Morgunblaðið - 20.08.1966, Page 23
Laugarðagur 20 Sgúst 1966
MORGUNBLAÐIÐ
23
Bilainnflutningurinn hefur aldrei veriS meiri en á þessu ári. Heita má að með hverri ferð
t.d. frá Bandaríkjunum, komi skipin með bila á dekki. Þessi mynd var tekin fyrir nokkru er
Fjallfoss var nýkominn upp að bryggju úr Amerikuferð. Hann kom með marga jeppa á dekki.
— Pravda
Framhald af bls. 1
in sögð hafa tekið upp nýja
stefnu, fjandsamlega Noregi.
„Það er opinbert leyndarmál",
segir , „Pravda“, að undanfarið
hefur verið hart lagt að Norð-
xnönnum að styrkja varnir sínar
í norðri“. Siðan segir, að það sé
athyglisvert, þegar litið sé á
skrif blaða um það, sem fram
fari í Noregi, að þar sé sagt frá
framkvæmdum, sem „erlendir“
aðilar vinni við. Sé þar um að
ræða erlendar herstöðvar í ná-
grenni landamæra Noregs og
Sovétríkjanna.
Segir „Pravda" að slík skrif
urn slíkar aðgerðir hljóti að
vekja miklar grunsemdir, og sé
ekki við öðru að búast en að til
komi skrif og umtal í Sovétríkj-
unum. Hver þarfnast slíkrar þró-
unar“ segir „Pravda“. „Hver
hefur áhuga á því í Noregi, að
endurvakin sé grýlan um „hætt-
una í austri“, og vopnin lögð upp
í hendur þeirra, sem sífellt leitast
við að gera verri sambúð Sovét-
ríkjanna og Vesturlanda“.
Þá segir „Pravda“, að skrif
„Handels- og Sjöfarts- Tidende“
um, að sovézkur . almenningur
skilji ekki sjónarmið Norðmanna,
þegar um sé að ræða herstöðvar
í Noregi, þjóni ekki neinum heið-
arlegum tilgangi. Það sé mörgum
kunnugt I Sovétríkjunum, að til
séu þeir í Noregi, sem ekki fylgi
stefnu þeirra manna, sem þjóna
vilji tilgangi Atlantshafsbanda-
lagsins þar. Segir síðan höfund-
ur greinarinnar í „Pravda",
Kuznetsov, að verið sé að slá
ryki í augu almennings með því
að halda því fram, að „hættan
í austri“ sé ekki minni en áður.
Greininni í málgagni sovézka
kommúnistaflokksins lýkur með
því, að Sovétríkin hafi ætíð verið
velviljuð Noregi, og það sé því
fyrst og fremst þess vegna, að
mótmælt sé því, á. hvern hátt
áðurnefnd norsk blöð hafi skrifað
að undanförnu um umrædd mál-
efni.
— Nýir timar
Framhald af bls. 1
maður um vísindi og framfa.rir.
• Chang Chih-Chung, eitt sinn
hershöfðingi (Kuomingtang), og
varaforseti varnarráðs alþýðu-
lýðveldisins.
• Li Ching-Chuan, maður sem
gegnt hefur þýðingarmiklum
embættum, meðal annars í fram
kvæmdanefnd kommúnista-
flokksins.
Greinilegt er, að miklar breyt
ingar hafa átt sér stað í „menn
ingarbyltingunni" undanfarið.
Lin Piao, sem skýrt hefur verið
frá í fréttum undanfarið,
A myndinni er Frigga (t.y.) ásamt þeim Robin, írskum úlf-
hundi, sem einnig lék í „Rauðu skykkjunni, og Pétri Iljálmars
syni tilraunastjóra.
