Morgunblaðið - 12.10.1966, Page 8
8
MORGUN BLAÐIÐ
Miðvikudagur 12. okt. 1966
Mikil hœkkun á fjárveit-
JT'
ingu til Háskóla Islanas
Hækkar um 51,6 %
t FJÁRLAG AFRUMV ARP-
INU, sem lagt var fyrir Al-
þingi í gær, er gert ráð fyrir
stórfelldri aukningu á fjár-
veitingum til Háskóla íslands,
frá því sem er nú. Heildar-
hækkun er rúmar 12 milljón-
ir króna eða 51,6%.
Orsakir þessarar miklu hækk-
unar eru þessar: Fjögur prófess-
orsembætti bætast við, 3 lektors
embætti, 1 lektorsstarf breytist
í' dósentstarf og að auki fjölgar
dósentum um 6, tannlæknakenn-
urum fjölgar um 2 og upp er
tekið % starf aðstoðarkennara í
lífeðlisfræði. Auk þess er bætt
við starfslið, fulltrúa á skrifstofu
og ritara í bókasafn. Með þessu
hækkar fjárveiting til greiðstu
fastra launa við Háskólann um
46.5%. Fjárveiting til tannlækna-
stofu hækkar um 800 þús., fjár-
veiting til rannsóknarstofu í
lyfjafræði hækkar úr 15 þús. í
245 þús. til að taka upp rann-
sóknir á því sviði, fjárveiting til
Stundakennslu hækkar um 1,6
millj. og fjárveiting fyrir háskóla
bókasafn hækkar úr 400 þús. í
700 þús. krónur.
Teknir eru upp nýir liðir, fram
lag til rannsóknarstofu í lífeðlis-
og lífefnafræði 500 þús. kr. og
tilbúnaðar í kennslustofpm og
fyrirlestrarstofum 500 þús. kr.
Nettofjárveiting til Tilrauna-
stofu Háskólans að Keldum
hækkar úr 491 þús. í 932 þús. og
fjárveiting til Raunvísindastofn-
unar háskólans hækkar um 3
milljónir kr. í 6 milljónir. Raun-
vísindastofnunin hefur nú tekið
til starfa í alvöru, í samræmi við
reglugerð um stofnunina. Er þar
gert ráð fyrir 4 deildum, einni,
sem vinni að rannsóknum á
stærðfræði og teoretiskri eðlis-
fræði, annarri í eðlisfræði, hinni
þriðju í efnafræði og hinni fjórðu
í jarðeðlisfræði.
Dansk-íslenzka félagiö minnist
50 ára afmælis síns á laugardag
Af því tilefni kemur hingað menningarmálaráð-
herra Dana Hans Sölvhöj og frú
HINN 4. janúar 1916 var stofnað
í Kaupmannahöfn Dansk-íslenzka
félagið, að tilstuðlan lýðháskóla-
fólks, sem stakk upp á því að
félagið efldi skilning og samúð
milli landanna. Félagið skiptist í
tvær deildir og starfa þær í sitt
hvoru landinu. Helmingur laga
félagsins er sameiginlegur í báð-
um löndunum.
Tilgangi félagsins hefur verið
reynt að ná með útgáfu bóka,
tímaritsgreinum og hefur félag-
ið gefið út um 40 bækur á síðast-
liðnum 25 árum, að því er dr.
Friðrik Einarsson, læknir og for-
maður félagsins, og L. Storr,
aðalræðismaður Dana á íslandi
tjáðu blaðamönnum á fundi í
gær. í>á hefur félagið og beitt
sér fyrir kvikmyndasýningum í
báðum löndunum og kynnt lönd-
in. Einnig hefur ýmsum fyrirles-
urum verið boðið til 4gagnk,væms
fyrirlestrahalds.
í fyrstu stjórn Dansk-íslenzka
félagsins áttu sæti dr. Arne
Möller, Aage Benedictsen, pró-
fessor Finnur Jónsson, Astrid
Stampe Federsen, sem fyrst
stakk upp á stofnun félagsins,
Jón Sveinbjörnsson, konungsrit-
ari og Tulinius, kaupmaður.
íslandsdeildin var stofnuð árið
1920 af prófessor Jóni Helga-
syni, biskup, prófessor Guð-
mundi Hannessyni og dönskum
manni Wi'he að nafni. Frá upp-
hafi hefur félagið verið mjög
starfsamt, þegar undanskilin eru
stríðsárin, en þá lá félagslíf að
mestu niðri.
í tilefni af hálfrar aldar af-
mæli félagsins hefur stjórn þess,
sem skipuð er dr. Friðrik Ein-
arssyni, L. Storr, aðalræðis-
manni, Stefaníu Guðnadóttur,
Haraldi Ágústssyni, Erlu Geirs-
dóttur, Jóhannesi Snorrasyni og
Ágústi Bjarnasyni, ákveðið að
halda upp á afmælið að kvöldi
laugardagsins 15. september að
Hótel Sögu. Hefur stjórnin boðið
til íslands menningarmálaráð-
herra Dana, Hans Sölvhöj og
frú hans Ruth, en hún er sonar-
dóttir Niels R. Finsens og hefur
aldrei áður komið til íslands.
