Morgunblaðið - 11.11.1966, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 11.11.1966, Qupperneq 19
Föstudagur 11. n4v. 1966 MORCUNBLAÐIÐ 19 SAMBAND UNGRA SJÁLFSTÆÐISMANNA: ÆSKAM OG FRAMTiÐIN RITSTJÓRI: ÁRMANN SVEINSSON Ályktanir byggðaþings SU5 á Akureyri: Atvinnulíf Norðlendinga f jórðungs treyst —IMorðurlandsáæUunin markar þáltaskil Atvinnu- og samgöngumál Byggðaþing ungra Sjálfstæð- ismanna á Norðurlandi, háð á Akureyri hinn 30. október 1966, íagnar hinum stórstígu almennu tframförum, sem orðið hafa í landinu á undanförnum árum, og telur eindregið, að hin far- sæla stefna frjálsræðis, sem fylgt hefur veri'ð tvö síðustu kjör- tímabil, sé í grundvallaratriðum hyrningarsteinn alhliða sóknar •við Iausn þeirra verkefna, sem framundan eru. Þingið gerir sér fulla grein fyrir því, að málefnum þjóðar- innar hefur ekki veríð ‘og verð- ur ekki skipað á bekk í eitt skipti fyrir öll. f stöðugri fram- farasókn þarf að yfirstíga ýmsa erfiðleika, jafnt almenns eðlis sem tímabundna og staðbundna. í framhaldi áf því, vekur Byggðaþingið athygli þjóðarinn- ar á þeirri efnahagslegu þenslu og þeim erfiðleikum, sem ör a‘ð- flutningur fólks til höfuðborg- arsvæðisins hefur í för með sér, og ennfremur þeirri verðmæta- sóun og því félagslega rótleysi, sem siglir í kjölfar brottflutn- ings fólks úr þorpum og bæj- um umhverfis landið, sem eiga vi'ð tímábundna atvinnuörðug- leika eða svipuð vandamál að etja. Þingið telur brýna nauðsyn bera til í þágu þjóðarinnar í heild, að reisa öflugar skorður við slíkum óeðlilegum tilflutn- ingi fólks. Með hliðsjón af óhagstæðu ár ferði á Norðurlandi undanfarin ár, vegna alhliða aflaleysis á h^imamiðum, leggur þingið sér- staka' áherzlu á þjóðhagslega nauðsyn þess, að treysta og örva atvinnulíf í fjórðungunum með skipulegum hætti til frambúðar og stuðla að samræmdum að- gerðum á sviði samgöngu-, fél- ags- og menningarmála að eðli- legri fjölgun fólks og byggða- þróun í Norðlendingafjórðungi. Þingið lýsir sérstakri ánægju sinni yfir þeim aðgerðum, sem þegar hafa komið ' til fram- kvæmda og stuðla að mótun slíkrar vaxtar og uppbyggingar- stefnu á Norðurlandi. Má þar nefna sér í lagi áætlunargerð í höndum Efnahagsstofnunarinn- ar og tryggingu á framkvæmd hennar með stofnun Atvinnu- jöfnunarsjóðs. Þingið telur, að ger’ð og framkvæmd Norður- landsáætlunarinnar muni marka stórmerkileg þáttaskil í þeirri viðleitni, að hafa samræmd á- hrif á byggðaþróunina í land- LU. Þingið vekur athygli á því, að hlutverk Norðurlandsáætlunar á sviði atvinnumála, er fyrst og fremst að laða fram og styðja hvers konar arðvænlegt fram- Bréf Heimdallar til forseta sameinaðs Alþingis: Mestu umbætur á fjárhagsaðstoð vid namsmenn til STJÓRN Heimdallar, F.U.S., lýsir ánægju sinni með frumvarp ríkisstjórnarinnar um námslán og náms- styrki, sem miðar að verulegri eflingu mikilvægs þáttar í aðstöðu æskufólks til að afla sér menntunar. Stjórn Heimdallar telur sérstaklega mikilsvert: 1. að f járhæð þá, sem varið er til námsaðstoðar, lána og styrkja, á að stórauka; 2. að stúdentar við Háskóla íslands eiga að njóta námslána þegar frá upphafi námsferils síns; 3. að taka á upp styrki til framhaldsnáms há- skólamenntaðs fólks; 4. að endurgreiðsla námslána á að hef jast lengri tíma eftir námslok en verið hefur; 5. að lagður er grundvöllur að víðtækri og sam- felldri gagnasöfnun um kjör námsmanna og námsaðstöðu. Framannefndar breytingar og aðrar breytingar, sem áformaðar eru, verður að telja mestu umbætur, sem til þessa hafa verið gerðar á fjárstuðningskerfi ríkisvaldsins við námsmenn. Því leyfir stjórn Heim- dallar, F.U.S., sér að beina þeirri áskorun til háttvirts Alþingis, að það veiti brautargengi þessu mikla hags- munamáli æskufólks og þjóðarinnar í heild. Til forseta sameinaðs Alþingis, Reykjavík. fyrst tekin til sérstakrar athug- unar: 1. Að stuðlað verði að því, að hvers konar aflaflutningar verði auknir, svo að vinnu- afl og mannvirki nýtist sem bezt, þrátt fyrir misjafna fiskigegnd á heimamið báta, og lög um Aflatryggingarsjóð verði endurskoðuð í því skyni að tryggja nauðsynlega aðstoð við útgerð á þeim stöðum, þar sem um almenn- 'an aflabrest er að ræða. 2. Að athugaðir ver’ði gaum- gæfilega möguleikar á sölu fullunninna iðnaðarvara úr landbúnaðar- og sjávarafurð- um í samvinnu við erlend stórfyrirtæki á heimsmarkaði, einkum þar sem torvelt er um markaðsöflun. 