Morgunblaðið - 10.11.1966, Side 1
32 síður
Mikill sigur repúblíkana í Bandaríkjunum
(Jnnu 47 sæti í Fulltrua-
cTeild 3 ■ Öldungadeild,
og bættu við sig 7
ríkisstjórum
New York og Washington, 9. nóv. (AP-NTB)
KOSNINGAR tóru fram í Bandaríkjunum í gær, og voru þá
kosnir allir 135 þingmenn Fulltrúadeildar Bandaríkjaþings,
35 af 100 þingmönnum Öldimgadeildarinnar, og ríkisstjórar
í 35 af 50 ríkjum.
Úrslit kosninganna urðu glæsilegur sigur repúblikana,
þótt demókratar haldi áfram meirihluta í báðum deildum
þingsins.
Unnu repúhilkanar 47 sæti í fulltrúadeildinni og þrjú
sæti í Öldungadeildinni. Einnig hlutu þeir nú ríkisstjóra
kjörna í 23 þeiria ríkja, sem kosið var í, en höfðu þar áður 15.
Ýmis einstök úrslit vekja sérstaka athygli, og þá ekki
hvað sízt í ríkisstjórakosningunum í Kaliforníu, þar sem
kvikmyndaleikarinn Ronald Regan vann embættið af frá-
farandi ríkisstjóra demókrata, Edmund Brown, með miklum
yfirburðum.
Úrslit voru kunn í 433 kjördæmum í Fulltrúadeildar-
kosningunum í kvöld, og höfðu demókratar þá fengið 246
menn kjörna, en repúblikanar 187. Á síðasta þingi áttu demó-
kratar 295 sneti í Fulltrúadeildinni, en repúblikanar 140.
Lokið var talningu í Öldungadeildarkosningunum, og
hlutu demókratar 17 menn kjörna, en repúblikanar 18. Höfðu
demókratar 20 þingmenn i þessum kjördærpum, en repú-
blikanar 15. AUs eiga þá sæt: í Öldungadeildinni 64 demó-
kratar og 36 rcpúblikanar en hlutföllin voru áður 67-33.
Los Angeles, 9. nóv. — AP — Ronald Regan og kona hans Nancy fagna sigri í Los Angeles eftir
að Edmund Brown, fráfarandi ríkisstjóri, hafði viðurkennt ósigur sinn.
Eftirmaður dr. Erhards
kanzlara kosinn í dag
TiE greina komu í gær þeir Barzel,
Kiesinger og Schröder
Ýmsir þekktir stjórnmála-
menn lögðu hart að sér í kosn-
ingabaráttunni, þótt þeir væru
ekki sjálfir í kjöri að þessu
sinni. Meðal þeirra var Robert
Kennedy, Öldungadeildarþing-
maður frá New York, Richard
M. Nixon, fyrrum varaforseti, og
að sjálfsögðu Johnson forseti.
Kennedy hafði ekki lánið með
sér, því flestir skjólstæðinga
hans féllu. Hann átti beinlínis
frumkvæðið að framboði
O'Connors ríkisstjóraefnis demó
krata í New York, sem féll fyrir
Nelson Rockefeller. Hann studdi
Edmund Brown í Kaliforníu,
sem Ronald Regan felldi. Og
hann studdi Patrick Lucey, sem
ekki náði að fella Knowles, rík-
isstjóra repúblikana í Wiscons-
in. Einnig studdi Kennedy fram
Utanríkisráðherra
Kanada í Moskvu
Moskvu, 9. nóv. — NT'B-AP
• Utanríkisráðherra Kanada,
Paul Martin, er kominn til
Moskvu og hóf þar í morgun
viðræður við sovézka ráðamenn,
m.a. um Vietnam-málið og sam-
skipti Austurs og Vesturs.
Kanada á sæti í alþjóðlegu Viet
nam-eftirlitsnefndinni, ásamt
Indlandi og Póllandi og hefur
stjórn landsins unnið ötullega
að því að reyna að koma á frið-
arumræðum um Vietnam.
Martin kom tii Moskvu frá
Póllandi, þar sem hann hafði
dvalizt í fjóra daga. Hann ræddi
fyrst við Andrei Gromyko, utan
ríkisráðherra Sovétríkjanna og
sagði, að viðræðum þeirra lokn-
um, að fremur ætti að vera
hægt nú en áður að ná ein-
hverjum árangri með viðræðum
Austurs og Vesturs.
bjóðendur demókrata við Öld-
ungadeildarkosningarnar í Illi-
nois, Michigan og Oregon, sem
allir féllu. Þó áttu demókratar
áður Öldungadeildarsætin fyrir
Illinois og Oregon.
Öllu betur farnaðist Nixon.
