Morgunblaðið - 11.11.1966, Qupperneq 4
M ORCU N B LADÍÐ
Föstudagur 11. nóv. 1966
4
BÍLALEIGAN
FERÐ
SfAff 35135
OC 34406
SE N DU M
siM11-44-44
\mmm
Hverfisgötu 103.
Daggjald 300
og 3 kr. ekinn km.
Benzín innifalið.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
bíloleigan
Ingólfsstræti 11.
Sólarhringsgjald kr. 300,00
Kr. 2,50 ekinn kílómeter.
Benzin innifalið í leigugjaldi
Simi 14970
BÍIJ\LEIG4N
if Hringbrautin
J. A. skrifar:
„Allir, sem koma með lang-
ferðabílum til borgarinnar,
stíga úr þeim við Umferðarmið-
stöðina og halda síðan inn i
borgina. Leiðin liggur yfir
Hringbrautina. En hún er
hvergi merkt fyrir gangandi
fólk. Bílarnir þjóta eftir göt-
unni og aldrei er hlé, engin
leið að skjótast yfir. Hér er úr
bóta þörf. Það verður of seint,
þegar búið verður að drepa
einhvern. Umferðarnefnd borg
arinnar þarf að athuga þetta
sem fyrst. Ekki að bíða með
það“.
Velvakandi man ekki betur
en merkt gangbraut ásamt upp
lýstu skilti sé á Hringbraut-
inni, rétt neðan við Kennara-
skólann. Þetta er e.t.v. ekki
nóg, en þarna er þó a.m.k. ein
göngubraut.
it Útvarpið
Einn, sem segist vera ung
ur í anda, óskar að koma því á
framfæri við útvarpið, að þátt-
urinn með lögum unga fólks-
ins verði aftur fluttur til i dag-
skránni. Spyr hann, hvort út-
varpið eigi ekki að stuðlá að
því að fólk — og þá einkum
unga fólkið — hætti kvöldráp-
inu úti. Hvort sem þeir útvarps
menn fallast á það, að þetta sé
þeirra meginhlutverk, þá vill
bréfritari fá ,.Lög unga fólks-
ins“ á miðvikudögum kl. 9,30
— í heila klukkustund.
Húsmóðir hefur og beðið Vel
vakanda að koma því á fram-
færi við útvarpið, að barna-
tíminn á virkum dögum byrji
of snemma. Börnin séu yfirleitt
ekki komin heim úr skólanum
og þessi dagskrárliður þyrfti að
flytjast aftur um heila klukku-
stund.
^ Klukkan
Gamall Vesturbæingur
skrifar:
„Þá er nú blessað sumarið
liðið og veturinn genginn í
garð. Búið að gera klukkuna
rétta. Þvílíkur munur á kvöld-
in. Vitlausa klukkan eyðilagði
alveg kvöldin fyrir þeim sem
þurfa að hátta snemma, þeim
sem fara snemma til vinnu.
Menn vilja t.d. hlusta á veð-
urfregnir, tilkynningar og frétt
ir í útvarpinu og sumir eitt-
hvað meira. Þegar þetta er bú-
ið, er klukkan langt gengin í 9.
Enginn tími til að líta í blöð
eða bók. Nú er þetta allt annað.
Já, það er nóg að gera við
kvöldið hjá fólkinu. Lesa dag-
blöð og bækur, hlusta á út-
varpið. Fara í leikhús og kaffi
hús, svo bætist sjónvarpið ofan
á allt saman. Menn tala um að
þessi feikn sem út eru gefin
af bókum seljist dræmt. Maður
spyr bara: Hefur fólkið tíma
til að sinna öllu þessu svo að
gagni komi? Svo er það klukk-
an. Ég vil fyrir munn margra,
sem ég þekki segja við okkar
góðu ríkisstjórn og þingmenn.
Semjið í eitt skipti fyrir öll
endanlegan frið við klukkuna.
Við skiljum ekki hvers vegna
verið er að þessum hégóma-
skap að hringla í klukkunni vor
og haust. Eða græða nokkrir á
þessu, og ef svo er, þá hverjir?
Gamall Vesturbæingur".
i^ Atvinnutilboð
Lesandi skrifar:
„Ég hef nokkrum sinnum sótt
um atvinnu samkv. auglýsingu,
þar sem átt hefur að senda
skriflega umsókn eða upplýs-
ingar til afgr, MbL
Ég hef aldrei fengið svar við
þessum umsóknum, en mér
finnst það vera skylda þeirra,
sem auglýsa þannig eftir starfs
kröftum, að svara þeim um-
sóknum sem til þeirra berast.
