Morgunblaðið - 18.10.1966, Síða 8

Morgunblaðið - 18.10.1966, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ I»rið}udagur 18. okt. 1968 FRÁ ALÞINGI — Námslán Framhald, af bls. 32 ekki síðari hluta annars náms árs, eins og nú er. Með frumvarpinu er mörkuð «ú stefna, að opinber aðstoð við námsmenn nægi þeim til að standa straum af eðlilegum náms kostnaði, þegar eðlilegt tillit hef ur verið tekið til áðstöðu þeirra til fjáröflunar. Láta mun nærri, að hin opinbera aðstoð nú, sam- anlögð lán og styrkir nemi að jaf-naði um helmi-ngi umfram- fjárþarfar þeirra, sem slíkrar að stoðar hafa notið. Með umfram- fjárþörf er átt við árlegan náms kostnað námsmanns að frádregnu aflafé hans. Bkki má búast við verulegri aukningu á námslán- um áð svo stöddu, en hér er um stefnuyfirlýsingu að ræða, sem er algjört nýmælL Hingað til hafa vextir af náms lánum verið 3,5% á ári og lán- in afborganalaus fyrstu þrjú ár- in, eftir að námi lýkur eða því er hætt, en síðan hafa þau átt að greiðast með jöfnum afborg- unum á fimmtá/n árum. I frum- varpinu er gert ráð fyrir, að þessu verði breytt á þann veg, að vextir verði 5% á ári, en af- borganir hefjist fyrst að li'ðnum 5 árum frá námslokum. Ætlazt er til, að ársgreiðslur verði jafn ar, verða þær þá lægri fyrstu árin en ella. Verðrýrnun peninga á síðustu árum hefur komið hart niður á lánasjóði íslenzkra náms tnanna, og skert til muna verð- gildi höfuðstóls hans. Hér er ainaiig að finna eina meginorsök þess hversu rikisframlagið til sjóðsins hefur þurft að vaxa í krónum talið hin síðustu ár. Þyk ir nú að vel athuguðu máli eðli- legt að hafa þan-n hátt á varð- andi lánskjörin sem hér er gerð tillaga um. í>á er heimild til þess að á- -kvarða lán til einstakra náms- manna með hliðsjón af efnahag þeirra og er talið, að það muni tryggja rét-tlátari dreifi-ngu heild arfjársins, sem lánað er, verði matið réttlátlega og skynsamlega framkvæmt. Stúdentar vfð Háskóla ísla-nds hafa fram að þessu fengið náms lán í fyrsta skipti á síðari hluta •nnars námsárs. í frumvarpinu «r gert ráð fyri-r að þeir fái náms lán þegar á fyrsta námsári. Þá gerir frumvarpið ráð fyrir, að -teknir verði upp framhaldsstyrk ir til þeirra, sem lokið hafa há- skólanámi, enda sé þar með um að ræða lokapróf, sem krefjist að öðru jöfn-u fimm ára náms hið skemmsta. Háskóli íslands hefur lagt á þetta atrfði ríka á- herzlu. Að lokum er í greinargerð nefndarinnar fjallað nokkuð um tilhögun á fjárhagsaðstoð við þá, sem leggja stund á listnám, og kemur þar fram að sá hóp- ur hafi nokkra sérstöðu, sem geri það að verkum að örðugt sé að fella aðstoð vfð hann inn í hið almen-n lána- og styrkjakerfi fyrir námsmenn. Það hefur eink um tvennt komið til. í fyrsta lagi að vandasamt sé að leggja dóm á að umsækjandi sé búinn þeim listrænu hæfileikum sem séu for senda þess að hann eigi erindi í listnám erlendis.Og í öðru lagi sé mikið álitamál, hvort veiting námslána sé æskilegt form á stuðningi við listnema, þar sem framtíðartekjuöflun þeirra sé í