Morgunblaðið - 05.08.1966, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 5. ágúst 1966
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kr.istinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýslngar og afgreiðsla: Aðaistræti S. Simi 22480.
Áskriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands.
1 lausasöiu kr. 5.00 eintakið.
HORFUR Á SKREIÐAR
MÖRKUÐUM
i undanförnum árum hafa
Nígería og Ítalía verið
stærstu kaupendur á skreið
frá íslandi, en hörðustu keppi
nautar okkar á þessum mörk-
uðum eru Norðmenn. Skreið-
arútflutningur okkar til Ní-
geríu hefur á sl. tveimur ár-
um numið um 70 af hundraði
heildarútflutnings á þessari
framleiðsluvöru, en nú er svo
,-komið, að útflutningur á
skreið til Nígeríu fer minnk-
andi bæði vegna minnkandi
framleiðslu á skreið hér á
landi svo og vegna aukinnar
sölu til Ítalíu. Ljóst er, að
þessir markaðir eru okkur
mjög þýðingarmiklir og nauð
synlegt að fylgjast vel með
þeim breytingum sem fram-
undan eru á þeim.
Nú er útlit fyrir nokkrum
breytingum á skreiðarmark-
aði okkar í Nígeríu. í fyrsta
lagi vegna aukinna fiskveiða
Nígeríumanna, í öðru lagi
vegna hækkandi verðlags á
þeirri skreið, sem við höfum
flutt út til Nígeríu og í þriðja
lagi vegna óhagstæðs verzlun
arjöfnuðar Nígeríu við ís-
land. Þá hafa landanir er-
^lendra fiskiskipa á nýjum
fiski í Nígeríu aukizt mikið
á sl. tveimur til þremur ár-
um úr fimm hundruð tonnum
í þrjátíu þúsund tonn. Er þar
aðallega um að ræða landan-
ir japanskra og rússneskra
skipa. Jafnframt hefur dreif-
ingarkerfi fyrir frystan fisk
verið í uppbyggingu í Níger-
íu og neyzla á nýjum fiski og
frystum fer stöðugt vaxandi.
Ljóst er því, að ýmsar blikur
eru á lofti í skreiðarsölu okk-
ar til Nígeríu á næstunni.
Að vísu má segja, að þetta
hafi ekki enn komið að sök,
bæði vegna minnkandi fram-
leiðslu hér á landi og aukinn-
ar sölu til Ítalíu, en öllum er
kunnugt um þær miklu
sveiflur, sem jafnan verða í
fiskveiðum og fiskverkun hér
á landi og breytingar í þess-
um efnum geta því orðið
skjótar. Þess vegna er nauð-
synlegt að við gerum okkur í
tíma grein fyrir ástandi og
horfum á mikilvægum út-
flutningsmörkuðum okkar,
sem þessum, og athugum
gaumgæfilega hvað hægt er
að gera til þess að tryggja þá
betur.
í bréfi, sem Þóroddur Jóns-
son, stórkaupmaður, skrifaði
frá Lagos í Nígeríu í marz sl.
og birt hefur verið í tímariti
SH, Frosti, sagði hann að
„kaupendur að skreið eru nú
færri en áður og kaupa minna
magn, en fólki fjölgar hér
eins og allsstaðar, og ætti því
kaupendur að vera fleiri og
kaupa meira magn“. Bragi Ei-
ríksson, framkvæmdastjóri
Sölusambands skreiðarfram-
leiðanda, sagði í viðtali við
útvarpið um skreiðarmark-
aði fyrir nokkru:
„Mikilvægt er, að þessi
markaðsmál séu athuguð til
hlítar. Enn er t.d. ekki ljóst,
hver áhrif hinn mikli aukni
innflutningur á frystum eða
kældum fiski hefur á skreið-
armarkaðinn. Það hefur held
-ur engin athugun farið fram
á því hvaða vörur íslending-
ar gætu keypt frá Nígeríu, ef
þess gerist þörf. Dettur mér
í hug, að hægt sé að auka
timburkaup í Nígeríu, sérstak
lega á harðviði. Einnig getum
við keypt alls kyns krydd.
