Morgunblaðið - 10.11.1966, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.11.1966, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLADIÐ Fimmtudagur 10. nóv. 1966 Sextugur: Dr. Finnur Guðmundsson: Síra Jón Þorvarðarsson Á ÁRTJNUM næstu fyrir 1930 var æði mikil gróska i guðfræði- deild Háskóla íslands. Deildin var þá fjölmennari en hún hefur oftast verið, þótt aftur jölgaði á fimmta tug aldarinnar, og enn nú á síðustu árum. Flestir þeirra, sem luku guðfræðinámi fyrir og um alþingishátíðarárið, tóku prestvígslu og hafa starfað í kirkjunni um áratugi, en eru nú sumir látnir af embætti, og allir teknir að reskjast. Einn hinn yngsti í þessum hópi er að verða sextugur í dag, en ennþá í fullu fjöri og stendur í starfinu í einum fjölmennasta , söfnuði landsins, gæddur miklli starfs- orku og óbuguðum áhuga. Er það síra Jón Þorvarðarson, sókn arprestur Háteigssafnaðar síðast liðin fjórtán ár. Síra Jón er Skaftfellingur að uppvexti og að nokkru að ætt, en fæddur er hann Þingeyingur, á prestssetri Fjallasveitar Víði- hóli, þar sem faðir hans hóf- prestsskap. Foreldrar hans voru síra Þorvarður Þorvarðarson, er gerðist ári síðar prestur Mýr- dælinga og fluttist að Norður- Hvammi, en síðan til Víkur, þar sem hann var til æviloka, og kona hans Andrea Elísabet Þor- varðardóttir frá Litlu-Sandvík. Faðir síra Þorvarðar var Þor- varður prestur Jónsson, er lengst var í Holti undir Eyjafjöllum. en síðast að Prestsbakka. Lengra verða ættir síra Jóns ekki raktar í þessum orðum, enda þótt þar mætti telja marga mæta menn og konur, og ekki sízt t'jölda presta. Það leynir sér ekki, að síra Jóni hefur runnið prestablóðið til skyldunnar. Ég býst við, að aldrei hafi annað flogið að hon- um en að gerast prestur, og í guðfræðideild skráðist hann að loknu stúdentsprófi, og lauk þaðan embættisprófi 1932. Gerð- ist hann fyrst aðstoðarprestur föður síns í Víkl, en gegndi þó sem settur prestur embætti, á Akranesi tæpt ár í forföllum síra Þorsteins Briems. Þegar faðir hans lét af embætti 1934, tók síra Jón við kallinu, og þjón- aði því unz hann tók við prests- starfi í Háteigsprestakalli, sem áður greinir. Prófastur Vestur- Skaftafellssýslu var hann frá 1935, þar til hann fluttist þaðan. Ekki fór hjá því, að síra Jóni væru falin margs konar trún- aðarstörf í héraði sínu, en mest gætti þar afskipta hans af fræðslumálum. Hafði hann for- stöðu unglingaskóla í Vík frá 1933, og síðar átti hann sæti í skólanefnd héraðsskólans í Skóg um. Söngmálin voru atmað áhugamál hans, er hann hefur jafnan sinnt mikið, enda sjálfur ágætur söngmaður og hljóð- færaleikari. Einkum hefur hann látið sér annt um kirkjusöng, og lengi verið í stjórn Kirkju- kórasambands íslands. Um örn- ur störf hans að félagsmálum verður ekki rætt hér, umfram það er lýtur að kirkjumálum. En í kirkjuráði hefur hann verið annar tveggja fulltrúa íslenzkr- ar prestastéttar síðustu tólf ár- in, og einnig í