Morgunblaðið - 23.10.1966, Page 21
Sunnudagur 23. okt. 19M
MORGUNBLAÐIÐ
2!
— Ungverjaland
Framhald af bls. 13
os Kadar myndað nýja stjórn.
★
í fréttum Reuters og NTB
5. nóvember segir m.a. svo:
„Selwyn Lloyd, utanríkis-
ráðherra Breta, skýrði frá
því í neðri málstofu brezka
þingsins í dag, að enn sé bar-
izt í Ungyerjalandi. — Ekk-
ert sagðist hann vita um af-
drif stjórnar landsins, og
Nagy, forsætisráðherra. Lík-
legt væri, að Rússar hefðu
handtekið stjórnina, svo og
samninganefnd ÍJngverja, sem
rætt hefði við fulltrúa Rauða
hersins um brottflutning hans
úr landinu. Ekkert hefði
spurzt til nefndarinnar, síð-
an hún fór á síðasta fund
Rússa. Fréttir frá NTB í
kvöld herma, að Rússar hafi
handtekið ungversku nefnd-
ina, þegar þeir gerðu innrás
ina í Búdapest."
f fréttum þennan dag sagði
ennfremur:
,-,Stuttbylgjustöðin í Búda
pest, sem til heyrðist í dag,
sagði, að miklir bardagar
geisuðu í borginni. Hafa
Rússar m.a. haldið uppi lát
lausri skothríð á aðalsjúkra-
hús borgarinnar, og aðal
stöðvar Rauða krossins. —
Flóttamenn, sem komu til
Austurríkis í dag, segja, að
óskaplegir bardagar geisi í
bænum Györ, þar sem frels
issveitir hafa undanfarið haft
bækistöðvar sínar, í vestur-
hluta landsins. — Rauði her-
inn hefur náð á vald sitt út-
varpsstöð borgarinnar, og
skýrði hún frá því, að barizt
væri um úraníunámurnar
Mecsek. Útvarpið hvatti Ung
verja til að hætta stuðningi
við frelsissveitirnar, og hlusta
ekki á vestrænar fréttasend-
ingar. Þá sagði útvarpið, að
allir Ungverjar, sem sýndu
Rauða hernum mótþróa, yrðu
þegar skotnir."
70 ár liðin
Greinilegt var, að þjóðar-
morð var hafið
Næstu daga var barizt
grimmilega, 8. nóvember var
talið, að þá þegar hefðu jafn
margir Ungverjar fallið of
svaraði til alra Reykvíkinga
þá. Engin leið var þá að fá
uppgefna tölu særðra, sem
voru margfalt fleiri.
l»ann dag útvarpaði ein
stöðva frelsissveitanna eft-
irfarandi tilkynningu til
heimsins: „Við spyrjiyn
miiljónir manna í heimin-
um. Er ekki frelsið ykkur
heilagt takmark? í okkar
augum er það heilagt tak-
mark. Eigið þið börn og
heimili? Það eigum við.
Liggja særðir menn hjá
ykkur eins og hráviði um
allt? Svo er hjá okkur. Við
biðjum Eisenhower að
hjálpa okkur. Við biðjum
ykkur öll um hjálp, hjálp,
hjálp. Skotfæra- og matar-
birgðir okkar eru að ganga
til þurrðar — og það eina,
sem við getum boðið upp á,
þegar til lengdar lætur, er
blóð okkar“.
Eftirleikurinn er mönnum
tnn í fersku minni- — 10 ár-
um siðar. 1 átökunum, sem
leiddu aftur til ófrelsis Ung-
verja, urðu hundruð þúsunda
þeirra landflótta. féllu særð-
ust eða voru fluttir til sov-
ézkra fangabúða. Byltingar-
tilraunin hafði ekki borið til-
setlaðan árangur, en hún
sýndi — enn einu sinni —
að kommúnistar byggja öðru
fremur á ofbeldi og ógnar
stjorn. Þess vegna er rétt að
rifja nú upp atburðina í Ung
verjalandi haustið 1950.
Framhald af bls. 13
að etja. Þúsundir Ungverja
höfðu fallið eða voru særðir.
Aðrar þúsundir voru teknar til
fanga og fluttar nauðugar með
járnbrautarlestum til Sovét-
ríkjanna. Hinn 8. nóvember
heyrðist síðasta útsendingin
frá útvarpsstöðvum frjálsra
Ungverja, og hinn 12. nóvem-
ber var allri skipulagðri and-
stöðu lokið. En þyrpingar flótta
manna streymdu að austurrísku
landamærunum.
Nagy, fyrrum forsætisráð-
herra, yfirgaf hæli sitt í júgó-
slavneska sendiráðinu hinn 21.
nóvember, eftir að kommún-
istastjórnin nýja hafði heitið
því, að honum yrði ekki gert
mein. En hann komst aldrei á
áfangastað. Honum var rænt,
hann tekinn og fluttur til Rú-
meníu, og seinna tekinn af lífi,
ásamt Maleter hershöfðingja,
eftir leynileg réttarhöld komm
únista.
Um 25 þúsundir Ungverja
féllu í baráttunni við hersveit
ir kommúnista eða leynilög-
reglu lands síns í þessari stuttu
en sögulegu uppreisn 'relsis-
unnenda. Og um miðjan des-
ember, þegar sovézkum her-
sveitum tókst loks að loka
landamærunurp, hafði um 200
þúsund Ungverjum tekizt að
flýja land.
Þessir flóttamenn eru nú bú
settir víða um heim. Þeir bera
margvíslegar tilfinningar í
brjósti nú, á tíu ára afmælis-
baráttu heimalands sins. Þótt
þeir séu nú innlimaðir í ný
þjóðfélög, minnast þeir með
söknuði þeirra mörgu vina og
ættingja, sem voru drepnir,
særðir, fangelsaðir eða fluttir
úr landi nauðugir árið 1956.
(Dr. Bela Fabian, forseti sam-
taka ungverskra flóttamanna
hefur skýrt frá því, að um 63
þúsund Ungverjar séu enn í
þrælkunarbúðum í Sovétríkj-
unum). Þeir hugsa einnig af
mikilli tilfinningu tl þess Ung-
verjalands, sem hefð getað ris-
ið upp, ef kommúnistar hefðu
staðið við sín eiginn „frelsis
fyrirheit og látið þessa tíu ára
gömlu þjóðarbyltngu ná tak-
marki sínu. Og þá grunar, að í
hugum þeirra milljóna Ung-
verja, sem ekki flýðu land,
muni 23. október 1966 verða
dagur enn áhrifarikari endur
minninga.