Morgunblaðið - 10.11.1966, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 10.11.1966, Qupperneq 4
4 MORCUNBLAÐIÐ Flmmtudagur 10. nðv. 1966 ALLTAF FJOLGAR VOLKSWAGEN er fimm manna fjölskyldubíll vmmá HEKLA hf BILALEIGAN FERÐ SÍAfl 35135 OC 34406 SE N DU M Hverfisgötu 103. Daggjald 300 og 3 kr. ekinn km. Benzín innifalið. Sími eftir lokun 31160. LITLA bílaleigan Ingólfsstræti 11. Sólarhringsgjald kr. 300,00 Kr. 2,50 ekinn kílómeter. Benzín innifalið í leigugjaldi Simi 14970 BlftALEIGAIM VAKUR Sundlaugaveg 12. Simi 35135. BILALEIGA S/A CONSUL CORTINA Sími 10586. Fjaðiir, fjaðrablóð. hljóðkútar púströr o.fl. varahlutir í margar gerðir bifreiða. Bilavörubúðin FJÖÐRIN Laugavegi 168. — Sími 24180. Húseigendafélag Reykjavikur Skriístoía á Bergstaðastr. lla. Sími 15659. Opin ki. 5—7 alla virka daga nema laugardag*. Sveinbjörn Dagfinnsson, hrl. og Einar Viðar, hrl. Hafnarstræti 11 — Simi 19406. RAFMAGNS VIFTUREIMAR 2 hraðar, 2 hitastillingar SJÁLFVIRK HITASTILLING 2000 vött. — Hagstætt verð — Br. ORMSSON hf. Hagamel 9. Sími 38620. 111 var þín fyrsta ganga Sn. J. skrifar: Einn hinna allrabeztu þátta sem Ríkisútvarpið hefir nokkru sinni haldið uppi, var kveðskaparþáttur Guðmundar Sigurðssonar veturinn 1963— 64, og mjög var þa'ð misráðið að láta þann þátt nokkru sinni niður falla. Var því og fagn- að af mörgum er það kvisaðist í haust að hann yrði nú end- urvakinn. Okkur hlustendur grunaði ekki að þarna væri um nokkra refskák að ræða eða bellibrögð — hugðum allt vera græskuláust af hálfu ráða manna útvarpsins. En nú vitum við að þarna koma enn í ljós látalæti og alvöruleysi þessara skaðlegu valdamiklu manna. Þessi láta- læti, þessa hræsni, höfum við áður þekkt í þeim efnum er varða móðurmáiið. Má minna á fimm-mínútna þáttinn, er sumir nefna Pílatusarvatn út- varpsins. íslenzka tunga er það fátæklingsbarn, sem ekki er vandskírt á þessum menning- arvettvangi þjóðarinnar. Liblega hefir það verið þungi almenningsálitsins, sem knúði ríkisútvarpið til að láta kveð- skaparþátt Guðmundar hefjast á ný 30. f.m. En nú var hann ekki alveg umbúðalaus og nú voru honum, eins og í daglegu máli okkar, ætlaðar fimm mín útur eða minna. í bak og fyrir var hlaðið a'ð honum þeirri ó- dæma fátæktarfíflsku, sem jeg fyrir mitt leyti blygðaðist mín að hlýða á. Þar glórði ekki í vit, og með því að vitað var að enginn utan þess (væntan- lega fámenna) hóps, er smal- að hafði verið að hljóðneman- um, mundi fást til að brpsa — að jeg ekki tali um að hlæja — voru nú ieigðar, ekki grát- konur eins og við jarðarfarir, heldur flisskonur í fermingar- aldri, sem gerðu sitt bezta til þess að bæta gráu ofan á svart. Ekki má taka af þessum telp- um þann heiður sem þeim ber; ekki er hann svo mikill. En örugglega verður tilgang inum náð, ef haldið er áfram sömu braut. Þeir sem vilja hlusta á snilld Guðmundar Sigurðssonar, og hans sam- verkamanna þeir fá sig ekki tii að hlýða á hraðbergsfíflsk- una. Vart er nokkur sá hlut- ur, að ekki megi selja hann of dýru verði. Ef endilega þarf að halda á- fram vitleysunni, þá er- ein- sætt a'ð láta þáttinn ávalt hefj- ast á kveðskapnum. Þá gétur fólk með heilbrigðri skynsemi lokað fyrir flónskuna sem á eft ir mundi fylgja. En ekki trúi jeg því, að Guð- mundur Sigurðsson geti skilað sínu ágætis hlutverki nema hann hafi nokkuð rúman tíma til umráða, varla minna en 20 minútur, mundi jeg segja. Og til þess að tryggja árangurinn mundi jeg telja að allraheppi- 'legast hefði verið að þeir ynnu áð þættinum í sameiningu Guðmúndur og Sigurður Jóns- son. Með hinu mikla vísna- safni Sigurðar þæri þá tryggt að ávallt mætti af hagleik fylla þær eyður, sem kynnu að skap ast vegna ónógs framlags af há-lfu hlustenda, einkum fyrsta misserið. Svo vil jeg endurtaka það, að þátturinn „Á hraðbergi" (eitt þeirra marklausu heita, sem útvarpið í örbirgð sinni grípur til) var háðung þegar frá er skilið kveðskaparatrið- fð. Sn. J.