3. Að ýtarleg athugun fari fram á því, hvaða iðngrein- um henti bezt að koma á fót á þeim stöfðum, sem atvinnu- líf er of fábreytt. 4. Að aukin verði ríkisframlög til hafnargerða á útgerðar- stöðum, þar sem erfiðust er varpsins, að hraða uppsetningu endurvarpsstöðva á Norðurlandi svo sem nokkur kostur er á. Ályktun um menntamál Bygg'ðaþing ungra Sjálfstæð- ismanna háð á Akureyri 30. októ ber 1966, telur að aukinn hag- vöxtur þjóðarbúsins í framtíð- inni byggist að verulegu leyti á vaxandi hagnýtri menntun þjóðarinnar. Því beri að leggja aukið kapp á að afhæfa mennt- un æskunnar þeim kröfum, sem gerðar eru í nútíma þjóðfélagi til þroskaðra og ábyrgra borg- ara á sviði tækni, verkkunnáttu og almennrar þekkingar. Bendir þingið á eftirtalin höf- uðatriði, sem næstu aðkallandi verkefni: 1. Hraða’ð verði heildarendur- skoðun fræðslulaganna og á- kvorðun um skipulag fræðslu málanna í náinni framtið. 2. Hraðað verði samningu raun hæfrar áætlunar um fram- kvæmdir i skólamálum næsta áratuginn, sem miði að því að börn og unglingar hvar sem er á landinu geti notið Frá byggðaþinginu á Akureyri. Jónas Rafnar, alþingismaður, í ræðustól. tak í norðlenzkum byggðum og þá einkum einka- og félagsfram- tak, svo að atvinnulíf hvers og eins byggðarlags verði sem styrk ast og fjölbreyttast. Þingið skorar því æindregið á forystumenn í atvinnu- og sveit arstjórnarmálum á Norðurlandi, a’ð mynda með sér viðræðusam- tök um samræmda stefnu og hag kvæma verkaskiptingu milli byggðarlaga í atvinnumálum, svo að viðleitni hvers og eins til verðmætasköpunar verði sem arðvænlegust og hið aukna fjár- magn, sem veitt verður til fram kvæmda í sambandi við Norð- urlandsáætlunina, nýtist sem bezt. Þá vekur þingið sérstaka athygli á því, að í framhaldi af aðgerðum til aukins og fjölbreytt ara atvinnulífs á landsbyggð- inni, er nauðsynlegt að stefna að myndun annarrar borgar í land- inu. Bendir þingfð á margvís- lega kosti Akureyrar í því sam- bandi og leggur til að þessu atriði verði gerð rækileg skil í Norðurlandsáætluninni. Byggðaþingið beinir þeim til- mælum til Alþingis og ríkis- stjórnar, að eftirtalin atriði er varða atvinnu- og samgöngu- mál á Norðurlandi verði sem aðstaðan. 5. Að gerð verði átök við upp- byggingu fjölförnustu vega á Norðurlandi í framhaldi af gerð Múlavegar og Strákaveg ar. 6. Að hafizt verði handa sem fyrst um viðbótarvirkjun í Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu, jafnframt því sem ger’ðar verði aðrar þær ráðstafanir, sem tryggja næga raforku á Norðurlandi öllu. Byggðaþing ungra Sjálfstæðis- manna á Norðurlandi vekur athygli Norðlendinga á skelegg- um vinnubrögðum forystumanna Sjálfstæðisflokksins í málefnum fjórðungsins á síðasta kjörtima- bili á Alþingi og í ríkisstjórn. Tekizt hefur með raunsæjum að- gerðum, að leggja staðgóð drög a'ð stefnu vaxtar og alhliða upp byggingar, þrátt fyrir erfið ytri skilyrði. Þingið skorar á æsku- fói'k á Norðurlandi, að fylkja sér um slíka framtíðarstefnu og framkvæmd hennar — norð- lenzkum byggðum og þjóðinni allri til heilla. Ályktun um sjónvarpsmál Byggðaþing ungra Sjálfstæð- ismanna á Norðurlandi, háð á Akureyri 30. október 1966, skor- ar á ráðamenn íslenzka sjón- lögboðinnar kennslu við full- nægjandi skilyrði. Lögð verði áherzla á a'ð sameina núver- andi skólahverfi um vel bún-’ ar menntastofnanir. 3. Yfirstjórn fræðslumálanna verði færð í traustari skorð- ur, m.a. með því að setja á fót sérstaka deild er vinni stöðugt að rannsóknum á námsefni, kennslutækjum og kennslu og hafi afmarkaða aðstöðu til að koma nýtuna nýjungum á framfæri. 4. Vaxandi áherzla verði lögð á að auka félagsþroska nem- enda me'ð því að sinna i aukn- um mæli félagsmálum og tóm stundastarfi þeirra. 5. Miðáð verði að auknum tengslum milli menntunar og atvinnulífs og tillit verði tek- ið til menntunarþarfa innan einstakra atvinnugreina á víð tækari hátt en nú er gert. 6. Lögð verði aukin áherzla á það í skólum, að gera æsk- unni ljóst hlutverk þjóðfél- agsins og hvers virði sannur Islendingur er þjóð sinni. ís- lenzk æska eigi skyldur að rækja við þjóðfélagið, sem skap.ar henni sífellt meiri ' möguleika og batnandi lífs- kjör. Kjörorðið sé: Vel mennt að, starfsamt æskufólk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.