Morgunblaðið - 23.11.1966, Page 8

Morgunblaðið - 23.11.1966, Page 8
8 MORGUNSLAÐIÐ Miðvlkudagur 23. nov. 1966 ,Sárt ertu leikinn Sámur fóstri' Samtal við Valerij Berkov, dósent í forn- íslenzku við Háskólann í Leningrad „JÁ, ÞAÐ má nú segja, að þetta er undarlegt og skrýtiS Hér á íslandi gengur maður inn í bókabúðir til að kaupa bækur, og auðvitað eru það fslendingasögurnar, sem ætl- unin er að kaupa. Maður fer búð úr búð, en þær eru ail- staðar uppseldar. Hvílík býsn! Að lokum tókst mér þó að ná í þær í einni smábókabúð, og þó ekki allar. Auk þess hef ég kynnzt mörgum íslenzkum heimilum, og sögurnar eru alls staðar til“, sagði Valerij Berkov, sem er dósent í íslenzkum fræðum við Háskólann í Leningrad, við blaðamann Mbl., þegar hann ræddi við hann á dög- unum. Valerij Berkov er við- kunnanlegur maður, fæddur 1929 í Leningrad, sonur há- skólaprófessors í rússneskum bókmenntum. Berkov hefur fengizt við þýðingar á ís- i lenzkum bókmenntum, og m.a. þýtt Njálu á rússnesku. „Ég þýddi Njálu fyrir 10 árum, og rétt um það bil sá ég fyrstu lifandi íslending- ana, sem staddir voru með sendinefnd í Rússlandi. Merki legt þótti mér að finna, að þeir mundu jafnvel minnstu smáatriði úr Njálu rétt eins og þeir hefðu sjálfir lifað sög una. Man ég sérstaklega eftir því, að ég var staddur'með Benedikt heitnum Waage á knattspyrnuleik í borginni, á- samt fleiri íslendingum. Leik urinn var harður, og einn leik manna meiddist. Segi ég þá: „Sárt ertu leikinn, Sámur fóstri“, og man ég, hvað ís- lendingum fannst það eðlilegt, að ég skyldi þarna vitna í Njálu. Enginn varð hissa. Þetta virtist vera daglegt mál þeirra. Það var lengi draumur minn að skoða sögustaði Njálu, og nú átti sá draumur að rætast, en þá tókst ekki betur til en svo, þegar ég ók austur með Þorvaldi Þórarinssyni og Arna Böðvarssyni, gestgjafa mín- um, að slík úrhellisrigning var, að ekki sást neitt út úr augunum, og ekki bætti úr skák, að vinnukonurnar á bíln um voru bilaðar. Eitt sá ég þó, sem féll mér miður, og það Valerij Berkov. var auglýsing frá B.P. á skilt- inu hjá Bergþórshvoli. En þrátt fyrir þetta úrfelli, hef ég notið þessarar íslands- ferðar minnar mjög. Ég hef raunar verið á Islandi í hugar heimi mínum í mörg ár. Veðr ið var slæmt, en er þetta ekki líka stef íslands? íslands lag? Það er ekki alltaf vor. Það er líka skammdegi, og það er gaman að sjá þjóðina vinna, og það hef ég séð. Ég hef hitt marga menn að máli, hitt menntamálaráð- herra ykkar. íslendingar eru skemmtilega lausir við öll formsatriði. Þetta er strax öðruvísi í NoregL Faðir minn er prófessor í 18. aldar rússneskum bók- menntum, en konan mín er kennari í eðlisfræði og heitir Marina frá Ivanovov, en það er 200.000 manna borg, álíka mannmörg og allir íslending- ar. Við eigum tvær dætur, Olgu 11 ára og Önnu 6 ára“. „Hvenær og hvers vegna vaknaði áhugi yðar á íslenzk um bókmenntum?