Morgunblaðið - 12.10.1966, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 12.10.1966, Blaðsíða 19
Miðvlkudagur 12. okt. 1966 MORCUNBLADÍÐ 19 — Fjárlagafrumv. Framhald af bls. 1 bóta á landbúnaðarvörum 248 milljónir. Til dómgæzlu o.fl. eru áætlaðar um 250 milljónir og til læknaskipunar og heilbrigðis mála 213 milljónir. Það sem hækkar Hækkunin á útgjöldum ríkis- sjóðs stafar af eftirtöldum ástæð- um. Dómgæzla og lögreglustjórn, kostnaður við innheimtu tolla og skatta og sameiginlegur kostn- aður við embættisrekstur hækk- ar um 76,9 milljónir, framlög til læknaskipunar og heilbrigðis- mála hækka um 67,5 milljónir, hækkn á framlögum til samgöngu mála nemur 30.4 milljónum, vegna menntamála o.fl. verður 138 milljón króna hækkun, vegna framlaga til atvinnumála 144,5 milljónir þar af til landbúnaðar 25,4 milljónir og til sjávarút- vegs 93,9 milljónir. Hækkun vegna félagsmála, aðallega al- mannatrygginga er 190.9 milljón- ir. Á hinn bóginn lækka áætluð framlög til óvissra útgjalda vegna lækkunar á niðurgreiðslum um 42,8 milljónir. Meginstefna fjárlagafrumvarps- ins. í greinargerð frumvarpsins segir m.a.: „Við samningu frumvarpsins hefur verið lögð áherzla á að kanna eftir því sem frekast hafa verið tök á þær tillögur, sem hlutaðeigandi stofnanir og ráðu- neyti hafa gert um fjárveitingar. Öllu því aðhaldi hefur verið beitt, sem unnt hefur verið á grund- velli þeirra upplýsinga, sem fært hefur verið að safna á undirbún- ingstíma f járlagafrumvarpsins. Jafnframt hefur verið leitazt við að gera fjárlagafrumvarpið svo úr garði, að fjárveitingar séu raunhæfar og líkindi til þess, að koma þurfi til umframgreiðslna, verði sem minnst. í því skyni að ná þessu marki hafa verið haldn- ir umræðufundir um fjárlagatil- lögur með eins mörgum forstjór- um ríkisstofnana og frekast hafa vererið tök á. Útreiknuð laun í fjárlögunum hafa verið miðuð við núverandi grunnkaup samkvæmt Kjara- dómi, sem tók gildi 1. janúar 1066, að viðbættu kaupgjaldsvisi töluálagi 15:25%. Allmiklar breyt ingar á launum leiða enn frem- ur af síðasta dómi Kjaradóms, eins og sjá má víða í greinargerð. Hækkun fastra launa frá fjárlög um 1966 er þannig um 25%. Venjulegur skrifstofukostnaður hefur almennt verið ráðgerður sem nemur 20—25% hærri en í gildandi fjárlögum. Ferðakostn- aður innanlands hefur á hinn bóginn hækkað nokkru meir eða 25—30% vegna óhjákvæmilegrar hækkunar, sem kom til fram- kvæmda á þessu ári á dagpening- um ríkisstarfsmanna í ferðalög- um innanlands, auk hækkunar á gjaldi fyrir notkun eigin bif- reiða starfsmanna i þágu ríkis- ins, sem leiddi af hækkun ben- zínverðs o.fl. Húsaleiga, ljós, hiti og ræsting hækkar almennt um 16—20%. Pappír og einkum prentkostnaður hækkar einnig talsvert mikið eða nálægt 25%. Þessar hækkanir undirstrika hin tæknilegu vandkvæði ,sem eru á gerð fjárhagsáætlana við verðbólguaðstæður. Áætlunin hef ur þá þegar misst gildi sitt, þegar hafið er að framkvæma hana og er þannig ekki lengur fast markmið til að keppa að fyrir hvern þann, sem ber á- byrgð á verki eða starfsemi, sem unnin er á vegum ríkisins. Annað tæknilegt viðfangsefni, sem ekki kemur fram í þeim athugasemdum, sem hér að