Morgunblaðið - 12.10.1966, Qupperneq 5
Miðvikudagur 12. okt. 1968
MORCUNBLAÐIÐ
5
Nú e:u sauðir ekki
lengur étnir í útlöndum
„Sé ég eftir sauðunum".
ÁTTUM
„SÉ ég eftir sauSunum,
sein að koma af fjöllunum
og étnir eru í útlöndum",
var kveðið þegar sauða-
kjötið íslenzka var gull
okkar og gersemi á erlend-
um markaði. Nú er sauða-
hald niður lagt á Islandi,
eða svo má heita. Þó er
ein og ein undantekning á
þessu og hér birtum við
myndir og sanital við einn
i
Rabbað við sauðabónda i Hleðallandi
sauðabónda, skaftfellskan.
Það er fréttaritari blaðsins
í Vík í Mýrdal, Sigþór Sig-
urðsson í Litla-Hvammi,
sem sendir okkur þetta
efni. Hann segir svo:
— Er upphaflega var byrj-
að á sauðfjárslátrun í Vík í
Mýrdal var aðalinnlegg
bænda, til að byrja með,
sauðir. Einkum voru það
stærri bændur, austan Mýr-
dalssands, er komu með fall-
egan hóp af þvi tagi. Nú má
heita að slíkt sjáist vart leng-
ur, þar sem sauðfjáreign
heyrir fortíðinni til.
Mér fannst því sjálfsagt. er
ég frétti af sauðainnleggi í
Vík nú fyrir skemmstu, ið
hitta að máli eigandann, sem
var Gisli Tómasson bóndi á
Melhól í Meðallandi. Ég fann
Gísla á kjötloftinu þar sem
hann var kominn í hvítan
slopp, lögum samkvæmt, og
virti fyrir sér sauðaföliin,
þar sem þau héngu á ránni,
hvít af spiki. Við hófum sam-
talið:
— Mér er sagt að þú sért
eini bóndinn, sem leggur inn
sauði?
— Já, það er víst, nema ef
frá er talin ein og ein kind.
— Telur þú að sauðfjáreign
svari kostnaði nú á tímum?
— Já, hún gerir það, en
gæti þó verið miklu betri, því
matið á sauðakjöti er svo
rangt, miðað við annað kjöt.
Sauðaeign var mjög almenn
fram að 1920, en hefir farið
ört minnkandi síðan og nú
má heita að hún sé horfin með
öilu. Ég vil segja að það stafi
mest af flokkun kjötsins.
Þetta kann að hafa stafað
mest af því, að ær, sem
höfðu 20 kg. fallþunga og þar
yfir voru teknar í sama flokk
og sauðirnir, þó þær væru
dilkar. Er það trúlegt að það
hafi spillt þes^um markaði
mikið.
— Átt þú marga sauði enn?
— Nei. Þeim er nú farið að
fækka.
— Hvað þarf sauðurinn
mikið fóður hjá þér?
— Það er ekki mikið.
Lambsárið þurfa þeir tals-
verða gjöf, en ég tek helzt
minnstu hrútlömbin og geri
þau að sauðum. Það verða oft
mjög fallegar kindur, þurfa
lítið en þrífast vel. í vetur
var einn sá allra gjaffeldasti
vetur, sem komið hefir í
seinni tíð og ég reikna með
að hafa gefið fullorðnu
sauðunum tæpan hest af heyi,
en ekki neinn fóðurbæti,
sagði Gísli að lokum.
Mér varð litið á flokkunar-
merkin á kjötinu og mátti
sjá ýmis nöfn manna á merki-
spjöldunum. Sýndi þetta að
kjötið var allt selt einstakl-
ingum, sem eru ábyggilega
búnir að ákveða jólamatinn i
ár. — Sigþór.
Blaðburðarfólk
vantar í eftirtalin hverfi:
Tjarnargötu
Lynghagí
Lindarjiata
Túngata
Miðbær
Laugaveg — neðri
Ilveriisg. frá 4—62
Fossvogsblettur
Meistaravelli
Talið við afgreiðsluna snni 22480.
Höfum fengið mikið úrvul
ui burnn- og unglingukópum
Komið meðan úrvalið er mest.
Austurstræti 9.
Steinbergs trésmíðavélar
Sambyggðar trésmíðavélar fyrirliggjandi.
Jónsson og Júlíusson
Hamarshúsi — vesturenda.
Sími 15430.
Kuupmenn — Knup!éög
Bygginguíé!ög!
AjB IFÖVERKEN Bromölla
Svíþjóð bjóða til afgreiðslu beint frá verk
smiðju alls konar hreinlætistæki, veggflís-
ar og gólfflísar. Einnig glæsilegt úrval af
lömpum í baðherbergi og eldhús.
IFÖ vörur eru þekktar sænskar gæðavörur.
Allar nánari upplýsingar
hjá einkaumboösinönnum.
Helgi lllagnússon & Co.
Hafnarstræti 19 — Sími 13566.