Morgunblaðið - 20.08.1966, Blaðsíða 22
Z.Z.
mUKbUNKLAtlltl
Laugardagur 20 ágúst 196ð
Hvernig má hressa upp
á frjálsar íþráttir?
FRJÁLSAR íþróttir — einhver
vinsaelasta íþróttagrein í flestum
löndum heims — eiga ótrúiega
lítillar almenningshylli að fagna
bér á landi.
Hafa orðið mikil umskipti á
síðustu 25 árum, því að fyrstu
árin eftir síðari heimsstyrjöldina
áttu frjálsar íþróttir hug og
hjarta íslendinga, og komst knatt
spyrnan þar hvergi nærri hvað
vinsældir snertir. Þá vorum við
líka í fremstu röð í Evrópu í
þessari grein, áttum hlaupara,
kastara og stökkvara á alþjóða
mælikvarða. Má þar nefna
Clausen-bræður, Finnbjörn Þor-
valdsson, Guðmund Lárusson,
Torfa Bryngeirsson og Gunnar
Huseby. Standa mörg met, sem
sett voru á þessum árum, enn í
dag óhögguð.
Sýnir það nokkuð stöðnunina,
semí orðið hefur í þessari ágætu
iþróttagrein.
Það hefur oft verið afsökun
frjálsíþróttaleiðtoga, þegar drep-
ið er á þessi atriði, að þessi
frammistaða islenzku frjáls-
íþróttamannanna fyrstu árin eft-
ir heimsstyrjöldina eigi rætur
sínar að rekja til þess, hve ís-
iendingar þyrftu að þola litlar
blóðtökur í striðinu sjálfu, og að
okkar íþróttamenn hafi getað
'iðkað íþróttir meðan ungir menn
í öðrum löndum þurftu að berj-
ast á vígvöllum fyrir föðurland-
ið. Og vissuiega skýrir þetta
nokkuð hve sterkir við vorum
á alþjóðamótum þessi árin, en
þetta skýrir á engan hátt hnign-
unina, sem varð í fráls íþrótt-
um á árunum milli 1950—60.
Það er ekki heldur hægt að
skýra þessa hnignun með því
að segja, að lakari íþróttamenn
hafi komið fram á sjónarsviðið
á þessu tímabili. Nei, sökin lá að
miklu leyti hjá forustumönnum
þessara mála. Skipulagning frjáls
íþróttamóta hér fór að verða
fram úr hófi léleg. Þau urðu æ
landdregnari og langdregnari, og
áhorfendurnir fóru að missa á-
hugann, sneru sér að öðrum
íþróttagreinum, sem höfðu upp
á meiri spennu að bjóða. Um leið
og áhorfendum fór að fækka á
frjálsiþróttamótum misstu íþrótta
mennirnir áhugann — æsku-
menn, sem karinski hefðu getað
orðið góðir hlauparar, urðu góð-
ir knattspyrnumenn, þar sem
straumurinn lá þangað o.s.frv.
En nú hin síðari ár hafa orðið
mannaskipti í frjálsiþróttafor-
ustunni, nýju forystumennirnir
hafa séð hvert stefnir, og reynt
eftir megni að kippa í tauminn.
Þeir hafa komið fram með nýjar
hugmyndir til þess að revna að
lífga upp á þessa íþróttagrein,
skipulagning mótanna hefur stór
batnað. En stærsta sporið, sem
stigið hefúr verið í rétta átt, er
án efa bikarkeppnin, sem fór
fram hér í Reykjavik á dögun-
um .Þar sýndi sig að við þurfum
ekki að kvarta undan skorti á
efnum. Sérstaklega voru það ut-
anbæjarmennirnir, sem vöktu
athygli, og náðu frábærum af-
rekum miðað við þær aðstæður,
sem þeir hafa þurft að æfa við.
En það er ekki nóg að eiga
góð efni — það verður að hlúa
að þeim eins og kostur er —
gefa utanbæjarmönnunum tæki-
færi til þess að keppa eins oft
og mögulegt er á Laugardalsvell-
inum við þær aðstæður, sem
hann hefur upp á að bjóða, og
senda velmenntaða þjálfara út á
iandsbyggðina til þjálfa hjá hin-
um ýmsu héraðssamböndum.
Ennfremur mætti hressa upp á
frjálsíþróttamót sem haldin eru
hér í Reykjavík með því að gera
meira að því að fá hingað þekkta
íþróttamenn til þess að keppa
sem gestir á þessum mótum .T.d.
er ekki að efa að ma-rgir myndu
koma til þss að sjá Jón Þ. ólafs-
son keppa við einhvern af beztu
hástökkvurum Svía, sem náð
hafa svipuðum árangrum og Jón
eða að fá hingað unga 800 m
og 400 m hlaupara frá Norður-
löndum til þess að keppa við þá
Þorstein Þorsteinsson, Halldór
Guðbjörnsson og Gunnar Krist-
insson. Og loks mætti kannski
„punta“ enn frekar upp á þessi
mót með því að fá hingað ein-
hverja stórstjörnu, eins og t.d.
