Morgunblaðið - 05.08.1966, Blaðsíða 22
22
MORGU N BLAÐIÐ
Föstudagur 5. ágTSst 1966
Valur vann KR í
spennandi leik 3-2
Hafði skorað öll mörkin i fyrri
hálfleik, KR ekkerf
VAL6R hefur nokkra sérstöðu
meðal íslenzkra knattspyrnu-
liða um þessar mundir að einu
leyti. Þeir eru nefnilega ótrú-
lega seigir að ná sér í gott for-
skot í fyrri hálfleik leikja sinna,
en þeir eru líka ótrúlega seigir
að tapa þeim niður í síðari hálf-
leik. Þannig var það td.. í báð-
um leikjunum á móti Kefiavík-
igum og þannig var það á móti
KR-ingum í gærkveldi. Valur
hafði náð sér í 3:0 í fyrri hálfleik,
en þeir misstu það niður í 3:2
undir lokin.
Ekki er hægt að segja að leik-
urinn í gærkveldi hafi verið til-
þrifamikill eða hafi boðið upp
á skemmtilega knattspyrnu, »>n
hann hafði á hinn bóginn til að
bera ögn af skemmtilegum
augnablikum upp við mörkin.
J>að fyrsta kom á 14. min. leiks-
ins, er KR-ingar sóttu fast að
marki Valsmanna, og endaði
með því að Eyleifur átti fast
skot í þverslá. Knötturinn hrökk
til hans aftur, og hann átti aft-
ur skot að marki, en nú tókst
að bjarga á línu. Tíu mínútum
siðar átti svo Hörður Markan
hörkuskot að marki, en Sigurð-
ur Dagsson bjargaði snilldar-
lega.
Litlu síðar sóttu svo Valsmenn
og Hermann fékk knöttinn á
vinstri vallarhelmingi KR-inga.
Hann sendi hann vel fyrir mark
ið, þar sem Eergsveinn tók á
móti honum, og spyrnti viðstöðu
laust í þversiána og inn. 1:0 fyrir
Val. Á 35. min sóttu svo Vals-
menn aftur og Ingvar og tveir
varnarmenn KR háðu mikla bar
áttu um knövinn. Ingvar hafði
betur að lokum, og tókst að
senda knöttinn framhjá Guð-
mundi, sem kom hlaupandi út úr
markinu 2:0 Val í viL
Valsmenn höfðu átt heldur
meira í þessum hálfleik, og á 37.
mínútu komst Reynir einn inn
fyrir ög skoraði eftir að herfileg
mistök höfðu orðjð hjá KR-ing-
um, og var það reyndar ekki í
fyrsta skipti i ieiknum. Á 40.
mín. gerðu svo KR-ingar allharða
sókn að marki Vals, sem lauk
með skoti frá Eyleifi, sem lenti
í þverslá.
Síðari hálfleikur var öllu til-
þrifaminni en hinn fyrri, þegar
fyrstu 15 mínúturnar eru und-
anskildar. KR-ingar höfðu hafið i.
mikla sókn á Valsmarkið, og
Sigurður Dagsson var kominn
langt út úr markinu, er knött-
urinn hrökk til Einars ísfeld,
sem lyfti knettinum yfir Sig-
urð og í mark. Og tíu mínútum
síðar skoraði Einar svo aftur
fyrir KR, með ágætu skoti.
Eftir þetta annað mark KR-
inga fór leikurinn mjög að
dofna, og varð að mestu þóf
það sem eftir var, nema hvað
heldur lifnaði yfir leiknum síð-
ustu 5-8 mínúturnar eða svo.
Þá áttu Valsmenn þrjú opin
marktækifæri, og KR-ingar eitt,
en þau runnu öll út í sandinn.
Dómari í leiknum var SteirAi
Guðmundsson, og var ákaflega
mistækur í sínum gerðum.
Fyrsta mark Vals. Bergsveinn atti skot í þverslá — og inn.
Ryður „4-3-3" kerfii úr
vegi „4-2-4" kerfinu?
Englendingar og Porlúgalar
notuðu það með ágæturn árangrí
UMRÆÐCRNAR um heimsmeist
arakeppnina eru senn að fjara
út en minningin um góða leiki
og ýmsa viðburði mun þó lengi
lifa. Eitt finnst sérfræðingum at-
hyglisverðara öðru fremur, en
það er hið nýja „kerfi“ sem
færði Englendingum sigur. Þetta
kerfi er kallað „4-3-3“ og reynd-
ist í þessari keppni mjög sigur-
stranglegt og þykir hafa borið
ægishjálm yfir hið kunna „4-2-4“
kerfi.
