Morgunblaðið - 05.08.1966, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.08.1966, Blaðsíða 24
Helmmgi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað Langstærsta og íjölbreyttasta blað landsins 175. tbl. — Föstudagur 5. ágúst 1966 Eins árs fangelsi fyrir ávísanafals 1 GÆR (fimmtudaginn 4. ágúst) var í sakadómi Rcykjavíkur kveð inn upp dómur í máli, sem höfð- að var 27. f. m., af ákæruvalds- ins hálfu gegn Huldu Guðrúnu Fyrsta söltunar- síldin til Dalvíkur t GÆRMORGUN kom skipið Björgvin með 40 tonn af síld til Dalvíkur, að því er fréttaritari Mbl. á Dalvík Einar Flygering, tjáir blaðinu. Var hér um góða og stóra síld að ræða, þó að 26 klukkustundir væru liðnar frá >ví, er hún veiddist og þar til henni var landað. Voru saltaðar af þessu magni 124 tunnur, en þetta er fyrsta söltunarsíldin, sem berst til Dalvíkur á sumrinu. Síldin veiddist 90 mílur suður af Jan Mayen. Veður var kalt á Dalvík í gær, 5—6 stiga hiti, norðanátt og rign- ing. Afli smábátanna, sem róa frá Dalvík hefur verið lélegur, hvort sem um dragnót eða hand- færi hefur verið að ræða. INIorður með vesl urströnd IM- Ameríku í fyrsta, smn Ms. HAMRAFELL fór um Panamaskurð með olíufarm frá Venezuela á leið til Anchorage í Alaska. Mun þetta vera í fyrsta sinn, sem skip undir íslenzkum fána siglir norður með vesturströnd N-Ameríku til Alaska. Hamrafell hefur að undan- förnu verið í olíuflutningum fyrir erlenda aðila. Dýrfjörð Jónsdóttur, heimilis- lausri, og eiginmanni hennar, Agnari Karlssyni Svendsen, nú gæzlufanga. Voru þau hvort um sig dæmd í eins árs fangelsi og til greiðslu fébóta og málskostn- aðar. í dóminum er talið sannað, að ákærð hafi sameiginlega notað í lögskiptum 23 tékka með föls- uðum nafnritunum, að fjárhæð samtals kr. 40.161,95. Tékkana seldu ákærð yfirleitt í verzlun- um og keyptu þá oft nokkuð af vörum, en fengu tékkana að öðru leyti greidda í peningum. Auk þess höfðu ákærð ritað 2 tékka, samtals kr. 21.700,25 í því skyni að nota þá á sama hátt. Hin ákærðu höfðu bæði verið dæmd skilorðsbundnum dómi fyr ir skjalafals á árinu 1965. Dóminn kvað upp Halldór Þor björnsson, sakadómari. Brunatjón hér mun hærri nálægum löndum en i Olíukyndiiigartæki, röng með- ferð eldfimra efna, og rangur raf útbúnaður olli annarri hverri íkveikju 1964 BRUNATJÓN á húsum nam samanlagt sem næst 34 milljón um króna árið 1964, og var það nær tvöfalt meira en árið 1963, en þá var það 16.7 millj. kr. Ef þessar tölur eru bornar sam- an við það sem gerist í nær- liggjandi löndum, kemur í ljós að brunatjón á mann á íslandi eru mun hærri en þar. Þetta kemur m.a. fram í er- indi Bárðar Daníelssonar verk- Gashoranir v/ð Lagarfljót FYRIR UM það bil viku var hafin borun eftir jarðgasi skammt frá bænum Vallholti í Fljótsdal. Að því er Jónas Pét- ursson, alþingismaður tjáði Mbl. í gær hefur undirbúningur að þessum borunum staðið yfir í um tvö ár, en framkvæmdir hófust eins og fyrr segir fyrir um það bil viku. Borinn, sem notaður er, hefur áður verið við boranir við Lag- arfoss, þac sem ætlunin er að koma upp rafvirkjun og er hann á vegum raforkumálaskrifstofunn ar. Staðinn við Vallholt valdi Jón Framihald á bls. 23. fræðings um brunavarnir, sem hann flutti á ráðstefnu um skipu lags- og byggingarmál um mán- aðarmótin marz-apríl í fyrra, og birtist í nýútkominni Handbók Sveitastjórna. Bá:rður segir ennfremur í er- indi sínu, að sé lausafé tekið með, þá hækki framangreindar upphæðir um 27 milljónir króna