fram an hafa verið gerðar, er skortur á upplýsingum fyrir miðstjórn ríkisrekstrarins, til að tengja hvert viðfangsefni, sem unnið er að, við þær fjárhæðir, sem um er beðið eða veittar eru í fjár- lögum. Eins og málum er nú háttað, er grundvöllur fjárveitinga að jafnaði rekstur tiltekinna siofn- ana, sem hafa tilgreinda fjólda starfsmanna. Kostnaður við rekst ur stofnunarinnar er síðan ætlað- ur eftir tilkostnaði eða fjárveit- ingum síðustu ára með álagi fyrir tilkosnaðarhækkunum. Tilvera stofnunarinnar sem skipulagseiningar skyggir þannig á eða dregur athyglina frá þeim verkefnum, sem þessi skipulags- eining á að afkasta. Hið lök- rétta undirstöðuatriði ríkis- rekstrarins hlýtur að vera það safn verkefna, sem unnið er að, en ekki þær skipulagseining- ar, sem upp hafa verið settar til að sinna þessuih verkefnum. Með þessum hætti fæst oft ekkert mat á því, hversu vel eða illa stofnun hefur sinnt sínum viðfangsefnum, þar eð fjárveit- ing til stofnunarinnar miðaðist ekki við ákveðið viðfangsefni, heldur við rekstur stofnunar. Við skoðun ríkisreiknings vill gjarna verða sama uppi á ten- ingnum. Meginatriðið verður, hversu miklu fé stofnun hefur eyt-t, einna helzt umfram þa’ð, sem henni var ætlað, en ekki hversu miklu verki stofnunin hefur af- kastað. Upplýsingar um það fást að sjálfsögðu engan veginn með útgjaldatölum einum sam- an, heldur þurfa þar að koma til viðbótarupplýsingar, sem nú liggja almennt ekki fyrir. f fjármálastjórn ríkisins er sægur viðfangsefna af þessu tagi, sem bíða úrlausnar. Öll eiga þau sameiginlega uppistöðu, þ.e. viðleitnina til að bæta aðstöðu fjármálaráðherra, ríkisstjórnar og ekki sízt Alþingis, til að hafa yfirsýn og fullt vald á hinu flókna kerfi ríkisafskipta, sem myndar hið íslenzka velferðar- þjóðfélag. Jafnframt verður að treysta aðstöðu þessara aðila til að móta stefnu í fjármálum ríkis ins á hverjum tíma og fram- kvæma þá stefnu. Vegna þessarar aðstöðu er ef til vill í þessu fjárlagafrumvarpi seilzt lengra en oftast áður til móts við óskir ýmissa ríkisstofn- ana um fjárveitingar. Þetta er þó ekki vottur um útþenslu ríkis- rekstrarins heldur viðleitni til að taka upp í fjárlagafrumvarp öll þau útgjöld, sem ekki verður komizt hjá að ríkissjóður beri á árinu 1967, þannig að fjárlaga- gerðin verði sem raunhæfust." — Sukarno Framhald af bls. 1 inn“ segir, að leiðtogi komm- únistaflokksins, D. N. Aidit, hafi skýrt frá þessu við yfir- heyrslu, nokkru áður en hann var tekinn af lífi. Blaðið segir Aidit hafa sagt, að forsetinn hafi staðið í nánu sambandi við einn leiðtoga bylt- ingarsinna, Si;>ardjo, hersh.7J- ingja. Daginn ettir að byltingar- tilraunin var gerð, hafi Sukarno klappað á Öxl hershöfðingjans, og sagt. „Supardjo, þú hefur staðið þig vel.