Morgunblaðið - 11.11.1966, Side 8
8
MORGUNBLADIÐ
Föstudagur 11. nóv. 1966
ALÞINGI
Radíóstaðsetningar-
kerfi fyrir siglingar
— með sérstöku tilliti til fiskveiða
— Tillaga þriggja þingmanna
S j álf stæðisf lokksins
ÞRÍR þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins, þeir Davíð Ólafsson,
Pétur Sigurðsson og Sverrir
Júlíusson hafa lagt fram á Al-
þingi þingsályktunartiilögu um
athugun á radíóstaðsetningar-
kerfum fyrir siglingar, með sér-
stöku tilliti til fiskveiða.
í greinargerð fyrir tillögu
þeirra segir m.a.:
Radíóstaðsetningarkerfi fyrir
siglingar hafa hlotið vaxandi út-
breiðslu á þessu tímabili. Við
norðanvert Atlantshaf og á að-
liggjandi höfnum eru það
tvenns konar kerfi, sem rutt
hafa sér til rúms. Á vesturhluta
svæðisins, þ. e. við austurströnd
N-Ameríku og einnig á.Græn-
landi og Islandi, er það svokall-
að „Lóran“-kerfi, sem í notkun
er, en á austurhluta svæðisins,
þ. e. í Norðursjó og þar í kring,
er það svonefnt „Decca“-kerfi,
sem notað er. Þá er unnið að
því að setja upp „Decca“-kerfi
í Noregi.
Fram að þessu hafa kerfi
þessi fyrst og fremst verið mið-
uð við almennar siglingar, en
að sjálfsögðu hafa fiskiflotar
haft af þeim gagn við veiðarnar.
Nútíma fiskveiðar krefjast sí-
fellt bættrar tækni á öllum
sviðum, og eitt þeirra atriða,
sem þar telst þýðingarmikið, er
staðsetning skipsins. Með þeim
tækjum, sem nú eru notuð við
fiskveiðar, má segja, að þær séu
orðnar í vaxandi mæli mikil ná-
kvæmnisvinna, og hver sú
tækni, sem getur hjálpað til að
auðvelda hana og auka veiði-
möguleikana, er því þýðingar-
mikil. Flutningsmenn þessarar
tillögu telja, að það sé nú tíma-
bært að gera á því gagngera at-
hugun, hvernig bezt verði
tryggt, að fiskiflotinn við ís-
land fái notið þess radíóstað-
setningarkerfis, sem getur gefið
mesta nákvæmni í staðsetningu,
og því er lagt til, að sérfræð-
ingum verði nú falin sú athug-
un.
Frá efri deild
Á FUNDI efri deildar í gær var
til annarrar umræðu frv. um
staðfestingu á br.till. um heimild
fyrir rikisstjórnina að ábyrgjast
lán til kaupa á síldarflutninga-
skipi.
Flutti Jón Þorsteinsson (A)
framsögu fyrir hönd fjárhags-
nefndar efri deildar: Nefndin
kvaddi á sinn fund Svein Bene-
diktsson og veitti hann ýmsar
upplýsingar varðandi mál þetta.
Keypt hefur verið skip og
það er aðallega ætlað til
síldarflutninga, en einnig
má nota skipið til lýsisflutn-
inga. Siglufjörður er eina síldar
höfn Norðurlands, þar sem skip-
ið getur lagzt fullhlaðið að
bryggju, og má segja að Siglfirð-
ingum veiti ekki af að sitja
að þessu skipi, á meðan síldin
heldur sig fyrir austan.
í sambandi við kaupin voru
gerð fyrirheit um síldarflutninga
til Skagastrandar, en efndir
voru heldur slakar og hefur það
valdið miklum vonbrigðum hjá
Skagstrendingum.
Það er mín skoðun, að síldar-
flutningar hafi sannað gildi sitt
á undanförnum árum. Þær hafa
ekki einungis gildi fyrir þá staði,
þar sem skortur er á efni til
vinnslu, heldur einnig fyrir
síldarútveg í heild, því að með
flutningunum má spara veiði-
skipunum þann tíma, sem fer
í siglingar í og úr höfn. Einkum
á þetta við, er sótt er á fjarlæg
mið og þegar nærliggjandi verk-
smiðjur hafa ekki undan.