-- Læknanemi
Framhald af bls. 24
Með kvikmyndafólkinu var
Kristján Tómas Ragnarsson
stud. med., sem jafnframt var
„stadisti" í kvikmyndinni, og
til hajds ef eitthvað kæmi
fyrir meðal kvikmyndafólks-
ins. Brá Kristján Tómas skjótt
við er hann sá hvernig komið
var, og hóf þegar lífgunartil-
raunir á FRIGGU, með blást-
ursaðferðinni og með hjarta-
nuddi. Liðu aðeins tvær mín-
útur þar til líf fór að færast
í tíkina. Rankaði hún skömmu
síðar við sór. Hún var látin
halda kyrru fyrir um daginn,
og jafnaði sig loks alveg. Léik
hún sitt „hlutverk“ eftir þetta
með prýði.
— Surtsey
Framhald af bls. 24.
kl. 20,30 í gærkvöldi, og sagðist
honum svo frá:
— Ég vaknaði við jarðskjálfta
um sjöleytið í morgun, en hugði
ekkert nánar að, þar sem jarð-
hræringar eru algengar hér. Ég
fór svo í eftirlitsferð eftir hádeg
ið og uppgötvaði þá gosið. Ég
get ekki sagt nákvæmlega um
hvenær það byrjaði en geri ráð
fyrir að það hafi verið í morg-
unsárið. Annars er hér jarð-
skjálftamælir og er ekki ólík-
legt að vísindamennirnir sem
hingað komu í kvöld, geti séð á
honum hvenær gosið byrjaði.
— Hvað er hraunelfurin orð-
inn löng?
— Hún er orðin á að gizka
500 metrar á lengd, 100 metrar
á breidd og víðast hvar þriggja
metra þykk. Má segja að hún
sé um það bil hálfnuð á leið til
sjávar.
— Hefur gosið aukizt frá því
að þú fyrst uppgötvaðir það?
— Já, það færist sífellt í auk-
ana og mér virðist að úr þessu
geti orðið talsvert gos. í morg-
un rann aðeins hraun úr fjórum
gígum, en nú rennur hraun úr
öllum gígunum og hraunslétt-
urnar ná allt að 50 metra hæð.
— Áttirðu von á gosi þarna’
— Já, ég hef átt von á gosi,
en alls ekki í dag. Ég hef orðið
var við mikinn jarðhita hér und
anfarið og fyrr í vikunni hringdi
ég í Sigurð Þórarinsson og
spurði um hans álit. Hann sagði
mér að vera alveg rólegum, það
kæmi gos áður en langt um liði.
Við urðum þó varir við mikinn
hita þar í gær og upp við gamla
gíginn var ekki unnt að setjast
niður og hvílast sökum hitans,
sem streymdi upp.
Steingrímur Hermannsson
sagði okkur að til hefði staðið
að reisa húsið einmitt á gos
staðnum?
— Já, það er rétt þvi hafði
verið ákveðinn staður einmitt
þar sem stærsti hraunpotturinn
er nú, en til allrar hamingju
nenntum við ekki að bera allan
útbúnaðinn þá leið, og því var
frá því horfið.
— Þú ert óhultur þama?
— Já, mér er engin hætta búin.
Það er hálfrar klukkustundar
gangur að gosinu héðan, og fjall
hryggur á milli.
------------------------—------------—íi j.iluii i. m»w.v.w. uupiiu'jwimuw
Myndin er tekin beint fyrir ofan gosstöðvamar og má sjá
hraunsletturnar. Einmitt hér átti gæzluhúsið upphaflega að
standa.
— Dr. Heinkel
Framhald af bls. 10 "'V.
um þörfina fyrir sérstakan félag3
skap um þetta mál?