Hans Sölvhöj mun verða aðal-
ræðumaður afmælishófsins, en
menntamálaráðherra dr. Gylfi
Þ. Gíslason mun einnig halda
ræðu.
Menningarmálaráðherra Dana,
Hans Sölvhöj var áður en hann
varð ráðherra útvarpsstjóri hjá
danska útvarpinu og kom fyrir
nokkrum árum hingað til lands.
Hann er annar tveggja ráðherra
í dönsku ríkisstjórninni, sem
ekki er stjórnmálamaður að at-
vinnu. Solvhöj er 47 ára gamall.
Hann mun dveljast hér á landi
til mánudagsmorguns.
Danmerkurdeild Dansk-íslenzka
félagsins minntist þessara tíma-
móta í sögu félagsins í janúar
sl. í Domus Medica, en núver-
andi formaður þar er prófessor
Meulengracht. Aðeins eitt félag
sömu tegundar og Dansk-íslenzka
félagið er eldra því, Aliance
Francais, sem stofnað var 1911.
f dansk-íslenzka félaginu er
aðeins einn heiðursfélagi. Er
það frú Bodil Begtrup, fyrrum
sendiherra Dana á íslandi og
núverandi sendiherra í Sviss, en
hún vann manna ötullegast að
endurreisn félagslífs innan
félagsins eftir síðari heims-
styrjöldina.
„Genfarsáttmálinn 1954
verði grundvöllur friðar"
Brown, utanríkisráðherra Breta, rœðir Vietnam og Rhódesíu
á Allsherjarþinginu
New York, 11. okt. — NTB
UTANRÍKISRÁÐHERRA
Breta, George Brown, lýsti
yfir því á Allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna í dag,
að brezka stjórnin myndi
halda fast við sinn fyrri á-
setning, og beita sér fyrir
efnahagslegum þvingunarráð
stöfunum gegn Rhódesíu, léti
stjórn landsins ekki af núver-
andi stefnu sinni.
í ræðu sinni endurtók
Brown þá ósk brezku stjórn-
arinnar, að friðartillögur þær,
sem hún hefur lagt fram
í Víetnam-deilunni, mættu
verða til þess að koma á friði
þar í landi.
Lagði utanríkisráðherrann
til, að Sovétríkin og Stóra-
Bretland beittu sér fyrir því
í sameiningu, að hafnar yrðu
á ný viðræður um Víetnam
í Genf.
Ræða sú, sem Brown flutti í
dag, er sú fyrsta, sem ráðherr-
ann heldur á þessum vettvangi.
í henni sagði hann m.a., að frest-
ur sá, sem minnihluti hvítra
manna í Rhódesíu hefði til að
endurskoða afstöðu sína, væri nú
senn á þrotum.
„Ég verð að taka það skýrt
fram“, sagði Brown, „að brezka
stjórnin mun aldrei fallast á
sjálfstæði Rhódesiu, fyrr en
tryggt hefur verið, að þar taki
við völdum stjórn, sem nýtur
meirihlutafylgis“.
Brown minnti á samveldis-
málaráðstefnuna, sem haldin var
fyrr á árinu í London, þar sem
náðst hefði samstaða um að
reyna að berja niður uppreisn-
ina í Rhódesíu. „Við stó'ðum þá
saman um grurrdvallaratriði kyn
þáttamálsins, og vildum koma
þar á fót samfélagi, sem tryggði
öllum sama rétt“.
Þá vék ráðherrann að tillög
um brezku stjórnarinnar, sem
miða að því að koma á friði.
í Víetnam, og bætti við: „Til
er ekki — og ætti ekki að
vera til — hemaðarleg lausn
þessarar deilu. Við erum
þeirrar skoðunar, að eina leið
in sé friðsamleg lausn. Menn
verða að setjast a'ð samninga-
borðinu".
Hins vegar sagði Brown, að
afstaða Hanoistjórnarinnar hefði
gert málið mjög erfitt viðfangs.
Þá vék ráðherrann að síðustu
tillögum bandarísku stjórnarinn-
ar um Víetnam. Sagðist hann
vera þess fullviss, að í Genfar-
sáttmálahum um Indó-Kína, sem
gerður var 1954, væri að finna
þau atriði, sem orðið gætu grund
r ramhaid á bls. 25
Fasteignasaran
Hátúni 4 A, Nóatúnshúsið'
Sími 2-18-70
77/ sölu m.a.
2ja herb. nýstandsettar íbúðir
í Vesturborginni. Lausar nú
þegar.
3ja herb. kjallaraíbúð við
Mosgerði. Laus nú þegar.
3ja herb. kjallaraíbúð við
Mosgerði. Laus nú þegar.
3ja herb. risíbúð í Austurborg
inni.
