Morgunblaðið - 30.07.1966, Blaðsíða 2
r
2
MORGUNBLABIÐ
Latigarcíagur 30. júlí 1966
Saga ísL sveitar-
félaga komin út
á aldaraímæli konunglegrar
tilskipunar
' Fulltrúaráð Sambands ís-
I lenzkra sveitarfélaga kom sam-
an til aukafundar í Reykjavík
fimmtudaginn 28. júlí sl. For-
maður sambandsins, Jónas Guð-
mundsson minntist við fundar-
setningu Jóns Jónssonar, odd-
vita Hofshreps, sem lézt 30. maí
sl. en hann átti saeti í fulltrúa-
ráðinu.
Á fundinum voru kosnir fjórir
aðalmenn og fjórir varamenn í
stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga,
samkvsemt lögum sem afgreidd
voru á seinasta Alþingi. í stjórn
Xánasjóðsins voru kosnir Jón-
as Guðmundsson, formaður sam
bandsins. Gunnlaugur Pétursson
borgarritari, Reykjavík. Magnús
E. Guðjónsson bæjarstjóri, Ak-
ureyri og Sigurður I. Sigurðs-
son oddviti, Selfossi. Varamenn
voru kjörnir Páll Líndal borg-
arlögmaður, Reykjavík, Ólafur
G. Einarsson sveitarstjóri, Garða
hreppi, Bjarni Þórðarson bæjar-
stjóri, Neskaupstað og Halldór
E. Sigurðsson sveitarstjóri, Borg
arnesi.
Formaður sambandsins lagði
fram á fundinum svofellda til-
lögu, sem var samþykkt með
öllum atkvæðum:
Fulltrúaráð Sambands ís-
lenzkra sveitarfélaga samþykkir
að fela stjórn sambandsins að
hefja nú þegar undirbúning að
því, að samin verði saga ís-
lenzkra sveitarfélaga, sérstak-
lega yfir tímabilið frá 1872 til
1972, og leggur til að landsþing
sveitarfélaganna, sem haldið
verður 1967, samþykki að verja
til þessa verks allt að 100 þús-
und krónum árlega, árin 1967-
1972. Stefnt skal að því, að rit
þetta komi út á aldarafmæli kon
unglegrar tilskipunar frá 4. maí
1872, um sveitarstjórn á ís-
landi.
Eennaranámskeið á vegum
fræðslamálaskriisfoínnnar
f september næstkomandi
verða haldin kennaranámskeið á
vegum fræðsluskrifistofunnar. Er
hér um að ræða dönskunámskeið
fyrir dönskukennara og verður
það í Kennararskóla fslands dag-
ana 1.—20. september, námskeið
fyrir söngkennara, sem haldið
yerður í Tónlistarskólanum dag-
ana 1.—9. sept., íslenzkunám-
skeið fyrir gagnfræðaskólakenn-
ara, sem haldið verður dagana 5.
til 16. sept. í Kennaraskóla fs-
lands og verður þar aðalviðfangs
efni íslenzkar bókmenntir og
kynning þeirra í gagnfræðaskól-
um, starfsfræðsilu- og félagsfræði
námsikeið, sem haidið verður dag
ana 5.—16. sept. f Kennaraskóla
íslands og stærfræði- og eðlis-
fræðinámskeið, sem haldið verð-
ur dagana 5.—17. sept. í Mennta-
skólanum x Reykjavík.
Á námskeiðum þessum munu
kenna valinkunnir kennarar
bæði erlendir og innlendir. At-
hygli væntanlegra þátttakenda
skal vakin á að dagana 12.—16.
sept. verða kynnt á starfsfræðslu
námskeiðinu verfeefni, sem hafa
ekki verið kynnt á’ður hérlendis
og stærðfræði- og eðlisfræðinám-
skeiðinu gefst þátttakendum
tækifæri á að velja annað hvort
starðfræði eða eðlisfræði.
f>á mun ætlunin að haldnir
verði fræðslufundir fyrir íþrótta
kennara og verða þeir auglýstir
síðar.
Nánari upplýsingar er unnt a’ð
fá í Fræðslumálaskrifstofunni og
þangað ber að tilkynna þátttöfeu
hið allra fyrs.ta.
Allt er í nýjum búningi. Mikið úrval stanga og skotfæra er haft frammi, eins og myndin synir.
Vesturröst í nýjum búningi
Grimseyjarlaxinn prýbir verzlun, sem hefur sölu-
umboð fyrir stærsta veiðitækjahring Bretlands
VERZLUNIN Vesturröst, Garða-
stræti 2, sem flestum laxveiði-
og skotmönnum hefur verið
kunn um árabil, hefur nú tekið
miklum stakkaskiptum, jafn-
framt því, sem hún hefur
nú mjög aukið úrval allra vara,
sem hún hefur á boðstólum.
Fréttamaður Mbl. kom við í
Vesturröst í gær, eftir að lokið
var breytingum þeim, sem þar
hafa átt sér stað, og er óhætt að
fullyrða, að aðrar verzlanir, sem
með veiðitæki og skotvopn
verzla hér á landi, gerast ekki
betri. Er Vesturröst, í nýjum
búningi, fyllilega sambærileg við
stórverzlanir í þessu sérfagi er-
lendis.