stjórn Presta- félags íslands á annan áratug. Þrátt fyrir öll þessi störf, sam- hliða umfangsmiklu prests- starfi, hefur síra Jóni unnizt tóm til að auka við guðfræðimennt- un sína og þekkingu á kirkju- legu starfi með námsdvölum er- lendis og ferðalögum. Er hann sívakandi um öll kirkjuleg mál, og fylgist vel með öllu sem ger- ist á því sviði. í prestsstarfi sínu hefur síra Jón ætíð notið hylli og vinsælda sóknarbarna sinna, enda hvers manns hugljúfi í viðmóti öllu Og hinn vandvirkasti um öll sín prestverk. En einkum mun þó tón hans og altarisþjónusta mik- ils metin. Njóta hin fögru tón- lög kirkju vorrar sín vel í með- ferð hans, enda eru þau honum harla kær. í einkalífi sinu hefur síra Jón verið mikill gæfumaður. Kona hans er Laufey Eiríks- dóttir, málara í Reykjavik Ei- ríkssonar. Hefur hún búið manni sínum indælt heimili og reynzt honum hin bezta stoð i öllu starfi hans, og ekki ‘sízt í æskulýðsstarfinu. Börn þeirra eru þrjú: Sigurgeir, hagfræðing- ur Seðlabanka íslands, kvæntur Ingibjörgu Gísladóttur, ólafur læknir, ókvæntur við sérnám, og Margrét, kennari, gift Jakobi Löve fulltrúa. Að lokum vil ég flytja afmæl- isbarninu og fjölskyldu hans hinar beztu óskir, og væn.ta þess, að enn megi kirkja íslands lengi njóta starfa hans. B. M. Síldveiðiskýrslan: Aflinn orðinn nær 150 þús. lest- um meiri en á sama tíma í fyrra Aðalveiðisvæði sl. viku var 65-70 sjómílur undan landi í Norðfjarðardýpi, en veður var óstöðugt. Samkvæmt aflaskýrslu Fiskifélags íslands bárust á land 26.243 lestir af síld. Þar af fóru 1.888 lestir í frystingu og saltað var í 1.239 tunnur. Heildaraflinn í vikulok var orðinn 574.058 lestir og skiptist þannig eftir verkunaraðferðum: í salt fóru 55.904 lestir, í fryst- ingu 4.800 lestir og í bræðslu 515. 354 lestir. Auk þess hafa er- lend skip landað 1.022 uppsölt. t-unnum og 4.680 lestum í bræðslu. Á sama tíma í fyrra var heildaraflinn 426.228 lestir, þar af fóru 364.584 í bræðslu, 68.541 í salt og 3.102 í frystingu. Helztu löndunarstaðir eru þessir: lestir Reykjavík 35.062 Bolungavík 6.634 Siglufjörður 24.091 Ólafsfjörður 6.491 Hjalteyri 10.022 Krossanes 16.240 Húsavík 4.260 Raufarhöfn 53.235 Þórshöfn 2.041 Vopnafjörður 31.246 Borgarfjörður eystri 7.188 Seyðisfjörður 141.768 Mjóifjörður 1.107 Neskaupstaður 85.804 Eskifjörður 60.842 Reyðarfjörður 33.388 Fáskrúðsfjörður 30.494 Stöðvarfjörður 9.137 Breiðdalsvík 7.965 Djúpivogur 10.187 Vestmannaeyjar 1.741 Eitt síldveiðiskip er komið með yfir 10 þús. lesta afla. Gísli Árni úr Reykjavík. Næstur er Jón Kjartansson frá Eskifirði með 8.762 lestir og þriðji Jón Garðar úr Garði með 8.071 lest. Afli skipanna fer hér á eftir: Lestir Akrafoorg Akureyri 3.177 Akurey Hornafirði 1.495 Aki>rey Reykjavík 5.020 An-dvari Vestmannaeyjum 580 Anna Siglufirði 2.096 Arnar Reykjaivik 5.860 Arnames Hafnarfirði 1.569 Arnfirðin-gur Reykjavík 3.973 Árni Geir Keflavik 1.582 Árni Magnússon San*dgerði 