“ Á rauðu Ijósi Bílaeigandi skrifar: „Margt var á sínum tíma ritað um réttmæti þess, að Ríkisútvarpið innheimti sér- stakt og fúllt afnotagjald af útvarpstækjum í einkabifreið- um. Kom í Ijós sem oftar, að eigi tjóar að deila við dómar- ann, enda ætla ég ekki að ræða það álitamál í þessu bréfi, held ur annað atriði því skylt. Margir taka bíla sína úr um ferð að vetrarlagi, einkum úti á landsbyggðinni, þar sem snjó þyngsli eru miki.l og notagildi bifreiða þess vegna minna en endranær. Fá þá menn bifreiða eftirlitinu númeraskiltin til var'ðveizlu, en á móti kemur frádráttur bæði á bifreiðaskött um til ríkisins og trygginga- iðgjöldum, miðað við innistöðu tíma bílanna. Innheimta Ríkisútvarpsins hefur einnig undanfarin ár end urgreitt hluta af afnotagjaldi útvarpstækja í bifreiðum, sem inni hafa staðið, gegn framvís- un vottorða þar að lútandi frá bifreiðaeftirlitinu. Tala ég hér af nokkurra ára reynslu, þótt játa verði, að mikill seinagang ur hefur að jafnaði veri’ð á sendingu slíkra endurgreiðsl- na, og stundum hafa þær ekki fengizt fyrr en eftir ítrekaðar kröfur. Það liggur meirp á á vorin, þegar Ríkisútvarpið sjálft hefur sína innheimtuferð með „viðeigandi“ bægslagangi og hótunum. Snemma á þessu ári sendi ég innheimtu RíKisú-tvarpsins bréf með tilheyrandi vottorð- um frá viðkomandi bílaeftirliti og qskaði eftir endurgjaldi á hluta afnotagjalds útvarps tveggja bifreiða, sem staðið höfðu inni á árinu 1965, önn- ur 4 mánúði, hin 6 mánuði. Að þessu sinni hafa engar end- urgreiðslur borizt, þótt beiðni um þær hafi verið ítrekuð. Hvergi hef ég þó heyrt né séð þess getið, að Ríkisútvarpinu beri ekki framar skylda til að inna af höndum slíkar endur- greiðslur, ef réttmætar kröfur koma fram. Þar sem ég ætla, að ýmsir hljóti að hafa yfir hinu sama að klaga, þætti mér vænt um, ef Velvakandi vildi minnast á þessa umkvörtun mína í dálk- um sínum. Ríkisútvarpið mundi þá ef til vill fást til að svara fyrir sig. Bíleigandi“ Bezt ú auglýsa ^ Meira um Tyrkjann Ungfrú á Pósthúsinu skrifar: „Það er leiðinlegt, finnsb mér, að einhver stúlkan á Póst- húsinu í Reykjavík skuli hafa móðgað „Frú í Vesturbænum“ um daginn og meira að segja Tyrkjann líka með því að kannast ekki tafarlaust við „Turkey“, eins og „Frúin“ upp lýsir í bréfi sínu til Velvak- anda. Mættu þó fslendingar enn í dag muna „kurteisisheim sókn“ þeirrar þjóðar hér um árið. En í þá daga voru þeir ekki ávarpaðir á ensku hér á iandi, heldur látið nægja að kalla þá Hund-Tyrkja, og gæti allur misskilningurinn legið í þvi. Nú veit ég ekki, við hvaða stúlku á Pósthúsinu „Frúin“ kann að hafa átt tilgreind við- skipti, en mig langar samt til að segja henni þetta: Þa'ð er oft æðimikið að gera hjá okkur stúlkunum í af- greiðslunni, og kanh þá svo að fara mitt í ösinni, að ekki gef- ist miki-11 tími til að átta sig á augnablikinu, jafnvel ekki á svo augljósu fyrirbæri sem „Turkey“, og skal „Frúin“ þvi ekki rengd um þann þátt við- skiptanna. Hin spurningin: „Er það I Evrópu eða Ameríku?“ er hins vegar án efa misheyrn hjá „Frúnni". Stúlkan hefur áreið- anlega spurt: „Er það í Evrópu eða ASÍU?“ En svo er mál með vexti, að „Turkey" þókn- ast nú einu sinni að vera bæði í Evrópu og Asíu, og er ekki sama póstburðargjald til beggja landshlutanna. Þess vegna hef- ur stúlkan orðið a'ð spyrja til hvorrar heimsálfunnar bréfið ætti að fara. „Eg er aðeins gagnfræðing- ur“, segir „Frúin“. Það mun standa heima. Menntahrokinn mun jafnan vera mestur á þvi skólastigi. Frk. á Pósthúsinu" í Morgunblððinu Bifreiðaeigendur Annast viðgerðir á rafkerfi bifreiða, gang og mótorstill- ingar, góð mælitæki. — Reynið viðskiptin. Rofstilling Suðurlandsbraut 64 (Múlakaffi). Einar Einars- son. Heimasimi 32385. Keflavik Kartmannsarmbandsiír úr stáli (Marvin) hefur senni lega tapazt á Tjarnargötu eða Hafnargötu siðastliðið laugar- dagskvöld. Skilist á tann- lækningastofu Garðars ólafs- sonar, Tjarnargötu 7, gegn fundarlaunum. Y"""BÍLALEIGAN Falur Kr. 2,50 á ekinn km. 300 kr. daggjald RAUÐARÁRSTÍG 31 SÍMI 22 0 22* , MAGMUSAR SKIPHOLTI21 SÍMAR 21190 eftir lokon sími 40381

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.