Morgunblaðið - 12.10.1966, Page 2
MORGUNBLADID
Miðvikudagur 12. okt. 1966
Guðbrandsbiblía
fór á 61.000 kr.
Sanngjarnt verð sagði kaupandinn,
Helgi Tryggvason bókbindari
ÞAÐ sló þögn á mannskapinn
þegar kom að síðasta númerinu
á bókauppboðskrá Sigurðar
Benediktssonar í gær. Til sölu
var ein fágætasta bók er prentuð
hefur verið á íslenzka tungu,
Guðbrandsbiblía, prentuð á Hói-
um 1584. Það þótti bókasöfnur-
um þó mikill galli á eintaki
þessu, að tvö blöð þess, efnis-
yfirlit og „til lesenda" voru
ljósprentuð. Bókinni fylgdi
40.000 kr. boð og virtist í fyrstu
sem enginn ætlaði að bjóða bet-
ur, þrátt fyrir hvatningar upp-
boðshaldara.
Að Iokum kom boð er hljóðaði
upp á 41.000 kr., og lifnaði þá
heldur betur yfir mönnum og
urðu margir til að bjóða. Svo fór
að lokum, að biblían var slegin
Helga Tryggvasyni bókbindara
og bókasafnara fyrir 61.000 kr.
Við verðið 61.000 kr. bætist svo
7% söluskattur, svo bókin kostar
í rauninni 65.575.00 kr. og mun
það vera hæsta verð sem bók
hefur selzt á uppboði hérlendis.
Kaupandinn, Helgi Tryggva-
son, sagði að þetta væri dýrasta
bók sem hann hefði keypt. Hann
taldi verðið sanngjarnt og að
ekki væri ólíklegt að bókin hefði
selzt á 100 þús. kr. ef ekki hefðu
komið til ljósprentuðu blöðin.
Helgi sagðist ekki hafa keypt
bókina fyrir sjálfan sig, en vildi
ekki gefa upp fyrir hvern hún
væri keypt. Sagði aðeins, að hún
mundi fara inn í merkt íslenzkt
bókasafn. Helgi sagði að annars
væri þetta eintak í góðu ástandi,
og bókin sjálf væri fágætt lista-
verk.
Á uppboðinu í gær voru 113
númer og voru flestar bækurnar
úr safni Snæbjarnar Jónssonar.
Það verk sem fór á næst mestu
verði voru hæstaréttardómar,
allt verkið og megnið af því
innbundið. Það fór á 31.000 kr.
og var keypt af Þorvaldi Þórar-
inssyni. Þá fór óðinn, allt verk-
ið í skinnbandi á 22 þús. kr.,
Eimreiðin frá upphafi til 1949 á
7.200 kr. og Islands Kortlægning,
gefið út í Kaupmannahöfn 1944
fór á 13.000 kr. Þá voru seldar
þarna margar erlendar bækur,
en flestar hverjar fjölluðu um
ísland. Sú þeirra sem fór á
mestu verði var bók Alberts
Engström: Át Háckelfjall, útgef-
in í Stokkhólmi 1913. Hún seld-
ist á 2500 kr.
Af öðrum merkum bókum er
Framhald á bis. 31
Hækkun landhelgissekta
— og heimild til upptöku á skipi
— í nýju stjórnarfrv. á Alþingi
Jónas G. Rafnar
! ST J ÓRN ARFRUMVARPI,
sem lagt var fram á Alþingi
í gær, er gert ráð fyrir 50%
hækkun sekta vegna land-
helgisbrota og jafnframt er
farið inn á nýjar brautir skv.
norskri fyrirmynd, þar sem
heimilað er að beita upptöku
á skipi eða andvirði þess að
hluta og er heimilað að beita
slíkri upptöku jafnhliða sekt-
um.
