Morgunblaðið - 25.10.1966, Side 2

Morgunblaðið - 25.10.1966, Side 2
2 NORCU NBLAÐIÐ ÞriSjudagur 25. okt. 1968 99 Grafln lifandi af brezka koBanámuráðinu46 Hormor íbúanno í Aberfan fær úirús í reiði Aberfan, Wales, 24. október — AP-NTB HARMUE fólksins í welska þorp inu Aberfan hefur nú breytzt í reiði í garð yfirvaldanna, sern það sakar um að hafa beinlínis valdið slysinu með vanrækslu. í dag, er formaður líkskoöunar- orsök 30 látinna, fékk harmur nefndar þorpsins las upp dauða fólksins útrás í reiði. Verkamað ur nokkur, sem missti konu sína og tvö börn í slysinu, krafðist þess að dánarorök ástvina sinna yrði skráð á dánarvottorðið: „Grafin lifandi af brezka kola- námuráðinu." Kvenmannsrödd greip þá fram í og sagði: „bað er rétt, þeir myrtu börnin okk- ar“, og karlmaður kallaði: „Þeir myrtu börn“. Skapaðist þarna algert öngþveiti er fólkið kall- aði ásakanir sínar. Verkamaður- inn, sem heitir John Collins, endurtók: „Ég vil að skráð sé á dánarvottorðið, grafin lifandi af brezka kolanámuráðinu. Það er álit okkar hér í Aberfan". Formaður líkskoðunarnefndar innar sagði að hann yrði að halda við sinn úrskurð, sem var köfnun, en íbúarnir hefðu fulla heimild til að láta í ljós álit sitt við rannsókn slyssins. Atburður þessi lýsir hugarástandi þorps- búa, sem krefjast þess að fá að vita hversvegna kolanámuráðið tók ekki til athugunar aðvaranir um að slík slys gætu átt sér stað. Björgunarstörfum er haldið áfram dag og nótt í Aberfan. XJm 150 lík hafa nú fundizt og útilokað er talið að nokkur sé enn á lífi undir gjallhrúgunni. Enn er hætta á að meira hrynji úr gjallhaugnum og eru verðir útbúnir talstöðvum við hauginn til að geta samstundis gert við- vart, ef vart verður við ein- hverja hreyfingu. Brezkir her- menn komu til þorpsins á sunnu dag til þess að halda forvitnum ferðamönnum frá slysstaðnum þannig að björgunarmenn geti unnið hindrunarlaust. Nokkrir björgunarmanna hafa við upp- gröftinn fundið lík eigin barna. í Vatíkaninu í Róm bað Fáll páfi fyrir hinum látnu. Sagði hann að hið hörmulega slys snerti hjörtu allra manna. Veður hélzt þurrt á sunnudag Fjárhagserfiðleikar S.Þ. úr sögunni — leggðu aðrir hlutfallsBega jafn mikið fram og Islendingar ÍSLENDINGAR leggja fram dollar á íbúa til friðargæzlu- starfsemi Sameinuðu þjóðanna. Ef framlag Bandaríkjanna á íbúa væri jafnhátt, myndi framlag þeirra nægja samtökunum í eitt ár og ef allar þjóðir samtakanna Ieggðu hlutfallslega jafn mik- ið fram, væru fjárhagserfiðleik- ar Sameinuðu þjóðanna úr sög- unni. Þetta kom fram í ræðu, sem fastafultrúi Bandaríkjanna hjá NATO, J. H. Cleveland sendi- herra flutti á vegum Varðbergs og Samtaka um vestræna sam- vinnu í Þjóðleikbfxsskjallaranum í gær. í ræðu sinni gerði sendi- herrann tillögu þá, sem fram kom í ræðu Emils Jónssonar ut- anríkisráðherra á þingi Samein- uðu þjóðanna fyrr í þessum mán uði að umtalsefni, en þar sagði ráðherrann, að ef vel ætti að vera, þyrftu Sameinuðu þjóð- irnar að hafa yfir að ráða hæfi- legum hreyfanlegum herstyrk, sem hægt væri að senda þangað, sem talið væri að þörf væri á slíku liði, hvenær sem er til þess að koma í veg fyrir, að vopnuð átök brytust út. Kvaðst Cleve- land sendiherra vilja taka undir þessa tiilögu, sem væri athyglis- verð og bæri að íhuga gaum- gæfilega. Nánar er sagt frá ræðu sendi- herrans