Morgunblaðið - 24.11.1966, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 24.11.1966, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 24 n8v. 1966 MORCU N BLAÐIÐ 19 Þurtiir Siiiiiiis- dóttir Mmmngarorð Fædd 28. maí 1877 Dáin 16. nóv. 1966 ÞURÉÐUR Sigmundsdóttir, sem lengst ævinnar bjó á Njálsgötu 55 hér í bæ, lézt að hjúikrunar- deild Hrafnistu þann 16. þ.m. fullra 89 ára. 'Hún var fædd 28. maí, 1877 að Nefsholti í Holtum. Foreldrar ihennar voru þau hjónin Guðríð- ur Ólafsdóttir frá Árgilsstöðum í Hvol'hreppi og Sigmundur Jónsson frá Sigluvík í Landeyj- um. Var Œmríður elzt þriggja systkina og er aðeins eitt þeirra á lífi, Þorbörg Sigmundsdóttir, sem nú dvelst á Elliheimilinu Grund. Þegar Þuríður var 5 ára flutt- ust foreldrar hennar búferlum að Hrúðunesi í Leiru og ólst hún þar upp. Dvaldi hún á heimili foreldra sinna til 18 ára aldurs, en þá giftist hún Jóhanni Sig- mundssyni frá Álftárósi á Mýr- um. Byrjuðu þau búskap í Leir- unni og bjuggu í Grænagarði. Stundaði Jó'hann aðallega sjó- sókn. Árið 1907 fluttu þau til Reykja víkur og ári síðar að Njálsgötu 55, þar sem Þuríður bjó síðan Ihátt á sjötta áratug, eða þar til nú fyrir hálfu þriðja ári, að hún fluttist að Hrafnistu. Þar dvaldi Ihún síðan til dauðadags, að mestu í rúminu. Naut hún þar hinnar beztu aðhlynningar, sem hugsast getur. Þau Þuríður og Sigmundur eignuðust 7 börn, eina dóttur og 6 syni. Tveir drengjanna dóu ungir. Hinir eru á lífi og eru þeir: Sigmundur Jóhannsson, verzlunarmaður, Pétur Jóhanns- son, framkvæmdastjóri, Guð- mundur Jóhannsson fyrrv. skip- stjóri í Boston, nú í Florida, og Ólafur Jóhannsson, laeknir, sem er yngstur þeirra bræðra. Auk barna sinna ólu þau upp einn fósturson, sonarson sinn, Einar Guðmundsson. Dóttir þeirra, Steinunn Mýrdal, dáin 1943, var gift Sigurjóni Mýrdal, skipstjóra á togaranum Ólafi, sem fórst, með allri á'höfn 1938. Þuríður missti mann sinn 1926. Lengstum hafði hann Btundað sjómennsku. Var hann einn af stofnendum Sjómanna- félags Reykjavíkur, enda jafnan mikill áhugamaður um félags- mál og hugsjónamaður. Var hann vel gefinn og drengur góð- ur. Um það leyti að Ólafur var í Menntaskólanum voru margir bekkjabræðra hans tíðir gestir á Njálsgötunni hjá Þuríði. Þótti öllum gott þangað að koma og þar að dvelja. Var Þuríður veit- ul og hændi alla að sér með hjartahlýju sinni og glaðlegu viðmóti. Sumir dvöldu nokkrar nætur eða tímum saman. Mér var hún um ára'bil sem bezta injðir. Þuríður Sigmundsdóttir var mikil dugnaðarkona, kappsöm og fylgin sér, og skapmikil átti hún til að vera. Notaði hún jafn- an hæfileka sína í þágu annarra, enda þótti þeim málum vel borg jð, er hún tók að sér og nutu þess margir. Er það með ólíkind um, hversu miklu hún fékk áorkað. Verða menn þá að hafa í huga, að hér var á ferðinni fátæk kona, sem bjó lengstum við fremur þröngan kost og í þröngum húsakynnum. Þó innti hún af höndum störf, sem ýmsar opinberar stofnanir sinna nú, en engir einstaklingar. Heimili hennar var löngum eins konar sj úkrahús eða hressingarhæli. Þangað kom fólk fárveikt og lá þar lon og don, stundum þangað til það dó. Það fékk ekki inni í sjúkrahúsi, því sjúkrahús voru ekki til, nema gamli Landakots- spítalinn, sem rúmaði fæsta af þeim, sem þangað þurftu að kom ast. Öllu þessu fólki hjúkraði Þuríður, ékki með hangandi hendi, heldur af alúð og hjarta- gæzku og glaðværð, því hjarta- gæzka og glaðværð voru auð- æfi hennar. Ekki var það til siðs á heimilinu að spyrja stjúkl- inga, hvort þeir gætu borgað. Þeir sem efni höfðu á hafa sjálfsagt greitt eitthvað fyrir sig. En ef menn gátu ekki borg- að, nú þá það. Öllum var heimil vistin meðan einhverjum var hægt að hola niður. Og það var undravert, hve margir komust fyrir í ekki stærra húsi. Þótti húsfreyju ekki annað sjálfsagð- ara en ganga úr rúmi og sofa í