Morgunblaðið - 23.11.1966, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.11.1966, Blaðsíða 32
Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað 269. tbl. — Miðvikudagur 23. nóvember 1966 Lang stærsta og fjölbreyttasta blað landsins TWrH—WMT— ■■■ U Heildaraf linn 619.210 lestir Yfirlit Fiskifélags íslands um síldveiðarnar norðan lands og austan fyrir vikuna 13.-19. nóvember t VIKUBYRJUN var gott veður á miSunum og fengu þá mörg skip góSa veiSi 60—70 sjómílur ASA frá Dalatanga. Á þriSjudag var komin NA bræla meS snjó- komu á miSunum og engir bátar úti en á miSvikudag lygndi og fóru þá bátarnir aS tínast út og fengu margir góSa veiSi 60 sjóm. SA af Dalatanga, SíSdegis á fimmtudag hvessti af S og flest- ir bátanna fóru til lands, og til vikuloka var S stormur á miS- unum og allur flotinn í höfn. Margir bátar sigldu með afla sinn til Vestmannaeyja og hafna SV-lands í vikunni og nam sá afli 2.7S5 lestum. Ekki liggja endanlega fyrir töl ur um nýtingu aflans eftir verk- unaraðferðum, en reiknað er með að 80% aflans hafi farið til verk unar. Af aflanum var saltað í 5.100 tunnur og í frystingu hafa þá væntanlega farið 1.608 lestir og til bræðslu 402 lestir. Heildaraflinn, sem barst á land 1 vikunni nam 21.503 lestum, þar af fóru 1.961 lest í frystingu og saltað var í 8.913 tunnur. Heildaraflinn í vikulok var orð inn 619.210 lestir og skiptist þann ig eftir verkunaraðferðum: í frystingu 10.404 lestir. — 1 bræðslu 550.925 lestir; í salt 57.861. Auk þess hafa erl. skip landað 4.829 lestum hérlendis til vinnslu. Á sama tíma í fyrra nam heild araflinn 495.394 lestum og skipt ist þannig eftir verkunaraðferð- lun: í salt 56.647 lestir. í frystingu 3.964 lestir. í bræðslu 432.783. Helztu löndunarstaðir eru þessir: Lestir. Reykjavik 37.337 Bolungavík 6.850 Siglufjörður 25.268 Ólafsfjörður 6.607 Framhald á bls. 31 Fundur forsætisrúðherru verður í Kuupmunnuhöfn ehhi hér í BERLINSKE Tidende sunnu- daginn 20. nóvember er frétt um það, að forsætisráðherrafundur Norðurlanda verði haldinn í Kaupmannahöfn 30. nóvember, og 1. desember í stað þess, sem áður var ákveðið, en fundinn átti að halda í Reykjavík. f fréttinni segir ennfremur, að ástæðan fyrir þessari breytingu sé sú, að Harold Wilson hafi boðið forsætisráðherrum EfFTA- landanna til viðræðna um af- stöðu Breta, hinn 4. og 5. des- ember. f framhaldi af þessari frétt sneri Mbl. sér til Friðjóns Sig- urðssonar, skrifstofustjóra Al- þingis, og tjáði hann þvi, að þetta ráð hefði verið tekið, þar eð ellegar hefði þurft að stytta fundinn til muna. Bæði Erland- er, forsætisráðherra Svía og Borten, forsætisráðherra Norð- manna, munu sitja fund EFTA- landanna. Téhhhefti og stimplum stolið BROTIZT hefur verið inn á bæjarskrifstofur Kópavogs og stolið þaðan tékkhefti og stimplum, bæði frá bæjar- sjóði og gjaldkera. Það eru því tilmæli lögregl- unnar í Kópavogi, að fólk geri henni strax viðvart verði það vart við grunsamlegar ávísanir frá bæjaryfirvöldum Kópavogs. Afgreiðslu þotu Físeink- ar um mánuð — kemur til landsins i júni, i stað mai AFGREIÐSLU Boeing 727, þot- unnar, sem Flugfélag íslands hefur fest kaup á og jafnframt verður fyrsta þota í eigu íslend- inga, seinkar um einn mánuð. Kemur þotan ekki til landsins fyrr en seinni hluta júnimánað- ar, en gert hafði verið ráð fyrir, að hún kæmi mánuði fyrr, eða í seinni hluta maí. Mun þotan þvi ekki hefja reglulegt milli- landaflug fyrr en í byrjun júlí- mánaðar. Blaðamaður Mbl. náði tali af Missti minnið í slysi FIMMTÍU og þriggja ára gömul kona varð í gærdag, um kl. 16:45 fyrir lítilli bifreið af Volkswag- en-gerð, í Tryggvagötu, skammt fyrir vestan Grófina. Slysið varð með þeim hætti, að konan var að koma út úr porti við verzlun Björns Krist- jánssonar og gekk út á götuna milli bifreiða, sem stóðu við gangstéttarbrúnina. Bifreiðin var á leið vestur Tryggvagötu og ók hún á konuna. Rigning var og götur votar. Konan var í fyrstu flutt á Slysavarðstofuna og síðan í Landakotsspítala, ekki vegna þess, hve á henni sáust mikil meiðsli, heldur vegna þess, að hún hafði misst minnið við á- reksturinn, að því er