árið 1963, og um 40 milljónir króna 1964, eða upp í 74 millj. kr. Bárður bætir því við, að í sambandi við upphæðir þessar sé vert að hafa í huga að hér sé einungis um að ræða saman- lagðar tjónabætur tryggingarfé- laganna, en það sé algengt eink- anlega hvað snertir lausafé, að það sé verulega undirtrygt eða jafnvel ótryggt með öllu. Framihald á bls. 23. Myndin hér aS ofan er af: Piper Apaohe-vél Tryggva ' Helgasonar á Akureyri, en i Tryggvi hefur nú um langt | árabil stundað sjúkra- og I leiguflug frá Akureyri svo j sem alþjóð er kunnugt. Mynd- ; ina tók ljósmyndari Mbl. Ól. I K. Magnússon á flugvellinum ■ við Ásbyrgi fyrir nokikrum : vikum. : Bifreið stolið f FYRRTNÓTT var bifreiðinni R-5320 stolið frá Stóragerði 8. Bifreiðin er Taunus 17 M, stati- on, hvít og blá að lit. Skipt hafði verið um liægra frambretti og er það ljósgrátt. Þeir, sem gætu gefið upplýs- ingar um ferðir bifreiðarinnar snúi sér til rannsóknarlögregl- unnar. Auknar framkvœmdir við Þorlákshöfn VERIÐ ER að ganga frá samn- ingum við Árnes- og Rangár- vallasýslur um afhendingu Þor- lákshafnar til Vita- og hafnar- málastjórnar. Blaðið átti í gær tal við Magnús Bjarnason, for- mann hafnarnefndar, og sagði hann, að samningum yrði lokið á næstu dögum og yrði þá Þor- lákshöfn landshöfn löglega frá og með 1. júlí. Áætlaðar hafa verið 100 millj. króna til tramkvæmda við hafn argerðina, og er þegar búið að Danir rannsaka hotn- gróður og Surtsey dýralíf við UM MIÐ.TAN mánuðinn mun leiðangur danskra vísindamanna fara út í Surtsey til þess að rann saka botngróður og dýralíf um- hverfis gosstöðvarnar. Það er Surtseyjarfélagið, sem fengið hefur hina dönsku vísinda menn til þessara rannsókna, en Surtseyjarfélagið nýtur styrks frá Hafrannsóknarstofnun banda ríska flotans. Hinir dönsku vís- indamenn eru frá Marinbiologisk Institut í Helsingör, sem er mjög virt stofnun, að því er Stein- grímur Hermannsson tjáði Mbl. í gær. Sagði Steingrímur, að ætlunin væri að leigja Maríu Júlíu til þessara rannsókna, sem eru lið- ur í hinum almennu Surtseyjar- rannsóknum. vinna fyrir um helming þess fjár magns. Einnig er verið ,\ð endur skoða samninga við verktakana, Efra-Fall, og er gert ráð fyrir að Efra-Falli verði ætluð tvö til þrjú ár tii að ljúka við norður- garð hafnarinnar, sem verður 200 metra langur og ætlaður sem aðlag fyrir báta. Nýlega er búið að fullgera suðurgarðinn, sem ætlaður er hafskipum. Geta öll íslenzk skip að undanteknu Hamrafellinu lagzt þar að bryggju. Nú vinna við hafnargerð í Þor lákshöfn um 12—20 manns. Er gert ráð fyrir auknum mann- afla að endurskoðun samninga við verktaka lokinni Suzy Wong komin til þorlákshafnar ÞEIR FEI. AGARNIR á Suzy Wong, Hafsteinn Sveinsson og Þórarinn Ragnarsson komu til Þorlákshafnar fimmtán mínútur yfir níu í gærkvöldi eftir einnar og hálfrar klukkustundar sigl- ingu frá Grindavík. í gærmorgun fóru þeir frá Sandgerði áleiðis til Grindavík ur, en þeir leituðu hafnar í Sand gerði vegna þess að ræsir bilaði í farkostinum, eins og sagt var frá í blaðinu í gær. Þeir félagar ætluðu að gista í Þorlákshöfn í nótt og halda síð- an til Vestmannaeyja í dag og gerðu ráð fyrir að verða hálfa þriðju klukkustund á leiðinni, yrði þeim kleift að halda sama hraða og til Þorlákshafnar. Létu þeir félagar vel af ferð- inni, að því er faðir Hafsteins, Sveínn Böðvarsson tjáði Mbl. í gærkvöldi, en hann hafði þá ný- lega talað við son sinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.