mörgum tilfellum mun meiri ó- vissu háð en annarra náms. manna. Segir í greinargerðinni að til greina hljóti að koma að velja frem-ur þá leið, að veita árlega fé til styrkja handa efni- legum listamönnum er hyggja á nána erlendis. Ríkisábyrgð vegna sildar- flutningaskips rædd „Haförninn46 kostaði 54 milljónir í STUTTRI ræðu, sem fjár- málaráðherra, Magnús Jónsson, flutti í efri deild Alþingis í gær kom fram að Haförninn, síldar- flutningaskip Síldarverksmiðja ríkisins kostaði hingað komið með nauðsynlegum breytingum 54 milljónir króna. Skipið tekur um 3200—3300 lestir af síld. Fjármálaráðherra upplýsti þetta er hann mælti fyrir frv. ríkisstjórnarinnar til staðfesting ar á bráðabirgðalögum um ríkis ábyrgð vegna kaupa á Hafernin- inum. Sagði ráðherrann að stjórn Sildarverksmiðja rikis- ins hefði snemma í sumar leitað aðstoðar ríkisstjórnarinnar vegna kaupa á síldarflutningaskipi. Þótti rétt að veita þá aðstoð, enda þótt um væri að ræða sjálf skuldarábyrgð ríkissjóðs, en nú um nokkurra ára skeið hefur ríkissjóður einungis veitt ein- faldar ábyrgðir. Þar sem hér er um ríkisfyrirtæki að ræða, þótti það ekki frávik frá þeirri megin stefnu. Frv. var vísað til 2. um- ræðu og fjárhagsnefndar. 4fnám vísitölubindingar - á lánum húsnæðismálastjórnar Á fundi neðri deildar í gær fór fram fyrsta umræða um frum- varp Einars Olgeirssonar og annarra þingmanna kommúnista (Geirs Gunnarssonar og Eðvarðs Sigurðssonar) um breytingu á lögum um Húsnæðismálastofnun ríkisins. Efni frumvarpsins er í stuttu máli á þá leið, að niður verði felld vísitölubinding á lán um Húsnæðismálastofnunar ríki- sins, og þeim lánum, er þegar hafa verið veitt og eru með vísi- tölubindingu, verði breytt til samræmis við það, en ríkissj. greiði mismuninn. Þetta frumvarp var flutt á síðasta þingi, en fékk þá ekki afgreiðslu. í greinagerð frv. segir, sú stefna, sem tekin var fyrir tveim ur árum að vísitölubinda húsnæð ismálastjórnarlán geri hins vegar hinum almenna manni ókleift að risa undir afborgunum og vöxt- um ef svipuð verðbólguþróun verður og undanfarin ár. Þannig myndi stöðvast þróun undanfar- inna áratuga og í staðin skapast neyð og öngþveiti í húsnæðis- málum. Einar Olgeirsson: (K): Það er viðurkennt að allir eigi að geta eignast eigin íbúðir, og mikil I breyting hefur orðið í þeim efn um á undanförnum áratugum. Menn hafa lagt mikið á sig en samt hefði verið illmögulegt að gera þessa hluti, ef verðbólgan hefði ekki verið til staðar. Þessi vísitölubinding á lánum húsnæðis málastjórnar veldur því að ó- mögulegt verður fyrir daglauna- menn að byggja yfir sig enda verða afborganir á lánum svo miklar að miðað við óbreytt ástand í dýrtíðarmálum verður síðasta afborgun á 280 þús. kr. láni til 25 ára næstum 200 þús. kr. í stað þess að verða 18,398 kr. ef allt væri eðlilegt. Lántakandi væri á þesu tímabili búinn að greiða á þriðju milljón króna í vexti og afborganir. Nú virðist stefnan sú að stöðva verðbólguna með því að koma á atvinnuleysi og kreppu. Það þýðir afnám