og fundi hans og blaða- maruia á bls. 8. Heimdallur AÐALFUNDUR Heimdallar FUS verður haldinn í Sjálfstæðishús- inu nk. miðvikudagskvöld og hefst fundurinn kl. 20.30. Á fund- inum fara fram venjuleg aðal- fundarstörf, flutt verður skýrsla stjórnar og stjórn kjörin fyrir næsta starfsár. Tillögur uppstillinganefndar um næstu stjórn félagsins liggja frammi á skrifstofu Heimdallar, Valhöll. Mikið tjón á bíl- um á Akureyri — vegna Akureyri, 24. okt. MIKlÐtjón varð á sex bíl- nm í þrcmur umferðaróhöpp- um, sem urðu hér í bæ, um og fyrir helgina. Má óefað rekja óhöpp þessi að miklu leyti til ísingar og hálku á götunum, sem ökumenn hafa ekki varazt. Fyrsta óhappið var um kl. 1.30 aðfaranótt laugardags, er sex manna fólksbill fór tvær til þrjár veltur á götunni norðan Glerár- brúar. Tveir bræður sem í bíln- um voru meiddust lítið eða ekk ert, en billinn er afar illa far- inn og sennilega ónýtur. Klukkan 20.55 varð mjög harð ur árekstur tveggja fólksbíla á horni Gránufélagsgötu ög Brekkugötu, sem er aðalbraut. Báðir bílarnir stórskemmdust. árekstra Þriðja óhappið varð kl. 1 að- faranótt sunnudags innst í Hafn arstræti. Stór vandaður fólks bíll lenti upp á bílastæði austan götunnar og rakst af miklu afli á Landroverbíl, sem þar stóð, og kastaði honum á jeppa, sem og lægði það ótta manna um að frekara hrun kæmi úr haugnum. Á laugardag gerði stórrigningu og var þá sett upp mikið aðvór unarkerfi. Á sunnudag létu yfir- völdin sprauta storknunarefnum yfir hauginn til þess að styrkja stöðu hans. Robert Price, yfirjarðfræðing- ur brezka kolanámuráðsins, sagði á sunnudag, að rannsókn- ir við hauginn hefðu leitt í ljós, að vatnsuppspretta hefði verið undir honum. Svo virtist sem vatnið hefði safnast saman í eins konar geymi sem síðan sprakk undan vatnsþrýstingnum. Annar sérfræðingur, William Shepherd, sagði, að líkja mætti þessu við vatnssprengju. Hvorugur vildi fullyrða að uppsprettan hefði valdið hruninu, en bentu á að í mörgum welskum héruðum hefði í þessum mánuði ringt meira en nokkru sinni fyrr. Við líkskoðun kom í ljós, að flestir hinna látnu höfðu kafn- að. Nokkrir höfðu látizt af völd um mikilla meiðsla og höfuð- áverka. í dag fannst lík van- færrar konu og fjögurra ára gamals barns hennar, sem hún hélt á í fanginu. fbúar margra húsa í Aber- fan hafa yfirgefið heimili sín af ótta við annað hrun, enda þótt yfirvöldin segji að ekki sé leng- ur^hætta á því. Á sunnudag var beðið fyrir hinum látnu í öllum kirkjum Bretlands. Elisabet Bretadrottn- ing sótti minningarguðþjónustu sem haldin var í kapellu í Wind sor-kastala. Engin guðsþjónusta Framhald á bls. 16 Sýning Veturliða framlengd • VEGNA mikillar aðsókn- ar nú um helgina að mál- verkasýningu Veturliða Gunn arssonar í Listamannaskálan um hefur verið ákveðið að framlengja hana um tvo daga. Sýningin hefur staðið yfir í rúma viku og átti henni að Ijúka á sunnudagskvöldið. Að sókn hefur verið góð, að því er Veturliði tjáði Morgun- blaðinu í gær, sérstaklega þó um helgina er um 1800 manns sáu sýninguna. — Þetta er allt að því met- aðsókn yfir helgi — sagði Veturliði — og bætti því við, að svo væri helzt að sjá, sem vinsældir hans væru í meira lagi, því að einhver aðdáandi sinn hefði haft á brott með sér sýningarskiltið, sem stóð út við Kirkjustrætið. „Þetta var sögulegt skilti, sagði