Morgunblaðið - 12.10.1966, Page 30

Morgunblaðið - 12.10.1966, Page 30
30 MORGUNBLADID Miðvikudagur 12. okt. 1961 Dregið í 5. umferð bikarkeppninnar: Valur mætir Þrótti og Keflavík gegn KR Leikirnir verða á Hfelavelli og INijarðvíkurvelli um helgina í GÆK var dregið um það, hvaða lið leika saman í undan- úrslitum Bikarkeppni KSÍ, en leikirnir tveir fara báðir fram um helgina og er það næst síðasta leikhelgi í knattspyrnu. Úrslit dráttarins urðu þau að Valur og Þróttur voru dregin saman og hins vegar mætast Keflvíkingar og KR-ingar. Mótanefnd KSÍ sá um athöfnina er dregið var í gær. Viðstaddir voru fulltrúar liðanna fjögurra, sem enn eru ósigruð í Bikarkeppninni, og blaðamenn. Jón Magnússon, formaður mótanefndar KSÍ, hafði orð fyr- ir nefndinni, en hana skipa auk hans Ingvar N. Pálsson og Sveinn Zoega. Tilkynnti Jón að það lið er dregið yrði móti Keflvíkingum yrði að mæta til leiks á Njarðvíkurvellinum. Ættu Keflvíkingar rétt á „heimaleik“ nú þar sem þeir hefðu sigrað í Reykjavík sl. sunnudag. Ákveðið er svo að leikur Vals og Þróttar fari fram á Melavellinum kl. 2.30 á laugardaginn en leikur Keflvíkinga KR í Njarðvík á sunnudag kl. 3 síðdegis. Margir hafa að vonum beðið spenntir eftir úrslitum um það hvaða lið leiki saman. Liðin eru svo jöfn að erfitt er að spá um úrslitin, en margir höfðu þó á- kve'ðnar skoðanir um úrslit keppninnar, EF úrslit dráttarins yrðu eins og þeir óskuðu. Margir telja Valsmenn heppna að hafa fengið Þróttara sem mót- herja og vera má að svo sé. En á það skal þó minnzt að Vals- menn áttu ekki auðvelda sigur- leið í leiknum við þá í síðustu umferð fslandsmótsins. Vist er svo að barizt verður af hörku á Njarðvikurvellinum á sunnudaginn. Keflvíkingar hafa án efa hug á að bæta sér upp sigurmissinn í fslandsmótinu — og ekki þarf um það að ræða að KR-inga fýsi til að endurheimta „bikarinn", sem þeir unnu í 5 fyrstu skiptin sem um hann var keppt, unz þeir misstu hann til Vals í fyrra. Nú er aðeins að vona að veðrið verði skaplegt og þá fá menn væntanlega að sjá baráttu eins og hún getur mest orðið spenn- andi. Þegar dregið var í gær. Fyrir enda borðsins er mótanefndin Ingvar N. Pálsson, Jón Magnússon formaður og Sveinn Zoega. Vinstra megin Hafsteinn Guðmundsson formaður ÍBK og Björn Carls son frá Val. Hægra megin fulltrúar Þróttar og Sig. Halldórsson frá KB. KR keppir um Evrópu- bikar í körfuknattleik 70. starfsár deildarinnar i ár KÖRFNKNATTLEIKSDEILD KR hefur nú fyrir nokkru hafið vetrarstarfið. Verður þetta 10. starfsár deildarinnar væntan- lega með svipuðu sniði og und- anfarin ár. Deildin mun minnast 10 ára afmælisins eftir föngum og sem liður í því, hefur verið ákveðið að taka þátt í Evrópu bikarkeppni meistaraliða í körfuknattleik, en eins og Kneykslismál í danskril knattspyrnu Þrír leikmenn Esbjerg voru á næturklúbb kvöldið fyrir Evrópubikarleik i Prag NÝTT hneyksiismál kom upp í danskri knattspj rnu í s.l. viku. Danska ’iðið Esbjerg og tékk- neska liðið Dukia Prag áttust við í keppninm um Evrópubikar meistaraliða. Hafði fyrri leikur- inn farið fram í Esbjerg og lokið með sigri Tékkanna 2—0. Viku síðar voru dönsku meist- ararnir mættir í Prag til síðari leiksins. Komu þeir þangað degi fyrir kappieikinn, sem algengt er. En dönsku leikmennirnir tóku lífinu létt og fórú þrír þeirra á næturklúbb kvöldið sem þeir komu til Prag og komu seint heim. Voru þetta Jens Jörgen Hansen, fyrirlioi danska lands- liðsins, Börge Enemark og Eigil Frandsen. Fararstjórarnir ákváðu að þessir þrir skyldu ekki leika og mál þeirra tekið upp er heim kæmi til Danmerkur. Esbjerg tapaði leiijnum 0—4. Dönsku blöðin hafa mikið rætt þetta mál og eru greinar- höfundar ekki sammála. Bland- ast inn í alls kyns- mál m. a. sú afstaða danskra knattspyrnuyfir valda að taka ekki þátt 1 OL- knattspyrnu Mexicoleikanna. Þá ræða um