Morgunblaðið - 20.08.1966, Síða 3

Morgunblaðið - 20.08.1966, Síða 3
liaugarðagur 20. ögúst 1966 MUKb U N 0 LMtílU o 64 skip með 13.276 tonn: Mesta síldveiði sem sögur fara af miðað við fjölda veiðiskipa SÍLDARAFLINN á fimmtu- , dag aðfaranótt föstudags er sá mesti, sem sögur fara af miðað við fjölda veiðiskipa. Alis fengu 64 skip 13.276 tonn (132.760 tunn j ur). Mesti afli sem fengizt hefur á einum sólarhring, fékkst 12. júlí 1964, en þá var afli 119 skipa 110.480 mál og tunnur, eða 14.210 tonn. | Mesta afla fékk Gísli Arni, RE 1 skipstjóri Eggert Gíslason eða 370 tonn. Jörundur II. RE fékk I 330 tonn, en í skýrslunni er hann talinn hafa 400 tonn en það kem ur til af því, að skipið losaði ' 70 tonn í flutningaskip þann sólarhring. Þessi mikli síldarafli fékkst á tveim veiðisvæðum, um 200 ! mílur norðnorðaustur af Raufar höfn og 120 mílur suðaustur af Seley. Skipin sigldu með aflann til hafna allt frá Siglufirði til syðstu hafna á Austfjörðum. i Síldarbragur á Siglufirði Nokkur skipanna héldu til Siglufjarðar með aflann, en 20- 30 tíma sigling er þangað af miðunum út af Raufarhöfn. Fréttaritari Mbl. á Siglufirði sagði í gær, að síldarbragur væri nú kominn á Siglufjörð. Asbjörn og Siglfirðingur hefðu komið um miðjan dag með fullfermi og væri söltun þegar hafin á tveim plönum. Saltað yrði á 8 plönum þá um kvöldið og nóttina og hefði ekki verið saltað á svo mörgum plönum þar í bæ árum saman. Frétaritarinn bjóst við söitun alla nóttina og allir sem vettlingi gætu valdið tækju þátt í henni, en aðeins heimafólk og líklega einhverjir frá Hofsósi. Kvað hann líf í tuskunum á Siglufirði, fólkið væri mjög á- nægt að fá síld aftur, enda væri þetta góð og falleg síld sem skipin kæmu með. Stanzlaus söltun á Raufarhöfn. Á Raufarhöfn var í gær saltað á öllum söltunarplönum 10 tals ins. Vinnur fólkið á meðan það stendur uppi, en í gær kom fólk frá Reykjavík, Akureyri og reynt var að smala saman fólki í sveit unum til að vinna við söltunina. Um 15 skip voru við bryggjur í gær. Tekið var úr þeim í söltun sem unnt var, en afgangurinn fór í sildarbræðsluna. Síldin er mjög stór og falleg. Var henni landað beint í kassana, en síð- degis var samt tekið að bera á misjafnri síld, sem þurfti að j setja í flokkunarvélar, en þá gengur söltunin seinna fyrir sig Síldarbræðslan á Raufarhöfn átti að taka til starfa í gær- kvöldi, en þróarrými hennar er um 10 þúsund tonn. Voru þrærn ar nær tómar. Veiðiveður var gott á miðun um í gærdag en nokkur kalsi. Um 20 tíma sigling er fyrir skipin til Raufarhafnar. Hér fer á eftir listi LÍÚ um afla skipanna í fyrrinótt: Raufarhöfn: Lestir Snæfell EA 250 Þorleifur OF 25 Búðaklettur GK 250 Lómur KE 250 Hamravík KE 210 Árni Magnúss. GK 235 Gunnar SU 240 Sólfari NK 210 Ingiber Ólafsson GK 290 Siglfirðingur 220 Gjafar VE 270 Elliði GK 210 Víðir II. GK 200 Guðrún Þorkelsd. SU 220 Loftur Baldvinss. EA 250 Ingvar Guðjónss. SK 270 Guðm. Péturs IS 240 Þrymur BA . 