Morgunblaðið - 23.11.1966, Qupperneq 20
\
MORGUN B LAÐtÐ
Miðvikudagur 23. nóv. 1966
Sveinn Sveinsson
Felli — Minning
Fæddur: 9. maí 1891.
Dáinn: 17. nóvember 1966.
SVEINN Sveinsson, var sonur
hjónanna, Sveins Árnasonar,
hreppstjóra í Felli í Sléttuhlíð
og íyrri konu hans, Jórunnar S.
Sæmundsdóttur. Hjón þessi voru
komin af mjög kunnum og merk
um ættum. Sveinn Árnason,
hreppstjóri í Felli, var af Dala-
ætt. Hún er kennd við Dalabæ,
sem var staðsettur yzt á nesinu,
milli Fljótavíkur og Siglufjarð-
ar. Margir af þessari ætt voru
©rðlagðir fyrir dugnað á sjó og
landi, einkum þó á sjö. Jórunn
Sæmundsdóttir, móðir Sveins
Sveinssonar, var afkomandi
Finns Jónssonar, biskups í Skál-
holti og Jóns Teitssonar, biskups
á Hólum. Margrét dóttir Finns
biskups var eins og kunnugt er,
gift Jóni Teitssyni, biskupi á Hól
lira.
Margir af þessari ætt, eru fræg
ir fyrir fræðilega vísindaiðkan-
ir og hagsýni í fjármálum, og
má, í því sambandi nefna, þá
prófessor Sigurð Nordal og Jón
I>orláksson, fyrrum ráðherra.
Sveinn Sveinsson fór ungur að
heiman og stundaði ýmiskonar
störf og nám, lauk, meðal annars,
námi við bændaskólann að Hól-
um í Hjaltadal. Fljótlega tók
hann að gefa sig að bátasmíði,
fiskveiðum og útgerð. Hann
stundaði, um skeið, fiskveiðar og
útgerð frá Vestmannaeyjum. Um
eða laust fyrir 1930 fluttist hann
til ísafjarðar og átti þar síðan
heimili til dauðadags. Þar stund
aði hann fiskveiðar og útgerð.
Sveinn mun vera einn af þeim
fyrstu, sem byrjuðu rækjuveið-
ar, hér við land.
Sveinn var alla tíð, mikill á-
kafa- og dugnaðarmaður, en nokk
úð dulur og hlédrægur. Hann gat
stundum verið dálítið neyðarleg-
ur í tilsvörum, en einn hinn
mesti drengskaparmaður, ef á
þurfti að halda,
Allan fyrri hluta ævinnar, var
hann mjög heilsuhraustur, en
síðustu fimm árin hefur heilsu
hans farið síhnignadi, og mun
hann hafa verið orðinn feginn
hvíldinni og þráð hana.
Segja má, að Sveinn hafi ver-
ið orðinn svo rótfastur á Isafirði,
að hann gat ekki hugsað sér að
dvelja annars staðar, og svo mik
inn hlýhug bar hann til ísafjarð-
ar og fólksins, sem á þar heima,
að því verður naumast með orð
um lýst. Það verður því að telj-
ast lán í óláni, að hann fær að
njóta þar hinnar hinztu hvíldar.
Fáll Sigurðsson.
t
ÞAÐ ER vandasamt að skrifa
um líf annarra, líf, sem við höf-
um sjálf ekki lifað, spor, sem við
ekki stigum. Það er líkast því
að reikna dæmi með svo mörg-
um óþekktum stærðum, að útkom
an getur ekki byggzt á öðru en
líkum, hugarburði og ímyndun
og verður kannski þar að auki
breytileg eftir því sem við upp-
götvum fleiri hliðar á þeirri
persónu, sem dæmið táknar.
Frændi minn var mér slíkt
dæmi.
Fyrst aðeins nafn, Sveinn, bú-
settur í fjarlægum firði, í ein-
hverjum tengslum við báta. Svo
hitti ég hann einn dag. Hann
var þá maður um fimmtugt, frem
ur lágvaxinn, þrekinn og traust-
ur, minnti á klett, sem stendur
íast skorðaður í íslenzkri mold,
klett sem veitir skjól. Hann hló
við mér og skyndilega fann ég
að tilveran var dálítið skopleg,
ekki bara ég og hann, heldur
lika allir hinir og heimurinn yfir
leitt. Og mér fannst ég alltaf
hafa þekkt hann.
Árin liðu og hann var áfram
nafn í fjarlægum firði, en nú
gæddur traustleika og kímni.
Svo einn dag á jölaföstu stóð
hann í stofunni minni. Hann
hafði horazt, en brosið var ó-
breytt. Þegar hann fór var kom-
ið kvöld og úti var stormur,
KING COTTON
er eftirsóttasta skyrtan á heimsmarkaðinum.
