Morgunblaðið - 25.10.1966, Page 17
Þriðjudagur 25. okt. 1966
MORCU N BLAÐIÐ
17
Svíþjdð er mest Norðurlanda
Ræða Bjarna Benediiktssonar
forsætisráðh. í Stokkhólmi í gær
MEÐ ýmsu móti kemur
fram, að Svíþjóð hefur löng-
um verið talið höfuðland nor-
rænna manna.
Ævarforn sögn hermir, að
Sjáland sé hluti Svíþjóðar, sem
dreginn hafi verið á haf út, og
er raunar á því gefin sú land-
fræðilega skýring, að þar sem
landið hafði upp gengið hafi
orðið eftir vatn, það, sem kall-
að er Lögrinn og liggi s'vo
víkur í Leginum sem nes í
Sjálandi.
Fornmenn sögðu ekki ein-
ungis hluta annarra Norður-
landa upprunninn í Svíþjóð
heldur voru konungsættirnar
bæði í Danmörku og Noregi
einnig einungis taldar greinar
sænsku konungsættarinnar.
Og sjálft tungumálið, sem
áður var talað um öll Norð-
urlönd en nú einungis á ís-
landi, lýsir þessu sama. yið
tölum um Sverige sem Svíþjóð
— den svenske nation —, en
um Danmörk, þ.e. danska skóg
inn, Noreg — þ.e. veginn til
Norðurs og Finnmörk eða
Fmnland. Það er í Svíaríki,
sem sjálf „þjóðin“ býr.
Enn á okkar dögum helst
það, að Svíþjóð er mest Norð-
urlanda, allt í sénn að stærð,
fólksfjölda, auði og áhrifum.
Óþarft er um það að fjölyrða
og engin íblöndun í sænsk stjór
og engin íblöndun í sænsk
stjórnmál þótt sagt sé það, sem
allir vita, að sænskir stjórnar-
hættir eru nú taldir til fyrir-
myndar hjá öllum frjálsum þjóð
um vegna þess, að hér hefur
velmegun almennings verið
tryggð betur en annars stað-
ar.
Við íslendingar erum meðal
þeirra, sem margt höfum af
Svíum lært. Tengsl okkar við
þá hafa raunar verið minni en
bæði við Noreg og Danmörku.
Úr Noregi erum við upprunn-
in og höfðum náin ríkisréttar-
leg tengsl við Noreg og Dan-
mörk um margar aldir.. Þvílík
tengsl voru við Svíþjóð ein-
ungis skamma hríð. Á þeim
árum gerðist það, að í eina
mestu tignarstöðu landanna
fyrst Svíþjóðar og síðan ís-
lands var skipaður gæðingur
Eiríks af Pommern, Jón Gerr-
eksson. Hann var fyrst gerður
erkibiskup í Uppsölum en
dugði ekki til þess og þótti þá
fullgóður handa íslendingum,
og var skipaður biskup í Skál
holti. En ævi hans lauk svo,
að íslenzkir höfðingjar drógu
hann frá há-altarinu í dóm-
kirkju sinni, settu hann í poka
og drekktu í á, sem rennur í
nágrenninu.
Nú á dögum hefur farið mun
betur fyrir flestum þeim, sem
sótt hafa frama til Svíþjóðar.
Fjölmargir Islendingar sækja
nú þangað þekkingu. Hér hafa
sumir okkar færustu hagfræð-
ingar, landfræðingar og aðrir
fræðimenn öðlast þann lær-
dóm, sem íslandi hefur orðið
að ómetanlegu gagni. Okkur
Dr. Bjarni Bencdiktsson, forsæ isiáðherra og Tage Erlander, fo
rsætisráðherra á flugvellinum í Stokkhólmi.
þykir þið m.a.s. vera of góðir
við unga íslenzka lækna, sem
hingað koma til framhalds-
náms, því að okkur hefur geng
ið erfiðlega að fá þá heim aft-
ur.
Um þessar mundir vinna
Svíar með íslendingum að stór
framkvæmdum, svo sem mestu
vatnsaflsvirkjun, tem gerð hef
ur verið á' íslandi, og sænskt
fyrirtæki hefur tekið að sér
stækkun Reykjavíkurhafnar.