“ Þá á Aidit, skv. frásögn blaðs- ins, að hafa skýrt frá því jafn- framt, að fyrrverandi forsætis- ráðherra landsins Ali Sastroam- idjojo, hafi haft af því vitneskju, að bylting kommúnista stóð fyr- ir dyrum. Sastroamidjojo er enn í Djakarta, en er nú sagður valdalaus maður með öllu. Subandrio, fyrrum forsætisráð herra, sem nú er fyrir rétti í Djakarta, hefur ekki reynt að varpa ábyrgð á Sukarno, vegna byltingatilraunarinnar. Hins vegar hafa stúdentar í Djakarta, og ýmsir menntamenn, krafizt þess, að forsetinn verði leiddur fyrir rétt. í skriflegri yfirlýs- ingu, sem birt var við réttar- höldin yfir Subandrio, nú fyrir nokkrum dögum, segir Sukarno, að byltingatilraunin hafi kom- ið sér gersamlega að óvörum. Adam Malik, núverandi utan- ríkisráðherra Indónesíu, sem er mjög andkommúnískur í skoðun um, sagði í Tokyo í dag, að afskiptaleysi Sukarnos hafi leitt til þess, að þúsundir manna hafi týnt lífi í Indónesíu, eftir að byltingatilraunin var gerð. Sagði Malik, að á sama tíma í fyrra hefði þjóð sín haft mikla þörf fyrir ákveðinn stjórnanda, en forsetinn hafi ekki verið því starfi vaxinn. Þá gagnrýndi Malik Sukarno harðlega fyrir að hafa ekki fordæmt starfsemi kommúnistaflokksins. — Klna hafnar yfir því í dag, að herinn ætti nú að beita sér fyrir því, að „allur almenningur (og her- inn) hefði nýja sókn fyrir út- breiðsíu og kenningum Mao- Tse-tungs“. Leggur blaðið mikla áherzlu á. að Lin Piao, varnarmálaráðherra, só sem næst virðist nú standa Mao, „gen nú enn harðari kröfur til þess, að hagnýttar verði kenningar Maos“. Fréttastofan „Nýja Kína“ vitnaði ’ dag til ritstjórnar- greinar í „Dagblaði frelsis- hersins*', en þar segir m. a.: „Við (Kinverjar) lifum á timum heimsbyltingar, og nú hefur verið brotið blað í bylt- ingunni i okkar eigin landi“. Þá segir einnig í fréttum frá Peking í dag, að tekin hafi verið um það endanleg ákvörðun, að „Rauðliðar“, of- beldisstnnar þeir, sem haldið hafa á lofti merki „menning- arbyltingarinnar", hafi nú verið gei ðir að varaliði hers- ins. Jafníramt segir, að „Rauð liðarnir" hafi unnið merkilegt starf. Þeir hafi fundið vopn, sem óvimr byltingarinnar hafi ætlað sér að geta gripið til, kæmi til þess, að þeir teldu möguleika á að hrinda skoðunum sínum í fram- kvæmd. Fréttir, sem bárust frá Hong Kong í dag, herma, að undan- farna daga hafi verið efnt til funda í Canton, þar sem lögð hafi verið áherzla á gagnrýni á Sovétríkm. Haft er eftir fólki, sem nýkomið er frá Kína, að í Canton hafi hvar- vetna niátt sjá skilti, þar sem lýst sé andúð á Sovétríkjun- um, enda séu þau „versti óvinur Kína“. Þá er haft eftir sömu heimildum, að „Rauð- liðar“ hafi latið til skarar skríða getn bókasöfnum víðs vegar, og brennt þar allar sovézkar bækur. Starfsemi „Rauðliða“ og annarra fylgifiski „menning- arbyltingarinnar" hefur kom- ið hart niður á útgáfustarf- semi í Kína. Blaðið „Ming Po“, sem gefið er út á kín- versku í Hong Kong, segir, að lögð hafi verið niður út- gáfa 50 blaða og tímarita í Kína, cg 250 kennurum og starfsliði við háskólann í Peking hafi verið sagt upp störfum. SÆ NGUR Endurnýjum gömlu sæng- urnar, eigum dún- og fiður- held ver, gæsaduns- og dralon-sængur og kodda af ýrnsum stærðum. Dún- og ti&urhreinsun Vatnsstíg 3. Sími 18740. (örfá skref frá Laugavegi) Sveinbjörn Dagíinnsson, hrl. og Einar Viðar, hrl. Hafnarstræti 11 — Simi 19406. Donsskóli Rognars í DANSSKÓLI Hermanns Ragn- ars mun hefja níunda starfsár sitt í nýju og glæsilegu hús- næði við Háaleitisbraut 58-60. Stærð húsnæðisins er ca. 350 fermetrar, og eru í því tveir kennslusalir búnir fullkomnustu