JÓLA-SKYRTAN í ÁR
kuldi og hríð. Ég bauðst til að
hringja í leigubíl, en hann var
fljótur að koma mér í skilning
um það, að peningum ætti ekki
að fleygja í óþarfa. Svo þrýsti
hann einhverju í hönd mína og
sagði: — Hana, skiptu þessu
milli barnanna. Hann hvarf út í
sortann, en ég stóð eftir með pen
ingaupphæð, sem nægt hefði fyr
ir leigubíl til Skagafjarðar.
Hann varð alvarlega veikur
skömmu síðar og gekk undir upp
skurð, sem heppnaðist vel og
hann náði sæmilegri heilsu. Um
þetta leyti sá ég hann frá enn
einni hlið. Hljóðlátt kvöld sat ég
við hvílu hans og hann sagði
mér frá bernsku sinni, sem virt-
ist honum undarlega nálæg, eins
og manndómsárin með amstri
sínu og önn hefðu liðið án þess
að skilja eftir nokkur spor í huga
hans. Þá fann ég hann í orðun-
um, sem hann ekki sagði, móður-
lausan dreng, kaldan og sárfætt-
an á hlaupum kringum kvíaær.
Dreng, sem lærði þá hörðu lexíu,
að söknuður verður ekki látinn i
askana.
Hann fór aftur til ísafjarðar,
en á þessu ári tók heilsunni aft-
ur að hraka og fyrir nokkrum
dögum heyrði ég lát hans. Ég sat
lengi eftir að ég hafði lagt sím-
tólið á og horfði á þá einu mynd
af honum, sem eftir var í hugan-
um. Við höfðum verið í veizlu
skömmu áður en hann fór til fsa-
íjarðar í síðasta sinn og seint um
kvöldið, skömmu fýrir heimferð-
artíma settist ég við hlið hans.
Þá fann ég, að hann var gamall,
þreyttur, sjúkur — og einn. Og
það var eins og öll minningin
um hann safnaðist í einn brenni
punkt: Hvers vegna settist ég
ekki hjá honum fyrr? Því að
hann hafði verið mér eins og
blóm, sem gefur með því einu að
vera til.
Jódís Jónsdóttir.
Stjórnarkreppan
í Hollandi leyst
Haag, Hollandi, 21. nóv.
— NTB
STJÓRNARKREPPAN í Hol-
landi, sem staðið hefur í fimm
vikur, Ieystist í dag. Tilkynnti
fyrrum fjármálaráðherra, Jelle
Zijistra drottningunni, Júlíönu,
að viðræður við stjórnmálaleið-
toga landsins hefðu leitt í ljós,
að hann gæti myndað stjórn, —
bráðabirgðastjórn, sem fær það
verkefni fyrst og fremst að und-
irbúa og sjá um kosningarnar,
sem fyrirhugaðar eru 8. febrúar
nk.
Zijlstra, sem er 48 ára prófess
or og nýskipaður forseti hol-
lenzka landsbankans, er þriðji
stjórnmálaforinginn, sem reynir
stjórnarmyndun frá því stjórn
Josephs Cals féll 14. október
vegna óánægju með fjárlaga-
frumvarp hennar.
Hefur Zijlstra átt ýtarlegar
viðræður við fulltrúa stjórn-
málaflokka kaþólskra og lúth-
erskra og tryggt sér stuðning
meirihluta þingmanna við þá
stjórn, er hann hyggst skipa.
Að sögn AFP fréttastofunnar
frönsku eru margir ráðherrar
stjórnar Josephs Cals í stjórn
Zijlstra, m.a. Josef Luns utan-
ríkisráðherra, Piet de Jong,
landvarnaráðherra og Barend
Bieheuvel, landbúnaðar- og fiski
málaráðherra. Zijlstra mun sjálf
ur gegna embætti fjármálaráð-
herra.
Mikilsvert er talið, að þessi
stjórnarmyndun Zijlstra gefi
góða raun. Hann hefur sem for-
seti landsbankans unnið að þvl
að undirbúa ýmis áform til þesa
að koma á jafnvægi í efnahags-
málum og vinna gegn verðbólgu
aukningu en til þess að hrinda
þessum áformum í framkvæmd
þarf hann að hafa að baki meiri
hluta á þingL
— Rauðu
Framhald af bls. 12
ýmsu deildum hersins, og
menntastofnunum.
Þá segir fréttamaður „Tan-
jug“, að í yfirlýsingu miðstjórn-
arinnar sé látið að því liggja,
að „vissir aðilar“ innan hennar
sjálfrar hafi hvatt hina „sér-
stöku hópa“ til þess að ráðast á
ýmsa þá, er ekki hafi til þess
unnið.
Loks segir Tanjug þær fregn-
’ir síðastar af menningarbylt-
ingu Rauðu varðliðanna, að
fjöldi ungmenna hafi efnt tii
mótmælaaðgerða við sendiráð
Ungverjalands í Peking — vegna
þess, að ungverska stjórnin
hefði rekið kínverska stúdenta
frá Ungverjalandi. Þá höfðu
varðliðarnir í dag komið upp
slagorðaspjöldum, þar sem ráð.
izt var á ungverska og búlgarska
endurskoðunarsinna.
Kemur í
nóvember
k’ rægasta
órsxns