Finnann Stenius, sem stokkið
hefur 8.04 metra í langstökki.
Það fylgir þessu að vísu ærin
kostnaður, en hann mun borga
sig upp áður en langt um líð-
ur, ef það tekst að fá fólkið til
þess að streyma á frjálsíþrótta-
mót til þess að horfa á spennandi
keppni og góða árangra, eins og
var á hinum „gömlu og góðu
dögum“. Og það hlýtur að vera
ósk allra — frjálsar íþróttir er
alltof skemmtileg og göfug iþrótt
til þess að hún falli í gleymsku
hér á íslandL
B. V.
Góður árangur á
héraðsmðti U.M.S.S.
Ungmennasambands Skagafjarð-
ar var haldið á Sauðárkróki 13.
og 14. ágúst sl. Veður var mjög
gott báða dagana, sólskin og
lítilsháttar gola.
Keppendur voru frá fjórum
nngmennafélögum: Umf. Höfð-
strendingi, Umf. Tindastóli, Umf.
Framför og Umf. Glóðafeyki.
Úrslit í einstökum greinum
urðu þessi:
Þrístökk M
Gestur Þorsteinssön H 13,31
Ragnar Guðmundsson T 12,75
Sigmundur Guðmundss. H 12,06
Erlendur Sigurþórsson T 11,12
Hástökk M
Gestur Þorsteinsson H 1,66
Ólafur Ingimarsson T 1,61
Ragnar Guðmundsson T 1,52
Trausti Fjólmundsson H 1,47
Kristin Jónsdóttir H 4,08
Sigurlaug Jónsdóttir T 4,03
Rósa Stefánsdóttir F 3,78
Hástökk M
Kristín Jónsdóttir H 1,36
Sigrún Jóhannsdóttir G 1,26
Helga Friðbjörnsdóttir H 1,26
Fanney Friðbjörnsdóttir H 1.16
Anna Sigurðardóttir F 1,16
Kúluvarp M
Kristín Jónsdóttir H 8,36
Anna Pála Þorsteinsdóttir H 7,33
Agnes Gamalíeisdóttir H 7,19
Helga Friðbjörnsdóttir H 6,95
Kringlukast M
Anna Pála Þorsteinsd. H 24,59
Helga Frfðbjörnsdóttir H 21,70
Kristín Jónsdóttir H 21,46
Fanney Friðbjörnsdóttir H 16,33
Þetta mnrk kom svo sannarlega á siðustn stundu. Hermann
fékk knöttinn á síðustu mínútu landsleiksins gegn Wales, og
nú voru góð ráð dýr. Hann lék á einn eða tvo varnarleik-
menn Wales, og skaut föstu skoti á markið. Og draumurinn
rættist, knötturinn lenti í netinu, og þarmeð höfðu íslend-
ingar tryggt sér jafntefli.
Nokkrir gestir tóku þátt í mót-
inu. Árangur þeirra var þessi:
400 m hlaup: Guðmundur Guð-
mundsson USAH 57,2 sek.
1500 m hlaup: Óli Jón Gunn-
arsson USVH 5:24,8 mín.
Hástökk: Ihgimundur Ingi-
mundarson HSS 1.66 m, Guð-
mundur Guðmundsson USAH
1,61 m.
Kúluvarp: Björn Ottósson
HSS 11,35 m.
Spjótkast: Björn Ottósson HSS
42,20 m.
Ungmennafélagið Höfðstrend-
ingur vann mótið með 110 stig-
um og þar með Héraðsmótstoik-
arinn í fyrsta sinn, en um hann
var nú keppt í fyrsta sinn.
Afreksverðiaun karla hlaut
Gestur Þorsteinsson fyrir 100 m
hlaup, 11,5 sek., sem gefur 737
stig.
Afreksverðlaun kvenna hlaut
Kristín Jónsdóttir fyrir hástökk,
1,36 m, sem gefur 672 stig.
Sérverðlaun fyrir hlaup hlaut
Ragnar Guðmundsson fyrir sam-
anlögð stig í 100 og 400 m hlaupi,
1267 stig, nú í 2. sinn.
Leikir um
helgina
MIKIÐ verður um að vera í
knattspyrnuheiminum um helg-
ina og verða leiknir leikir í Bik-
arkeppninni, 1. og 2. deild ís-
landsmótsins.
f dag kl. 16 fer fram leikur
á ísafirði, en þar ieika ísfirðing-
ar við Þrótt b í Bikarkeppninni,
og á sama tíma leik í Vestmanna
eyjum Týr og'FH.
Á sunnudag verða leiknir tveir
leikir í 1. deild. Á Akranesi
mætast ÍÁ og KR og má búast
við hörkuleik þar, en leikurinn
hefst kl. 16. í sambandi við ieik-
inn mun Akraborgin fara upp á
Skaga kl. 1:30, og aftur til Rvik-
ur strax að leik loknum. Á sama
tíma leika á Njarðvíkurvelli
ÍBK og Þróttur.
f annarri deild leika á Mela-
vellinum sama dag kl. 7:30 Fram
og Víkingur. Loks fer fram á
Melavellinum á mánudag kl. 18
úrslitaleikurinn í íslandsmót-nu
í 4 flokki, og leika til úrslita
Valur og Breiðablik.