5.307 Arnkell Helli.s9andi 1.028 Ársæll Sigurðsson Hafnarfirði 2.446 Ásbjöm Reykjavik 6.150 Ásþór Reykjavík 4.570 Auðunn Hafnarfirði 3.636 Baldur Dalvík 1.682 Barð i Neskaupstað 6.136 Bára Fáskrúðsfirði 4.567 Bergur Vestmannaeyjum 2.658 Bjarmi Dalvík 1.140 Bjarmi II. Dal'vílk 5.820 Bjarbur Neskaupstað 6.366 Björg Neskaupstað 2.935 Björgúlfur Dalvík 3.278 Björgvin Dalvík 2.926 Brimir Keflavík 1.070 Búðaklettur Hafnarfiirði 4.13-1 Dagfari Húsavík 7.024 Dan ísa-firði 772 Einar Hálfdáns Bolungavík 989 Einar Eskifirði 748 Eldborg Hafnarfirði 5.008 Eiliði Sandgerði 4.651 Engey Reykjavík 2.339 Fagrikletfcur Hafnarfirði 2.023 Faxi Hafnarfirði 5.056 Fáfcur Hafnarfirði 2.488 Fiskaskagi Akranesi 228 Framnes Þingeyri 3.126 Freyfaxi Keflavík 1.233 Fróðaiklettur Hafnarfirði 3.672 Garðar Garðahreppi 2.892 Geirfugl Grindavík 2.244 Gissur hvíti Hornafirði 1.221 Gísli Árni Reykjavík 10.578 Gísli lóðs Hafnarfirði 159 Gjafar Vestmannaeyjum 4.196 Glófaxi Neskaupstað 963 Grótta Reykjavík 4.742 Guðbjartur Kristján ísafirði 4.667 Guðbjörg Sandgerði 4.063 Guðbjörg ísafirði 3.950 Guðbjörg Ólafsfirði 1.357 Guðjón Sigurðsson Vestmannaey. 587 Guðmunaur Péturs Bolungavík 5.844 Guðmundur Þórðarson Reykjavík 1.183 Guðrún Hafnarfirði 4.342 Guðrún Guðleif9dóttir Hnífsdal 4.663 Guðrún Jónsdóttir ísafirði 4.117 Guðrún Þorkelsdóttir Eskifirði 4.162 GuiLberg Seyðisfirði 5.109 Gullfaxi Neskaupstað 3.530 Gul-lver Seyðisfirði 5.832 Gunn-ar Rey ðarfirði 3.987 Hafrún Bolungavík 5.271 Haflþór Reykjavík 1.647 Halkion Vestmannaeyjum 4.808 HalLdór Jónsson Ólafsvík 3.618 H-amravík Keflavík 3.461 Hannes Hafstein Dalvík 6.385 Ha-raldur Akranesi 4.522 Hávarður Súgandafirði 282 Heiðrún II. Bolungav-ik 790 Heimir Stöðvarfirði 6.135 H-elga Reykjavík 4.536 Helga Björg Höfðakaupsfcað 2.562 Helga Guðmundsdóttir Patreksf. 6.663 Helgi Flóventsson Húsavík 4.256 Héðinn Húsavík 4.185 Hiimir Keflavík 250 HiLmir II Flateyri 602 Hoffell Fáskrúðsfirði 2.951 Hóiman-es Eskifirði 4.264 Hrafn Sveinbjarnas. III. Gri-ndav.1.499 Hrá-uney Vestm-anna-eyjum 216 Huginn II. Vestmannaeyjum 3.304 Hugrún Bolungavík 3.462 Húni II. Höfðakaupstað 2.459 Höfmngur II. Akranesi 3.197 Höfrungur III. Akranesi 5.012 Framhald á bis. 15. Kísiliðjuvegur f FRÉTTAGREIN í Morgunblað- inu 2. þ.m. víkur fréttaritari bláðsins í Mývatnssveit lítillega að hinum fyrirhugaða kísiliðju- vegi, en eftir þeim vegi á að flytja afurðir kísiliðjunnar frá verksmiðjunni í Bjarnarflagi til Húsavíkur. Um þetta farast fréttaritaranum (Kristjáni Þór- hallssyni í Vogum) þannig orð: „Mér er tjáð að Náttúruverndar ráð hafi eitthvað við það að athuga að vegur verði lagður, þar sem búfð er að mæla fyrir honum á milli Reykjahlíðar og Grímsstaða hér í sveitinni. Ég fæ ekki séð að hægt sé að fara aðra leið með veginn. Væri fróð legt að fá að heyra opinberlega álit og tillögur Náttúruverndar- ráðs varðandi þetta mál“. Þar sem ég undirritaður er einn