Morgunblaðið - 05.08.1966, Page 15
Föstudagur 5. ágúst 1966
MORGUNBLAÐIÐ
15
Ein síðbúin og hógvær hug-
leióing um kvikmynd Bergmans
,Sjáið sautján, Bæjarbíó“
Kannast nokkur við að hafa
heyrt þetta í auglýsingatímum
útvarpsins undanfarnar vikur?
Og skyldi nokkur hafa haft löng
un til að sjá þessa mynd, það
er aðeins tólfta sýningarvika
núna?
Én meira þarf ekki að vita til
að renna grun í hverrar teg-
undar mynd, um er að ræða,
enda mun þetta vera einhver
hispurslausasta sýning sem um
getur i íslenzkum kvikmynda-
húsum, síðan „Þögnin“ leið.
En er það eðlilegt að það sem
er ljótast og soralegast í mann-
legu lífi, sé dregið fram, fólki
til dægradvalar? Er það nokkr-
um ábati að rifja upp, í máli
og myndum það sem vekur og
viðheldur lægstu hvötum þess?
Eiga allir að kappkosta það að
gera lífið fegurra og betra fyrir
aðra og sjálf sig, reyna að bægja
írá öllu sem lakara er? — En
það mun bezt gert með því að
hlynna að því sem gott er og
sýna umfram allt fegurðina sem
lífið á, — það getur verið ó-
metanleg hjálp hverjum sem er,
og alira helzt unglingum, sem
mest sækja kvikmyndahúsin.
Það á að reyna að efla góðan
smekk hjá kvikmyndahúsgest-
um með því að sýna aðeins mynd
ir sem eru efnisríkar og stuðla
heldur að betri breytni en lak-
ari, og það er engin þörf og ekki
bót að því heldur að hafa í
hverri mynd meira og minna af
ósmekklegum klámsenum sem
hertaka svo hugi sumra að þeir
muna ekki annað eftirá, jafnvel
þó eitthvað hafi verið með sem
gott var.
„Þögnin“ gekk í nokkrar vik-
ur i Hafnarfirði í vor og hafði
ég vænzt þess að einhverjum
fleirum en mér væri nóg boðið
°g ympruðu á mótmælum gegn
sýningu slíkra mynda. En líklega
hefur öllum geðjazt þetta nema
mér og aðeins sagt „En svona
er lífið“! En ég vil ekki sam-
þykkja það að það sé ekki líka
mörgum sinnum fegurra og betra
Mörgum fannst „Þögnin“ vera
lærdómsrík og listaverk. Auð-
vitað hefur enginn þorað að
setja neitt út á myndina, vegna
þess að hún er gerð af leik-
stjóra sem fengið hefur orð á
sig. En allur sá lærdómur sem
myndin lætur áhorfanda á té.
miðast nær eingöngu við lesti,
lauslæti og það sem ófegurst
er í mannlegu lífi. Slíkt sem
sýnt er í þessari mynd, þarf
örugglega enginn að lær.a, a.m.k.
er þessi vettvangur og búningur
ekki sá rétti og sé það einhver
sem ekki kann þessar listir eins
og Ingmar Bergman sýnir þær,
þá verður það engum að fóta-
skorti í lífinu. Ljótleikanum á
að útrýma en ekki að halda
honum áð lofti, lestina á a
dempa með því að laða fram
það bezta og fegursta sem býr
í hverri mannveru, í stað þess
að draga fram grófustu og ósið-
legustu hliðar hennar og það á
jafn ósmekklegan og blygðunar-
lausan hátt og gerú er í mynd-
inni.