Loks má geta þess, að Nígería
er orðin stór útflytjandi í
olíu .... Ég vil nota þetta
tækifæri og hvetja alla aðila
til þess að vera vel á verði.
Það er skylda vor að halda
þessum markaði eins lengi og
hægt er, því meðan við ís-
lendingar stundum fiskveið-
ar með netjum og nót, þá er
veiðin mest í marz og apríl,
og þá hefur jafnan borizt svo
mikilil afli á land, að engin
tök eru á að verka hann allan
til hraðfrystingar og söltun-
ar, en um 60—70% af skreið-
arframleiðslunni verður að
seljast til Nígeríu“.
DREIFINGAR-
KERFI
ÁBÓTAVANT
TVTýr fiskur hefur lengi verið
aðalneyzluvara og jafn-
framt sú ódýrasta hér á ís-
landi. Tiltölulega lágt verð á
fiSki miðað við önnur mat-
væli hefur gert það að verk-
um, að hér á landi er hægt að
lifa ódýrt ef menn vilja. Hins
vegar er ljóst að dreifing á
nýjum fiski er alls ekki með
þeim hætti, sem vera ætti og
stórir hlutar landsins eiga
þess ekki kost að fá daglega
nýjan fisk.
Hjalti Einarsson, verkfræð-
ingur hjá SH, hefur vakið at-
hygli á þessu aðkallandi verk
efni í grein, sem hann birti í
tímaritinu Frosti, þar sem
hann segir m.a.:
„Dreifing á blautfiski beint
til neytenda er stórkostleg at
vinnugrein í sumum ná-
grannalöndum vorum, svo
sem Bretlandi og Þýzkalandi.
Við hana er bundið geysimik-
ið fjármagn. Stórkostlegt
skipulag þarf til þess að
koma mátulega miklu magni
til allra á sem skemmstum
tíma og við það starfar fjöld-
Sjónvarpsmyndavél tekur upp höggsveiflu golfleíkara, svo hann geti virt hana fyrir sér ;
nokkrum sekúndum siðar. Sérfræðingar telja, að „sjónvarpsplötur“ verði notaðar eins og I
venjulegar grammófónplötur í framtíðinni. *
Sjónvarp:
Hvað er framundan?
Verða 99sjónvarpsplötur66 gerfi-
hnattasjónvarpinu fyrri til?
MIKI.AR breytingar hafa orð
ið á bandaríska sjónvarpsiðn-
aðinum að nndanförnu að því
er tekur til sjónvarpstækni,
og fleiri munu í vændum, að
því er greint er frá í U. S.
News & World Report ný-
lega. I grein. sem blaðið birti
um þessi mál er þess m.a.
getið að í byggingu séu 129
sjónvarpsstöðvar í Bandaríkj-
unum og umsóknir lægju fyrir
um byggingu 142 stöðva til
viðbótar.
Stöðvar þessar eru allar
reknar af einkaframtaki und
ir eftirliti Federal Communi
cations Commission (Fjar-
skiptaráði Bandaríkjanna). —
Það er Fjarskiptaráðið, sem
veitir leyfi til bygginga út-
varps og sjónvarpsstöðva, út-
hlutar bylgjulengdum og set-
ur stöðvunum ramma, sem
þær verða að starfa innan. Ef
út af er brugðið getur FCC
svipt hlutaðeigandi stöð send-
ingarleyfi.
Fjarsiíiptaráðið er þeirrar
skoðunar, að eftir því sem
sjónvarpsstöðvarnar eru
fleiri, sem um markaðinn
keppa, því betri og fleiri
verða sjónvarpsþættir þeir,
sem almenningi gefst kostur
á að sjá.
Svo vikið sé að nýjungum
varðar.di sjónvarpstæki, hafa
fjarskiptahnettir á braut um-
hverfis jörðu opnað nýja
möguleik.a, og raunar mögu-
leika á byltingu, — ef hægt
verður að leysa erfitt tækni-
legt vandamál.
