Morgunblaðið - 01.09.1966, Page 2

Morgunblaðið - 01.09.1966, Page 2
2 MORCUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 1. sept. 1966 Hermcmn Höcherl HEAMANN Höcherl. land- búnaðarráðherra Vestur- Þýzkalands, sem nú er í opin berrj heimsókn á íslandi, er 54 ára að aldri. Hann er fæddur í Brennenberg við Regensburg. Höcherl lauk stúdentsprófi við menntaskól ann í Landshut og stundaði síðan nám í réttarvísindum í Berlín, Ai-en-Provence og Múnchen. Lauk hann lög- fræðiprófi árið 1934 og há- skólakennari árið 1938, og þá opinber saksóknari í Regensburg. Arið 1947 hóf hann lögfræðistörf í Deggen- dorf og varð opinber saksókn arj þar árið 1950. 1951 varð hann dómsfor- seti í Regensburg og árið eft ir valinn í borgarráð. Her- mann var fyrst kjörinn á þing árið 1953 fyrir Kristi- lega Sósíalista flokkinn (1950). Endurkjörinn 1957 og þá einnig kjörinn foringi þar til 1965, er hann tók við flokks síns á þingi. embætti landbúnaðarráð- Eftir kosningarnar 1961 var herra. hann skipaður innanríkisráð- Hermann Höcherl er herra og gegndi því emibætti kvæntur og á fjögur börn. Hermann Höcherl. Innviktunarg jald á1 mjólk fellt niður Smjörverðið óbreytt í bráð ORÐRÓMUR hefur verið á kreiki um hað að smjörverðið myndi hækka frá og með 1. september. Mbl. hafði því sam- bandi við Svein Xryggvason, framkvæmdastjóra Framleiðslu- ráðs. Sveinn tjáði blaðinu, að orð- rómur þessi vseri úr lausu lofti gripinn, enn hefðu erigar ákvarð anir verið teknar um hækkun smjörverðs, en hins vegar væri málið til umræðu hjá ráðinu. Þá hafði Mbl. tal af skrif- stofustjóra Osta- og smjörsöl- unnar Sig'úsi Guðmundssyni, og taldi hann orðróminn kominn af því, að frá og rneð 1. september félli niður svoKallað innviktun- argjald á mjóik, sem verið hefur 50 aurar frá 1. júní. Sigfús tjáði biaðinu ennfrem- ur, að mikið hefði gengið á smjörbirgðirnar í landinu að undanförnu. Smjörfjallið svo- nefnda hefði þó ekki lækkað neitt, en bæði hefði smjörfram- leiðsla og neyzia minnkað, þannig að ekki hefur verið um umframframleiðslc. að ræða í sumar. Unnið hafi verið meira af ostum og þurrmjólk úr mjólk- inni en áður. Sjónvarpsmálinu frestað til föstudags 1 GÆR var sjónvarpsmálið í Vestmannaeyjum tekið fyrir í fógetadómi. Samkvæmt upplýs- ingum fréttaritara Mbl. í Eyjum, Björns Guðmundssonar, var lít- ið annað gert i málinu en að veita frest til föstudags, svo að lög- fræðingum gæfist enn kostur á frekari gagnasöfnun. í réttinum mættu tveir menn, Bragi Björnsson lögfræðingur Félags sjónvarpsáhugamanna og Stefán Árnason, fréttaritari út varpsins í Eyjum. Sagði Björn GuðmundSson að Vestmannaeyj- ingar hafi orðið fyrir töluverð- um vonbrigðum með það, hve fáir þeirra, er sýnt hefðu áhuga á að koma í veg fyrir að Vest- mannaeyingar gætu hprft á sjón varpið, komu til réttarins. Björn sagði að hér væri í rauri um tvö mál að ræða. Annars vegar mál ríkisútvarpsins gegn Félagi sjónvarpsáhugamann í Vestmannaeyjum, þar sem það bannar félaginu að hafa afnot af magnara á grundvelli laga um útvarp, sem sett voru árið 1934 og hins vegar mál póst