allrar eftir og nætur vinnu, sem leiðir beint til þess að gjörsamlega ókleift verður að eignast eigin íbúð fyrir hinn al- menna mann. Því að hann hefur notað þau laun, er hann fær fyrir eftir- og næturvinnu, til afborg- ana á lánum sínum. Að lokinni ræðu framsögu- manns var frumv. vísað til ann- I arrar umræðu og nefndar. Réttindamissir vegna ölvunar við akstur Tilaga Skúla Guðm. I neðri deild var tekið fyrir frumvarp Skúla Guðm. (F) um breytingu á umferðarlögum, og er efni þess í stuttu máli á þá leið að svipta megi mann öku- leyfi að fullu, ef hann ekur undir áhrifum áfengis. Þetta frumvarp var flutt á síðasta þingi, en hlaut ekki afgreiðslu þá. í greinargerð frumvarpsins segir að það ákvæði í lögum að sleppa megi sviptingu ökuréttinda er sérstakar málsbætur eru fyrir hendi, ef um fyrsta brot er að ræða, og ef ölvun ökumanns hefur ekki farið fram úr vissu marki, sé mjög varhugavert, þar sem það stuðli að auknum akstri drukk inna manna. Því beri að afnema þetta ákvæði, enda sé augljóst að menn skirrast við að aka undir áhrifum, ef ævilangur réttinda- missir liggur við. Flutningsmaður fylgdi frum- varpinu úr hlaði, og ítrekaði það, að lagabreyting þessi yrði til að auka öryggi í umferð. Sagði hann að frjálsræði drykkju manna væri nógu mikið, þótt þeim væri ekki leyft að aka undir áhrifum. Menn hefðu leyfi til að drekka eins mikið og maga þol og fjármunir gæfu tilefni til og menn hefðu meira að segja leyfi til að eyðileggja heimili sín með vínneyzlu. Hinsvegar sé eng in ástæða til að gefa þeim tæki- færi á því að aka drukknir, með vægri löggjöf um slíka hluta, og það sé því hagsmunamál á- fengisneytenda sem annarra, að þetta frumvarp sé samþykkt. Að lokinni framsöguræðu, var frumvarpinu vísað til annarrar umræðu og nefndar. í gær var lagt fram á Alþingi i lagafrumvarp frá 6 þingmönnum Framsóknarflokksins um fram- leiðnilánadeild við Framkvæmda sjóð íslands. Sams konar frv. hef ur verið flutt tvívegis áður. Þá hafa nokkrir þingmenn Framsóknarflokksins lagt fram þingsályktunartillögu um kosn- ingu milliþinganefndar til að gera tillögur um endurnýjun strandferðaskipaflotans og skipu i lagningu strandferð>Tna. Loks hafa þrír þingmenn Fram ' sóknarflokksins lagt fram þingsá lyktunartillögu um námslaun, 1 greiðslu skóladvalakostnaðar o. ; fl. Samhljóða tillaga var flutt á | síðasta þingi \ FASTEIGNÁVAL Skólavörðustíg 3 A, 2. hæð. Símar 22911 og 19255. Til sölu m.a. 2ja herb. íbúð við Mosgerði og Haðarstíg. 2ja herb. íbúðir við Skóla- vörðustíg. 3ja herb. kjallaraíbúð við Barmahlíð, 85 ferm. 3ja herb. íbúð á hæð við Laug arnesveg. 4ra herb. kjallaraíbúð við Laugalæk. 4ra herb. íbúð við Ljósheima, sérinngangur. 4ra herb. íbúð við Kapla- skjólsveg. í risi mætti inn- rétta mörg herbergi. 4ra herb. skemmtileg íbúðar- hæð við Álfheima. 5 herb. vönduð íbúðarhæð við Gnoðarvog með tvennum svölum. 5 herb. íbúðarhæð við Laugar nesveg. 5 herb. íbúðarhæð við Rauða- læk, nýtízkulegar innrétt- ingar. 