Morgunblaðið - 01.09.1966, Side 6
6
MORGU N BLAÐID
Fimmíuclagtir T. sept. 1966
Starfsstúlku
vantar nú þegar í Barna-
heimilið Tjaldanesi, Mos-
fellssveit. Upplýsingar í
síma um Brúarland.
Miðstöðvarkerfi
Kemisk-hreinsum kisil- og
ryðmyndun í miðstöðvar-
kerfi, án þess að taka ofn-
ana frá. Uppl. í síma 33349.
Einhleyp kona
sem vinnur á sjúkrahúsi
óskar eftir íbúð. Uppl: i
síma 23233 eða 37520.
Vil kaupa haglabyssu
nr. 12. Sími 50703 eftir kl. 7
á kvöldin.
Skrifborðsstólar,
borðstofustólar, íslenzkir
og danskir. Sendum í póst-
kröfu.
Húsgagnaverzlunin Búslóð
Nóatúni — Sími 18520.
Svefnstólar, svefnbekkir,
mikið úrval. Sendum gegn
póstkröfu.
Húsgagnaverzlunin Búslóð
Nóatúni — Sími 18520.
Atvinna óskast
Vanur bílamálari óskar
eftir atvinnu, margt kemur
til greina.^Uppl. sendist
Mbl. fyrir laugard., merkt:
„Atvinna — 4108“.
Keflavík
Til sölu er stór Pedigree
barnavagn. Uppl. eftir kl.
5 að Hafnargötu 22.
Snyrtistofa
Nýtt húsnæði fyrir snyrti-
stofu er til leigu strax.
Tilboð sendist Mbl. fyrir
6/9 merkt: „Snyrtistofa —
4110“.
Stór Servis þvottavél
með suðu til sölu. Uppl. í
síma 35615 eftir kl. 5.
Til sölu
lítið keyrður vel með far-
inn Volkswagen, árg. 1960.
Uppl. í símg 16722 kl. 6—7.
Tækifæriskaup
Vetrarkápur svartar með
stóru skinni á kr. 2500,-.
Ullarprjónakjólar, enskir,
á kr. 800,-.
Laufið, Laugaveg 2.
Starfsstúlku
vantar nú þegar í barna-
heimili að Tjaldanesi, Mos-
fellssveit. Uppl. í síma
um Brúarland.
Barnagæzla
Tek að mér gaezlu ung-
barna, allan daginn. Er á
góðum stað í Austurbaen-
um. Uppl. í síma 4 16 69.
ATHUGIÐ
Þegar miðað er við útbreiðslu.
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
„Besti vinur bókin er,
baeði í gleði og neyð,
aðall fsiendinga,
um alda farið skeið."
Ein var sú kona, sem fyrst
íslenzkra kvenna skrifaði
skáldsögur, hún hét Torf-
hildur Þorsteinsdóttir, Hólm.
Hún fæddist 2. febrúar 1845,
á Kálfafellsstað, í Austur-
Skaftafellssýslu. — Poreldrar
hennar voru Þorsteinn Einars
son prestur þar, og kona hans
Thorfheildur Hólm
Guðríður Torfadóttir. Fram
yfir fermingu dvaldi Torf-
hildur í foreldrahúsum, varð
hún strax bókhneigð, og las
fornsögurnar í uppvexti sin-
um, eins og títt var um fróð-
leiksfúsa unglinga í þá daga,
og mun það veganesti hafa
orðið henni notadrjúgt við rit
störfin síðar meir. — Torf-
hildur varð fjölmenntuð og
gáfuð dugnaðarkona, enda
liggur mikið eftir hana af rit
uðu máli. Öll stærri verk
hennar eru um söguleg efni.
— fyrsta sagan er hún reit,
var Brynjólfur Sveinsson
biskup, og kom sú bók út árið
1882, og vakti hún þegar mikla
athygli. En veigamesta verk
hennar er: „Elding", saga
frá 10. öld, sem kom út 1889.