af þeim, sem sæti eiga í Náttúruverndarráði, vil ég ekki láta hjá líða að gera hér nokkru nánari grein fyrir þessu máli og afstöðu Náttúruverndarrá'ðs til þess. Hinn fyrirhugaði kísiliðju vegur verður 48,5 km. á lengd og mun kosta milljónatugi. Sam kvæmt áætlunum þeim, sem gerðar hafa verið um vegarlagn inguna, á vegurinn fyrst að krækja fyrir norðurenda Mý- vatns og síðan sveigja norður yfir Hólasand. Náttúruverndar- ráð hefur ekkert við hið fyrir- hugaða vegarstæði að athuga nema á tiltölulega stuttum kafla við norðurenda Mývatns, en þar er gert rá‘ð fyrir að þessi vegur, sem ætlaður er til þungaflutn- inga til Húsavíkur, hlykkist um húsasund í Reykjahlíðarhverf- inu, liggi síðan vestur yfir tún- ið, milli vatnsins og byggðar- innar, og vestur yfir eldhraunið frá 1729 þar sem það er breið- ast. í fáum orðum sagt þræðir þessi flutningaleið niður í gegn- um byggðarhverfið í Reykjahlíð og fylgir síðan vatnsbakkanum til vesturs. Náttúruverndarráð telur, að me'ð þessari fyrirhuguðu vegar- lagningu sé stefnt að svo stór- felldum náttúruspjöllum, að ekki verði með nokkru móti við það unað. Hér er í fyrsta lagi um mjög alvarleg landslags spjöll að ræða, því að á svæði þessu blasa alls staðar við aug- um verksummerki hinna sögu- frægu Mývatnselda, en á slík- um svæðum ber auðvitað að gæta ítrustu varúðar í sambandi vfð mannvirkjagerð. Á komandi árum mun margur ferðamaður- inn koma eftir hinum fyrirhug- aða vegi að norðan. Þegar hann kemur á hálsana norðan Gríms- staða blasir við Mývatnssveitin, vatnið og fjallahringurinn. En hætt er við að mörgum bregði í brún, er þeir líta veginn, háan og breiðan, þar sem hann klýf- ur hraunið skammt frá vatns- bakkanum, enda mun hann af- skræma hið sérkennilega lands- lag á þessum stað líkt og soll- inn skurður í ásjónu manns. í öðru lagi má ganga út frá því sem vxsu, áð vegurinn eða öllu heldur umferð um veginn, ikomi til með að hafa mjög hruflandi áhrif á fuglalíf Mý- \xatns, því að í norðanátt sækir huglinn í skjól undir hraunbrún inni milli Reykjahlíðar og Gríms staða. Þeir sem ekið hafa um veginn vestan við Mývatn, milli Laxár og Grímsstaða, minnast þess ef til vill, að síðari hluta sumars getur þar oftast á að líta stóra fleka af öndum, sem ýmist eru að synda að eða frá landi. Áður fyrr voru endurnar vanar að ganga á land méð unga sína í hinum sendnu víkum á þessum slóðum, en síðan vegurinn var lagður hafa endurnar engan frið í þessum skjólsælu víkum. Bíila- umferðin er orðin svo mikil að þær hafa ekki frið stundinni lengur. Af þessum sökum og raunar af ýmsum fleiri ástæðum tel ég engan vafa á því, að með lagningu vegarins frá Laxá að Grímsstöðum á þeim stað þar sem hann er nú, hafi verið unn- in einhver mestu spjöll, sem hingað til. hafa -verið unnin á Mývatnssvæ'ðinu. Nú er kominn hringvegur í kringum Mývatn og og því miður liggur sá vegur mjög víða of nærri vatnsbakk- anum. Undantekning er þó