Það er að sjálfsögðu ekki við
því að búast, að allir fái vinnu
samkv. þessum auglýsingum,
en þetta er samt fram úr skar
andi ókurteisi, og ætti ekki að
birta þannig auglýsingar án
þess skilyrðis, að skriflegum
umsóknum sé svarað.
Umsækjandi“.
Ekki með á
nótunum
Gömul kona í Stykkis-
hólmi skrifar:
„Ég hlusta mikið á útvarpið.
Meðal annars oft á lög unga
fólksins. Fólkið syngur á ís-
lenzku og móttakendur laganna
eru íslendingar, en ekkert ís-
lenzkt lag er sungið eða leik-
ið heldur eitthvað sem ég skil
ekki. Og þá- eru textarnir
kannski ekki til að auka smekk
inn eða hjálpa til um málvönd-
un, því annað eins hefi ég ekki
heyrt. Og svo á þetta að heita
skáldskapur og máske verð-
launaður af þingi á sínum
tíma. En ég spyr; hversvegna
er ekki hægt að leika í þessum
þáttum íslenzk lög og ljóð. —
Ljóð, sem yljað hafa þjóðinni
um marga áratugi?“
iy Auglýst eftir
kvonfangi
Lesandi skrifar:
„En lítillætið. Ég las nýlega i
einu Reykjavíkurblaðanna aug
lýsingu frá karlmanni, þar sem
hann óskar að komast í sam-
band við konu með hjónaband
fyrir augum, og tók það fram
að hún mætti vera úr sveit.
Þetta er nú meira lítillætið hjá
höfuðstaðarbúa. Vonandi verð
ur honum að ósk sinni, án þess
að sveitakona þurfi að koma til
hjálpar.
Aumingja manninum hlýtur
að líða illa!
— xx“.
it Bréfaskipti
Bandaríkjamaður, sem
segist hafa fengið áhuga á að
heimsækja fsland, óskar að
komast í bréfasamband við ís-
lendinga, sem vildu skipta á 33
mm litskuggamyndum (slides).
Hann óskar að fá myndir frá
íslandi, en vill endurgjalda með
myndum frá Bandaríkjunum.
Nafn og heimilisfang:
Louis J. Barrick,
Box 101,
Norwood,
Pennsylvania 19074,
U. S. A.
Bifreiðaeigendur
Annast viðgerðir á rafkerfi
bifreiða, gang og mótorstill-
ingar, góð mælitæki.
— Reynið viðskiptin.
Rofstillíng
Suðurlandsbraut 64
(Múlahverfi). Einar Einarss.
Heimasími 32285.
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Simi 35135.
BÍLALEICA S/L
CONSUL CORTINA
Sími 10586.
Fjaðiir, f jaðrablóð, hljóðkútar
púströr o.fl. varahlutir
í margar gerðir bifreiða.
Bílavörubúðin FJOÐRIN
Laugavegi 168. — Sími 24180.
RAFMAGNS VIFTUREIMAR
2 hraðar, 2 hitastillingar
SJÁLFVIRK HITASTILLING
2000 vött.
— Hagstætt verð —
Br. ORMSSON hf.
Hagamel 9. Sími 38820.
Hollenzku
dömuúlpurnar
með loðskinnsbrydduðu hettunum
komnar aftur. — Síðasta sending seldist
upp á fáum dögum. — Ódýrar — vandaðar.
Laugavegi 31.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Bæjarsjóðs Kópavogs, innheimtumanns
ríkissjóðs, Gunnars Jónssonar, hdl. og dr. Hafþórs
Guðmundssonar, hdl. verða bifreiðirnar: Y-1578,
Y-1899, Y-1944 og G-906, ásamt sjónvarpstæki
Olympic, seldar á opinberu uppboði, sem haldið verð
ur við Félagsheimili Kópavogs í dag, föstudaginn 11.
nóvember 1966, kl. 15.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Opel Cadett ‘64
skemmdur eftir árekstur er til sölu.
Til sýnis að Höfðatúni 4, í dag. Tilboð óskast
lögð inn á sama stað.
Vandað einbýlishús
á Melunum er til sölu. Húsið er 2 hæðir og kjallari
(vesturendi af 2 sambyggðum húsum).
Bílskúr fylgir.
VAGN E. JÓNSSON,
GUNNAR M .GUÐMUNDSSON,
hæstaréttariögmenn.
Austurstræti 9. - Símar 21410 og 14400.
Skrifstoiuhúsnæði óskast
Innflutningsfyrirtæki, sem verzlar mest með útgerð-
arvörur, óskar eftir góðu skrifstofuhúsnæði, helzt
nálægt höfninni. — Geymslupláss óskast einnig.
Tilboð, merkt: „Skrifstofur — 8093“ sendist afgr.
Mbl.