Morgunblaðið - 11.11.1966, Page 18

Morgunblaðið - 11.11.1966, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 11. nóv. 1966 NESCAFÉ er stórkostlegt - kvölds og morgna, - og hvenær dags sem er. t>að er hressandi að byrja daginn með því að fá sér bolla af ilmandi Nes- café, og þegar hlé verður i önnum dagsins er Nescafé auðvelt, þægilegt og fljótlegt í notkun, og bragðið er dásamlegt. Nescafé er einungis framleitt úr völdum kaffibaunum - ioo°/o hreint kaffi. Hvenær sem er, og hvar sem er, þá er Nescafé hið fullkomna kaffi. IMescafé Vélapakkningar Ford, amerískur Dodge Chevrolet, tlestar tegundir Bedford Disel Ford, enskur Ford Taunus GMC Plymoth Bedford. diesel Thames Trader BMC — Austin Gipsy De Soto Chrysler Buick Mercedes Benr, flestar teg. Gaz ’59 Pobeda Opel, flestar gerðir Volkswagen Skoda 1100—1200 Renault Dauphine Þ. Jónsson & Co. Brautarholti 6. Sími 15362 og 19215. SÆNGUR Endurnýjum gömiu sæng- urnar, eigum dún- og fiður- held ver, gæsaduns- og dralon-sængur og kodda af ýmsum stærðum. Dún - og fiðurhreinsun Vatnsstig 3. Simi 18740 (Örfá skref frá Laugavegi, GÚSTAF A. SVEINSSON hæstaréttarlögmaður Laufásvegi 8. Sími 11171. Magnús Thorlacius hæstaréttarlögmaður Málflutningsskrifstofa Aðalstræti 9. — Simi 1-18-75. Hildur Guörún Ágústsdóttir - Kveðja f DAG verður til moldar borin frá Hafnarfjarðarkirkju húsfrú Hildur Guðrún Ágústsdóttir, Suðurgötu 9 hér í bænum. Hún lézt á St. Jósepsspítala aðfara- nótt 7. þ.m. eftir stutta legu þar, en erfið og langvinn veikindi. Hildur „Dolla’* eins og hún jafnan kölluð meðal kunningja og vina, var fædd á Suðurgötu 9 18. sept. 1922, og þar dvaldi hún allt sitt líf. Hún var dóttir hjónanna Ágústar Magnússonar skipstjóra frá Skuld hér í bæn- um og konu hans Sesselju Eiríks- dóttur, sem bæði eru látin fyrir nokkrum árum. Þau bjuggu um langt skeið í „Blöndalshúsinu" og munu margir eldri Hafnfirð- ingar minnast þeirra með vin- semd og virðingu. Hildur giftist Ólafi Vilbergs- syni skipstjóra frá Eyrarbakka og eignuðust þau tvo drengi, sem báðir eru i barnæsku og eiga nú að sjá á bak því bezta sem börnum á þessum aldri er nauðsynlegt, hinni lifandi móð- urást og umhyggju, og eigin- maðurinn sjá af ástkærum lífs- förunaut, sem allar hans fram- tíðarvonir voru bundnar við. Því sú var skapgerð Dollu að heimilið og fjölskyldan var hennar heimur, sá heimur, sem hún helgaði allt sitt starf og hugsun, enda hvílir mikið á sjó- mannskonunni, sem verður að annast heimilið og fjölskylduna í fjarveru eigimannsins. Hún var mikilhæf og góð kona og hún var líka góð dóttir. Það sýndi hún bezt á veikindum og við dánarbeð foreldra sinna og ömmu, sem lézt á heimili þeirra fjörgömul og örþreytt eftir lang* an starfsdag. Ég, sem þessar fátæklegu línur rita, var svo lánsamur að tengjast fjölskyldu Dollu, og það gat ekki hjá liðið, vegna nábýlis og frændsemi, að vinaböndin yrðu traust hjá mín- um börnum og henni, enda urðu þau svo, að það var eins og hún væri ein af systkinahópnum, og aldrei bar þar skugga á. Því er það gott að geta geymt í hjarta sínu, þær mætu minningar, sem við eigum um góða og trygga vini, þótt sárt svíði að sjá á bak þeim í blóma lífsins, frá ófrá- gengnu ævistarfi. En Guðs vegir og tilgangur lífsins eru órannsak- anlegur svo við fáfróðir menn skyljum ekki skápadaginn né þýðingu hans. Við hjónin og öll okkar fjöl- skylda, sendum þér Ólafur minn, drengjunum ykkar og öllum að- standendúm, okkar innilegusm samúðarkveðjur, og biðjum hann sem öllu ræður og öllu stjórnar af vísdómi sínum og gæzku, að styrkja ykkur í sorg ykkar og söknuði. og enda þessi orð mín með þeim orðum sem mikilvægust eru, þótt ástvinur hverfi okkur sín um stundar- sakir: „Hann lifir og þér munuð lifa“. Blessuð sé minning Hildar Guðrúnar Ágústsdóttur. Jón Gestur Vigfússon. Við Felísinúla Til sölu er rúmgóð 4ra herb. íbúð á jarðhæð við Fellsmúla. Er tilbúin lil afhendingar nú þegar, tilbúin undir tréverk. Húsið er fullgert að utan. Sér inngangur. Sér hiti. Sér þvottahús. Teikning til sýnis á skrifstofunni. ÁRNI STEFÁNSSON, HRL. Málflutningur — Fasteignasala. Suðurgötu 4. — Sími 14314. 2£a herb. íbáð Til sölu er nvleg, rúmgóð 2ja herb. íbúð á jarðhæð í húsi við Vallargerði í Kópavogi. — Sér inngang- ur. — Sér hiti. — Frágengin lóð. ÁRNI STEFÁNSSON, HRL. Málflutningur — Fasteignasala. Suðurgötu 4. — Sími 14314. ÚDYR REI9HJÚL Seljurn næsíu daga lítið gölluð reiðhjól. drengja og telpu, þrjár stærðir (7—12). ÖRNINN Spítalastíg 8. Fiskiskip tíl sö!u Höfum til sölumeðferðar nýlegt 200 rúmlesta stálfiskiskip, með 1. flokks búnaði. 150 rúmlesta stálfiskiskip, með 1. flokks búnaði. Mikinn fjölda skipa frá 14—120 lesta. Hafið samband við okkur áður en þér kaupið fiskiskip. Fiskverkunarstöð til sölu Til sölu er 1. flokks fiskverkunarstöð á Suðurnesj- um. Aðstaða til frystingar, saltfisk- og skreiðar- verkunar. Upplýsingar í síma 18105 - utan skrifstofutíma 36714. Faste'gn’r og fskiskip Hafnarstræti 22. Fasteignaviðskipti Björgvin Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.