Hann tók mjög virkan þátt í
kosningabaráttunni, og ferðaðist
undanfarna tvo mánuði um 35
ríki. Af 100 frambjóðendum,
sem Nixon aðstoðaði í bavátt-
unni, náði mikill meirihluti kosn
ingu, þar af ýmsir nýliðar á
Framhald á bls. 31
Bonn, 9. nóv. — NTB-AP.
+ ÁKVEÐIÐ hefur verið, að
þingflokkur Kristilegra demó
krata í Vestur-Þýzkalandi,
gangi á morgun til kosninga
um það, hver taka skuli við
af dr. Ludwig Erhard sem
leiðtogi flokksins og kanzlari
V-Þýzkalands. Verður þeim,
sem kosningu hlýtur, falið að
reyna að mynda stjórn, sem
hefur að baki sér meirihluta
á þingi. Takist það neyðist dr.
Erhard til að segja af sér, þar
sem hann hefur ekki treyst
sér til að henda á önnur úr-
ræði til lausnar vandamálum
stjórnarinnar.
| Þegar síðast fréttist komu
þrír menn til greina — en
ekki var talið útilokað, að
fleiri bættust í hópinn. Hver
svo sem valinn verður þarf
að vera við því búinn að geta
tekið upp stjórnarsamvinnu
við Frjálsa demókrata eða
jafnvel Sósíaldemókrata, og
gerir það valið ennþá vanda-
samara en ella.
• Stjórn flokksins tilkynnir í
fyrramálið, hverjir koma til
greina við kjörið og hefst kosn-
ingin síðan kl. 13.00. Þeir, sem
þegar koma til greina eru Rain-
er Barzel, formaður þingflokks-
ins, 42 ára að aldri, Kurt Georg
Kiesinger, forsætisráðherra í
Baden Wúrttenberg, 62 ára að
aldri og Gerhard Schröder,
utanríkisráðherra, 56 ára að
aldri. Einnig hafði verið til-
kynnt, að Eugen Gerstenmaier,
forseti Sambandsþingsins kæmi
til greina við kjörið, en hann
dró framboð sitt til baka síðdeg-
is í dag, öilum að óvörum. Ekki
var Gerstemmeier talinn sigur-
stranglegur.
Ekki er búizt við því, að neinn
Framhald á bls. 8
Geimskotinu
enn frestað
Kennedyhöfða, 9. nóv. NTB-AP.
• Ekki tókst að komast í dag
fyrir bilun þá, er varð á sjálfs-
stýriútbúnaði Titan- 2 eldflaug-
arinnar, sem nota átti til að
skjóta á loft geimfarinu Gemini
12, með þeim James A Lovell og
Edwin E. Aldrin um borð. Hef-
ur því enn orðið að fresta gcim-
skotinu um sólarhring.
Lögþingskosningamar í Færeyjum:
Stjórnarflokkarnir og stjórn-
arandstaðan skildu jöfn
Erlendur Patursson féll
Á ÞRIÐJUDAG fóru fram
kosningar til færeyska lög-
þingsins. Úrslit þeirra urðu
eins konar þrátefli, því að
stjórnarflokkarnir og stjórn-
arandstaðan hlutu hvor um
sig 13 þingsæti, en áður
höfðu stjórnarflokkarnir 15
þingsæti af 29 eða eins at-
kvæðis meirihluta. Engu er
unnt að spá að svo stöddu,
hvaða flokkar muni nú taka
höndum saman um lands-
stjórnina og jafnvel talið lik
legt, að efnt verði til nýrra
lögþingskosninga að ári. Tið-
indamaður Morgunblaðsins
átti í gær tal við N. J. Arge,
útvarpsstjóra í Færeyj'im, og
spurðist frétta af kosningun-
um.
Arge skýrði svo frá, að
þátttaka í kosningunum hefði
verið mikil eða 80.2% í stað
74.6%, er lögþingskosningar
fóru síðast fram. Alls hefðu
verið 21.904 á kjörskrá, en
kosið hefðu 17.576. Gott veð-
ur var á kjördag og ýtti það
undir kjörsóknina. Úrslit
kosninganna urðu þessi:
Fólkaflokkur 3802 atkv. —
eða 21.6% og 6 þingsæti. —
Bætti við sig 1.4%.
Sambandsflokkur 4156 atkv.
eða 23.6% og 6 þingsæti. —
Bætti við sig 3.6%.
Jafnaðarmenn 4757 atkv.
eða 27.1% og 7 þingsæti. Töp-
uðu 0.4%.
Sjálfstjórnarflokkur 865 at-
kvæði eða 4.9% og 1 þing-
sæti. Tapaði 1%.
Lýðveldisflokkur 3511 atkv.
eða 20% og 5 þingsæti. Tap-
aði 1.6%.
Framfaraflokkur 485 atkv.
eða 2.8% og 1 þingsæti. Tap-
aði 1.6%.
Framhald á bls. 2