Útyfir tekur þó að allir róma
hana sem listaverk. Er það ef
til vill þess vegna sem hún
gekk í 6-8 vikur? — Ótrúlegt
er það, því sannfæring min er
sú að væru klámsenurnar klippt
ar úr myndinni, eða ef þær
hefðu aldrei verið þar, þá hefði
myndin horfið eftir tvo þrjá
sýningardaga eins og allar góð-
ar myndir. Þá hefði öllum þótt
þetta vera þrautleiðiniegt „lista
verk“ og það hefðu engar 15-20
þúsundir lagt það á sig að sjá
það. Með öðrum orðum, sé mynd
in listaverk að gerð, þá er það
samt ekki það sem orsakar að-
sóknina, heldur hinir óvenju-
legu atburðir sem gerast með
hæfilegu millibili á ótrúlegustu
stöðum — þeir eru segullinn
sem heldur fólki vakandi. Ing-
mar Bergman veit hvað með
þurfti tl að tryggja metaðsókn,
en er honum það eins Ijóst
hvað'hann vill segja með þess-
ari mynd? Er það nokkuð nema
; það sem hann sýnir og mest
ber á, lauslæti, drykkjuskapur,
mahnVonska og misskilningur?
Felist einhver háleitari boðskap-
ur í myndinni, þá hverfur hann
algjörlega í ósómanum og það
munu ekki vera margir sem
finna gimsteininn, hann er svo
vandlega falinn í soranum.
Myndin er laus við að gefa
nokkuð af því sem gerir venju-
legt fólk ríkara að íegurð eða
lærdómi, þvert á móti rænir hún
öllu því góða úr lífinu — og
það er trú mín að fleiri en ég
finni þau dapurlegu áhrif sem
myndin hefur og finni til von-
brigða yfir því að þí*ð sem í
allra lífi á að vera einkamál og
á einnig að vera tengt beztu og
helgustu tilfinningum þess —
skuli svo miskunnarlaust vera
afskræmt og slitið úr tengslum
við allt gott og fagurt.
í samskiptum kynjanna er
— Iðnaðarhúsnæði —
200 ferm. verkstæðishúsnæði til leigu við aðalgötu.
Hátt undir loft og bjart. — Góð aðkeyrsla og bíla-
stæði. — Upplýsingar í síma 50449 kl. 8—17 dag-
legai
EUj
íbúð í
Vestur-
borginni
til sölu, 110 ferm., 4ra herb. glæsileg íbúð við
Dunhaga. Harðviðarinnréttingar, teppalögð gólf.
Lóð að fullu frágengin. — íbúðin er laus til afnota
nú þegar.
GÍSLI G ÍSLEIFSSON
hæstaréttarlögmaður.
JÓN L. BJARNASON
fasteignaviðskipti.
Hverfisgötu 18.
Símar 14150 og 14160
Kvöldsími 40960.
gengið svo hispurslaust til verks
að það er undravert að nokkur
leikstjóri skuli geta sneitt svo
gjörsamlega hjá öllu velsæmi og
sama má þá segja um fleiri at-
riði — einnig vekur það undrun
mína að noikkur leikari skuli
láta skipa sér annað eins. Of rík
velsæmistilfinning verður víst
engum að fjörtjóni nú á tímum,
það er aðeins kapphlaup um það
að yfirstíga í sífellu það síðasta
sem heyrzt og sézt hefur verst,
í ósiðlegheitum. Eina bótin er
það að einhversstaðar- hljóta að
vera takmörk og það getur varla
verið langt í þau, úr þessu, en
hvað verður þá tekið til bragðs
— og með hverju á þá að
skemmta — það verða ljótu
vandræðin.
„Þögnin“ ber nafn með Tentu,
því að fátt er talað en þvi fleira
sýnt.
Aðalpersónurnar eru systurn-
ar, Ester sem er eldri og ógift
og Anna sem er ekkja og á einn
dreng, sem mest verður að sjá
um sig sjálfur. Annað veifið sést
gamall þjónn sem talar óþekkta
tungu og skilur þvi hvorki dreng
inn eða systurnar, sem eru þarna
aðeins um stundarsakir á ferða-
lagi. Systurnar eru gerólíkar og
með þeim gerist það sem skeð-
ur oft í lífi margra annara. —
Ester þykir mjög vænt um syst
ur sína en Önnu er í nöp við
Ester og nánast sagt hatar hana.
