Morgunblaðið - 25.10.1966, Síða 1

Morgunblaðið - 25.10.1966, Síða 1
32 sí5ur Sovétnjésnari flúði úr fangelsi London, 24. október — AP-NTB BREZKI utanríkisþjónustumað- urinn George Blake, sem árið 1961 var dæmdur í 42 ára fang- elsi fyrir njósnir í þágu Sovét- ríkjanna flúði úr Wormwood Schrubb-fangelsinu í London sl. laugardag. Þrátt fyrir umfangs- unni ekki enn tekizt að hafa upp mikla leit hefur brezku lögregl- á Blake. Slógu lögreglumenn hring um öll sendiráð kommún- istalandanna í London, en talið er að Blake hafi þegar í stað flúið frá London. Talsmaður fangelsisins sagði að rimlar hefðu verið sagaðir úr klefa- glugga Blakes og út um glugg- an hékk kaðalstigi. Lýsing á Blake var þegar í stað send til allra flugvalla og hafna í Bret- landi. Brezka lögreglan hefur fyrir- skipað mönnum sínum að kanna vel hvort erlendir aðilar geti hafa átt þátt í flóttanum, enn- fremur er talið ólíklegt að svo sé. Lögreglumenn, sem hafa yfir heyrt fyrrverandi fanga segja Calkutta, 24. okt. NTB-AP. AÐ minnsta kosti 35 manns biðu bana í gærkvöldi er hraðlest ók á hóp manna, sem voru að fara yfir járnbrautarteina á járn brautarstöðinni í Atlakhiserai- borg, um 600 km. norðvestur af Calkutta. Fólkið var að koma úr annarri lest og þurfti að fara yfir járnbrautarteinana til þess að komast á brautarpallinn. Niðamyrkur var á og virðist eng inn hafa tekið eftir að hin lest- in var að nálgast. að Blake hafi notið samúðar í undirheimum Lundúnaborgar. Blake er 44 ára að aldri, fædd ur í Rotterdam, sonur brezkra hjóna, Hann var virkur þátttak- andi í hollenzku andspyrnuhreyf ingunni í seinni heimsstyrjöld- inni, en flúði frá Hollandi og gekk í brezka sjóherinn. Á ár- unum 1944-47 starfaði hann í leyniþjónustu sjóhersins en ánð 1946 gekk hann í brezku leyni- þjónustuna. Hann var vararæð- ismaður Bretlands í Seoul í S- Framhald á bls. 31 Mynd þessa fékk Mbl. símsenda í gær, en hún er tekin yfir salinn þar sem Manilaráðstefnan er haldin. Fulltrúar landanna 7 sitja frá vinstri: Ástralía, Nýja-Sjáland, S-Kórea, Filippseyjar, S- Víetnam, Thailand og Bandarikin. Lengst til hægri sitja þeir Johnson, forseti, og Dean Ru.sk, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Ky á IVianilaráðstefnunni: „Erum reiðubúnir að taka skæru- liða Vietcong í samfélag okkar — ef þeir segfa skilið við kommúnista 66 Manila, Filippseyjum, 24. okt. — AP-NTB. í DAG hófst í Manila á Fil- ippseyjum ráðstefna 7 landa um styrjöldina í Víetnam og mun hún standa í tvo daga. Auk Johnsons Bandaríkjafor- seta taka þátt í ráðstefnunni Ky, forsætisráðherra S-Víet- nam, Harold Holt, forsætis- ráðherra Ástralíu, Marcos, forseti Filippseyja, Holyoake, Bertil Svíaprins tekur á móti iörsætisráöherrahjónunum í sænsku konungshöllinni. — einnig blaðstðu 17. Ræddu málefni Norðurlanda Frá heimsokn forsætisráðherra til Svíþfoðar (Einkaskeyti til Mbl. frá AP og TT). DR. BJARNI Benediktsson, íorsætisráðherra, og kona hans, frú Sigríður Björnsdótt- ir, komu til Stokkhólms á sunnudagskvöld í fimm daga opinbera heimsókn. Tage Er- lander, forsætisráðherra Svía, og Hermann Kling, dómsmála ráðherra, ásamt fríðu föru- neyti