210 Framnes IS 170 Árni Geir KE 125 Þórður Jónsson EA .70 Náttfari ÞH 220 Helgi Flóvetnss ÞH 230 Dagfari ÞH 280 Ásþór RE 180 Guðbjartur Kristján 200 Sóley IS 280 Sæþór OF 180 Guðrún Guðleifsd. IS 280 Jörundur II. RE 400 Guðbjörg OF Björgúlfur EA Sigurvon RE Ól. Friðbertsson IS Sigurfari AK Helga Guðmundsd. IS Gullfaxi NK Grótta RE Auðunn GK Guðbjörg IS Gísli Árni RE Pétur Thorsteinss. Guðbjörg' GK Hannes Hafstein EA Dalatangi: Helga Björg HU Heimir SU Ögri RE 115 , Sæfaxi II. NK 150 240 ; Kristján Valgeir 250 270 Húni II. HU 140 210 Þorbjörn II. GK 110 170 ísleifur IV VE 160 240 J Baldur EA 100 220 i Hólmanes SU 220 240 Æskan SI 110 260 Gullberg NS 140 145 Guðrún Jónsdóttir IS 170 370 Örn RE 280 260 Snæfugl SU 100 180 Sveinbj. Jakobss. SH 160 240 Mímir IS 50 Siglufjörður: 130 Sigurborg SI 240 250 Haraldur AK 230 210 Eldborg GK 250 inn í Grund- crfirði drukknaði Grundarfirði, 19. ágúst. SVO sem frá var skýrt í Morgun blaðinu í gær, hvarf sex ára drengur í Grundarfirði að heim- an frá sér um kl. 2 eða 3 á Hinrik Hinrlksson, fimmtudag. Þegar foreldrar drengsins var farið að lengja eftir drengnum, var hafin víð- tæk leit og tóku allir, sem heima voru þátt í henni. Ennfremur komu leitarflokk- ar firá Stykkishólmi og Ólafsvík og hjálparsveit skáta sendi menn með leitarhund. Þá var og haft samband við Hannes Hafstein hjá SVFÍ og bauð hann alia þá að- stoð, sem að gagni mætti koma. — En um hálf tvö í nótt fannst litli drengurinn drukknaður við bátabryggjuna í Grundarfirði. Hann hét Hinrik Hinriksson, sonur hjónanna Ragnheiðar Ás- geirsdóttur og Hinriks Elbergs- sonar skipstjóra. Hinrik litli mun hafa verið einn á ferð niður á bryggju, þegar slysið varð. Alla íbúa byggðariagsins setti hljóða við þetta sviplega slys og sár harmur er kveðinn að for- eldrum og systkinum litla drengs ins, ekki sízt þegar haft er í huga, að nýlátinn er móðurafi drengsins og liggur nú á líkbör- um. — Emil. Miklar framkvæmd- ir á Bíldudal — Senn lokið hafnarframkvæmdum MIKLAR framkvæmdir eru nú á Bíldudal. Verið er að ramma niður 190 metra langt stálþil i höfnina, og mun það bæta að- stöðu skipa í höfninni til muna. Er áætlað að verkinu verði lokið um mánaðamótin október-nóv- ember, og munu þá öll íslenzk skip að undanteknu Hamrafellinu geta lagzt að bryggju í Bíldudal. Vitamálastjórnin sér um verkið. Verkstjóri er Bergsveinn Breið- fjörð. Kennsla mun í haust hefjast í hinum nýja og glæsilega barna- og unglingaskóla í Bíldudal. I náinni framtíð verður sam- kvæmt áætlun byggt leikfimi- hús við skólann, svo og sundiaug. Hingað til hefur kennsla farið fram í gamla barnaskólanum, sem byggður var 1896, og mun vera ein elzta skólabygging landsins í notkun fram á þennan dag. Verður það æsku Bíldudals mjög til hagsbóta á næstu árum að geta sótt hinn nýja og vistlega skóla. Eyjólfur Þorkelsson, hinn ný- kjörni sveitarstjóri á Bíldudal, tjáði Morgunblaðinu í gær, að í ár hafi verið lögð útsvör á bæjarbúa að upphæð 2Vá milljón króna, og er það einni milljón meira en lagt var á sömu höfðatölu á síðastliðnu ári. Sagði Eyjólfur, að þetta sýndi hve almenn velmegun er á Bildu- dal. Er afkoma fólks mjög góð enda mikil vinna á staðnum, meira en bæjarbúar geta sjálfir annað. Er vinnuaflsskortur geysi- legur. Dágóður afli hefur fengizt á snurvoð að undanförnu í Bíldu- dal. Gott veður er á staðnum, logn og blíða. 