Morgunblaðið - 11.11.1966, Page 2

Morgunblaðið - 11.11.1966, Page 2
2 MORGUNKi A*1Ð Föstudagur 11. nóv. 1966 BlLL MEÐ 9 MANNS FAUK I STÖRWRII KJÚS — Engin alvarleg msiðsl — Fólkið beið í 2 klst. eftir hjálp SÁ ATBURÐUR varð í gær- kvöldi, að áætlunarbíll með níu manns fauk út af veg- inum skammt fyrir ofan Tíða skarð í Kjós og lenti ofan í skurð. Meiðsli urðu nokk- nr á farþegum, sem seinna voru fluttir í Slysavarðstof- una. Fólkið varð að bíða í tvær klukkustundir í bílnum eftir hjálp, því enginn öku- maður vogaði sér að stanza við slysstaðinn vegna veður- ofsans. Morgunblaðið náði seint í gær kvöldi tali af Bjarna Pálmasyni, frá Laugarvatni bifreiðarstjóra hjá Ólafi Ketilssyni. Bjarni kom hinu nauðstadda fólki fyrst- ur til hjálpar á áætlunarbíl sem hann ók. Skýrði Bjarni frá að- komunni á þessa leið: - Ég var nýkominn inn á stöð í Reykjavík er mér barst hjálparbeiðnin ofan úr Tíða- skarði og hélt þangað þegar í stað. Ég áræddi ekki að stanza við slysstaðinn nema í 1—2 mín- útur þar eð bíllinn minn fauk til á veginum. Áður höfðu stöðvað mig tveir vörubílar á leið til Reykjavíkur, sem höfðu flýtt sér burtu vegna veðurofs- ans. Á slysstaðnum sá ég tvo menn, sem lágu við vegarbrún- ina og bókstaflega skriðu í átt- ina til mín. Það var algjörlega óstætt á staðnum. Ég braust út úr bílum, út í veðurofsann. Mér tókst að ná í alla farþegana upp í bílinn til mín, en bílstjórinn varð eftir. Var hann alveg ómeiddur. Ekki er mér gjörla kunnugt um slys á farþegun- um, en konu sá ég og ungling, sem eitthvað hafa meiðzt. Voru flestir farþeganna fluttir á Slysavarðstofuna til frekari rannsóknar. Mbl. hafði þvínæst tal af ein- um farþeganna, Þorsteini Jóns- syni á Úlfsstöðum og sagðist hon um þannig frá ferðinni og líðan farþega í áætlunarbílnum: — Við vorum komin skammt fyrir ofan Tíðaskarð klukkan rúmlega 7 í kvöld, þegar bifreið- in fauk skyndilega af veginum og lenti að framan ofan í skurð og festist. Þótt kátlegt megi virð ast gat bíllinn tæplega fokið á Island sigraöi Kúbu BIÐSKÁKIR i fimmtu umferð Kúbumótsins voru tefldar í gær. Biðskákum íslands lauk þannig, að Friðrik vann sína skák, en Ingi gerði jafntefli. Hefur því Island sigrað Kúbu með 214 gegn VA. Aðrar biðskákir fóru þannig, að Bandaríkin sigruðu A-Þýzka- land með 3 vinningum gegn 1, Danmörk sigraði Spán með 2% gegn l%og Júgóslavía og Argen tína gerðu jafntefli, 2 vinningar gegn 2. Bandaríkin eru efst á skák- mótinu í Havana. Þau tíðindi hafa aftur gerzt, að Sovétríkin hafa ákveðið að tefla s'kákir sín- ar við Bandaríkin, en ekki er enn ákve’ðið, hvenær teflt verður. Staðan er nú þannig (USA á enn óteflt við USSR, eins og fyrr segir): 1. Bandaríkin 14 v. 2. Júgóslavia 13v. 3. Sovétríkin 13 v. 4.—5. Argentín 13 v. 4.—5. Búlgaria 13 v. 6. Tékkóslóvakía ny2 v. 7. Ungverjaland 11 V. 8. Rúmenía 10% v. 9. Danmörk 8 v. 10. Spánn 7% v. 11.-12. ísland 6V2 v. 11.—12. A-Þýzkaland 6y2 v. 13. Noregur 4'/2 v. 14. Kúba 3 % v. f sjöttu umferð tefla fslend- ingar við Dani. Víxlaði tölti í hæsta vinningi ÞAÐ bar til í fréttalestri í útvarpinu í gærkvöldi, a'ð frétta þulur víxlaði stöfupi í tölu happ drættismiða þess, er hæsta vinn ing, 500.000 kr., hlaut, er dregið var í 11. flokki happdrættis Há- skólans í gær. Ekki hafði þul- urinn þó áttað sig á mistökun- um, fyrr en eftir að fréttalestri og fyrsta dagskrárþætti eftir fréttir var lokið. Þá tilkynnti hann, að leiðrétta þyrfti inn- lenda frétt, og las hann síðan upp númer miðans, sem