emhættismanna og Árna Tryggvasyni, sendi- herra, tóku á móti forsætisráð herrahjónunum á Arlanda- flugvelli og frú Aina Erland- er færði frú Sigríði blómvönd í íslenzku fánalitunum. For- sætisráðherrarnir heilsuðust með virktum og könnuðu heiðursvörð en lúðrasveit úr hernum lék þjóðsöngva land- anna beggja. Viðdvöl var skemmri á flugvellinum en ætlað hafði verið sökum kulda og engar opinberar yfirlýsing- ar gefnar né haldinn fundur með fréttamönnum. í xnorgun hittust forsætisráð- Framhald á bls. 31 forsætisráðherra Nýja-Sjá- lands, Kittikachorn, forsætis- ráðherra Thailands, og Hee Park, forseti S-Kóreu. Um það leyti er ráðstefnan hófst sætti hún harðri gagnrýni frá Ky, forsætisráðherra Suð- ur-Víetnam, sagði á ráðstefn- unni, að stjórn sín hefði í hyggju að gera Viet Cong heið arlegt friðartilboð. Sagði for- sætisráðherrann, að S-Víet- nam væri reiðubúið til að taka þá skæruliða í samfélag sitt, sem segðu skilið við komm- únisma. Kínverjum og N-Víetnam. — Sagði fréttastofan „Nýja- Kína“ í Peking að ráðstefnan væri leynimakk Bandaríkja- manna og Sovétmanna til að neyða stjórnina í N-Víetnam til friðarsamninga, en sagði að einungis væri hægt að semja frið með skilmálum kommúnista. Johnson forseti sagði að ef kommúnistar ynnu sigur í Víet- nam myndi öryggi allra Asíu- þjóða og heimsfriðurinn í hættu. Johnson hóf þegar eftir komuna til Manila vi'ðræður við leiðtoga hinna ríkjanna og ræddi við þá alla á sunnudag. Gætti í viðræð- um þeirra áhuga á ábendingu frá Ungverjalandi, þar sem gefið er veikt í skyn, að ef til vill mætti ná samningum í Víetnam, ef litið er á ástandið eftir Genfarráð- stefnuna 1954. Að loknum fundinum í dag sagði Jöhnson forseti að hann hefði verið mjög vel heppnaður. Sagði hann á fundi með frétta- mönnum, að hugsanlegt væri að rá'ðstefnan auðveldaði friðarsamn inga en bætti við: „Við skulum gera styrjaldaröflum heims það ljóst, að þegar þau ráðast á ná- Framhald á bls. 31 ðll umferð stöðvuð Spánverjar loka bílvegum til Gíbraltar Gibraltar, 24. okt. (NTB- AP). Á MORGUN, þriðjudag, grípa Spánverjar til nýrra aðgerða- til að undirstrika kröfur sínar um að Bretar afhendi þeim yfirráð yfir Gíbraltar. Verður öllum vegum milli Spánar og Gíbraltar lokað í kvöld klukkan 23:30 eftir staðartima, eins og venja hefur verið til þessa, en þeir ekki opn- aðir fyrir umferð í fyrramálið. Verða þá aðeins opnar gang- brautir yfir eiðið, sem tengir Gíbraltar við Spán. Gíbraltar hefur verið brezk ný- lenda frá 1704, en síðan hafa Spánverjar oft borið fram kröf- ur um að fá nýlenduna afhenta. Þessum kröfum hefur aldrei vei ið sinnt. Undanfarin tvö ár haf svo Spánverjar haldið uppi hei ferð fyrir afhendingu nýlend unnar, en Bretar boðizt til a leggja málið fyrir Alþjóðadóm stólinn í Haag. Það hafa Spán verjar ekki fallizt á. Að undanförnu hafa samgöng ur á landi milli Spánar ag Gí braltar verið mjög erfiðar, o landamæraverðir Spánverja gei í því að tefja ferðamenn. S. laugardag sendu svo Spánverja Bretum orðsendingu með mól mælum gegn flugi brezkra hei flugvéla frá Gíbraltar yfi spánskt land. Segir þar a Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.