Gefið er í skyn i ágripi um
myndina að tilfinningar eldri
systurinnar séu óeðlilegar, en
mér virtist það hvergi koma
fram í myndinni og er það því
eflaust getgáta til þess að gera
myndina óvenjulegri — það er
hvergi sagt eða sýnt að um kyn-
villu sé að ræða. En auðvitað
er hægt að rangtúlka allar til-
finningar hvers sem er og svo
virðist mér gert hér. Það er
ótrúlegt að heilbrigðu, skyn-
sömu íólki detti það í hug að
það sé merki um kynvillu að
bróður þykir vænt um bróður
eða systur um systur? Má þá
ekki líka telja það ónormalt að
systkinum þyki vænt hvoru um
annað? Og þá er ekki að sökum
að spyrja «5 það er ónáttúra
falin í hverskonar vináttu og
allir, sem þyki vænt um vini
sína sem eru sama kyns, eru
auðvitað eftir þessu að dæma
kynvillingar. Það er eflaust
öruggast fyrir hvern og einn að
þykja aðeins vænt um sjálfan
sig, þá er misskilningur útilok-
aður.
Mér virðist það aðeins vera
í samræmi við heilbrigðan syst-
urkærleika að Ester tekur sér
nærri óhóflegt lauslæti Önnu og
grimmlyndi, þrátt fyrir að Est-
er er dauðveik og þarfnast hjálp
ar hennar. En mannkynið við-
ist vera orðið svo rangsnúið í
hugsunarhætti sínum og komið
á svo lágt stig að það sér aðeins
kynvillu og óeðli í hverjum
neista af kærleika og vináttu
manna á meðal. Vinátta hefur
allt fram undir þetta, þótt lofs-
verður eiginleiki, sé hún traust
og einlæg. — Umhyggja og
hlýjar tilfinningar milli syst-
kina, systra og bræðra, hefur
heldur aldrei þótt neinn löstur,
en eftir þeim dómi sem þessi
mynd hefur fengið, virðist sem
æði margir geti verið dæmdir
sekir um óleyfilegan kærleika.
Annars minnir mig að Kristur
hafi kennt það fyrir nítján öld-
um rúmum, að mennirnir ættu
að vera umburðarlyndir hver
við annan og elska hverja aðra.
Ekki setti hann þau skilyrði að
það væri aðeins karl og kona
sem það mætti gera. Nei, kær-
leikurinn er það bezta og feg-
ursta sem þessi veröld á og það
er hæpið að halda því fram að
hann verði nokkurn tíma of
Framhald á bls. 17
Garðsláttuvélar
Höfum nú fengið
aftur hinar vinsælu
sænsku
CKESCENT
garðsláttuvélar
með benzínmótor.
Verð aíe’ns kr. 4866.oo
Góðfúslega leitið upplýsinga hjá oss.
&tsli csT. *3ofínssn 14
Vesturgötu 45. — Sími 12747.
Skiifsloíustarf óskasl
Ung og reglusöm stúlka, með gott próf úr nám-
skeiði Verzlunarskólans og nýkomin heim eftir árs-
dvöl í skóla í Bandaríkjunum, óskar eftir góðu skrif
stofustarfi, helzt sem fyrst.
Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir mátiudagskvöld,
8. ágúst, merkt: „4590“.
Hef verið beðinu um að útvega
erlendum aðiium
1-2 báta til
snurpunóta-
veiða
Æskileg stærð: 80—100 fet.
Kaup koma til greina, jafnt á tré- sem
stálskipi. — Upplýsingar veitir:
Ragnar Tómasson hdl.
Sími 30-150.
Fasteignasalan Hátúni 4A
Nóatúnshúsið — Sími 21870.
TIL SÖLIi
2ja herb. nýleg, glæsileg íbúð á 2. hæð við Bólstað-
arhlíð, harðviðarinnréttingar, teppaiagt. íbúðin get
ur verið laus fljótlega.
HILMAR VALDIMARSSON
fasteignaviðskipti.
JÓN BJARNASON,
hæstaréttarlögmaður.
LAXVEIÐILEYFI
Höfum nokkra daga lausa í laxveiðiá á Suðurlandi.
Skip & fasteignir
Austurstræti 18 — Simi 21735
eftir lokun 36329.