— í mörgum löndum Evrópu
hafa áhrif kirkjunnar farið held-
ur dvínandi svona frá því mitt
á milli heimstyrjaldanna. En nú
hafa víða verið stofnuð sérstök
samtök til þess að styðja við bak
ið á kristnifræðikennslunni í hin
um almennu skólum, svo sem í
Sviþjóð, Noregi, Þýzkalandi,
Bretlandi og síðan 1945 einnig í
Frakklandi og Hollandi, Finn-
landi og víðar. Ég álít, að kirkj-
an geti haft betra tækifæri og
möguleika í hinum almennu skól
um en nokkurn tíma áður, t.d. í
þeim löndum, sem ég nefndi; en
þau hafa öll langa skólaskyldu,
annaðhvort til 16 eða 17 ára ald-
uns. Skólaskyldan hefur lengzt
verulega síðan eftir strið. Með
þvi að uriga kynslóðin situr miklu
lengur í skólastofum en áður
tíðkaðist, en þeir sem sækja
kirkju eða sunnudagaskóla og
kristilegan æskufélagsskap, eru
hlutfallslega allmiklu færri en
áður, þá verðum við að mæta
unga fólkinu þar, sem það er,
en það er einmitt í skólum hinna
virku daga, skólum af margs
konar tegundum. í sunnudaga-
skólunum verður aldrei hægt að
ná til nema lítils hluta barnanna.
í Hollandi hefur áhugi á kennslu
kristinna fræða aukizt mikið nú
eftir styrjöldina.
Hvað viltu segja okkur tim
aðalstarf þitt heima fyrir?
— Ég hef verið forstöðumaður
kennslumáladeildar hollenzku
reformertu kirkjunnar, síðan ár-
ið 1953, og við reynum að ná til
allra skóla af öllu tagi. Hjá okk-
ur er ekki rikiskirkja, eins og
kunnugt er. En það fer fram mik
ið og vinsamlegt samstarf milli
kirkjunnar og ríisvadsins um
fræðslumál.
— Er þitt persónulega starf
tengt einhverjum vissum skólum
öðrum fremur?
— Já, ég hef einna mestan á-
huga á kennaraskólum og hef
valið þá sem minn sérstaka vett-
vang ,því að ég tel, að nemendur
kennaraskólanna taki- við mjög
miklu ábyrgðarstarfi fyrir fram-
tíðarkynslóðina. Með því að gera
það, sem hægt er, til þess að
mennta dugandi og áhugasama
kristnifræðikennara fyrir æsku-
lýðinn fær kirkjan sín öruggu
uppskeru. En uppskeran fer auð-
vitað hér sem annars staðar eft-
ir sáningunni og umhyggjunni
við ræktunina.
Ég þakka Dr. Henkel fyrir
viðtalið, sannfærður um, að hann
hafi lög að mæla, þakka báðum
hjónunum fyrir ágæta viðkynn-
ingu og bið þeim faraheilla og
góðs árangurs í störfum.
(Dr. H. vill ekki láta kalla land
sitt Holland, með því að það
heitir Nederland á móðurmáli
hans, en Holland heitir frá fornu
fari aðeins suðurhluti landsms.
Hins vegar nota ísl. landafræði-
bækur fyrst og fremst nafnið
Holland).
Helgl Tryggvason.
— Stórveiði
Framhald af bls. 24
fer í bræðslu, enda þótt síldin
sé vel söltunarhæf, bæði vegna
þess að síldarsöltunarstöðvarnar
anna ekki þessu mikla magni
sem berst að og vegna mann-
eklu á staðnum. Þó rættist þar
nokkuð úr í gær, þar sem ull-
stór hópur söltunarstúlkna kom
þá til bæjarins.
Samkvæmt upplýsingum sem
Mbl. aflaði sér hjá síldarleitinni
á Dalatanga, þá fengu nokkrir
bátar góð köst fyrri hluta dags-
ins í gær á miðunum út af
Surtsey, sem bátarnir sigidu
með á nálæga firði. En síldar-
leitin hafði ekkert frétt af veið-
inni hjá bátunum í gærkveldi.
Faðir okkar og tengdafaðir,
BJÖRN M. HANSSON
fyrrverandi skipstjón,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
23. ágúst kl. 3 e.h.
Ragnheiður Björnsdóttir, Þorkell Guðbjartsson,
Sólveig Björnsdóttir, Þorgeir Sigurgeirsson,
Unnur Björnsdóttir, Guðlaugur Kristófersson,
Halldór Björnsson, Þórey Kristjánsdóttir,
Aðalbjörn Björnsson, Lovísa Norðfjörð,
Svavar Bjömsson,
Jón Björnsson.