— einnig gaf hún út tímarit,
sem hún helgaði bókmennt-
um, þar sem hún birti í sögur,
baeði frumsamdar og einnig
þýddar. — En Torfhildi var
fleira til lista lagt en ritmensk
an, hún var mikil hannyrða
kona, og lagði stund á kven-
legar hannyrðir og málanám,
er hún kenndi síðar ungfreyj
um ættlands síns, er hún gerð
ist kennslukona, og var einnig
brautryðjandi í því, eins og
hún var þrautryðjandi um
ritmennsku íslenzkra kvenna,
því Torfhildur var ein af önd
vegis konum íslenzks þjóð-
lífs kringum seinustu alda-
mót. — Lesendum þessara
lína gefst hér kostur á að
horfa á mynd sem tekin var
í Minjasafni Reykjavíkur-
borgar, af Stólpúðasessu, sem
er ísaumuð með perlusaumi,
og í púðann er ísaumuð mynd
af Fálka. — Púði þessi var
saumaður af frú Torfhildi
Hólm, og má þar sjá snildar
legt handbragð hennar.
Ingibjörg Guðjónsd.
í dag er fimmtudagur 1. sept. og
er það 244. dagur ársins 1966.
Eftir lifir 121 dagur.
Árdegisháfiæði kl. 7:17.
Síðdegisháflæði kl. 19:33.
Upplýsingar um læknapjón-
ustu í borginni gefnar i sím-
svara Læknafélags Beykjavíkur,
Síminn er 18888.
Slysavarðstofan i Heilsuvernd-
arstöðinni. Opin allan sólarhring
inn — aðeins móttaka slasaðra —
sími: 2-12-30.
Kvöldvarzla í lyfjabúðum er
dagana 27. ágúst — 3. september
í Laugavegsapóteki, — Holts
apóteki.
Næturvarzia er að Stórholti 1,
sími 23245.
Næturlæknir í Keflavík 1/9.
— 2/9. Kjartan Ólafsson sími
Akranesferðir með áætlunarbflum
ÞÞÞ frá Akranesi kl. 12. alla daga
nema laugardaga kl. 8 að morgni og
sunnudaga kl. 17:30. Frá Rvík (Um-
ferðamiðstöðin) kl. 6 alla daga nema
laugardaga kl. 2 og sunnudaga ki.
21 og 23:30.
Skipadeild S.Í.S.: Amarfell er í Rvík.
Jökulfell fer í dag frá Camden til
Rvíkur. Dísarfell losar á Norðurlands
hötfnum. Litlafell fer í dag til Aust-
fjarða. Helgafell er í Hull. Fer þaðan
til Rvíkur. Hamrafell fer um Panama
skurð 13. þ.m. Stapafell væntanlegt
til Rvíkur á morgun. Mælifell fer í
dag frá Helsingfors til Hangö og
Aabo. Knud Sif Xosar á Austfjörðum.
Inka lestar á Austfjörðum.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla fer frá
Rvík kl. 18:00 á laugardaginn í Norð-
urlandsferð. Esja fer frá Rvík á
morgun austur um larvd í hringferð.
Herjólfur fer frá Vestmannaeyjum í
dag til Hornafjarðar. Herðubreið er í
Rvík. Baldur fór til Snæfellsness- og
Breiðafjarðarhafna í gærkvöld.
1700. 3/9. — 4/9. Arnbjörn Ólafs
son sími 1840. 5/9. Guðjón
Klemenzson sími 1567, 6/9. Jón
K. Jóhannsson simi 1800, 7/9.
Kjartan ólafsson simi 1700.
Kópavegapótek er opið alla
daga frá kl. 9—7 nema laugar-
daga frá kl. 9—2, helga daga frá
2—4.
Framvegls verBor teklB á móti þclra.
er geta vilia blóð I Blóðbankann, seni
hór segir: Mánudaga, þriðjudaga,
limmtudaga og föstudaga frá kl 9—1X
f.h. og 2—4 e.h. MIDVIKUDAGA frá
kl. 2—8 e.h. Laugardaga frá kl. 9—11
f.h. Sérstök athygli skai vakin á mið-
vikudögum, vegna kvöldtimans.
Bilanasimi Rafmagnsveitu Reykja-
vikur á skrifstofutlma 18222. Nætur-
og helgtdagavarzla 18230.
Upplýsingaþjónusta AA samtakanna
Hverfisgötu 116, simi 16373. Opin alla
virka daga frá kl. 6—7.
OrB lifsins svara 1 síma 1006*.
Kiwanes Hekla 12:15. Hótel Loft-
leiðlr.
Flugfélag fslands .hf.: Millilanda-
flug: Gullfaxi fer tíl Glasgow og
Kaupmannahafnar kl. 08:00 i dag.
Vélin er væntanleg aftur til Rvíkur
kl. 21:50 í kvöld. Flugvélm fer til
Glasgow og Kaupmannahafnar kl.