flatsæng, ýmist á eldhúsgólfi eða uppi í geymslulofti. Og eftir að tímar breyttust og orfcá hennar þvarr, þá hætti hún samt ekki að ala önn fyrir sjúku fólki. Oft komu þá menn til hennar í von- leysi sína vegna þéss að þeir fengu ekki bata hjá læknum við meinsemdum, sem þeir þjáð- ust af. Þuríður lét þá hafá grasa- seyði, sem hún gerði sjálf, eink- um úr sérstakri tegund af mosa. Taldi hún ekki eftir sér að fara langar leiðir til þess að afla sér hans, ef það mætti verða til þess að einhverjum svíaði. Auk þessa var Þuríður oft að sinna alls konar erindrekstri fyrir fólk innan bæjar og út um land, því hún þekkti ótrúlega marga og fjöldi fólks þekkti til hennar af afspurn. Þurfti hún þá að leysa af hendi verk, sem vinnumiðlunarskrifstofur sinna nú. Til dæmis að útvega mönn- um verkafólk, sveitastúlku í vist hér í bænum ellegar þá snúning eða vormann fyrir eitt- ihvert sveitaheimili. Og alltaf var Þuríður boðin og búinn að gera sitt ýtrasta. Henni fannst það skylda sín að hjálpa fólki, sem væri kannski í vandræðum, þótt hún þekfcti sáralítið til þess. Hún var óðar búinn að setja sig í fótspor þess og fannst ekkert eðlilega en eyða tíma sín- um og lífsorku til þess að hjálpa því. Það þykir ekki hlýða að hafa minningargreinar langar. Svo ég verð líklega að slá botninn í þetta, því mér er ljóst, að langt mál þyrfti til þess að gera nú- tímafólki skiljanlegt lífsv.iðhorf Þuríðar Sigmundsdóttur og ævi- starf. Fyrir það hlaut hún ekki digra sjóði hér í heimi. Kannski hlýtur hún þá nú. Ég votta sonum hennar, tengdadætrum og afkomendum einlæga samúð mína. Útför Þuríðar fer fram frá Dómkirkjunni í dag. Blessuð sé minning hennar. Eiríkur Sigurbergssou f DAG verður til moldar bor- in frú Þuríður Sigmundsdóttir, er lengst átti heima að Njáls- götu 55 hér í bæ. Mér komu í hug, er ég frétti andlát hennar, þessi orð Ritn- ingarinnar; „Varðveit hjarta þitt framar öllu öðru, því að þar eru uppsprettur lífsins". En frú Þuríði var fleira gefið til varðveizlu en sitt hlýja og örláta Framhald á bls. 17 ElnsöngsBðg eftir Eyþór Stefánsson, m.a. nýtt lag, Sólsetursljóð, fást 1 Hljóðfæraverzlun Poul Bernburgs, Vitastíg 10. Baðherbergisskápar Fallegir og nýtízkulegir. Fjölbreytt úrval. Laugavegi 15. Símar 1-3333 og 1-9635 Vörumarkaður Nú eru aðeins tveir söludagar eftir í Listamannaskálanum. Mikið úrval af mjög ódýrum vörum, sem ekki eru í verzlunum við Miklatorg og Lækjargötu. .M..n>mmiiiiiniiu.m.inn.fn.ii»l»1»lUUUia4Hft“ll'H.'.~A .»..iiim.iiiiiiiiiiiiiiiii»inimi».iiriimi»Ui ......... |MM>................ »•»<••■ ••••MIMMHIIIM «IIIIIIIMIIMI»I •MM.MIMIMIlf *in»iiini»ii **HI............................................. *OMlinMMlMI.MMIM.MM.MMMIM.MMmMMIIMm***>,> IIIIMMMlMf. llll»llll)U«f. .Shiimimmmm |»|IIM»|MMM* IMMMIMIMMfff ummmiMiM himmmmmmm llHMMOMMt* Listamannaskálanum. SCANDÁLE hefur sent okkur undirfatuað kvenna af vönduðustu gerð: 'Ar Brjóstahöld Lendabelti Lífstykki ^ Kvenbuxur Tizkuskóli Andreu Skólavörðustíg 23. II. hæð. Tiðkynning til kaupmanna Brunamálasamþykktar fyrir Reykjavík um sölu á skoteldum. 152. grein: „Sala skotelda er bundin leyfi slökkvi- liðsstjóra, er ákveður, hve miklar birgðir megi vera á hverjum stað og hvernig þeim skuli komið fyrir“. Þeir kaupmenn, sem ætla að selja skotelda, verða að hafa til þess skriflegt leyfi slökkvi liðsstjóra, og vera við því húnir að sýna eftirlitsmönnum slökkviliðsins eða lög- reglunni það, ef þess er óskað. Skriflegar umsóknir um slík leyfi skulu hafa borizt slökkviliðsstjóra fyrir 15. des. næstkomandi. Ákvæði þetta gildir einnig um leyfisveit- ingu fyrir Kópavog, Seltjarnarnes og Mos- fellshrepp. Reykjavík, 22. nóvember 1966. Slökkviliðsstjóri. ILFORD - Einkaumboð: alltaf bezta lausnin. HAUKAR [03, Garðastræti 6. — Sími 16485.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.