Verzlunarviðskipti landanna
eru báðum til hags, enda kunna
Svíar vel að meta hina góm-
sætu íslenzku síld. Nokkur
ágreiningur hefur öðru nvoru
risið út af löndunarrétti Loft-
leiða á sænskum flugvöllum en
því máli hefur hingað til tek-
ist að ráða til lykta einmitt
vegna góðvildar og skilnings
sænskra stjórnarvalda. Það,
sem litla þýðingu hefur fyrir
aðra, hefur oft mikla þýðingu
fyrir íslendinga vegna okkar
mannfæðar og þeirrar lífsnauð
synjar okkar að fá fjölbreytt-
ari atvinnuvegi til að tryggja
efnahagsgrundvöllinn.
Við íslendingar búum í erf-
iðu landi og höfum um margt
átt erfiða sögu. Einangrunin
hefur á umliðnum öldum
reynzt okkur hættulegust. Við
fögnum því þess vegna, að
hún skuli vera rofin. En okkur
er Ijóst, að hinum nýju að-
stæðum eru margfaldar hættur
samfara. Ein helzta vörn okk-
ar gegn þeim, er að við erum
og viljum vera norræn þjóð.
ekkert hagga. Við sækjum
hins vegar styrk í vináttu og
samstarfs-vilja okkar norrænu
frændþjóð.
Heimboð sænska forsætisráð
herrans til mín og konu minn-
ar að koma hingað tökum við
sem tákn vináttu og samstarfs
vilja stærstu norrænu þjóðar-
innar til hinnar minnstu. Fyrir
þá vináttu og velvild færum
við okkar beztu þakkir.
Fornsögurnar íslenzku varpa
Ijósi á fortíð þjóðar vorrar
Ræ5a Erlanders forsætisráðherra
í Stokkhólmi í gærkvöldi
Hér fer á eftir ræða Erland-
ers forsætisráðherra í lauslegri
þýðingu Mbl.:
Herra forsætisráðherra, döm-
ur mínar og herrar,
Það er mér og sænsku
ríkisstjórninni sérstakt ánægju-
efni að nú skuli hafa sótt okkur
heim forsætisróðherrahjónin ís-
lenzku, Bjarni Benediktsson og
frú Sigríður Björnsdóttir.
Fundum okkar hefur að sönnu
oftlega borið saman áður á
ýmsum norrænum ráðstefnum,
en þetta er í fyrsta skipti sem
forsætisráðherra kemur í opin-
bera heimsókn til lands vors.
Ég held að við gerum okkur
grein fyrir því flest okkar,
að náin tengsl voru milli ís-
lands og hinna Norðurland-
anna fyrr á öldum. Fornsögurn-
ar íslenzku varpa Ijósi á for-
tíð þjóðar vorrar og enn.í dag
eiga Norðurlöndin öll itök í ís-
landi eða svo þótti mér síðast
er ég kom til Reykjavíkur 1965
að sitja þar fund Norðurlanda-
ráðs.
Við Svíar metum mikils
sambandið og samstarfið við ís-
lendinga innan ramma norrænn
ar samvinnu. Á umbrotatímum
breytist bæði inntak og ytra
form samvinnu þjóða og hún
færist æ meir yfir á hendur
ýmissa stofnana. Samvinna
Norðurlanda er gott dæmi um
þetta. En driffjöðurin í allri
samvinnu okkar til þessa og
vonandi einnig í þeirri sem
framundan er, er tilfinningin
um tengsl okkar og sameigin-
leg áhugamál. Þetta er það sem
úrslitum ræður, því án þessa
duga skammt ásjálegir samn-
ingar og stórkostleg áform um
samvinnu.
Á íslandi hefur orðið mjög ör
efnahagsþróun undanfarin ár
rétt eins og í Sviþjóð og hefur
þjóðarframleiðslan farið tölu-
vert fram úr því sem menn
gerðu sér vonir um. Þetta lýsir
sér m. a. í auknum útflutningi
og á árinu 1965 varð útflutn-
ingsaukning hvorki meira né
minna en 16%. Samhliða þess-
ari aukningu hefur verið reynt
að renna fleiri stoðum undir at-
vinnulíf landsins og gera útflun
inginn fjölbreyttari. Á þann
hátt aukast að sjálfsögðu mögu
leikarnir á síauknum vöru-
skiptum við önnur ríki og það
er von okkar, að viðskipti Sví-
þjóðar og íslands aukist enn
örar en hingað til og að ísland
geti einnig gegnt æ mikilvæg-
ara hlutverki á sviði alþjóða-
viðskipta.
