegum knattspyrnufélagsins Vík-
ings. Lið þessi eru frá Avarta í
Rödovre og Svinninge, en bæði
þessi félög eru í S.B.U. Eru
dönsku piltarnir að endurgjalda
heimsókn Víkinganna, en þeir
dvöldu i boði þeirra í Danmörku
S.l. sumar.
Fyrstu leikir dönsku liðanna
voru í gær á Meiaveilinum og
kepptu þeir þá við 3. fl. KR. og
2. fi. Vikings.
í dag sunnudag, taka dönsku
piltarnir þátt í knattspyrnudegi
Víkings á félagssvæ'ðinu við Rétt-
arholtsveg.
Á mánudag fara Danirnir norð
ur í iand og leika á Akureyri að
kvöldi þriðjudagsins 12. júlí, en
á Akureyri verða þeir í boði
knattspyrnufélaganna þar. Þá
munu þeir einnig væntanlega
keppa tvo leiki á Húsavík í boði
íþróttafélagsins þar og er ráð-
gert að þeir leikir fari fram að
kvöldi miðvikudagsins 13. júlí.
Sunnudaginn 17. júlí keppa svo
dönsku piltarnir aftur hér i
Reykjavík og munu þá keppa
við Reykjavíkurmeistara 3. fl.
Víkings og við Reykjavíkurúrval.
2. flokks. Fara leikirnir fram á
Melavellinum og hefst fyrri leik-
urinn kl. 20:00. Síðustu leikir í
þessari heimsókn verða svo vænt
anlega á Selfossi þriðjudagskvöld
19. júlí, en þá leika dönsku pilt-
arnir við 2. og 3. flokk UMF.
Selfoss.
Þess ber að geta í sambandi
við þessa heimsókn, að aðstand-
endur Víkinganna, sem fóru til
Danmerkur í fyrra, taka að sér
einn danskan pilt, hvert heimili,
og er sú aðstoð, sem fólkið veit-
ir félaginu, ómetanleg.
( Frá móttökunefnd).
2 snjöllustu sundkon-
ur Dana koma ekki
POLITIKEN greinir frá því sl.
föstudag, að tvær snjöllustu
sundkonur Dana, Krisen Strange
og Ellis Baastrup, munu ekki
geta tekið þátt í landskeppninni
í sundi við íslendinga, sem fara
á fram hér 20. og 21. Ástæðan
íyrir því, er að Kristen Strange
er ennþá í Bandaríkjunum, þar
sem hún æfir undir leiðsögn hins
heimsfræga þjálfara George Hain
es, og er hún ekki væntanleg
heim til Danmerkur í ágústmán-
uði, og Eiiis Baastrup byrjar í
menntaskóia innan skamms eftir
sumarleyfið ög hefur því ekki
"tíma til æfinga.
Blaðið segir að afboð þessi
veiki danka landsliðið talsvert,
en gefi Sundsambandinu danska
um leið tækifæri til þess að
reyna mestu efnin. Landsliðið
danska verður skipað þessu fólki:
Dömur: Bente Dunker, Vi'beke
Slot, Britta Petersen, og svo ann-
að hvort Anne-Grete Nielsen eða
Lone Mortensen, en það fæst úr
því skorið hvor fari, á unglinga-
meistaramóti í Svíþjóð, sem verð
ur innan skamms.
Herrar: Lars Kraus, John
Berthelsen, Finn Rönnow, Ey-
vind Petersen og Jörgen Juul,
sem er nýliði í landsliðinu.
Frá leik KR og fjónska úrvalsl iðsins í fyrrakvöld: Helge Jörgensen jafnar fyrir danska úrvalið
1:1 með góðu skoti utan af vítateig.
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu:
England og Uruguay
hefja dansinn á morgun
Leikurinn fer fram á Wembley
leikvanginum
LOKAKEPPNI um heims-
jneistaratitil í knattspyrnu
hefst í London á morgun og
lýkur með úrslitaleik 30. júlí.
Upphafsleikur lokakeppninn-
ar annað kvöld verður á hin-
um sögufræga Wembleyleik-
vangi og mætast þar Englend-
ingar og Uruguaymenn. Loka
leikur um hina frægu Jules
Rimet styttu verður einnig á
Wembley.
Þetta er í 8. sinn sem keppt
er um heimsmeistaratitil í
Úsvikið „tilraunaiandslið"
mætir Dönum annað kvöld
„Stjörnurnar" setja á bekkjum varamanna
ÞRIÐJI og síðasti leikur
danska úrvalsliðsins frá Fjóni
verður leikinn í Laugardal
annað kvöld. Úrvalslið mætir
Dönurium í þessum kveðjuleik
og hefur landsliðsnefnd KSÍ
valið liðið og reynir nú ýmsa
nýja menn í „tilraunaliði“. Er
ánægjulegt til þess að vita að
nefndin hafi kjark til að
breyta svolítið til — lofa
fleirum að komasi að til
reynslu en þeim sem er
h^mpað.
Leikir sem þessir eiga líka
að gegna þvi hlutverki að
vera „tilraunaleikir" en fram
að þessu hefur lítt á þvi örlað
að tækifærin sem leikirnir
skapa séu nýtt.
Lið lándsiiðsnefndar nú er
þannig skipað:
Markvörður: Einar Guð-
leifsson, Akranesi.
Bakverðir: Þorsteinn Frið-
þjófsson Val og Bjarni Felix-
son KR.