5—6 herb. glæsileg endaíbúð við Háaleitisbraut. Tvær svalir og sérþvottahús á hæðinni. 6 herb. glæsileg íbúð við Háa- leitisbraut. Mikið af innrétt- ingum úr gullálmi. Suður- svalir. 6 herb. ný íbúð á 4. hæð við Háaleitisbraut. Mikið út- sýni. Laus strax. Einbýlishns við Langholtsveg. Gæti verið tvær íbúðir. — Forkaupsréttur að verzlun- arhúsnæðinu. Gott einbýlishús á stórri rækt aðri hornlóð við Sundin ásamt bílskúr. Einbýlishús í Túnunum, stór ræktuð lóð ásamt bílskúr. Einbýlishús við Sogaveg á ræktaðri hornlóð ásamt bíl- skúr. Stórt og glæsilegt einbýlishús við Miðbæinn, stór og rækt- uð lóð ásamt bílskúr. Jón Arason hdL Sölumaður fasteigna: Torfi Ásgeirsson Heimasími 20037. Einstaklingsíbúð ný og fullgerð við Klepps- veg. nýstandsett, við Framnes- veg. 2 herbergja góð íbúð við Básenda. Sérhiti, sérinngangur. nýstandsett íbúð við Haðar- stíg. stór kjallaraíbúð við Hofs- vallagötu. ódýr íbúð í tvíbýlishúsi við Hlíðarveg í Kópavogi. ódýr kjallaraíbúð við Akur- gerði. vönduð íbúð í fjölbýlishúsi við Kaplaskjólsveg. góð íbúð við Ljósheima. ódýr íbúð við Njálsgötu. 3/o herbergja nýstandsett og vönduð íbúð við Baldursgötu. stór íbúð á jarðhæð við Barða vog. risíbúð við Skipasund. vönduð íbúð í háhýsi við Sól- heima. góð íbúð við Kaplaskjólsveg. 4ra herbergja jarðhæð í tvíbýlishúsi við Birkihvamm í Kópavogi. vönduð íbúð við Brekkulæk; sérhiti, bílskúrsréttur. lítil en vönduð íbúð við Háa- gerði. íbúð við Mávahlíð. góð risíbúð við Mosgerði. — Ódýr. góð íbúð við Sörlaskjól. Bíl- skúr fylgir. 5 herbergja íbúð í fjölbýlishúsi við Eski- hlíð. vönduð íbúð í þríbýlishúsi við Hjarðarhaga. Sérhiti. vönduð íbúð við Hvassaleiti. Bílskúr fylgir. góð íbúð við Kambsveg. Ný- legt hús. góð íbúð við Kvisthaga. Bíl- skúrsréttur. góð íbúð við Laugarnesveg. FASTEIGNASALAN GARÐASTBÆTI 17 Símar 24647 og 15221 6 herbergja góð íbúð við Unnarbraut á Seltjarnarnesi. Cóii íbiið - Gott útsýni Á 9. hæð í háhýsi við Sól- heima er til sölu 3ja herb. íbúð (tvö svefnherb. og stór stofa). Teppi á stofu og gangi. Svalir móti suðri. — Sameign: Stór teppalögð for stofa, svalir móti norðri með útsýni yfir sundin; tvær lyft ur; fundasalur, húsvarðar- íbúð og tvö þvottahús, full- búin vélum. Höfum kaupanda að einbýlis- húsi í Smáíbúðahverfi. Árni Guðjónsson, hrl. Þorsteinn Geirsson, lögfr. Helgi Ólafsson, sölustjóri. Kvöldsími 40647. HÖRÐUR ÓLAFSSON hæstaréttarlögmaður Löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi (enska) Austurstræti 14 10332 — 35673 Eyjólfur K. Sigurjónsson löggiltur endurskoðandi Fiókagötu 65. — Simi 17903. Einbýlishús ódýrt hlaðið lítið hús við Hjallaveg. raðhús, vandað við Langholts- veg. Bílskúr. Húseign Heil húseign við Klapparstíg, 5 íbúðir og stórt verzlunar- húsnæði. Málflufnings og fasfeignastofa L Agnar Gústafsson, hrl. Björn Pétursson fasteignaviðskipti Austurstræti 14. , Símar 22870 — 21750. Ujtan skrifstofutíma: , 35455 — 33267. Sveinbjörn Dagfinnsson, hrl. og Einar Viðar, hrl. Hafnarstræti 11 — Sími 19406.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.