Samskiptum landa okkar get
ég að öðru leyti og í öruggri
vissu um réttmæti orða minna
lýst stutt og laggott sem mikl-
um og góðum eins og rétt er
og skylt um tvö Norðurland-
anna. Með aðstoð Norðurlanda-
ráðs fyrst og fremst og með
dugnaði og þolinmæði ættum
við að geta gert hugtakið
„norræn samvinna" raunhæf-
ara og meira lifandi en nú er.
Þeir sem fengið hafa tæki-
færi til þess að heimsækja fs-
land hafa heillast af stórbrotnu
landsiagi þar og hrikalegri
náttúrufegurð. Skýrslur sýna að
þeim ferðamönnum sem sækja
landið heim fjölgar ár frá ári
og ég er þess fullviss að æ
fleiri Svíar eiga eftir að bætast
í þann hóp. Ég held líka að
Svíþjóð geti einnig boðið ís-
lendingum eitthvað í staðinn og
ég vona að hinir íslenzku gestir
okkar eigi eftir að sjá sitthvað
næstu daga, bæði gamalt og
nýtt, bæði her í höfuðborginni
og í Austgotalandi og að þau
kynni verði þeim persónuleg og
örvandi svo þau megi finna að
þau séu hér aufúsugestir.
Drengur á hjoli
fyrir bíl
UMFERÐASLYS var í gaer um
kl. 3.15 á horni Nóatúns og Skip
holts. Þar var sendiferðabifreið
á leið norður Nóatún, og beygði
til hægri austur Skipholtið. I
sömu mund bar bifreið vestur
af Nóatúni, og skyggði útýsni
ökumannsins á sendiferðabifreið
inni, þannig að hann sá ekki
hvar drengur á reiðhjóli kom
upp Nóatúnið.
Drengurinn lenti á vinstra
framhorni sendiferðabifreiðarinn
ar, og skall við áreksturinn í
götuna. Hlaut hann við það all-
mikinn skurð á hægra fæti, og
var fluttur í Slysavarðstofuna,
en talið er að hann sé ekki brot-
inn.
Flutti skólanemum erindi
um Flóttamannahjálp SB>
FORSTJÓRI upplýsinga-
skrifstofu Sameinuðu þjóð-
anna fyrir Norðurlöndin Ivar
Guðmundsson er nú staddur
hérlendis, en skrifstofa tvars
er í Kaupmannahöfn, svo sem
kunnugt er.
1 stuttu spjalli við Mbl.
sagði Ivar, að heimsókn hans
hér stæði í sambandi við dag
Sameinuðu þjóðanna, sem
var í gær, og fjársöfnun
Flóttamannahjálparinnar. ív-
ar flutti fyrirlestur fyrir
menntaskólancma í Gamla
bíó í gær um Flóttamanna-
hjálpina og Sameinuðu þjóð-
irnar og skýrði einnig frá
starfsemi SÞ. Hann flutti og
fyrirlestur um sama efni í
Kennaraskólanum í gær.
ívar sagði, að hann hefði
m.a. komið hingað til skrafs
og ráðagerða við stjórn fé-
lags Sameinuðu þjóðanna á ís
landi, en formaður þess fé-
iagsskapar er Armann Snæv-
arr háskólarektor. Tilgangur
félagsskaparins er m.a. að
miðla upplýsingum um starf
og tilgang SÞ.
ívar kvaðst hafa borið hing
að alúðarkveðjur aðalfulltrúa
flóttamannaskrifstofu SÞ Sar
uddin Agakhan prins. Hafði
Agakhan samband við ívar
áður en hann kom til ís-
lands og bað hann fyrir kveðj
ur sínar og árnaðaróskir til
íslendinga og íslenzku ríkis-
stjórnarinnar.
í formlegu kveðjuskjali,
sem prinsinn afhenti ívari í
Kaupmannahöfn segir í orð-
réttri þýðingu: '
„Það er mér mikil ánægja,
að láta í ljós hlýjar og ein-
lægar óskir til handa ríkis-
stjórninni og íslenzku þjóð-
inni, sem tekur þátt í flótta-
mannafjársöfnuninni 1966.
Megi hin ómetanlega starf-
semi allra sjálfboðaliðsstofn-
ana, sem byggja á umhyggju
fyrir flóttamenn verða krýnt
frábærum árangri. Framlag
islands mun stórlega létta
byrðar margra uppflosnaðra
manna. Ég færi yður þakkir
mínar fyrir að taka þátt í
þessu átaki, sem að baki
stendur alþjóðleg eining.“
ívar heidur utan aftur nk.
fimmtudag.
Ivar Guðmundsson