Morgunblaðið - 24.11.1966, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.11.1966, Blaðsíða 4
4 MORCUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 24. nóv. 1966 BÍLALEICAN FERÐ SÍMI 34406 Daggjöld kr. 300,00 og kr. 2,50 á ekinn km. SENDUM MAGINiÚSAR SKIPHOLTI21 SÍMAR2H90 eftir lokun simi 40381 Hverfisgötu 103. Daggjald 300 og 3 kr. ekinn km. Benzín innifalið. Sími eftir lokun 31100. LITLA Mluleigan Ingólfsstræti 11. Sóiarhringsgjald kr. 300,00 Kr. 2,50 ekinn kílómeter. Benzín innifalið í leigugjaldi Sími 14970 BÍIABLEIGAM VAKUR Sundlau^aveg 12. Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. BILALEIGA S/A CONSUL CORTINA Sími 10586. RAUOARÁRSTÍG 31 SÍMI 22 0 22*' i Húseigendaféiag Reykjavíkur Skrifstofa á Bergstaðastr. lla. Sími 15659. Opið kl. 5—7 alla virka daga nema laugardaga. Fjaðrir, fjaðrablöð. hljóðkútar púströr o.fl. varahlutir í margar gerðir bifreiða. Bílavörubúðin f'JÖÐRIN Laugavegi 168. — Sími 24180. A.E.G. HÁRÞURRKUR, 2 gerðir. BRAUÐRISTAR, 2 gerðir. K AFFIK V ARNIR STRAUJÁRN Br. Ormsson hf. Lágmúla 9. Sundlaugarnar Stefán Einarsson skrifar: „Aif hiverju kemur kvefið og hóstinn? Það kemur af leti og því er nú ver, kvað Guð- mundur gamli landlæknir. Á sömu skoðun virðist hinn vitri Vilmundur, fyrrverandi land- læknir, vera. Nú hef ég aldrei verið latur maður, fékk jafnvel verðlaun fyrir iðni og siðprýði í Menntaskólanum. Ég hefði því átt að vera kveflaus alla ævi, en það er öðru nær. Ég hef haft minn skerf af kvefi og inflúensu eins og aðrir menn, þar til ég fór að ganga að sta'ð- aldri í laugarnar annan hvern dag (einn fer fjórum sinnum í viku, en þrem sinnum væri kannski nóg). Til allrar bölv- unar munu prófessorar og lækn ar við Landsspítalann sízt vera betur upplýstir en landlæknir og er það að vonum, því eftir höfðinu dansa limirnir. Ef Ein- ar ríki kæmi í laugarnar mynd- um við laugarmenn fá hann til að múta öllum nef-, háls- og eymalæknum í Reykjavík, til að senda kvefsjúklinga í Reykja vík í laugarnar, en því miður kemur hann ekki í laugarnar. Þetta er eins einfalt mál og það að menn fái ekki sullaveiki, ef menn eta ekki bandorminn ofan í sig. Menn fá ekki barna- veiki, ef menn eru bólusettir við henni. Menn fá ekki kvef eða inflúensu, ef menn fara í laugar. Einn er sá sjúkdómur, sem ekki þarf að auglýsa í sam- bandi við laugarnar því allir menn vita um hann nú og nota sér laugarnar skynsamlega. Það er gigt og taugagigt. Hitt vita sárafáir, að ég læknaðist af ó- læknandi sjúkdómi, chorea, þar e'ð þessi sjúkdómur er svo sjáldgæfur hér á landi, að senni lega er ekkert tilfelli hér á landi síðan faðir minn dió. En ég læknaðist af fleiru. Ég lækn- aðist af hæðslu (fobiu) við það að koma ekki verkum mínum af. Og hvað margir fslendingar eru ekki hræddir við eitthvað? í gamla daga var myrkhræðsl- an verst. En varla verður nú mikið úr henni í ljósadýrðinni í Reykjavúk. Þó hafa Reykvík- ingar margt að óttast og það með rökum, t.d. a'ð fara yfir götu í bílaumferðinni. En til er margur rakalaus ótti, til dæmis að geta ekki verið einn í húsi eða herbergi eða. haldið að ver- ið sé að loka mann inni. Þess- um mönnum gæti varla versn- að við að fara í laugar og væri reynandi að reyna þær um ■hálfs árs tíma. Ég veit um menn, sem hafa læknað sig af brjósklausum hrygg með því að fara í laugar. Er nú bezt að koma að gle'ði- boðskap borgarstjóra. Hann segir að við megum hafa gömlu laugarnar, ef hann fær nóg vatn í hinar monumentölu nýju laugar sínar. En nú taka þær ekki alla Reykvíkinga, ef lækn- um skyldi nokkurn tíma detta í hug að senda menn í laug- arnar 1 stað þess að segja mönn um að vera heima og liggja úr sér kvefið. Við þessu er ekkert annað ráð en að stækka gömlu laugarnar smám saman og yrði þá að byrja á því að moka skít- inn undan gömlu laugunum. Mér hefur skilizt að sænskt tré- plast væri bæði