vinn- inginn hlaut, 9271. Hann hafði víxlað tveim síðustu stöfunum, betri stað, því bratt er víða í kring, en þar sem hann var kom- inn í skurðinum haggaðist hann ekki. Bílstjórinn reyndi að fara út úr bílnum til að ná í aðstoð uppi á vegi, þar eð talstöðin hafði bilað. En til þess að komast þangað, varð hann og farþegi, sem fór með honum, að skríða, því veðurhæðin var svo ofsaleg, vart undir 14 vindstigum. Við hinir farþegarnir sátum í bíln- um á meðan. Ekki sá ég hræðslu á nein- um manni þótt ástandið væri harla uggvænlegt. Við biðum í rúmar tvær klukkustundir eft- ir aðstoð. Það var ónotaleg bið frómt frá sagt. Við sáum nokkra bíla fara framhjá en fæstir gerðu tilraun til að stanza, sem vonlegt var því bílstjórarnir 1 áttu greinilega fullt í fangi að hemja farartæki sín á veginum. Hjálpin kom loksins og þá skrið um við farþegarnir og ultum eins og kefli á leiðinni að bíln- um. Til allrar hamingju voru engin börn í bíl okkar. Ég held að flestir hafi sloppið ómeiddir utan kona og unglingur, sem eitthvað brákuðust, en báru meiðsl sin vel. Við vorum öll á leið til Akra- ness og til Borgarfjarðar, en enginn komst þó lengra en upp að Tíðarskarði í þetta sinn, sagði Þorsteinn að lokum. Seint í gærkvöldi var upplýst, að konan og unglingurinn sem um er rætt höfðu sem betur fer sloppið tiltölulega lítt meidd. Var gert að meiðslum þeirra á Slysavarðstofunni í gærkvöldi. SamkomuEag hjá Sókn og Sumargjöf SAMKOMULAG tókst í gær- kvöldi með samninganefndum starfsmannafélagsins Sóknar og barnavinafélagsins Sumargjafar. Samkomulagið er undirritað með fyrirvara um samþykki félag- anna. Fundur verður haldinn með þessum félögum fyrir há- degi í dag og taka barnaheimilin til starfa eftir hádegi í dag, verði samkomulagið staðfest. Kind foar seint að hausti SÁ sérstæði atburður varð á Barðaströnd fyrir nokkrum dög, um, að nýborin kind fannst á1 bænum Uolti þar í sveit. Þykir það allóvenjulegt, að kind beri svo seint að hausti. Ærin gekk ekki með lambi í | sumar, en nú bar hún móhött-1 óttum hrúti. Heilsast kind og lambi hið bezta. Eigandi ærinn- ar er Þórður Marteinsson bðndi að Holti. ELDUR kom upp í geymsluskúr við Suðurlandsbraut 103 kl. 14.35 í gærdag. Skúrinn, sem var á einni hæð varð alelda á augabragði og eyðilagðist allt sem í honum var. Tók slökkvi- liðið rúman klukkutíma að ráða niðurlögum eldsins. Ókunnugt er um eldsupptök I fótspor feðranna, gul'- aldarárin 1900 - 1910 — eftir Þorstein Thornrensen komin út ÚT er komin hjá Bókaútgáfunni Fjölvi bók eftir Þorstein Thorar- ensen, sem hann nefnir „í FÓT- SPOR FEÐRANNA, myndir úr lífi og viðhorfum þeirra, sem voru uppi um aldamót". Höfundur bókarinnar, Þor- steinn Thorarensen, er löngu þjóðkunnur eftir áratuga starf vi'ð Morgunblaðið og síðan við Dagblaðið Vísi, þar sem hann hefur bæði unnið sem erlendur og innlendur fréttamaður. Fyrir þremur árum skrifaði hann ævi- sögu De Gaulle, sem gefin var út hjá Setbergi og hlaut ágætar undirtektir, en á síðari árum, hefur hann skrifað bókagagnrýni, einkum um bækur, er snerta is- lenzka sögu, en bókin „í fótspor feðranna“ er fyrsta bók höfundar á því sviði. Á blaðamannafundi í gær, ræddi Þorsteinn um bók sína og sagðist hann þá hafa mjög á- kveðnar hugmyndir um það, hvernig rita skuli bók um sagn- fræði. Hann kvaðst hafa kapp- kosta’ð að gera bókina eins læsi- I lega almenningi og unnt hafi GuHakL'tfárin 1900-1910 óskrifað blað, er hann hefðist handa, en síðan yrði hann að setja sig inn í málin og kynnast persónunum svo sem frekast væri unnt. /Q2Q V— í02 ó..................