0 Kafarar eru enn að bjarga dýrgripum úr víkingaskipinu VASA — sem er frá 17. öld. I dag fundust beinaleifar og hálfs annars meters há haf- frúarstytta, sem skreytt hefur stefni skipsins. Talið er að um 50 manns hafi farizt með VASA, er skipið fórst 10. ág. 1628. ST\KSIII\\I! Aístaða Hennanns og Lúðvíks í ræðu, sem Bjarni Benedikts- son, þáverandi dómsmálaráð-*- herra, flutti við útvarpsumræð- ur á Alþingi um landhelgissamn ingana 1961, benti hann m.a. á afstöðu Hermanns Jónassonar og Lúðvíks Jósepssonar til þess að skjóta ágrciningi um land- helgismálin til Alþjóðadómstóls ins eða gerðardóms, og sagði: „Þegar deilt var við Breta um reglugerðina frá 19. marz 1952, þar sem nýjar grunnlínur voru aðalatriðið, lagði þáverandi ríkisstjórn, sem skipuð var Steingrími Steinþórssyni, Her- manni Jónassyni, Eysteyni Jóns syni, ólafi Thors, Birni Ólafs- syni og mér, til, að þeim ágrein ingi yrði skotið til alþjóðadóm- stólsins. Þá voru það Bretar, sem ekki vildu fallast á þá máls meðferð, heldur tóku upp lönd-' unarbann á íslenzkum isvörðum fiski í þess stað. Á Genfarráð- stefnunni fyrri 1958, þegar vinstri stjórnin undir forustu Hermanns Jónassonar sat vif völd á íslandi, og Lúðviit Jósepsson réði meðferð land- helgismálanna, lét hún leggja fram tillögu um rétt strand- ríkis til ráðstafana utan við sjálfa fiskveiðilögsöguna. í þeirri tillögu var eitt megin atriðið, að ef ágreiningur yrði, skyldi gerðardómur skera úr. Sú tillaga náði þó ekki sam- þykki, en var á ný flutt á ráð- stefnunni 1960, þá að tilhlutan núverandi stjórnar, en með sam þykki allra íslenzku fulltrúanna á Genfarráðstefnunni, þar á meðal Hermanns Jónassonar og Lúðvíks Jósepssonar. Þannig var það tvivegis berum orðum gert að beinni tillögu af íslands hálfu á alþjóðavettvangi, að ráðstaf- anir utan 12 mílna fiskveiðilög- . sögu yrðu ekki gerðar nema ágreiningur út af þeim yrði bor- inn undir dóm. Þess vegna var ekki um það að villast, að AI- þingi tslendinga hefur talið þörf á viðurkenningu annarra á ráðstöfunum utan 12 mílna fiskveiðilögsögu og íslenzkar ríkisstj irnar hafa fyrr og síðar boðið fram, að þann ágreining, sem af slíkura ráðstöfunum staf aði, skyldi útkljá með dómi, ýmist sjálfum Alþjóðadómstóln- um eða af gerðardómi. Ef um gerðardóm eða alþjóðadómstól- inn er að velja, er augljóst, að okkur er meiri trygging í ákvörðunum hins síðarnefnda. Hann er hæfasta stofnunin, sem til er til þess að skera úr því hver séu gildandi alþjóðalög. > Hingað til hefur enginn haldið því fram, að við gætum eða ættum að gera frekari ráðstaf- anir til stækkunar landhelginn- ar nema í samræmi við alþjóða lög. í umræðunum um land- helgismálið á fyrri hluta þessa þings lýsti Hermann Jónasson t.d. hvað eftir annað yfir því, að þær ráðstafanir ættu að vera í samræmi við alþjóðalög, og þar yrðum við eingöngu að fara efíir alþjóðalögum". . Viðurkenning á 12 mílunum Á Genfarráðstefnunum 1958 >- og 1960, reyndu íslendingar að fá 12 mílna fiskveiðilögsögu við urkennda sem aiþjóðareglu. Það tókst ekki, en hins vegar viður- kenndu Bretar 1961 12 mílna fiskveiðilögsögu íslands, án þess að þar væri um alþjóðareglu að ræða, og um leið og íslend- ingar lýstu því yfir að þelr mundu vinna áfram að frekari útfærslu fiskveiðilögsögunnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.