Núgildandi lagaákvæði tryggja
að sektir hafa fylgt breyttu verð
gildi peninga, þar sem sektir
eru miðaðar við gullkrónu. Hins
vegar hefur stækkun fiskveiði-
landhelginnar gert það að verk-
um, að löggæzlan þarf að ná
til miklu stærri hafsvæða en
áður og skapar það auðvitað
meiri erfiðleika. Jafnframt eru
skipin, sem veiðarnar stunda
miklum mun stærri en áður, bún
aður þeirra fulkomnari og veiði
möguleikar meiri. Þykir því
tímabært að hækka viðurlög við
brotum.
f ákveðnum tilvikum hefur
ekki reynzt unnt að koma fram
refsiábyrgð gegn skipstjóra, þótt
málsástæður gæfu ástæðu til
þess. Þess vegna er í frv. þessu
tekið upp ákvæði, svipað því,
sem nú er í löggjöf Norðmanna,
en þar er heimiluð upptaka verð
mæta, þótt ekki komi til refsi-
máls.
Nái frv. fram að ganga verð-
ur lágmark sekta skipa yfir 200
rúmlestir brúttó kr. 300 þús.
en hámark sekta 400 þús. eða
500 þús. kr. eftir því hvort skip-
ið er undir eða yfir 600 rúm-
lestum.
í greinargerð frv. segir, að
með upptökuákvæðinu sé farið
inn á nýjar brautir, þar sem
heimilað er að beita upptöku
á skipi eða andvirði þess að
hluta. Gerir þetta mögulegt að
koma fram viðurlögum á laga-
lega óaðfinnanlegan hátt og eft-
ir skýrum lagaheimildum, þótt
ekki verði komið fram refsi-
ábyrgð.
í Noregi hefur þróunin verið
sú, að beitt hefur verið tiltölu-
lega lágum sektum, en fjárhags-
legu viðurlögin hafa fyrst og
fremst falizt í upptöku og þá
með ákveðnum krónufjólda af
andvirði skips. Hér á landi hef-
ur um langt árabil verið beitt
allháum sektum og þykir ekki
rétt að hverfa frá tiltölulega
háum lágmarkssektum og er því
gert ráð fyrir, að sektirnar verði
áfram höfuðviðurlögin við brot-
um gegn fiskveiðilöggjöfinni en
með hinum nýju ákvæðum fá
dómstólarnir viðbótar laga-
ákvæði við ákvörðun viður-
laga.
Vestmannaeyingar eru harðir
í sjónvarpsmálinu. Krakkarn-
ir ætla heldur ekki að láta
sitt eftir liggja að fá sér sjón-
varpsloflnet, jafnvel þó þeir
þurfi að smíða það sjálfir.
Fyrr er húsið ekki fullbúið
en komið er á það loftnet.
Þarna sjást byggingameist-
arar þessa myndarlega húss,
ásamt gestum. Ljósm. Guðjón.
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags
Eskifjarðar verður haldinn í
Valhöll fimmtudaginn 13 okt. kl.
20.15. Venjuleg aðalfundarstörf
og kjör fulltrúa í fultrúaráð og
kjördæmisráð. — Stjórnin
Aðalfundur fulltrúaráðs Sjálf
stæðisfélaganna í Suður-Múla-
sýslú verður haldinn í Félags-
lundi á Reyðarfirði sunnudaginn
16. október kl. 14.30. Stjórnin.
Bræðslurnar hafa ekki und
an á Austf jörðum
Hvenær icær sjjónvarp-
ið til Norðurlands?
Fyiirspum á Alþingi írá Jónasi G. Rafnar
sé að íslenzka sjónvarpið nái til
Norðurlands Gera má ráð fyrir,
að menntamálaráðherra svari
fyrirspurn þessari að viku liðinni
n.k. miðvikudag.