Þota Fí mun gerð út
frá Keflavíkurflugvelli
— Yfirlýsing fjármálaráðherra
á Alþingi i gær
Á FUNDI neffri deildar í gær
fylgdi Magnús Jónsson, fjármála
ráðherra (S), úr hlaffi frv. um
veitingu heimild fyrir ríkis-
stjórnina aff ábyrgjast F.f. lán til
kaupa á millilandaþotu, en þetta
frv. var nýlega samþ. í efri deild.
Sagði ráðherrann í því sam-
bandi, að lánið væri veitt með
ákveðnum skilmálum, annars veg
ar, að hlutafé Flugfélagsins yrði
aukið að vissu marki og hafa
nú verið gerðar ráðstafanir til
þess, og hins vegar, að gengið
væri út frá því með umrædda
þotu, að hún yrði gerð út frá
Keflavíkurflugvelli.
Sagði ráðherra, að hann vildi
taka það fram, vegna ummæla
af hálfu F.Í., þar sem gert er
ráð fyrir, að þessu skilyrði verði
aflétt, að ekki stæði til að falla
frá þessu skilyrði, þannig að
umrædd þota verður gerð út frá
Keflavíkurflugvelli, ef til kemur
að veita þá aðstoð, sem gert er
ráð fyrir í sambandi við ríkis-
ábyrgðina.
Gjöi til
Leikfélagsins
LEIKFÉLAGI Reykjavíkur barst
fyrir nokkru vegleg bókagjöf
frá Jóni Eyjólfssyni starfsmanni
Þjóðleikhússins. Var hér um að
ræða safn af leikskrám og leik-
ritum, sem Jón hefur safnað s.l.
hálfa öld. Fyllti safn Jóns þrjá
stóra kassa. Enn er ekki til skrá
yfir safnið, en Sveinn Einarsson
leikhússtjóri hefur látið eftir
sér hafa að í safninu væru
margar mjög sjaldgæfar leik-
skrár sem Leikfélagipu væri
mikill fengur að, því langt væri
frá því að Leikfélagið ætti allar
þær leikskrár sem það hefði
gefið út í sambandi við sýn-
ingar sínar.
Þá eru og í safninu leikrit,
sem fágæt eru og safnið í heild
því kærkomin gjöf Leikfélaginu.
Jón Eyjólfsson hefur um
áratugaskeið látið sér mjög
annt um leikhúslíf og leik-
list, mikið unnið fyrir leikara
og leikhúsin, annazt hlutverk í
leikritum og aðstoðað á margan
hátt við sýningar.
cyt}1{/40fQ4*ls
Ferðaritvélar
Vandaðar, sterkbyggðar og
léttar Olympia ferðaritvélar,
ómissandi förunautur. —
Olympia til heimilis og skóla-
notkunar. — Tilvalin jólagjöf.
Útsölustaðir:
ÓLAF'UR GÍSLASON & co hf
Ingólfsstræti 1 A. Sími 18370.
ADDO VERKSTÆÐID
Hafnarstr. 5, Rvík. Sími 13730.
BÍLAKAUP^*
Vel með farnir bílar til sölu
og sýnis í bílageymslu okkar
I að Laugavegi 105. Tækifæri
til að gera góð bílakaup. —
Hagstæð greiðslukjör. —
Bílaskipti koma til greina.
Comet einkabíll, árg. 63.
Taunus 17 M, station 1964
Taunus 17 M, 4ra dyra
árgangur 1961.
Zephyr 4, árg. 1966.
Cortina, árg. 1963—’66.
Moskvitch, árgangur 1966
Volkswagen, árg. 1964.
Commer, sendib. ’64—’65
Opel Kapitan árg. 1960.
Opel Caravan, árg. 1960
iTökum góða bíla í umboðssölu
|Höfum rúmgott sýningarsvæði
innanhúss.
Wförm UMBOÐIÐ
SVEINN EGILSSON H.F.
LAUGAVEG 105 SlMI 22466
2ja herb. góff íbúff við Bás-
enda, allt sér.
2ja herb. góff ibúff við Hring-
braut.
3ja herb. íbúff við Kárastíg,
væg útborgun.
4ra herb. risíbúff við Ránar-
götu.
4ra herb. nýstandsett íbúð í
Hlíðunum.
5 herb. vönduff íbúff við Hjarð
arhaga.
5 herb. falleg endaíbúð við
Háaleitisbraut.