Verzlunin Vesturröst hefur
um langt skeið haft söluumboð
fyrir brezka fyrirtækið Mil-
ward's, sem lengi var annað
helzta fyrirtæki Bretlands, sem
þjónaði laxveiðknönnum. Er eig-
endaskipti urðu að verzluninni,
og Axel Aspelund tók við rekstri
hennar, var þegar stefnt að því
að hafa á boðstólum vörur beztu
fyrirtækja á umræddu sviði, og
nú er svo komið, að Vesturröst
hefur í Reykjavík einkasöluum-
boð fyrir samsteypu fjögurra
stærstu fyrirtækja í Bretlandi,
sem þjóna lax- og silungsveiði-
mönnum. Er hér um að ræða
fyrirtækin Farlow’s, Milward’s,
Sharpe’s og Walker Bampton.
Hvert þessara fyrirtækja var fyr
ir samrunann heimsþekkt fyrir
gæðavörur, og nú munu engin
önnur samtöík í Bretlandi hafa á
boðstó'lum meira úrval betri vara
en þau, sem hér um ræðir.
Það voru Bretar, sem á sínum
tíma hófu fyrstir manna laxveið-
ar á stöng hér á landi, og voru
þeir brautryðjendur á því sviði
í Evrópu. Það er því ekki að
undra, þótt helztu gæðavörur, að
maiti veiðimanna, hafi um lang-
an aldur komið frá Bretlandi.
Því má telja í því feng, að ein
verzlun hér skuli nú hafa á boð-
stólum vörur stærsta framleiðslu
og söluhrings á þessu svíði í
Bretlandi.
Vesturröst hefur jafnframt á
boðstólum mikið úrval skotvopna
og skotfæra, framleiðslu heims-
þekktra fyrirtækja, bandarískra
og annarra. Þá mun verzlunin
framvegis stefna að því að hafa
á boðstólum vörur þær, sem
þeir, er aðrar íþróttir, s.s. golf,
stunda.
Vesturröst opnaði í gær í húsa-
kynnunum nýju, sem eru mjög
glæsileg, eins og meðfylgjandi
myndir sýna.
Er um að ræða mikið frávik
frá því, sem áður hefur þekkzt
um slíkar verzlanir hérlendis. Er
viðskiptavinum nú sköpuð að-
staða til að sitja í innri enda
verzlunarinnar, me’ðan þeir velta
fyrir sér, hvað kaupa skuli. Á
meðan geta þeir komið sér í
veiðiskap, með því að skoða
Grímseyjarlaxinn fræga, sem þar
hefur verið komið fyrir til sýnis.
Grímseyjarlaxinn blasir við. V iöskipavinir geta nú sezt, komizt
í veiðiskap við að horfa á laxinn og valið sér tæki.
Aðolritarí alþjóðlegra snyrti-
séríræðinga staddur hér ú Icndi
AÐALRITARI alþjóðasamtaka
snyrtisérfræðinga Cidesco, Ge-
orge Dumont, er um þessar mund
ir staddur hér á landi. Kemur
hann hingað fyrst og fremst til
að kynna sér starfshætti ís-
lenzkra snyrtisérfræðinga, en
liðið er rúmt ár síðan Samband
íslenzkra snyrtisérfræðinga gerð
ist aðili að Cidesco.
Á fundi með blaðamönnum
nýlega gat Dumont þess að Cid-
esco hefði verið stofnað í Bruss-
el fyrir liðlega 20 árum, og
hefði hann verið einn af stofn-
endum þess. Aðaltilgangurinn
með samtökunum væri að sam-
ræmá vinnubrögð snyrtisér-
fræðinga og halda ráðstefnur,
þar sem nýjungar á sviði snyrt-
ingar væru kynntar. Dumont gat
þess, að nú væru snyrtisér-
fræðingasambönd 20 landa aðilar
að Cidesco, en íslenzka sam-
bandið væri það 20. sem gerzt
hefði aðili. Ennfremur gat Dum-
ont þess að eitt aðal kappsmál
samtakanna væri að ná til sem
flestra landa, jafnt utan Evrópu
sem innan, því mikil þörf væri
á alþjóðlegri samvinnu í þess-
um málum ekki síður en öðrum.
Sérstakir skólar fyrir snyrtisér-
fræðinga eru starfræktir á veg-
um samtakanna í mörgum að-
ildarlöndum Cidesco. Að lokum
gat Dumont þess að hann væri
mjög ánægður með góða sam-
vinnu við ísl. snyrtisérfræðinga,
og kvað hann starfshætti þeirra
vera sérstaklega góða. Hann lof
aði mjög ísl. stúlkur fyrir glæsi
mennsku og kvað andlitssnyrt-
ingu þeirra vera mjög góða.
Arnoroes dregið
of miðunum
um 200 mííur
Seyðisfirði, 29. júlí.
í NÓTT kom Goðanesið hingaá
með Arnarnes GK 52 í togi, en
vél bátsins hafði bilað um 200
mílur frá Seyðisfirði. Brotnaði
hjól við kambásinn í bátnum.
Kallað var á Goðann, björg-
unarskip tryggingarfélaganna,
sem kom á vettvang og dró Arn-
arnes inn. Veður var sæmilegt
og gekk það vel, tók um 20 klst.
— SG.