JÓNAS G Rafnar alþm. 2. þing-
maður Norðurlandskjördæmis
eystra hefur lagt fram á Alþingi
fyrirspurn til menntamálaráð-
herra þess efnis, hvenær ráðgert
Vélritunarstulka
Ritstjórn Morgunblaðsins vantar góða
vélritunarstúlku. — Upplýsingar gefnar á
ritstjórn blaðsins kl. 10—11 f.h. þessa viku.
AÐALVEIÐISVÆÐI síldarbát
anna fyrir uastan er nú 30-40
i sjómílur undan landi í Norð-
I fjarðardýpi, en í fyrrinótt
■ veiddu 51 skip samtals 6.843 lest
ir af síld. Stutt er því að fara
þegar veiðist og eru þrær síld-
| arverksmiðjanna fyrir austan
yfirleitt fullar, aðeins hægt að
taka við í það rými sem losnar
við bræðslu. Þetta nær þó ekki
norður til Vopnafjarðar, sem í
gær tók við síld af 16 skipum.
Mbl. hafði í gær samband við
fréttaritara sína á stærstu stöð-
unum, Eskifirði, Norðfirði, Seyð
isfirði og Vopnafirði, og sögðu
þeir eftirfarandi um þetta
Eskifirði — Allar þrær hjá
síldarbræðslunum hér eru full-
ar og búnar að vera það í
nokkra daga. En jafnskjótt og
þróarrými losnar, er tekið við
síld. Síldarbræðslurnar tvær
bræða um 5000 mál á sólarhring.
Hefur bræðsla í nýju síldar-
verksmiðjunni gengið mjög vel.
— Gunnar.
Norðfirði. — Þrær eru fullar
hér á Norðfirði og landa bát-
amir aðeins jafnóðum og þær
tæmast. Þó bíða ekki mörg skip.
því síldarbátarnir dreifa sér á
staðina. Verksmiðjan bræðir um
6000 mál á sólarhring. Síldar-
söltun er lokið, og telja má og
allt aðkomukvenfólk farið.
Undanfarið hafa komið hér 3-4
skip á dag til að taka mjöl og
lýsi. Hafa farið á nokkrum dög-
um 3000 tonn af mjöli og 2000
tonn af lýsi. Var allt orðið fullt,
en rýmkast mikið við það. Þo
er fljótt að fyllast aftur, þegar
180 tonn af mjöli bætast við
daglega. — Asgeir.
Seyðisfirði. — Þrær hafa ver-
ið fullar hjá okkur að undan-
förnu. En í nótt lestaði síldar-
flutningaskipið Vestberg 500
tonn af síld hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins. Og nú er verið
að losa þró. Þá losnar 700 tonna
rými. Bíða skip með síld í hana.
En þegar búið verður að bræða
það magn, verður verksmiöjaa
stöðvuð til að hreinsa vélar.
Hjá Hafsíld losnar 1000 tonna
rými á morgun. — Sveinn.
Vopnafirði. — Hér á Vopna-
firði er enn hægt að taka við
síld, og þrær verksmiðjunnar
ekki fullar. Brætt er af fullum
krafti og gengur vel. Verksmiðj
an er búin að taka á móti 28
þúsund tonnum. 16 skip liala
komið í dag með líklega 1500-
2000 tonn. — Ragnar,
1 gærmorgun var NA- og
A- gola eða kaldi hér á landi.
Á Austfjörðum var víða þoku
súld, skúrir sunnan lands og
rigning á Hornströndum, en
þurrt veður á Vesturlandi og
í innsveitum fyrir norðan.
Hiti var víðast 5-9 stig, kald
ast 2 stig á Kili og 3 á Horni.
Lítið hefur verið minnzt á
hafís að undanförnu, enda er
hann minnstur á þessum árs-
tíma. Á kortinu hér að ofan
sést hvernig brezka veður-
stofan taldi stöðu hans í gær.
Talsvert breitt belti er und-
an strönd Grænlands norðan
við Scoresbysund, en aðeins
hrafl með ströndinni þaðan
og suður fyrir Aputitek.