Góð 3ja herb. ibúð við Hring-
braut. Herbergi fylgir í
kjallara.
4ra herb. íbúð við Barónsstíg.
Hagstæð kjör.
4ra herb. falleg ibúð við
Langholtsveg, sérhitaveita.
4ra herb. mjög góð íbúð við
Bólstaðarhlíð. Bílskúr fylgir
5 herb. íbúð á 2. hæð við
Holtsgötu. Laus fljótlega.
Hilmar Valdimarssou
Fasteignaviðskipti.
Jón Bjarnason
hæstaréttarlögmaður.
Til sölu m.a.
2ja herb. íbúð við Ásbraut.
2ja herb. íbúð við Kleppsveg.
2ja herb. íbúð við Kópavogs-
braut.
3ja herb. íbúð í kjallara við
Miðtún.
3ja herb. íbúð í kjallara við
Skipasund.
4ra herb. íbúð ásamt risi (þar
sem hægt væri að gera 3—4
herb.) við Kaplaskjólsveg.
4ra herb. hæð við Njörva-
sund. Bílskúrsréttur.
4ra herb. hæð við Njörvasund.
Bilskúr.
4ra herb. hæð við Skipasund
og Nökkvavog.
Einbýlishús og hæðir í smíð-
um í Kópavogi.
FASTEIGNASALAH
HÚS&EIGNIR
BAHXASTBATI £
Símar 16637 og 18828.
Til sölu
i Kópavogi
Raðhús (endahús) steinsteypt,
nýleg vönduð eign, í Aust-
urbænum, skammt frá Hafn
arfjarðarvegi. Greiðsluskil-
málar hagkvæmir.
. I U I Ul I # I
KOPAUOGS
SKJ0LBRAUT 1 *SIMI 41230
0PI0 5.30-7
LAUGARD. l-i
KVOLDSIMI 40647
7/7 sölu
4ra herb. íbúð við Eskihlíð.
4ra herb. giæsileg íbúð við
Stóragerði.
2ja herb. íbúðir í Vesturbæn-
um.
Fokheldar hæðir í Kópavogi,
múrhúðaðar utan, með bíl
skúrum. Tvöfalt gler. Stærð
ir: 100—180 ferm.
Upplýsingar í síma 18105.
Utan skrifstofutíma: 36528.
Fasteignir og
Fiskiskip
Hafnarstræti 22.
í smiðum
2ja herb. íbúð við Kleppsveg,
undir tréverk.
2ja herb. íbúð við Hraun-
tungu, fokheld, bílskúr.
3ja herb. íbúð við Reynimel,
undir tréverk.
4ra herb. íbúð við Sæviðar-
sund, fokheld, bílskúr.
4ra herb. íbúð við Hraun-
tungu, fokheld, bílskúr.
4ra herb. íbúð við Hraunbæ,
undir tréverk.
5 herb. íbúð við Kópavogs-
braut, fokheld.
5 herb. íbúð við Þinghóls-
braut, næstum fullgerð. ,
5 herb. íbúð í Garðahreppi,
fokheld.
5 herb. íbúð við Skólabraut,
undir tréverk.
6 herb. íbúð við Kársnesbraut,
fokhelt, bílskúr.
Einbýlishús við Sunnuflöt,
fokhelt.
Einbýlishús við Hlégerði, fok-
helt.
Parhús við Skólagerði, langt
komið undir tréverk.
Raðhús við Kaplaskjólsveg,
fokhelt.
Raðhús við Barðaströnd, fok-
helt.
Fiskbúðarhúsnæði í Austur-
borginni, fokhelt.
Lóð undir raðhús (184 ferm.
hús), teikningar fylgia, búið
að ýta úr grunni, gott verð.
Seltjarnarnes
Höfum til sölu á einum falleg-
asta staðnum á Seltjarnar-
nesi 6 herbergja íbúð í ný-
legu húsi, sérinngangur, sér-
hiti, bílskúrsréttur, vönduð
eign.
Málflufnings og
fasteignasfofa
Agnar Gústafsson, hrl.
Björn Pétursson
fasteignaviðskipti
Austurstræti 14.
Simar 22870 — 21750. J
Utan skrifstofutáma; ,
35455 — 33267.
Fiskibátar til sölu
Seljum og leigjum fiskibáta
af öllum stærðum. Leggjum
áherzlu á að aðalvélar og öll
siglingar- og fiskileitartæki
séu í góðu lagi. Getum í flest-
um tilfellum boðið upp á hag
kvæm lánakjör og hóflegar
útborganir.
SKIPA-
SALA
___OG____
SKIPA.
LEIGA
VESTURGÖTU 5
Sími 13339.
Talið við okkur um kaup og
sölu fiskiskipa.
Höfum góða
kaupendur
að nýlegum á að gizka 50
tonna vélbáti.
Ennfremur kaupendur að
stærri og smærri skipum.
Uppl. í síma 18105 og utan
skrifstofutíma 36528.
Fasteignir og
fiskiskip
Hafnarstræti 22