Morgunblaðið - 29.10.1966, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.10.1966, Blaðsíða 4
4 MORCU N BLAÐIO Laugardagur 29. okt. 1966 * BÍLALEIGAN FERÐ SÍMl 34406 SENDUM MAGIMÚSAR SKIPHOLTI 21 SÍMAR 21190 eftír tokun simi 40381 SÍM' 1-44-44 \mim Hverfisgötu 103. Haggjald 300 o; 3 kr. ekinn km. Benzín innifalið. Sími eftir lokun 31100. LITLA bílaleigan Ingrólfsstræti 11. Sólarhringsgjald kr. 300,00 Kr. 2,50 ekinn kílómeter. Benzin innifalið í leigugjaldi Sími 14970 BÍLALEIGAiM VAKUR Sundlaugaveg 12. Sími 35135. eÍLALEIGA S/A CONSUL CORTINA Sími 10586. dt' Kr. 2,50 á ekinn km. 300 kr. daggjald RAUÐARÁRSTÍG 31 SÍMI 22022 BO SC H Háspennukefli 6 volt. 12 voit. BrœSurnir Ormsson Lágmúla 9. — Sinn 38820. ÍT Útvarpið enn „Svanni“ skrifar: „Kæri Velvakandi! Jæja, mikið var! Eftir bréf- um, eins og þeim sem birtust hjá þér á miðvikudaginn, höf- um við lengi beðið. í»að var mikið, a’ð einhverjir þorðu að segja það, sem allur bærinn — ég vil segja allt landið — hef- ur beðið eftir að fá að heyra á opinberum vettyangi. I>að var kominn tími til, að einhver kvartaði undan póli- tíkinni í útvarpinu. Ég hef engu við bréfin að bæta öðru en því, að við, eigendur Ríkisútvarps- ins, eigum að fylgjast með því eftirleiðis, hvernig starfsmenn okkar rækja starf sitt, og hverj ir eru ráðnir til starfa. „Svanni“. ■jr Um létta tónlist í útvarpinu „Fremur ánægður útvarps- hlustandi“ skrifar: „Vegna skrifa er fram komu i Velvakanda þriðjudaginn 11. þ.m. um danslögin, sem leikin eru á sunnudagskvöldum í út- varpinu, get ég ómögulega lát- ið hjá líða að taka upp hanzk- ann fyrir Heiðar Ástvaldsson. Mér finnst nefnilega lögin, sem hann velur, vera mjög skemmtileg og valin af mik- illi smekkvísi. í»a'ð er alls ekki nauðsynlegt að dansa eftir þess ari músík, þótt hún sé vissu- lega veí til þess fallin. Það er engu síður ánægjulegt að hlusta á hana. Fram að því, að Heiðar var fenginn til að velja þessi lög, heyrði' . maður alltof sjaldan hina svokölluðu „Latin-músík“ í útvarpinu. >á músí'k sem „efst er á baugi“ — hverju sinni heyrir maður oft í annan tíma. En því má að ósekju skjóta að þeim, er velja síðdegis- músíkirta, sem leikin er á virk um dögum, að þeim eru sumir amerískir söngleikir óþarflega ástfólgnir. >að er t.d. alveg nóg að heyra lögin úr „The Sound of Music“ einu sinni í viku, og blessunarlegt var, þegar uppá- haldið á enska söngleiknum „01iver“ rénaði; að ég nú tali ekki um, hvað manni létti, þeg- ar „myfairlady-feberinn" var liðinn hjá. Sömuleiðis eru fleiri þjóð- lagasöngvarar góðir en Joan Baez. Allt um það, mér finnst út- varpsdagskráin vera ágæt í heild, og ef vænta má, að sjón- varpsdagskráin verði ekki verri, held ég, að vel megi við una. — Fremur ánægður útvarps- hlustandi“. Um dans og danslög í útvarpinu Hermóður Birgir Alfreðsson, leikfimi- og danskennari skrif- ar m.a.: „Segja má, a’ð Heiðar Ást- valdsson sé rétti maðurinn til þess að velja danslög í útvarp- ið. Um það munu víst flestir danskennarar hérlendis sam- mála. Það er fínn „rytmi“, gott hljóðfall í lögunum, sem hann velur, þó að þau séu e.t.v. ekki fyrir þá, sem lifa vilja á dægurlögum frá morgni tii kvölds. Fólk, sem þykist hafa efni á að kvarta, er oftast þetta fólk, sem ekki kann vitundarögn í dansi, en hefur kannski séð aðra dansa og ímyndar sér þetta og hitt. Ef til vill er það líka fólkið, sem stígur fyrst út á dansgólfið, þegar það er orðið „vel fullt“. Vilji einhver læra áð dansa, verður hann að stunda dans- skóla minnst einn dag í viku á hverju ári. í alvöru talað, þá er það margt, sem þessi þjóð þarf að læra, en það vil ég af vissum ástæðum ekki skrifa um hér, heldur skal ég bara minnast á lítið atriði. Hve oft sér mað- ur ekki hér, að herrann skil- ur dömuna eftir úti á miðju gólfi eftir dansinn? Nei, minn herra, ef þú kynnir mannasiði, ættir þú að fylgja henni til sætis og að minnsta kosti þakka henni kurteislega fyrir. Aðrir íslendingar koma ekki nálægt dömunni sinni heilt ballkvöld, en þakka henni samt fyrir kvöldið! Maður verður