Ú KLUKKAN 14 var vindur hægur á sunnan, víða léttskýj að og hiti nálægt frostmarki norðan lands og austan, en á Súðurlandi var vaxandi SA- átt og víða farið að rigna. Hiti var þar 2—7 stig og nvass ; ast 7 vindstig á Stórhöfða. : Lægðin SV af landinu mun ■ verða við SV-ströndina í dag ; og valda sunnan hvassviðri I og þíðviðri víða um land. ; Þorstcifih Káputeikning bókarinnar. verið. Hann sagði, að til þess að rita sem sannasta bók þyrfti höf j undur að setja sig í fótspor I þeirra manna, sem um er ritað [ og reyna að skilja út frá þeirra sjónarmiði, hvers vegna þeir hafi breytt svo sem þeir gerðu. í rauninni ætti höfundur bók- ar um sagnfræði að vera eins og Þorsteinn inmaieiotu. Jafnvel þótt skrifáð sé um ým- isa misendismenn, eins og t.d. Hitler, en Þorstein segist oft hafa langað til að skrá ævisögu hans, yrði höfundur að skilja hann frá eigin aðstæðum og dóm urinn að felast í þeim atburðum, sem þeir valda. Bókin hefst á því að höfundur lýsir Reykjavík eins og hún lítur út, er söguþráður bókarinnar hefst um 1900. Hann leiðir les- andann inn í þorpið, sem ekki telur nema um 5000 manns og lýsir því, sem fyrir augu ber, en á blaðamannafundinum í gær ók Þorsteinn einmitt þessa sömu leið með blaðamennina og lýsti þess- um fyrsta kafla bókarinnar. Annar kafli bókarinnar fjall- ar um lífið og fólki'ð á gullöld- inni, en gullöld kallar köfundur sögutíma bókarinnar, fyrsta ára- tug þessarar aldar, enda er það einhver mesti framfaratími þjóð- arinnar. Þá kemur íslandsbanki fram á sjónarsviðið með þriggja milljóna króna starfsfé, en það var þá mikið fé, enda niðurstöðu- tölur rekstursreiknings Reykja- víkurbæjar ekki nema um 70 þús. krónur. Höfundur gerir samanburð á verðlagi þessara ára og nútímans og kemst að þeirri niðurstöðu, að verðlag nú sé nálægt því a’ð vera 100 falt. Þá var miklu meiri munur á launum almennings og embættismanna, en nú er, enöa sést það á því, að laun Hannesar Hafstein sem ráðherra voru 8000 krónur, þ.e.a.s. samkvæmt gengi Þorsteins, 800.000 krónur í dag. Á tímabili því, er bókin nær yfir er byggð í Reykjavík tæp- lega hús og hús á stangli inn að Barónsstíg, annars er mest um tún. Byggðin náði nær eingöngu yfir miðbæinn, suður Suðurgötu, inn Laugaveg og vestur Vestur- götu. Á þessu tímabili verður hins vegar mikil breyting eins og áður er vikið að, þessi áratugur er sannkallaður gullaldartími. Þriðji kafli bókarinnar fjallar um sögu Danmerkur og konung- ana tvo, Kristján níunda og Frið- rik áttunda, en höfundur segir, áð ekki sé unnt að skilja og meta rétt islenzka stjórnmálasögu, nema þekkja nokkuð til danskrar og ber þá að hafa í huga að algjört einveldi ríkti í Danmörku fram til ársins 1892. Fjórði kafli bókarinnar ber heitið „Ljúfmennið", fimmti kafl inn „Hægri-harðstjórn og straum hvörfin 1901“, sjötti kaflinn „Gamli landshöfðinginn", sjö- undi kaflinn „Óhamingjusöm bernska uppreisnarskálds", átt- undi kaflinn „Hans „exellence", fyrsti ráðherra íslands", og ní- undi kaflinn „Framfarasinninn Björn Jónsson I ísafold". Bókin i Fótspor feðranna er prentuð i Borgarprenti, en mynd ir og myndatextar eru unnin í Lithoprent. Bókband annaðist bókbandsstofan Arnarfell og er upplag bókarinnar bundið í Balacron-efni. — Káputeikningu gerði Halldór Pétursson. Bókin er 391 blaðsíða í frekar stóru broti og er hún öll hin eigulegasta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.