veg- urinn fyrir norðurenda vatns- ins, en nú virðist stefnt að því að flytja hann fram á vatns- bakkann líka. í þriðja lagi má svo benda á, að með þessari fyrirhuguðu veg- arlagningu verður sennilega komið í veg fyrir eðlilega þró- un hótelreksturs í Reykjahlíðar- hverfinu, og yrði þá að byggja upp slíka aðstöðu á öðrum stað við vatnið. Þau hótel, sem nú eru rekin á þessum stað, byggja að allverulegu leyti afkomu sína á erlendum sumargestum. Ein að- aliðja þessara gesta er oft á tíð- um fólgin í því að rölta fram á vatnsbakkann til að skoða fugla- lífið, eða rölta fram með hraun- jaðrinum til að athuga verksum merki Mývatnselda, sem lýst er í ferðabæklingum og fjölmörg- um fer’ðabókum frá fslandi. Nú vidðist ætlazt til þess, að þessir erlendu hótelgestir þurfi að klöngrast yfir háan, upphlaðinn veg til þess að geta komist fram á vatnsbakkann. Ég á líka bágt með að trúa því, að stjórn nokk urs hótels, sem hefur þá dýr- mætu sérstöðu að vera á vatns- bakka, sætti sig við að girt sé á milli hótels og vatns með vegi fyrir flutningatrukka. Afleiðing- in af þessu öllu myndi eflaust verða sú, að hótelin \ Reykja- hlíðarhverfinu myndu smám saman breytast úr hótelum fyrir erlenda sumargesti í vegasjopp- ur, sem allir útlendingar myndu forðast. Þáð voru þó ekki fyrst og fremst þessi ferðamálasjónarmið heldur hin herfilegu náttúru- spjöll, sem mörkuðu afstöðu Náttúruverndarráðs til þessa máls. Hinn 17. ágúst sl. hélt Náttúruverndarráð fund í Reyni- hlíð við Mývatn og eftir að menn höfðu kynnt sér hið fyrir- hugaða vegarstæði svo og stað- hætti almennt á þessum slóðum, urðu menn sammála um að leggja til við rétta aðila, að hinn fyrirhugaði vegur verði færður upp fyrir Reykjahlíðarbyggð- ina, þannig að hann komi til með að liggja sem næst núver- andi vegi, og verði síðar látinn ganga út á ofanvert hraunið þegar vestur fyrir Reykjahlíðar- torfuna kemur. Um þetta var enn rætt á fundum Náttúru- verndarráðs hinn 14. og 19. sept. og á fundi ráðsins hinn 26. okt. var að gefnu tilefni ein- róma samþykkt, að halda fast við fyrri afstöðu í þessu máli. Það má teljast nókkurn veg- inn öruggt, að mun ódýrara verði að leggja þennan vegar- spotta, ef hann verður fluttur upp fyrir Reykjahlíðarbyggð- ina, því að vegargerð yfir hraunið niður undir vatnsbakk- anum hlýtur að verða tiltölu- lega dýr þar sem þar er um mjög mishæðótt helluhraun að ræða. Auk þess þarf ekki að óttast meiri snjóþyngsli á vepin- um þótt hann verði færður upp fyrir byggðina. Um það bar saman öllum kunnugum mönn- um, sem við ræddum við í Mý- vatnssveit. Hins vegar má telja það ókost á efri leiðinni, að þar verður vegurinn sennilega að fara lengri leið yfir tún en neð- an við byggðina, en sú aukning á ræktuðu landi, sem kynni að tapast undir veginn, ef efri leiðin verður valin, getur ekki haft úrslitaáhrif á afgreiðslu Framhald á bls. 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.