hentugt og ó- dýrt efni, til a'ð byggja gömlu og nýju laugarnar úr, en á því hefur borgarverkfræðingur betra vit. En þó vil ég biðja hann að hlífa okkur við efni, er stingi í stúf við gömlu laug- arnar. Og vonandi fáum við að ‘hafa, okkar samastað þar. Það var Jón Pálsson sund- kennari, sem sagði mér frá lækningamætti laugavatnsins, en Þorkell gamli Þorkelsson fann fyrstur manna út um radium í laugarvatninu og slý- inu. Þýzkir vísindamenn stað- festu þetta og amerískir vís- indamenn á stríðsárunum. Hin- ar miklu laugar verða borgar- stjóranum sjálfum til maklegr- ar virðingar. Hinar kveflausu kynslóðir Reykvíkinga munu blessa hann fyrir þær gömlu og nýju. í gamla daga fóru krakkar í feluleik í slýinu. Von andi fá þeir að gera það í þeim gömlú oig nýju. Stefán Einarsson'*. Af gefnu tilefni Guðrún Jacobsen skrifar: „Stundum þegar ég hlusta á þáttinn Um daginn og veg- inn, er ég í vafa um hvort flytj- andi þáttarins geri sér grein fyrir því viö hvern eða hverja hann er að tala. Það vill nú svo vel til að þjóðfélagið samanstendur ekki af eintómum andlausum og ó- lesnum ösnum. I landinu er líka talsverður slatti af mann- eskjum, sem lifa ekki aðeins fyrir munn og maga heldur gefa sér tíma til þrátt fyrir eril dags ins að lesa blöðin og fylgjast að öðru leyti með því sem er að ske í mannlífinu. Vissulega er allt í la-gi þótt flytjandi þáttarins rabbi um veðráttuna og hefji jafnvel mál sitt á þennari hátt: Nú haustar að. ... Þá er vetur konungur geng- inn í garð. . . . Lóan er komin,- Drepi síðan á að síldin sé komin eða hún sé ekki komin og handritin séu á lei'ðinni heim. Þá eru semsagt asnarnir bún- ir að fá sitt. En hvað fáum við hin? Hreint ekkert! Og nú. vil ég spyrja eins og pólitíkusárnir í Velvakanda Morgun'blaðsins: Hvar er hlutleysi Ríkisút- varpsins? Hvergi bryddir á hugleið- ingu sem nær út fyrir hina vanabundnu hringrás — frum- saminni hugsun eða nýjum orðasamböndum — ég minnist nú ekki á heimatilbúna orðs- kviði. Oft endar svo velvekjandi þáttarins mál sitt með þessari gamalkunnu málsetningu Slysa varnarfélagsins: Tökum höndum saman til að forðast bifreiðaslysin. Það er einmitt þessi aðvörun sem er tilefni þessa greinar- korns. Og nú vil ég segja við alla fórstjórana sem alltaf eru að tala um Daginn og veginn. Viljið þi'ð nú ekki sjálfir ríða á vaðið til að forðast bílslysin? En ég er aldeilis hreint orðin gáttuð á að horfa uppá alla þessa forstjóraglás hér í Vestur bænum — Austuribœingar geta svarað fyrir sig sjálfir — aka í þessum plássfreku véltækjum sínum hvern blíðviðrisdaginn eftir annan mánuð eftir tmánuð, ár eftir ár þá fimm mínútna stúnd sem það tekur fyrír þá að rölta til fyrirtækja sinna hérna í Miðbænum, Burtséð frá því hve göngu- túrar nokkrum sinnum á dag háfa heillavænleg áhrif á vaxt- arlag of feitra manna og væru- kæra heila, myndum við vesal- ingarnir, sem alltaf óttumst að vera keyi’ð í ; klessu, loksins þora að hætta okkur yfir Hring brautina. G. Jaoobsen“. ^ Hitaveitan „Neyðarástand ríkir I hitaveitumálunum. Ekki dropi af vatni eftir kl. 12, í sem sagt frostlausu veðri. Þetta er mál málanna fyrir íbúa gamla bæj- arins. Þetta er á ákaflega stóru sv-æði. Hvað er hægt að gera til úrbóta? Kjartan Ólafsson, Baldursgötu 22". Stuttir og síðir sðmkvæmiskjólar Fyrir 1 .desember. — Ný sending: Jólaföt á drengina 4 — 10 ára Rauðir jakkar, dökkar buxur. Bláir jakkar, gráar buxur. Glæsilegur jólabúningur. * Verzltm O.L. Traðarkotssundi 3. (Á móti Þjóðleikhúsinu). Domus Medica Egilsgötu 3. Nýkomnir í mjög fallegum gerðum franskir barnakuldaskór í nr. 22—39. Varizt umferðarþrengslin í Miðborginni. ATH.: Alltaf næg bílastæði. Ballettskór og búningar Amerískir, enskir, danskir. SOKKABUXUR, bleikar. NET- SOKKABUXUR, svartar. U E R Z t U N I N BRÆ'ÐRABORGARSTIG 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.