gildi þátttöku danskra liða í Eviópubikarkeppninni o. fl. og taka margir djúpt á árinni. Kemur þetta mál í kjölfar „hneykslisins í handknattleikn- um“ er landsliðið nær óskipt var sett í 10 mánaða keppnisbann. Er það mál fyrir rétti nú. kunnugt er varð KR íslands- meistari í körfuknattleik í ár og öðlaðist þar með þátttöku- rétt. Reynt verður að auka ungl- ingastarfið með fjölgun æfinga í yngri flokkunum, en til þess að það væri hægt, hefur verið ákveðið að ílytja æfingar meist- araflokks að nokkru leyti í íþróttahöllina, því að KR-heim- ilið er löngu orðið of lítið fyrir þá fjölþættu starfsemi sem fram fer innan félagsins. í sumar hefur farið fram bik- arkeppni ; körfuknattleik á veg- um KKÍ. Heidur hefur verið hljótt um þessa keppni og mun fáum um hana kunnugt. KR sigr- aði í Reyk;avíkurriðli, vann Ár- mann í úrslitaleik með 50 stig- um gegn 37, en Ármann var sigurvegari í þessari. keppni á s.l. ári. í keppiu þessari mega leikmenn I. deildar taka þátt og Tveir enskir Ieikmenn (ótbrotnnðn TVEIR trægir enskir knatt- spyrnumenn fótbrotnuðu í kapp- leikjum í síðustu viku. Peter Osgood, fótbrotnaði eftir árekst- ur við bakvörð Blackpool er fé- lag hans, Chelsea mættá Black- pool í bikarkeppni deildaliðanna s.l. miðvikudag. Osgood þykir þegar í röð bez+u miðherja á Bretlandeyjum og einhver leikn- asti knattspyrnumaður sem þar hefur lengi komið fram. Þá fótbrotnaði Gordon Mars- land v. framvórður Carlisle í leik gegn Southampton í sömu keppni. keppti I. flokkur því fyrir hönd félagsins. Úrsiitamót þessarar keppni fer fram hér í Reykja- vík, væntanlega um miðjan þennan mánuð. Helgi Jóhannsson, landsliðs- þjálfari, sem var maðurinn bak við hinn „sæta“ sigur yfir Dön- um á Polar Cup í Kaupmanna- höfn um s.l. paska hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks fyrir Evrópukeppnina og hyggja KR-ingar gott til samvinnu við hann. Dregið verður 14. október n.k. um það hverjir verða mótherjar KR í fýrstu umferð bikarkeppn- innar sem fram fer um miðjan nóvember. Riddoi iiönsko keiðursfylking- Vondnð Frnm- blnð komið út FRAM-blaðið, útegfið af knatt- spyrnudeild Fram, fjölbreytt að efni og vandað, er nýkomið út. Geta Framarar fengið blaðið af- hent ókeypis á eftirtöldum stöð- um: Lúllabúð, Verzl. Straumnes; Bólstrun Harðar og Rakarastofu Austurbæjar. Þá verður blaðið til sölu í Bókaverzlun Lárusar Blön- dal í Vesturveri og á Skólavörðu stíg. Verð blaðsins er kr. 20,00. annnor Franska ríkisstjórnin hefur slegið eftirtalda íþróttamenn til „riddara af frönsku heiðursfylk- ingunni". Jaques Anqetil, sem fimm sinn um hefur sigrað í mestu hjól- reiðakeppni Frakklands „Tour de France". Alain Calmat, heimsmeistara i listhlaupi á skautum. Michel Crauste sem í fyrra lét af stöðu sem fyrirliði franska landsliðsins í rugby. Jocelyn Delacour fyrirliði franskra frjálsíþróttalandsliðs- ins. Michel Jazy, Evrópumeistara i 5 km. klaupi og fyrrum heims- methafa í míluhiaupi. Gay Perillat heimsmeistara í alpagreinum skíðaíþrótta. Vetrarstarf Hauka í Hafnarfirði VETRARSTARFIÐ hjá Haukum í Hafnarfirði byriar með innan- hússæfingum í íþróttasal Lækj- arskóla, og verða æfingar sem hér segir; 5. fl. þriðjud. kl. 8:10—8:50 e.h. 4. fl. þriðjud. kl. 8:50—9:30 e.h. 1. og 2. fl. þriðjudaga kl. 9:30 — 10:30 e.h. 3. fl. föstudaga kl. 8—8:50 e.h, Fimmtudaginn 13. ’ október verður skemmtifundur fyrir 3., 2. og 1. flokk og eldri félaga, í Aiþýðuhúsinu kl. 8:30 e.h. Sunnu daginn 16. október verður skemmtifundur fyrir 6., 5. og 4. flokk kl. 2 e.h. Félagar eru hvattir tii að fjölmenna á þessa fundi. Samæfingartímar verða í íþróttahúsi Vals á laugardögum í vetur og byrja nk. laugardag Skipting á tímum verður þann ig: Kl. 2-4 unglingar Kl. 4-5 fyrsti flokkur. Kl. 5-7 meistaraflokkur. Mætið vel og stundvislega. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.