og sima gegn sama aðila, þar sem honum er bannað að setja upp loftnet og magnara á Stóra-Klifi, en það fjall hefur landsíminn á leigu. Að sögn Björns Guðmundsson ar hefur nú komið í ljós að vafa samt er að Landsíminn hafi nokk urn rétt til þessa landsvæðis, sem hann vill banna félaginu not af. í greinargerð Braga Björns- sonar ber hann brigður á rétt Landsímans, þar eð jarðarbænd- ur, er hafa Stóra-Klif á leigu frá ríkinu hafi aldrei verið um það spurðir og samningurinn gerður án þeirra vitundar 1959. Buenos Aires, 31. ágúst. NTB. ÞÚSUNDIR stúdenta sóttu ekki fyrirlestra í háskólúm Argentínu til þess að mótmæla þvi, að hin nýja ríkisstjórn hersins þar í landi hefur ákveðið áð svipta há skólana sjálfstjórn þeirri, sem þeir hafa notið frá fornu fari. í borginni Cordoba, en þar tóku stúdentar að virða að vettugi háskólafyrirlestra fyrir niu dög um, voru flestir af 20000 stúdent um háskólans fjarverandi. Blaðburðarfólk vantar í eftirtalin hverfi: Tjarnargötu Laugaveg frá 1—32 Barónsstígur Meðalholt Bræðraborgarstíg Hringbraut I Víðimel Grettisgata I Fálkagata Laugavcg 33—80 Sólheimar I Grenimelur Úthlíð Hrauntcigur Grettisgata II frá 36—98 Vesturgata 2—45 Lynghagi Nesvegur Skerjafjörður sunnan flugv. Grettisgata 36—98 Meðalholt Eskihlíð 14—35 Talið við afgreiðsluna simi 22480. Rússar unnu Norður lönd í skák 23:7 DAGANA 27. og 28. ágúst fór fram í Stokkhólmi keppni i skák milli Sovétrikjanna og Norðurlanda. Teflt var á 15 borðum, tvöföld umferð. Úrslit urðu þau, að Rússar unnu með 23 vinningum gegn 7. Af íslands hálfu tóku þátt í keppninni Guðmundur Sigur- jónsson, Jón Háldánarson, Hauk ur Angantýsson og Þorgeir Steingrímsson. Á fyrsta borði tefldi Guð- mundur Sigurjónsson á móti Rússanum Boris Gulko. Fyrri skákin varð jafntefli, en hina síðari vann Guðmundur. Jón Hálfdánarson tapaði báðum sínum skákum, Haúkur Angan- týsson vann aðra skákina, en tapaði hinni og Þorgeir frá Ak- ureyri gerði jafntefli í fyrri skák sinni, en tapaði hinni síðari. Eftir þessum fréttum að dæma, hafa Islendingar því fært Norð- urlöndunum þrjá vinnjnga af Þýzku togararnir enn í viðgerð ÞÝZKU togararnir AHemann- ia, og Dortmund frá Cuxhaven, sem getið var um í blaðinu í gær, að hefðu rekizt á í þoku út af Vestfjörðum og dregnir voru til Reykjavíkurhafnar, lekir eru enn í höfninni. í gær var verið að landa úr Dortmund, en hann mun hafa verið með um 40 tonn af fiski, en Allemannia var enn í slipp í gærkvöldi. Samkvæmt upþlýsingum Reykjavíkúrháfnar mun Dort- mund ekki fara í slipp fyrr en í dag, árdegis, eða um leið og lokið er viðgerð á Allemannia. MÚn hún sigla að lokinni við- gerð til Þýzkalands. Málaferli vegna árekstursins fara fram í Þýzkalandi. Félagsheimilið opið í kvöld þeim sjö, sem Norðurlöndin end anlega fengu. Sænsku blöðin birta í gær mynd af Guðmundi Sigurjóns- syni og fara mjög lofsamleg- um orðum um getu hans. Er vinningsskák hans birt í blöð- unum og þykir hún vel tefld. Nú mun brátt líða að því, að íslendingar sendi skákmenn til Kúbu, þar sem Olympíuskák- mótið verður haldið í haust. Þátttaka