5 herb. ný næstum fullgerð
íbúð við Þinghólsbraut, —
góðir skilmálar.
6 herb. íbúff á Seltjarnarnesi.
4ra herb. íbúff við Hraunbæ,
selst tilbúin undir tréverk,
afhent ’í næsta mánuði.
íbúffir og raffhús í byggingu.
Einbýlishús á Flötunum í
byggingu.
Lóff í Garffahreppi og önnur
á Seltjarnarnesi.
Málflufnings og
fasteignasfofa
L Agnar Gústafsson, hrl.
Björn Pétursson
fasteignaviðskipti
Austurstræti 14,
, Símar 22870 — 21730. J
, Utan skrifstofutíma.:
35455 — 33267.
Rakarasveinn
— Rakaranemi
Rakarasveinn og
rakaranemi óskast á
Rakarastofuna, Hafnarstræti 8
Sími 16716 og 36144.
Gull - Silfur
Gull- og silfurlitaðir kven-
skór. Allar skóviðgerðir af-
greiddar með sólarhrings fyrir
vara. Höfum fjölbreytt úrval
af nýjum hælum á kvenskó.
Skóvinnustofa
Einars Leó
Víðimel 30. Sími 18103.
Húseigcndafélag Reykjavíkur
Skrifstofa á Bergstaðastr. lla.
Sími 15659. Opið kl. 5'—7 alla
virka daga nema laugardaga.
TIL SÖLU
Selfoss - [inbýlishús
Til sölu er einbýlishúsið
Engjavegur 24. Húsið er byggt
1961 og er í góðu standi. —
Húsið er 127 ferm., alls 5 herb.
ásamt stórum bílskúr. Upplýs-
ingar á skrifstofunni og hjá
eiganda, Einari Elíassyni í
síma 99-1215.
Ólafui*
Þorgpfirissoii
HÆSTARÉTTARt-ÖGMAOON
Fasteígna- og verðbrétaviðskifti
Ausíurstrséti 14. Sími 21785
Einbýlishús
við Sogaveg, 5 herb. og eld-
hús. Hagstætt verð og lág
útborgun.
Raðhús
Fallegt raðhús við Otrateig
á tveim hæðum með upp-
steyptum bílskúr.
/ smiðum
Fallegt raðhús í Árbæjar-
hverfi, 140 ferm., 5 herb. og
eldhús.
Fokheld hæð
í Kópavogi, 5 herb. og eld-
hús, bílskúrsréttur, hag-
stætt verð og greiðsluskil-
málar.
Parhús
Fokhelt parhús við Norður-
brún.
/
2/o herbergja
íbúð í Skipasundi, Hlíðar-
vegi, í Kópavogi, Ljósheim-
um og víðar.
3ja herb. ibúðir
við Rauðarárstíg á 3. hæð,
90 ferm., góð íbúð, við Sól-
heima. Hringbraut, Kópa-
vogi og víðar.
4ra herbergja
íbúð við Njörvasund á 1.
hæð með sérhita og sérinn-
gangi, bílskúr.
íbúð í Hlíðunum.
5 herbergja
íbúð á 3. hæð í blokk við
Laugarnesveg, 115 ferm.,
hagstætt verð og útborgun.
Einbýlishús
Fokhelt einbýlishús í Kópa-
vogi, 5 herb., eldhús, bíl-
skúrsréttur. Teikningar
liggja fyrir í skrifstofu
vorri.
Höfum mikiff úrval af öllum
stærðum íbúða, bæði í
Austurbænum og Austur-
bænum og einnig í Kópa-
vogi.
TRVGGINEftR
FASTEIENIR
Austurstræti 10 A 5. hæð.
Sími 24850. Kvöldsími 37272.
Fiskiskip óskast
til sölumeðferðar
Okkur vantar fiskiskip af
flestum stærðum til sölumeð-
ferðar nú fyrir vertíðina. —
Höfum kaupendur með mikl-
ar útborganir og góðar trygg-
ingar. — Vinsamlega hafið
samband við okkur áður en
þér takið ákvörðun um kaup
eða sölu á fiskiskipum.
Upplýsingar í síma 18105 og
utan skrifstofutíma 36714.
Fasteignir og fiskiskip,
Hafnarstræti 22.
Fasteignaviðskipti.
Björgvin Jónsson.