rannsókn- arlögreglan tjáði Mbl. í gær. Sveini Sæmundssyni, blaðafull- trúa Flugfélags íslands, í gær- kvöldi, og sagði hann aðspurður, að ástæðan fyrir þessari seink- un á afgreiðslu þötunnar væri sú, að fyrirtækið Pratt & Withn- ey, sem framleiðir hreyflana í Boeing 727 fyrir Boeing verk- smiðjurnar, verður að afgreiða pantanir bandaríska flughersins áður en leyfilegt er að snúa sér að framleiðslu uppí aðrar pant- anir. Nýtur bandaríski flugher- inn þessara forgönguréttinda vegna stríðsins í Viet-Nam. Hef ur einnig seinkað afgreiðslu véla til þeirra flugfélaga, sem pantað Iháfa Douglas DC-9 þot- ur, en hreyflar þeirra eru einnig framleiddar af Pratt & Whitney og eru af sömu gerð og hreyflar Boeing 727. Dagana 3.—4. nóv. var hald- inn í Stokkhólmi fundur blaða- fulltrúa og kynningarstarfsemi ráðgjafa Alþjóðasambands flug- félaga (IATA), Evrópudeildar. Sveinn Sæmundsson sat fundinn af hálfu Flugfélags íslands, en alls sátu fundinn fulltrúar 17 evrópskra flugfélaga. Sagði Sveinn, að á' fundinum hefði komið í Ijós, að mörg þau félög, er pantað höfðu bandarískar þotur, hefðu þurft að horfast í augu við seinkun á afgreiðslu þeirra. Meðal þessara flugfélaga eru SAS. KLM, og SWISSAIR. Framhald á bls. 3-1 Rússar selja okkur ben zín með oktantölu 93 RÚSSAR hafa nú fallizt á að selja Islendingum benzín með oktantölunni 93 í stað benzíns Hæsta síldveiðiskipið, Gísli Árni, mei 11.405 lestir Samkvæmt þeim upplýsingum sem Fiskifélaginu hafa borizt eru 185 skip búin að fá einhvern afla á síldveiðunum norðanlands og austan, þar af eru 26 skip með 6000 lestir eða meira og fylgir hér með skrá yfir þau skip. NÖFN LESTIR Arnar, Reykjavík 6.294 Asbjörn, Reykjavík 6.727 Barði, Neskaupstað 6.588 Bjartur, Neskaupstað 6.708 Dagfari, Húsavik 7.714 Gísli Árni, Reykjavík 11.405 Guðm. Péturs, Bolungavík 6.049 Gullberg, Seyðisfirði 6.016 Gullver, Seyðisfirði 6.184 Hannes Hafstein, Dalvík 6.979 Heimir, Stöðvarfirði 6.135 Helga Guöm.d. Patreksf. 7.051 j Ingiber Ólafs. Y.-Njarðvík 7.253 I Jón Garðar, Garði 8.568 ] Jón Kjartansson, Eskifirði 9.520 Jörundur II. Reykjavík 6.525 Jörundur III., Reykjavík 6.688 Lómur, Keflavík 7.379 Óskar Halldórss. Reykjav. 6.428 Reykjaborg, Reykjavík 6.093 Seley, Eskifirði 6.812 Sigurður Bjarnas. Akureyri 6.901 Snæfell, Akureyri 6.242 Þórður Jónasson, Akureyri 7.729 - Þorsteinn, Reykjavík 6.832 I Örn, Reykjavík 6.025 að styrkleika 87, sem hér hefur verið á markaðinum á undan- förnum árum. Upiplýsingar þessar fékk MbL h-já Hallgrími Fr. Hallgrómssynk forstjóra Olíufélagsins Skelj- ungs, og sagði hann j.afnframt að samningar væru langt komn- ir, en íslenzk sendinefnd er nú í Moskv-u. Taldi Hallgrímur, að benaínið með oktantölunni 93, myndi fullnœgja flestum kröf- •um um a-flmeira benzín. • UTFÖR Steingríms Steinþórs- 3 ; sonar, fyrrum forsætisráð- j : herra var gerð í gær. Mikill X ■ mannf jöldi var við útförina 5 ; og jarðsöng séra Arngrímur ; ■ Jónsson. Lögregluþjónar stóðu 5 ; heiðursvörð utan dyra. — J > Myndin er tekin við útförina S ■ í gær. 14000 kr. stolið f fyrradag var brotizt inn f hús á Laugavegi 42 og stolið þaðan litlum peningakassa með 10 þúsund krónum í peningum og ávísun að upphæð 4000 krón- ur. Eigandi kassans varð ekki stuldsins var, fyrr en í gær og tilkynnti hann þá rannsóknar- lögreglunni hann þegar í stað, en þá hafði ávísunin verið inn- leyst í banka. Málið er í ra-nn- sókn. Dregið i gær DREGIÐ var í gærkvöldi 1 Landshappdrætti Sjálfstæðis- flokksins hjá borgarfógeta i Reykjavík. Sökum þess, að ekki hafa enn borizt fullnaðarskil utan af landi verður ekki unnt að birta vinningsnúmer, fyrr en á laug- ardag. 3000 seiðum stolið AÐFARAN ÓTT mánudags var stolið úr laxaeldisstöð Veiðifé- lags Árnesinga laxaseiðum 3000 - að tölu, að því er talið er. Laxa i eldisstöð þessi er við Steingríms I stöð, einni af Sogsstöðvunum. í Hér er um að ræða ársgömul seiði. Lögreglan á Selfossi biður alla þá, er kunna að hafa orðið var- ir mannaferða á þessum slóðum umrædda nótt eða orðið ein- hvers grunsamlegs varir að gera sér viðvart þegar í stað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.