danskennsiutækjum. Auk þess er í húsinu eldhús, snyrtiherbergi, skrifstofa, rúmgóð forstofa, auk fataherbergis. Skólinn er fullsetinn í ár, og verða fjórir fastir kennarar við danskennsluna, guk fimm stundaikennara. Hjónin Unnar og Hermann Ragnar hafa verið aðalkennarar skólans frá upp- hafi, en nú hafa bætzt í hópinn frú Ingibjörg Jóhannsdóttir og Örn Guðmundsson, en þau hafa bæði lokið prófi í danskennslu frá Carlsens Insititute í Kaup- mannahöfn. I vetur verður ein stúlka við nám í skólanum sem kennaraefni, en Hermann Ragn- ar hefur nú réttindi til að út- skrifa danskennara frá skólan- um. Skipulag innréttinga hins nýja húsnæðis hefur hvílt á hjónun- um Petrínu Jakobsen og Jóhanni Hallgrímssyni. Um raflagnir sá — Frakkar Framhald af bls 1 milli landanna um sovézkan endurvarpshnött. Fréttast-,fan TASS skýrði frá því í dag, að undirritaður hefði verið samningur milli Sovétríkj- anna og vestræns ríkis, og kvæði samkomulagið á um samstarf á sviði kjarnorkurannsókna. Gert er ráð fyrir, að á næst- unni verði hafizt handa um byggingu „fransks þorps“, nærri sovézku kjarnorkurannsókna- stöðinni í Serphukov, nokkru fyrir sunnan Moskvu. Verða þar að öllum líkindum starfandi um 100 franskir vxsindamenn. Nefnd sú, sem sjá á um framkvæmd samnings þessa, mun kom saman t.il fundar fyrir lok þessa árs. Hermanns nýju húsi Guðni Bridde, pípu.agnir Sig- urður Þorkelsson, málningu Guðmundur Gunnar Einarsson. Húsgögn eru frá Stálhúsgögn. Húsnæðið var formlega opnað síðasta laugardag, og sýndu þá nemendur í skólnum gestum ýmsa dansa. Skiptir um f und- ardag eftir 46 ár FRÁ upphafi eða í 46 ár hefur Guðspekifélagið haft fundi á föstudögum og hafa þeir ekki fallið niður nema á stórhátíðum frá 20. sept til 8. maí ár hvert. Nú verða fundirnir af ýmsum ástæðum fluttii yfir á fimmtu- dag. Sigvaldi Hjálmarsson, for- seti Guðspekifélagsins, tjáði Mbl., að ástæðan væri m. a. sú að sjónvavpið er á föstudögum, og einnig vegna' ítrekaðra beiðna frá verzlunarfólki, sem kemur seint heim úr vinnu á föstudags- kvöldum. Á þessum fundum eru ætíð haldnir fyrirlestrar. Fyrsti fimmtudagsfundurinn verður á morgun. Þá flytur Gretar Fells erindi, sem hann nefnir Opið bréf. — Bretar heim Framhald af bls. 1 til þess, að viðræður fjármála ráðherranna séu álitnar mjög mikilvægar, að í fylgd með Gallaghan verður aðalbanka- stjóri Englandsbanka, Leslie O’Brien, og hermálaráðherr- ann, Gerald Reynolds. Haft er eítir áreiðanlegum heimildum í London, að erfitt sé að gera sér grein fyrir, hvernig haida eigi úti brezka hernum í V-Þýzkalandi, taki v-þýzka stjornin afstöðu sína ekki til endurskoðunar. Talið er hins vegar ólíklegt, að svo verði, og brezka stjórn- in er sögð ákveðin í að draga úr kostnaði, vegna hers þessa. Vil kaupa lofthreinsunarketil fyrir 100—150 ferm. húsnæði. — Upplýsingar í símum 51551 og 52050. Eliítraustur peningaskápur óskast. — Má vera notaður. Upplýsingar í síma 35465. Rafv'rki óskast til starfa vegna byggingafram kvæmda við Sundahöfn. — Upplýsingar í síma 35465. Siúlka óskast til ræstinga. Veitingaslofan TRÖÐ Austurstræti 18. Upplýsingar í síma 52318.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.