“ „Þegar stríðið hófst, varð mikil hungursneyð í Lenin- grad. Meðal annars dó föður- bróðir minn úr hungri. Þá vorum við flutt til Kirgísiu í Mið-Asíu, nálægt Úzbekistan. Og þar vaknaði áhugi minn fyrir tungumálum. Lagði ég aðallega stund á norsku og norskar bókmenntir, en að auki lagði ég svo stund á forn íslenzku. Að lokum vil ég nota tæki- færið og koma á framfæri beztu þökkum til allrá vina minna á íslandL sem gerðu mér þessa heimsókn ógleym- Og þá kvöddum við þennan anlega". Islandsvin og óskuðum hon- um fararheilla til síns heima- lands. — Fr. S. í \ Vilfa lá ábyrgðar skirleini og samninga NEYTENDASAMTÖKIN beina þeim tilmælum til fólks, að það sendi skrifstofu samtakanna ábyrgðarskírteini og samninga, sem ekki eru lengur í gildi, eða leyfa henni að taka ljósrit af þeim, sem í gildi eru. Er hér átt við samninga um kaup á vörum og þá sérstaklega kaup með af- borgunum. Að vísu eiga margir slíkir samningar, sem hér tíðk- ast, vart skilið nafnið „samning- ur“, þar sem einungis er um að ræða skyldur og kvaðir, sem kaupandi tekur á sig. Þá er oft heldur ekki um afborgunarkaup að ræða, þótt svo séu kölluð, þar sem kaupandi greiðir allt sölu- verðið með víxlum við móttöku vörunnar. Hallar alla jafna mjög á kaupendur, hvað efni og gerð samninga snertir, og þykir Neytendasamtökunum vera brýn nauðsyn á breytingum á þessum viðskiptaháttum í átt til jafn- vægis. Sem betur fer eru „samning- ar“ þessir ekki spegilmynd af hörku viðskiptalífsins, en eigi að síður gerir kaupandi með undir- skrift sinni sitt til þess að gera rétt sinn sem allra minnstan. Það hefur og getur komið sér illa fyrir margan. Neytendasamtök- in hafa sérstaklega brýnt þetta Blaðburðarfólk vantar í eftirtalin hverfi: Fossvogsblettur Hluti af Blesugróf Meðalholt Lambastaðahverfi Skerjaf. - sunnan fl. Sogavegur frá 72 Breðagerði Hraunteigur Seltjarnarnes — Skólabraut fyrir neytendum síðastliðið ár, skýrt þessi mál í Neytendablað- inu og dagblöðunum og munu halda áfram að gera það, en þau fá litlu um þokað án samstöðu neytenda og aukins skilnings á eigin réttL Athuganir og rannsóknir Neyt endasamtakanna á • ábyrgðar- skírteinum og afborgunarsamn- ingum hafa staðið yfir um all- langt skeið, enda er hér á marg- an hátt um flókin mál að ræða frá lagalegu sjónarmiðL Þeim kæmi það því vel, að sem flestir yrðu þeim að liði með því að afla þeim umbeðinna gagna. (Frá Neytendasamtökunum). Senda ekki full- trúa Stokkhólmi, 22. nóv. — AP TYÖ Arabalönd, Alsír og Egypta land, hafa tilkynnt Nóbelsnefnd inni í Stokkhólmi að þau muni ekki senda fulltrúa til þess að vera viðstaddir hina hátíðlegu afhendingu Nóbelsverðlauna, sem fram á að fara 10. des. nk — Meðal verðlaunahafa í ár eru rithöfundarnir Nelly Sachs, sem fæddist í Þýzkalandi en faefur búið í Svíþjóð síðan hún flúði þangað undan nazistum, og ísra elsmaðurinn Samuel Josef Agn- on. í STUnU IHÁLI Dallas, Texas, 18. nóv, AP. FORMAÐUR Bandarísku kjarn- orkunefndarinnar, Dr. Glenn T. Seaborg, hefur lýst því yfir, að „irrnan fárra ára“ muni Alþýðu- lýðveldið Kína hafa yfir að ráða fullkomum kjarnorkuvopnum. Höfum góða kaupendur að 2ja, 3ja, 4ra og 5 herb. íbúðum hæðum og einbýiishúsum. Til sölu m.a. 3ja herb. nýleg hæð á fögrum stað í Hvömmunum í Kópa- vogi. Bílskúrsréttur, góð kjör. 2ja herb. góð kjallaraíbúð við Hofteig. 