íslendinga er þó háð því, að fjáröflun takist svo sem vænzt var. fengu ekki að fara yfir rúss- nesku skipin VESTUR-ÞÝZKA eftirlits- ' skipið Poseidon, sem er tíð-' ur gestur hér í Reykjavíkur- höfn. kom hingað í gær, en j á morgun mun gestur ríkis- , stjórnar. landbúnaðar- og; fiskimálaráðherra , V-Þýzka- lands, Hern^ann Höcherl, | halda fund með blaðamönn- um um borð í skipinu. Þegar skipið kom hingað í ( l gær, var því til bráðabirgða i , lagt utan á rússnesk skip, | : sein liggja í Vesturhöfninni. I Þjóðverjarnir urðu því að j I fara yfir rússnesku skipin, [ þegar þeir ætluðu frá borði. 1 En nú gerðist það að „átök- in milli ausíurs og vestur“ færðust íiér inn á Reykja- " víkurhöfn, því yfirmenn rúss /| nesku skipanna þverneituðu að leyía skipverjum á Posei- don að ganga yfir skip sín. ! Urðu yfirmenn Poseidon því | að biðja hafnsögumenn um að flytja Poseidon til, svo skipsmenn kæmust ferða sinna til og frá borði. Var j svo gert og Poseidon lagt utan í á strandferíaskipið Heklu, j sem liggur fyrir framan 1 Hafnarhúsið. ! ISTANBUL. — Jarðskjálfti varð á föstudagsmorgun í tyrk neska bænum Antakya (Anti- okia), við Miðjarðarhafið. A.m. k. ein maður beið bana og nokkur hús skemmdust. Fundur fulltruaráðs Sjálfstæðismanna i M.ís. “AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Norður- ísafjarðarsýslu vaf haldinn á ísafirði sl. sunnudag og hófst klukkan 3. e.h. Baldur Bjarna- son bóndi í Vigur, formaður fulltrúaráðsins setti fundinn og stjórnaði honum. f stjórn Full- trúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í sýslunni voru kjörnir Baldur Bjarnason, Vigur, formaður, en aðrir í stjórninni eru þessir: Guðmundur B. Jónsson, Bol- ungarvík. Fríða Pétursdóttir, Bolungar- vík. , Sigurður S. Guðmundsson, Hnífsdal. Kristján Sveinbjörnsson, Súða vík. Finnur Th. Jónsson, Bolungar- vik. Þórður Sigurðsson, Hnífsdal og Kjartan Jónsson, Súðavík. Varamenn í stjórn voru kjörn- ir Sólberg Jónsson, Bolungar- vík, Halldór Magnússon, Hnífs- dal og Elías Magnússon, Súða- vík. f kjördæmisráð Sjálfstæðis- flokksins í Vestfjarðakjördæmi voru kjörnir: Bjarni Sigurðsson, Vigúr; Finrtur Th. Jónsson, Boi- ungarvík og Sigurður Sv. Gúð- murtdsson, Hnífsdal, en til vará Valdemar Ólafsson, Bolungar- vík; Ólafur Ólafsson, Hnífsdal og Páll Pálsson, Þúfum. Að loknum aðalfundarstörfum flutti Sigurður Bjarnason, al- þingismaður framsögu um hér- aðsmál og þjóðmál. Urðu síðan miklar umraeður á fundinum, sem fór ágætlega fram og sýndi mikinn einhug Sjálfstæðis- manna . í Norður-ísafjarðar- sýslu. Norðaustan gola eða kaldi var á laridinu í gær. Um há- degið var úrkomulaust, og víða léttskýjað á svæðinu frá ísafjarðardjúpi suður um Borgarfjörð. Á Hornbjargs- vita var aðeins þriggja stiga hiti og víðast1 5-7' stig fyrir norðan. Sunnanlands var 9-11- stig. Enn um sinn mun góðviðri haldast um suðvestanvert landið, því að hæðin yfir Grænlandi færist lítið úr stað, og lægðin undan strönd Labrador mun hreyfast aust- ur um Atlántshafið alllangt suður. af íslandi. :

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.