08:00 í fyrramálið. Skýfaxi fer til
Oslo og Kaupmannahafnar kl .14:00 1
dag. Vélln er væntanleg aftur til
Rvikur kl. 19:46 annað kvöld. Sólfaxi
fer til London kl. 09:00 1 fyrramálið.
Innanlandsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar 3( ferðir), Vest-
mannaeyja (2 ferðir), Patreksfjarðar,
Húsavikur, fsafjarðar, Kópaskers, Þórs
hafnar og Egilsstaða. Á morgun er á-
ætlað að fljúga til Akureyrar (3 ferð-
ir), Vestmannaeyja (3 ferðir), Horna-
fjarðar, Xsafjarðar, Egilsstaða (2
ferðir) og Sauðárkróks.
Pa.n American þota kom frá NY kl.
06:20 i morgun. Fór til Glasgow og
Kaupmannahafnar kl. 0:700. Væntan-
leg frá Kaupmannahöfn og Glasgow
kl. 18:20 í kvöld. Fer ti INY kl. 19:00
Loftleiðlr h.f.: Viihjálmur Stefáns-
son er væntanlegur frá NY kl. 09:00.
Fer til baka til NY kl. 01:46. Guðríð-
ur Þorbjarnardóttir er væntanleg frá
NY kl. 11:00. Heldur áfram til Luxem
borgar kl. 12:00. Er væntanleg til
baka fná Luxemborg kl. 02:46. Held-
ur áfram til NY kl .03:46. Þorfinnur
karlsefni fer til Óslóar og Kaupmaiina
hafnar kl. 10:00. Snorri Þorfinnsson
fer U1 Glasgow og Amsterdam kL
10:16. Er væntanlegur til baka kl.
00:30. Bjarni Herjólfsson er væntanleg
frá Kaupmannahöfn og Gautaborg ki.
00:30. Bjarni herjólfsson er væntanleg
ur frá NY kl. 03:00, Heldur áfram til
Luxemborgar kl. 04:00.
Hafskip h.f.: Langá fór frá Gauta-
borg 30. til íslamds. Langá fór i'rá
Kaupmanmahöfn 29. til íslands. Rangá
fór frá Norðfirði 29. til Amtwerpen,
Rotterda-m, Hamborgar og Hull. Selá
er i Rvik. Dux er í Rvik.
H.f. Jöklar: Drangajökull fór I
fyrradag frá NY til Wilmington, Char-
leston og Canada. Hofsjökull er 1
Walvisbay. Langjökull fer 1 kvöld
frá Rotterdam til Dublín. Vatnajökull
fór í gærkveldi frá Rotterdam til
London.
HÖLL: — Að búa í hölí er
góðs viti. Þú munt komast til
valda og auðæfa. Þú munt ná
meiri andlegum þroska. Fyrir
ástfangna er það fyrir tryggum
förunaut og hamingjusomu lifi.
Tekið á móti
tilkynningum
í dagbók milli
kl. 10-12 f.h.
Eltingarleikurinn á ytri -höfninni
Eins og rækilega var skýrt frá í Mbl. í gær voru marsvín rekin inn á ytri höfnina í Reykjavík si.
þriðjudagskvöld- Stóð eltingarleikurinn við marsv ínin yfir í tvær klukkustundir, en þá var eftirför
hætt vegna myrkurs. Auk þess sigldi lögreglubát ur um höfnina og tilkynnti í hátalara, að öllum
blóðsúthellingum. skyldl hætt tafarlaust i nafni lö greglnstjóra, hafnarstjóra, að tilhlutan framtaks-
samra dýraverndara og kjötkaupmanna í borginni. Ekki tókst þó að hindra dráp þriggja marsvína.
Hins vegar var kjötið af þeim dæmt ólöglegt af he ilbrigðisyfirvöldum, þar eð gleymzt hafði að fara
með hvaiina í sláturhús til aflifunar. Myndina hér að ofan tók Sv. Þorm. sl. þriðjudagskvöld.
VEL MÆLT!
Ef þú gerir eitthvað af þeirri samfæringu, að þér sé skylt
að gera það, þá hikaðu ekki að gera það fyrir annara augum,
jafnt þótt að múguri’in fordæmi þig, því að ef þú ferð með
rangindum, leyfist þer alls ekki að gera það. En ef þú gerir
það, sem rétt er, hví skyldir þú óttast þá, er lasta þig að
ósekju?