Það sem framundan er:
Hægt verði að senda sjón-
varpsbylgjur um gervihnetti
á braut umhverfis jörðu beint
til heiroila, án þess að til
þurfi að koma að stöðvar á
jörðu niðri taki við sjónvarps
bylgjunum og endurvarpi
þeim, likt og nú er gert. —
Takist þetta, munu gervihnett
ir leysa einstakar stöðvar að
verulegu leyti af hólmi.
Vandinn liggur í því, að
smíða sendi, sem væri nægi-
lega lítill um sig, en þó nógu
kraftmikill og endingargóður
til þess að geta sent sjónvarps
bylgjurnar beint frá gervi-
hnetti til heimila. Slíkur út
búnaður er ekki til í dag, og
um það er deilt hvenær hugs-
anlegt væri að hann yrði smíð
aður.
Rafmagnsverkfræðingur,
sem starfar hjá Arthur D.
Little Company segir, að beint
sjónvarp um gervihnetti „sé
ekki hugsanlegt meðan
þessi kynslóð lifir“. Hins veg
ar hefur opinber embættis-
maður, sem kunnugur er öll
um hnútum þessa vandamáls,
sagt að vandinn kunni að
verða leystur innan áratugar.
Annar möguleiki, sem marg
ir sem gerst þekkja telja að
muni verða að veruleika í nán
ustu framtíð, er „sjónvarps-
platan".
Sérfræðingar í Bandaríkj-
unum telja, að sá tími kunni
að vera skammt framundan
að sjónvarpsþlötur taki sér
stöðu á hinum almenna mark
aði við hlið grammófónplata
nútímans, og þær verði hægt
að kaupa eða leigja fyrir hag-
stætt verð.
Þetta mál var rætt nýlega
af hópi sérfræðinga og sjón-
varpsframleiðenda í Stanford
háskóla, sem komst að þeirri
niðurstöðu að sjónvarpsstöðv
ar myndu einhverntíma í
framtíðinni nota „sjónvarps-
plötur“ til þess að skapa ódýrt
sjónvarpsefni, á sama hátt og
útvarpsstöðvar nota nú
grammófónplötur. Ráðstefna
þessi spáði því einnig, að „sjón
varpsplötur" yrðu einnig not
aðar í heimahúsum, líkt og
grammófónplötur í dag. Þann-
ig yrði hægt að setja sjón-
varpsplÖtu á grammófón í sam
bandi við heimilissjónvarpið
og horfa á siénvarpsþætti eft
ir hentugleikum hvers og
eins.
Þegar hefur verið settur á
markaðinn útbúnaður til þess
að taka upp sjónvarp á segul-
band og sýna það á sjónvarps-
skermi. Unnið er að því að
lækka kostnaöinn á þessum út
búnaði. Allmörg fyrirtæki
vinna að því að finna upp ó-
dýrar plötur, sem henta
myndu sjónvarpsupptökum.
Sony Corporation sýndi
þannig nýloga tæki, sem tek
ur 30 sekúndna kvikmynd,
setur hana á plötu, sem síðan
er hægt að „ppila“ í sjónvarps
tæki.
Sem sagt, sjónvarpsplötur
kunna að vera það, sem fram
undan er í nánustu framtíð,
fremur en gervihnattasjón-
varp.
inn allur af hæfum mðnnum
með mikla sérþekkingu ....
Hér á íslandi er þessi dreif-
i-ng hvergi nærri eins skipu-
lögð, enda vantar mikið á, að
allt landið eigi þess kost að
geta keypt ferskan fisk dag-
lega. Ég minnist á þetta hér
I vegna þess, að ég tel að úr-
bóta sé þðrf. Hinn almenni
neytandi mun í framtíðinni
gera miklu meiri kröfur til
fisksala, þjóðin öll mun krefj
ast þess að eiga kost á að
kaupa góðan fisk daglega. Til
þess að svo megi verða þarf
nýrra aðgerða“.
Hér er vissuléga vakin at-
hygli á brýnu verkefni. Það
er ekki vanzalaust fyrir svo
mikla fiskveiðiþjóð sem ís-
lendinga að geta ekki séð
landsmönnum öllum fyrir
nýjum fiski daglega, og er
hér um að ræða mikið verk-
efni fyrir þá sem fiskdreif-
ingu annast