að læra að dansa frá barnsaldri. Þetta á að vera liður í sjálfsögðu upp- eldi, eins og að læra kurteisi og kunna að haga sér o.s.frv. Hver maður á að kunna að hegða sér þannig við fyrstu kynni, að það verði góð kynni fyrir allt lífið. Dans er gleði, sem allir hafa efni á. Dansið ykkur glöð, en lærið fyrst að dansa vel, því að þá verður gleðin mest. — Hermóður Birgir Alfreðsson, Sigtúni 31, Reykjavík“. — Velvakandi þakkar bréf- ið, sem mun vera frá manni, fæddum erlendis, því að hann bætir því við, að hann hafi aldrei lært orð í íslenzku. Frá fréttastjóra útvarpsins „Vegna bréfa í dálkum yðar f dag, 26.10.66, þar sem stað- hæft er, auðvitað án þess að bréfritarar finni orðum sínum stað, að fréttir útvarpsins séu „mjög litaðar kommúnistum í vil“, „mjög rauðlitaðar", vildi ég leyfa mér að benda á nokk- ur atriði varðandi fréttaflutn- ing útvarpsins. Það er skylda að gæta þess, að heimildir að frétt séu traustar. Þetta er til- tölulega auðvelt um innlendar fréttir, enda ævinlega leiðrétt það, sem ranghermt kann að hafa verið, ef fréttastofan fær vitneskju um það. Um heimild ir að erlendum fréttum styðst fréttastofan í aðalatriðum við norsku fréttastofuna NTB og bandarísku fréttastofuna AP, svo og útvarpsfréttir 'frá Bret- landi og Norðurlöndum. Frétta val er á mjög svipaðan veg og í áðurnefndum útvarpsstöðvum. Starfsmönnum fréttastofunn- ar ber að vinna verk sitt sam- vizkusamlega, og lögum sam- kvæmt skal gæta þess, að við útvarpi'ð ríki skoðanafrelsi og fyllsta óhlutdrægni gagnvart öllum flokkum og stefnum í al mennum málum. Engum er bet ur kunnugt um það en mér, að starfsmenn fréttastofunnar rækja starf sitt af alúð og kostgæfnL Jón Magnússon, fréttastjóri útvarpsins". ^ Blaðamennskudeild í Háskóla íslands ? Um það hefur verið rætt upp á síðkastið, hvort ekki beri að taka upp kennslu í blaða- mennsku við Háskóla íslands. Sýnist vist flestum það sjálf- sagt mál, þegar þess er gætt, 'hve víðtæk áhrif blaðamenn hljóta eða ættu að hafa á dag legt mál almennings. Ekki eru þó allir á sama máli, og hefur Velvakanda bor izt all-svívirðilegt bréf í garð okkar blaðamanna frá ágætri konu hér í borg, sem fullyrðir, að við blaðamennirnir ættum. fyrst að ná sæmilegri fullnað- arprófseinkunn, áður en við innrituðumst í háskólann. Frúin kveðst hafa gert ýtar- lega rannsókn á dagblöðum höfuðborgarinnar og komizt að þeirri átakanlegu niðurstöðu, að með einföldum barnaskóla- lærdómi ættu blaðamenn að geta sneitt hjá flestum málvill- um, ambögum og fáfræ'ðiklaua um, sem einkenni skrif þeirra. Sá, sem náð hafi sams konar gagnfræðaprófi og tíðkaðist I ungdómi hennar fyrir ekki ýkja löngu síðan, ætti að sleppa við að gera afganginn af vill- unum. Hún kveðst enga villu hafa rekizt á (á rannsóknar- tímabili sínu), sem krefjast verði stúdentsmenntunar til þess að forðast. Því segir hún i niðurlagsorðum bréfs síns: „Ef gengið er úr skugga um það, að blaðamenn hafi ná’ð barnaskóla- og gagnfræðaskóla prófi, ættu blöðin að losna við mállýti þau og heimskuvillur, sem einkenna skrif þeirra í allt of ríkum mæli“. — Ljótt er, ef satt er. Atvinna Nú þegar vantar mann til aðstoðar í þvottahúsið. - Upplýsingar á skrifstofunni. EIU- og hjúkrunarheimilið Grund. Nýr Willys jeppi til solu Til greina kemur að taka Volkswagen upp í verðið. Upplýsingar í síma 40312. Kona öskast sem kann að búa til algengan mat. Morgunvaktir. Smurbrauðstofan Björninn Njálsgötu 49. Bílavarahlutir til sölu Ýmislegt úr Ford Taunus 15 station ’55. Moskvitch ’55 — Chevrolet ’42—’56. Vélar, gírkassar, stýrisvélar, felgur, hásingar, fram bitar, rúður, startarar og rafalar o. m. fl. allt notaðir varahlutir á vægu verði. Á sama stað eru til sölu tvær eldavélar Rafha og Siemens, eldri gerðir. Upplýsingar í símum 20370 og 99-3150. Hafnarfjörður — Garðahreppur Stulkur óskast til vinnu við hreinlegan iðnað. Þær, sem hafa áhuga vinsamlegast leggi inn nafn, heimilisfang og síma- númer á afgr. Mbl., merkt: „Iðnaður — 8405“,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.