Landskeppni í tugþraut við
A-Þjóðverja um heSgina
100 m hlaup Sek.
Gestur Þorsteinsson H 11,5
Ragnar Guðmundsson T 11,6
Sigmundur Guðmundsson H 11,9
Ólafur Ingimarsson T 12,0
400 m hlaup Sek.
Ragnar Guðmundsson T 54,4
Gestur Þorsteinsson H 55,2
Ólafur Ingimarsson T 57,2
Björn Jóhannsson H 58,2
800 m hlaup Mín.
Ólafur Ingimarsson T 2:15,5
Tómas Þorgrímsson H 2:20,2
Sigfús Ólafsson H 2:21,1
Hörður Ingimarsson T 2:28,3
1500 m hlaup Mín.
Sigfús Ólafsson H 5:11,2
Pálmi Rögnvaldsson H 5:14,9
Hörður Ingimarsson T 5:15,4
Páll Ragnarsson T 5:17,4
4x100 m boðhlaup Sek.
Sveit Tindastóls (Skmet) 48,2
Sveit Höfðstrendinga 48,5
Langstökk M
Gestur Þorsteinsson H 6,83
Ragnar Guðmundsson T 6,20
Páll Ragnarsson T 5,70
Erlendur Sigurþórsson T 5,65
Kúluvarp M
Stefán B. Pedersen T 12,17
Óskar Eiríksson F '10,61
Gestur Þorsteinsson H 10,36
Sigurgeir Angantýsson T 10,30
Kringlukast M
Óskar Eiríksson F 36,22
Gestur Þorsteinsson H 34,37
Ragnar Guðmundsson T 31,30
Stefán B. Pedersen T 30,76
Spjótkast M
Gestur Þorsteinsson H 46,58
Trausti Fjólmundsson H 43,63
Jón S. Helgason T 39,20
Þór Þorvaldsson T 39,12
Úrslit í kvennagreinum urðu
þessi:
100 m hlaup Sek.
Helga Friðbjörnsdóttir H 14,6
Edda Lúðvíksdóttir T 14,9
Kristín Jónsdóttir H 14,9
Rósa Stefánsdóttir F 15,0
4x100 m boðhlaup Sek.
A-sveit Höfðstrendings 60,8
(Skagafjarðarmet)
Sveit Framfarar 63,5
B-sveit Höfðstrendings 69,9
Langstökk M
Helga Friðbjörnsdóttir H 4,10
UM helgina heyja fslendingar og
A-Þjóðverjar landskeppni í tug-
þraut. Bæði löndin senda þrjá
menn til leiks, og ræður saman-
lagður stigafjöldi tveggja fyrstu
manna úrslitum um sigur á mót-
inu.
Ein breyting verður á a-þýzka
landsliðinu, og er það sú að
Herbert Wessel kemur ekki, en í
stað hans kemur litlu lakari
maður, Sigfried Pradel, sem náð
hefur beztum árangri 7208 stig-
um. Aðrir keppendur austur-
þýzkir eru þeir Axel Richter,
tvítugur að aldri, sem náð hefur
sjöunda bezta árangri A-Þjóð-
verja í ár eða 6983 stigurn, og
Joachim Kirst 19 ára, sem náð
hefur bezt 6833 stigum, sem er
11. bezti árangur þar í landi í
ár.
Hinir íslenzku keppendur eru
Valbjörn Þorláksson sem er ís-
lenzkur methafi í þessari grein,
og íslenzkur meistari sl. 5 ár.
Kjartan Guðjónsson sem náð hef-
ur beztum árangri, 6703 stigum,
en Kjartan hefur verið annar
bezti tugþrautarmaður ísiands
frá því 1963, og Ólafur Guð-
mundsson, sem hefur verið
þriðji bezti tugþrautarmaður
landsins sl. 2 ár, en hann á bezt
6492 stig.
Aðrir keppendur í þessari
grein verða Jón Þ. Ólafsson sem
náð hefur 5887 stigum og Eriend-
ur Valdimarsson, sem náð hefur
5518.
Landskeppni þessi er jafnframt
Meistaramót íslands í tugþraut.
Hér fara á eftir landsmet beggja
landa ásamt áröngrum í hverri
grein:
Austur-þýzkt met: 7460 stig
Manfred Tiedtke 1966 (10,9 -
6,84 - 14,98 - 1,89 - 51,0 - 14,9
39,53 - 4,20 - 52,62 - 4:48,3).
íslenzkt met: 7165 stig, Val-
björn Þoriáksson, 1964 (11,0 -
6,57 - 12,57 - 1,79 - 50,0 - 15,3
38,90 - 4,35 - 56,22 - 4:56,6).
Meistaramótsmet: 7004 stig,
Valbjörn Þorláksson KR, 1965.