hann, ég hef notað það við allar mínar sýningar hérna, — en kannski það hafi bara fokið út í sjó“. Sýningu Veturliða lýkur á þriðjudagskvöld kl. 22.00. einnig stóð á stæðinu. Allir eru bílarnir mjög illa útleiknir, sér- staklega fólksbíllinn og Landrov erinn. Svo lánlega tókst til að meiðsl urðu lítil eða engin, á fólki við óhöpp þessi, en tjón á bílum er gífurlegt. — Sv. P. 28 milljónir kr. EINS og frá hefur verið skýrt í blaðinu var skip Sambands ísl. samvinnufélaga, Hamrafell, ný- lega selt til „The Shipping Corp- oration of India“. Morgunblaðið hafði í gær samband við Hjört Hjartar, forstjóra skipadeildar Sambandsins, og spurðist fyrir um sölvehð skipsins. Sagði Hjört- ur að það hefði verið 28 millj. króna og væru engar kvaðir fylgjandi söluverðinu. Mæður, ömmur og frænkur bíða í ofvæni eftir fréttum af slysstaðnum — örvæntingin lýsir sér í andliti þeirra. Fjallvegir tepptust fyrir noröan og austan Unnið að því að opna þá í gær — Þeir sem þurfa að fara með bíla sína um Möðrudalsöræfi, hraði för sinni UM síðustu helgi snjóaði víða norðan og austanlands, og teppt- ust við það nokkrir vegir á heið um. í gær var unnið áð því að moka á þessum vegum, og að því er Hjörleifur Ólafsson hjá Vegagerð rikisins, tjáði Mbl. í gær, voru góðar horfur á að flestir þessara vega yrðu orðnir færir í dag, ef veður hefur hald- izt sæmilegt í nótt. Á Vestfjörðum var það Breiða dalsheiði, sem lokaðist, en mokstri á henni var lokið á laug ardag; á Norðurlandi var Siglu- fjarðarskarð enn lokað í gær- dag, og ekki vitað hvenær það yrði opnað. í Eyjafirði var nýi vegurinn fyrir Ólafsfjarðarmúla ófær og talsverður snjór var einnig á Vaðlaheiði, en báðar áttu að verða orðnar greiðfærar í dag. Á Norðurlandi er Axafjarðar- heiði ófær, og er ekki gert ráð fyrir að hún verði mokuð fyrst um sinn. Á hinn bóginn er all- greiðfært yfir Melrakkasléttu og til Þórshafnar. Möðrudalsöræfi og Austurlandsvegur voru lokuð yfir helgina, og í gærmorgun voru send þangað tæki til snjó- moksturs. Var gert ráð fyrir að sú leið myndi opnast í gær. Eru það tilmæli Vegamálaskrifstof- unnar að þeir sem þurfi að fara með bíla sína þessa leið, að gera það sem allra fyrst, því óvíst sé með mokstur ef snjóar verulega. Á Austfjörðum eru Fjarðar- heiði og Oddsskarð þungfær, þar sem snjóað hefur þar öðru hvoru en þeim leiðum verður haldið opnum a.m.k. fyrst um sinn. Hófel Hófn vígt Höfn, Hornafirði, 23. okt. SEINASTA vetrardag var Hót el Höfn vígt. Hótelstjórarnir Árni Stefánsson og Þórhallur Dan. Kristjánsson ásamt konum siuum buðu til kvöldverðarboð. Boðsgestir voru milli 50-60 manns. Margar ræður voru fluttar meðan setið var undir borðum. Að síðustu var stiginn dans. Var varna mikil ánægja, og hótel- eigendum fluttar árnaðaróskir með þann mikla árangur, sem þegar væri fyrir hendi. UPP úr hádeginu var hæg vestlæg átt og bjartviðri um austurhluta landsins, er víðast SV-stinningskaldi vest- anlands, dumbungsveður og sums staðar rigning. Á Horni voru 8 vindstig. Hiti var víðast 3—7 stig, mest 8 stig á Vestfjörðum og í Vestur- Skaftafellssýslu. > Lægðin norður af landinu var á hreyfingu suðaustur eftir. Hún mun sennilega verða komin suðaustur fyrir land í kvöld eða nótt og valda norðlægri átt og kólnandi veðri á ný.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.