2ja herb. góð kjallaraíbúð í Vesturborginni. Teppalögð með nýju baði. Útb. aðeins kr. 325 þús. 3ja herb. íbúðir við Hagamel, Reykjavíkurveg, Ránargötu, Kársnesbraut, Barmahlíð, Úthlíð, Sólheima, Mosgerði, Hjallaveg, Rauðarárstíg, Nökkvavog, Nesveg, Hring- braut, Skipasund, Hátún. 4ra herb. hæð við Ásvalla- götu. Laus nú þegar. Ódýrar 2ja—3ja herb. íbúðir með litlum útborgunum við Mosgerði, Fögrubrekku, — Laugaveg, Óðinsgötu, Nes- veg og Skipasund. 4 SMfÐUM 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir í Árbæjarhverfi. Glæsiieg einbýlishús í borg- AIMENNA FASTEIGHASALAN UNPARGATA 9 SlMI 2115P Fasteignasalan Hátúni 4 A, Nóatúnshúsið Sími 2-18-70 Til sölu m.a. 2ja herb. nýstandsettar íbúðir í Vesturborginni. 3ja herb. íbúð á 5. hæð í há- hýsi við Sólheima. 3ja herb. endaíbúð í Vestur- borginni. Laus nú þegar. 3ja herb. risíbúð við Mosgerði. Væg útborgun. Laus nú þegar. 3ja herb. efri hæð við Mjölnis- holt. Laus nú þegar. 3ja herb. ný íbúð við Hraun- bæ. 4ra herb. íbúð við Kapla- skjólsveg. 4ra herb. nýleg íbúð við Stóra gerði. 4ra herb. íbúð við Ásvalla- götu. Laus nú þegar. Hilmar Valdimarsson FasteignaviðskiptL Jón Bjarnason hæstaréttarlögmaður. Hestur í óskilum í Vatnsleysustrandarhreppi er í óskilum jarpur hestur, mark biti aftan hægra, blaðstýft aftan vinstra. Verði hestsins ekki vitjað innan 7 daga verð- ur hann seldur. HreppstjórL 3}a herb. ibúö í Laugarneshverfi Til sölu 3ja herb. íbúð á 1. hæð við Laugarnesveg. — íbúðin er mjög vel frá- gengin. Bað allt endurnýj- að, sjálfvirkar þvottavélar í kjallara, lóð frágengin og girt. Örstutt í verzlanir. íbúðin getur verið laus nú þegar. GÍSLI G ÍSLEIFSSON hæstaréttarlögmaður. JÓN L. BJARNASON FASTEIGN A VIÐ SKIPTI Hverfisgötu 18. Simar 14150 og 14160 Heimasími 40960. FASTEIGNASALAN GARÐASTRÆTI 17 Símar 24647 og 1522L 7/7 sölu 3ja herb. íbúð við Eskihlíð, laus strax. 4ra herb. nýleg vönduð íbúð við StóragerðL Einbýlishús í smíðum við Bræðratungu, teikningar til sýnis í skrifstofunnL Árni Guðjónsson* hrL Þorsteinn Geirsson, lögfr. Helgi Ólafsson, sölustjóri Kvöldsími 40647. Hæí á Melunum Til sölu er glæsileg efri hæð Melunum, 150 ferm. íbúðin afhendist því sem næst tilb. undir tréverk. Húsið ófrágengið að utan. Bílskúr einangraður og pússaður að innan með ísettri hurð. Ibúðin verður tilb. til afhendingar í byrj- un næsta árs. 2ja herb. íbúð á 2. hæð við Ljósheima. Ágætt útsýnL Iðnaðarhusnæði Höfum til sölu iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði 350 ferm. á 2. hæð við BolholL Skip & fasteignir Austurstræti 18 — Sími 21735 Eftir lokun 36329.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.