Englendingar notuðu þetta
kerfi og hefur Alf Ramsey þjálf-
að menn sína í því undanfarna
mánuði eða ár. Portúgalir not-
uðu einnig þetta kerfi, en þó
ekki með jafn mikilli áherzlu á
vörn og Englendingar.
Kerfið er fólgið í því að 4
menn leika sem sóknarmenn, 3
leika á miðju með það hlutverk
að breyta vörn í sókn og 3 skipa
öftustu vörn.
1958 komu Brasilíumenn fram
með „4-2-4“ kerfið og fóru sigur-
för; ur"ðu heimsmeistarar. Hvert
landsliðið af öðru, hvert félags-
liðið af öðru, tók upp kerfið unz
það var ríkjandi leikaðferð úm
allan heim.
En á iaugardaginn varð „4-2-
4“ kerfið úrelt. Þjóðverjar beittu
þeirri leikaðferð en Englending-
ar hinu nýja „4-3-3“ og hið nýja
sigraði eftir 2 tíma harða bar-
áttu.
t Heimslið
AP-fréttastofan hafði mikið
lið gamalkunnra sérfræðinga í
þjónustu sinni undir keppninni.
í lokin völdu þessir menn
„heimslið“ úr þeim hópi sem
fram kom á HM. Lið þeirra var
þannig:
Banks (Engiand).
Santos (Brasilíu) og Schulz
(Þýzkaland).
Moore (England), Marzolini
(Argentínu), Beckenbauer (V-
Þýzkaland).
Bobby Gharlton (England),
Voronin (Sovét), Bene (Ung-
verjaland), Eusibio (Portúgal)
og Simoes (Portúgal)
í þessum hópi er aðeins einn
„gamlingi“, þ.e. Santos, sem er
36 ára. Hann sýndi enn þá tækni
og þá yfirvegun sem skapað hef-
ur honum sæti meðal fremstu
bakvarða allra tíma. Eusebio var
sem kunnugt er markakóngur
keppninnar með 9 mörk og fékk
1000 punda verðlaun fyrir. Næst-
ur kom Haller (Þýzkalandi) með
5 mörk skoruð.
Margir hinna eldri virðast nú
nálgast endalok ferils síns. Pele
og Brasilíumenn hverfa næstum
sviplaust frá keppninni. Uwe
Seeler sem nú var í 3. sinn í
HM-keppni fyrir Þýzkaland —
sést tæpast aftur á þeim velli.
Sama er að segja um marga
„stjörnu“-leikmenn Spánverja.
Af öllum erlendum leikmönnum
varð Uwe Seeler frægastur. For-
nafn hans, „Uwe“, varð einingar-
tákn og hvatningaróp fjölmargra
þýzkra áhorfenda. Ensku strák-
arnir lærðu hrópið fljótt og það
hljómar enn á götum í enskuna
bæjum: „Uwe, Uwe“.
— Þetta þýðir ekkert fyrir hann.
Uómarinn er svo þrár að hann
breytir aldrei ákvörðun sinni.
Standard Liege kemur 20.
ág. - Nantes hinn 7. sept.
Bjarni Felixson meiddist illa áfæti. Var hann á sjúkrahúsi
nótt — en er ekki talinn biuu .n.
E I N S og kunnugt er taka
bæði KR sem íslandsmeistar-
ar og Vaiur sem bikarmeistar-
ar 1965 þátt í hinum stóru
mótum um Evrópubikar meist
araliða og Evrópubikar bikar-
meistara. Áður hefur verið
sagt frá því að KR og Frakk-
landsmeistararnir Nantes FC
drógust saman i 1. umferð í
keppni meistaraliða, en Valur
og Standard Liege, bikar-
meistarar Belgíu, eiga að leika
í undanrásum um sæti í 1. um
ferð.
Samkvæmt drætti átti KR
rétt á leik hér heima fyrst en
mæta síðan úti, en í báðum
tilfellum eiga ísl. liðið að
leika heima og heiman. Vals-
menn áttu hins vegar að leika
fyrst úti en síðari leikurinn
að vera hér.
Vegna hins stutta keppnis-
tímabils hér og þess hve
snemma tekur fyrir kvöld-
leiki hafa Valsmenn staðið í
samningum um að leika fyrri
leikinn hér heima. Náðust
samningar i gær um leikina,
bæði hjá KR og Val.
Valur leikur við Standard
Liege hér í Reykjavík 20.
ágúst og liðin mætast aftur á
heimavelli belgiska liðsins 31.
ágúst.
KR tekur á móti Frakk-
landsmeisturunum í Reykja-
vik og leikur við þó i Laugar-
dal 7. september en síðari leik
urinn verður í Nantes 5. okt.
Hefur or’ðið talsvert karp
um þetta samkomulag og til-
lögur margar og breytingar,
en loks í gær var endi bund-
inn á málin í báðum tilfellum.