Framverðir: Sigurður Al-
bertsson Keflavík, Anton
Bjarnason Fram og Ellert
Schram KR.
Framherjar: Hörðúr Mark-
an KR, Björn Lárusson Akra-
nesi, Jón Jóhannsson Kefla-
vík, Helgi Númason Fram og
Axel Axelsson Þrótti.
Varamenn eru valdir þeir
Guttormur Ólafsson, Árni
Njálsson, Magnús Torfason,
Eyleifur Hafsteinsson og Her-
mann Gunnarsson.
Þetta lið er sem sagt ósvik-
ið tilraunalið. Verður ekki
um gengi þess spáð, en hver
einstakur leikmaður á það
skilið að fá tækifæri í „til-
raunalandsliði' hvernig sem
samstaðan verður.
Danirnir hafa unnið báða
sina leiki, Reykjavíkurúrvai
með 8—1 og KR með 4—2.
Hefur það sýnt sig að þeir
hafa úthald, sem leikmenn-
ina, er þeim hafa mætt hefur
skort að miklu leyti, en nú
er að sjá hvað hinir minna
reyndu spámenn megna.
knattspyrnu, en keppnin fer
fram fjórða hvert ár. Sextán
lið sem borið hafa sigur úr
býtum í langri og oft strangri
undankeppni, taka þátt í loka
keppninni og eiga öll eitt og
sama takmarkið: að verða
heimsmeistarar.
Síðan ákvéðið var 1928 að
stofna til heimsmeistaraekppni í
knattspyrnu hafa aðeins fjögur
lönd unnið hinn eftirsótta heims-
meistaratitil.
í fyrstu keppninni sem farm
fór í Szabelen 1930 urðu gest-
gjafar keppninnar Uruguay sig-
urvegarar; unnu nágranna sína
Argentínu í úrslitaleik 4—2.
Uruguay vann einnig 1950, en
þá fór keppnin fram í Brasilíu.
Árin 1934 og 1938 hrepptu ítalir
titilinn. í úrslitaleik 1934 unnu
ítalir Tékka með 2—1 og fjórum
árum síðar unnu þeir Ungverja í
úrsiitaleik í París með 4 gegn 2.
Styrjöldin gerði hlé á keppni
um heimsmeistaratitil fram til
1950 og eins og fyrr segir var
það Uruguay sem sigraði þá.
Keppnin 1950 fór fram eftir eins
konar deildarfyrirkomulagi. Uru-
gauy vann 5 leiki en tapaði 1 í
Leikir í dag
TALSVERT verður um að vera
í knattspyrnunm hér í dag,
og leikið í öllum þremur
deildunum. f fyrstu deild mætast
Akureyringar og Keflvíkingar á
Akureyri kl. 4, og er Guðjón
Finnbogason dómari. í 2. deild
leika Breiðablik og Siglfirðing-
ar í Kópavogi, og hefst sá leik-
ur kl. 2. í Hafnarfirði eigast svo
við í sömu deild Haukar og Suð-
urnesjamenn, og hefst sá leikur
kl. 8. Loks erú svo tveir leikir í
þriðju dei’d: í Borgarnesi leika
saman Skailagrimur og Ölfising
ar kl. 4 og á Selfossi eigast við
Selfoss og U. M. S. S., og hefst
sá leikur kl. 2.
undankeppni en Brasilía kom§t I
úrslit með 4 leiki unna 2 tapaða.
í lokakeppnina komust þá einnig
Spánn og Svíþjóð. Þetta fyrir-
kpmulag var aldrei viðhaft aftur.
Fimmta heimsmeistarakeppnin
hafði lokabækistöð í Sviss 1954.
Öllum á óvart sigruðu Þjóðverj-
ar, sem í úrslitaleik sigruðu þá
sem vissir voru taldir um sigur
— Ungverja.
í Stokkhólmi 1958 voru það
Brasilíumenn sem „slógu í gegn“
og sýndu hvað knattspyrnulist er.
Og með leikmenn eins og Pele,
Garrincha, Didi, Zito og Vava
unnu þeir Svía örugglega með
5—2 í úrslitaleik. Brasilíumenn
endurtóku sigurgöngu sína í
Santiago de Chile 1962, en þá
voru það Tékkar sem komust í
úrslitaleik móti þeim og lokatöl-
ur urðu 3—1.
Framhald á bls. 3
Alræmdir
vasoþjófor
í London
FIMM skæðustu vasaþjófar
Brasiliu hafa komizt yfir vega
bréf og farseðla til Lundúna
i sambandi við Iokakeppnina
um heimstitil í knattspyrnu.
Lögreglan í Brasilíu komst á
snoðir um þetta í gær og sendi
þegar aðvörun til Interpol —
alþjóðalögreglunnar i Lund-
Lögreglan komst á snoðir
um ferðir vasaþjófanna er 27
ára gömul kona, Vanda Per-
eira don Santos „drottning
vasaþjófanna" fannst myrt í
garði sínum fyrr i vikunni. H
fórum hennar fannst vega-
bréf ,sem gefið var út á falskt
nafn. Tók þá lögreglan að
rannsaka önnur vegabréf er
út hafa verið gefin og er hún
fullvissaði sig um að hinir al-
ræmdu vasaþjófar hefðu kom-
izt úr landi var Interpol þegar
tilkynnt um hverra væri von
til Lundúna.