Morgunblaðið - 11.11.1966, Síða 1
32 síður
53. árgalkgur
259. tbl. — Föstudagur 11. nóvember 1966
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Verður Kiesinger
maður Erhards?
Krístilegir demokratar velja mann, sem starfaði / ráöu-
neyti Ribbentrops — Jbögn um val hans vestan hafs
— óvíst talið, hvort Kiesinger tekst að mynda nýja stjórn
eftir- l„Nautilus44
Bonn, 10. nóv. — AP
EINING hefur náðst um það
innan Kristilega demókrata-
flokksins í V-Þýzkalandi,
hver skuli taka við af Lud-
wíg Erhard, kanzlara.
Flokkurinn hefur valið
Kurt Georg Kiesinger, þekkt-
an, áhrifaríkan stjórnmála-
mann, sem þekkir vel til ut-
anríkismála.
Hann starfaði í ráðuneyti
Joachim von Ribhentrops, þá-
verandi utanríkisráðherra
Adolf Hitlers.
Undanfarin átta ár hefur
Kiesinger verið forsætisráð-
herra í Baden-Wurtemberg,
sem liggur í suðvesturhorni
V-Þýzkalands, og á landa-
mæri að Frakklandi.
Mikið orð fer af mælsku
Kiesingers, en hún hefur þó
e.^ki dugað honum til að vísa
á bug þeirri gagnrýni, sem
fram hefur komið — einkum
þó erlendis. Margir telja, að
Kiesinger eigi sér vafasama
fortíð — og er þar átt við
starfsferil hans
Ribbentrops.
Þ A Ð var við þriðju at-
kvæðagreiðslu, að Kristi
legir demókratar völdu
Kiesinger til að taka við
embætti Erhards — tak-
ist honum það, sem Er-
hard hefur ekki tekizt
að undanförnu — að
mynda nýja meirihluta-
stjórn.
Kiesinger hlaut 137 at-
kvæði, en Gerhard
Schröder, utanríkisráð-
herra, 81, og Rainer Bar-
zel, leiðtogi þingflokks-
ins, 26.
í ráðuneyti I lög, og lét nokkuð að sér kveða
í samtökum kaþólskra stúdenta.
Að loknu námi í lögum,
1933, gekk Kiesinger í nazista
flokkinn, en það ár komst
Hitler til valda. Sjálfur segir
Kiesinger, að hann hafi misst
trúna á „foringjann", er Hitl-
er lét stytta nokkrum sam-
starfsmönnum sínum aldur.
Þó gekk Kiesinger ekki úr
flokknum. Vinir hans segja
þó, að honum hafi aldrei fall
ið við Hitler, eða aðhyllst
hugmyndir hans, og um tíma
hafi Kiesinger haft á orði, að
hann vildi flytjast af landi
brott, til Bandaríkjanna.
1940 segist Kiesinger hafa ver
ið kvaddur til starfa í utanríkis
ráðuneyti Ribbentrops. Þar starf
Framhald á bls. 31
rekst á kaf-
bátinn
Essex46
'i
1
hafinu undan
Islandi
10.
Norfolk, Virginia,
nóvember — AP.
BANDARÍSKI kjarnorkukaf-
báturinn „Nautilus" rakst
dag á kafbátinn „Essex“, í
hafinu milli Gænlands og ís-
Framhald á bls. 31
í
Ekki er talið loku fyrir það
skotið, að Kiesinger kunni því
að eiga við nokkra erfiðleika að
etja, er hann reynir að mynda
meirihlutastjórn, því að margir
líta illu auga vaxandi vinsældir
Þjóðernisflokksins, sem talinn
er hlynntur nokkrum hugmynda
nazismans.
Kiesinger er fæddur í Ebing-
en, Wúrtemberg. Hann lagði ung
ur stund á heimspeki, sögu og
Myndin var tekin í gær, að lckinni atkvæðagreiðslu um það, hver taka skuli við af Erhard.
Kiesinger (t. v.) tekur í hönd Franz Josef Strauss, fyrrum varnarmálaráðherra, sem um-
deildur hefur verið. — AP.
„Gerræðislegar
hefndarráðstafanir"
— 10 kúbanskir dansarar leita hælis
París — AP
TÍU dansarar úr Kúbanska rík-
isballettflokknum, sem verið hef
í Frakklandi
ur í sýningarför í Frakklandi
undanfarið, hafa gefið sig fram
við yfirvöld í París, og beðizt
Harold Wilson
Edward Heath
Ræður persónulegt hatur í
samskiptum Wilsons og Heaths?
Óvenjulegt mál komið upp i brezkum stjórnmálum
London — AP
ÞAÐ hefur löngum verið
talið eðlilegt, og jafnvel
æskilegt, að forsætisráð-
herra Bretlands og leiðtogi
stjórnarandstöðunnar deili
hart á þingi, en sýni aftur
á móti hvor öðrum kurteisi
á öðrum vettvangi.
Það hefur því vakið
mikla athygli nú, að svo
virðist komið, að Wilson,
forsætisráðherra, og Heath,
leiðtogi íhaldsflokksins og
seu
stjórnarandstöðunnar,
orðnir svarnir óvinir.
Síðustu daga hafa átt sér
stað orðaskipti milli leið-
toganna tveggja á þingi,
sem vakið hafa almenna
undrun, og jafnvel hneyksl
an, þingheims.
Hvor um sig virðist hafa
mestu andúð á hinum,
jafnvel svo, að Walter
Terry, stjórnmálafréttarit-
ari brezka blaðsins „Daily
Mail“, sagði fyrir nokkrum
dögum: „Orðið hatur er
Framhald á bls. 31
hælis.
Bera dansararnir því við, a<$
„gerræðislegar hefndarráðstaf-
anir“ í heimalandinu, Kúbu,
hafi gert þeim lífið þar óbæri-
legt.
Langt er um liðið síðan jafn
stór hópur listamanna hefur
briðzt hælis í Frakklandi. Hér
er um að ræða mikið áfall fyrir
stjórnina í Havana, því að hóp-
urinn var kvaddur með viðhöfn,
er hann lagði upp i sýnimjar-
förina til Frakklands.
Dansararnir héldu á laun frá
gistihúsi því í Paris, er þeir
bjuggu í, „Hotel Palais d‘Or-
' say“, en talsmaður þeirra gaf sig
síðan fram við franska utanrík-
isráðuneytið, sem er skanimt
frá.
Utanríkisráðuneytið veitti
listafólkinu 15 daga dvalarleyfi
þegar í stað, en mái þeirra er að
öðru leyti til athugunar hjá
frönskum stjórnarvöldum.
Listamennirnir hafa látið frá
sér fara sérstaka yfirlýsingu,
þar sem segir m.a.: „Við vorum
ekki andstöðumenn byltingar-
innar á sínum tíma. Hinsvegar ‘
hörmum við þær gerræðislegu
hefndarráðstafanir, sem gripið
hefur verið til í landi okkar —
en þær vinna gegn anda bylt-
ingarinnar. Ráðstafanir þessar
birtast í því, að sérhver sá, sem
ekki vill laga sig fullkumlega
að stjórnarháttunum, hvort sem
það er með lifnaðarháttum, trú-
arbrögðum eða klæðaburði, verð
Framhald á bls. 31