Morgunblaðið - 24.11.1966, Side 5
Fimmtucfagur 24. nóv. 1966
MORGU N BLAÐIÐ
5
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
V • _!_:_
Þýzk sálumessa Brahms
í kvöld og á laugardag
Talið frá vinstri: Gunnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sin-
fóníuhljómsveitarinnar, Sigurðu r Þóroddsson, form. Fílharmóníu
kórsins og dr. Róbert A. Ottósson. — Ritari kórsins er Skúli
Möller.
f KVÖLD, fimmtudag, 24. nóv-
ember, og laugardaginn 26. nóv-
ember kl. 3, verður þýzk sálu-
messa Rrahms flutt af Sinfóníu-
hljómsveit íslands og Söngsveit-
inni Fílharmóníu. Stjórnandi er
dr. Róbert A. Ottósson. Einsöngv
arar, Hanna Bjarnadóttir og
Guðmundur Jónsson.
Á fundi með fréttamönnum
nýlega gat Gunnar Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Sinfóníu
hljómsveitarinnar, þess m.a. að
nú í nokkur ár hefði það verið
mestur tónlistaviðburður borgar
innar, þegar Sinfóníuhljómsveit
íslands og Söngsveitin Fílharm-
ónía, ásamt leiðandi einsöngvur
um þjóðarinnar hafa flutt eitt-
hvert stórvirki tónbókmennt-
anna. Menn rekur eflaust minni
til þegar þessir aðilar fluttu 9.
sinfóníu Beethovens mörgum
sinnum í fyrra fyrir fullu húsi í
Háskólabíói. í nóvember 1961
var þýzk sálumessa Brahms
flutt. Einsnögvarar voru Hanna
Bjarnadóttir og Guðmundur
Jónsson. Þá heyrðust strax radd-
ir, sem óskuðu þess, að ekki liði
langur tími þangað til verk þetta
yrði aftur tekið fyrir. Nú á
fimmtudag fær fólk þessa ósk
sína uppfyllta. Mun Söngsveitin
Fílharmónia, Sinfóníuhljómsveit
íslands, Hanna Bjarnadóttir,
Guðmundur Jónsson og dr. Ró-
bert A. Ottósson flytja þetta
verk. Verður flutningurinn síð-
w
an endurtekinn laugardaginn 26.
nóvember klukkan 3 fyrir þá,
sem ekki hafa áskriftarskírteini
á tónleika Sinfóníuhljómsveitar-
innar í vetur. En þess má geta að
á reglulega tónleika hjá Sinfóníu
hljómsveitinni hafa allir miðar
selzt til áskrifenda að 12 frá-
teknum.
Sinfóníuhljómsveitin hefur í
haust haldið 17 tónleika, 5 reglu
lega, 6 barnatónleika, 2 ungl-
ingatónleika, 2 sunnudagstón-
leika, og alltaf við ágæta að-
sókn.
Að lokum sagði Gunnar Guð-
mundsson að dr. Róbert A. Ottós
son hafi verið atorkumikill þjálE
ari kórsins frá byrjun, og að
honum væri að þakka sú mikils-
virta staða, sem kórinn skipaði
í íslenzku tónlistarlífi.
Dr. Róbert A. Ottósson sagði
að þýzka sálumessan eftir
Brahms væri eitt fallegasta
konsert- og hljómlistarverk,
sem sa-mið hefur verið, og dýrt
kveðið eins og allt hjá Brahms.
Var sálumessan frumflutt í
Leipzig árið 1869, og varð brátt
víðfræg. Staða Brahms í þýzku
tónlistarlífi seinustu aldir var
að þakka þessu verki meir en
nokkru öðru.
f Söngsveitinni Fíiharmóníu
eru nú um 115 söngmenní allt
áhugamenn. Um 300 söngmenn
hafa verið í kórnum frá upp-
hafi. Næsta verk sem kórinn
flytur er Missa Solemnis eftir
Beethoven, sem flutt verður 27.
apríl undir stjórn Bohdan Wod-
iczko.
Styrkveitíngor
A.F.S. ó íslondi
EINS og undanfa-rin ár gengs-t
Amerioan Field Ser-vice félags-
skapurinn fyrir styrkveitingu tíl
ársdv-alar á bandarískum heim-
ilum. Styrkir þessir eru veitti-r
unigling-um á aldrinum 16—18
ára. Styrkþ-eg-a-r munu stunda
nám við bandaríska gagnfræða-
skóla og dv-elja hjá bandarísk-
um -fjölskyldum.
Allar nán-ari upplýsingar varð
andi styrk þennan munu veittar
á skrifstofu A.F.S. á íslandi,
Sil-la og Valda húsinu, Austur-
stræti 17, 4. h-æð, miðvikudaga
og föstudaga milli kl. 4.30—6.30.
Sími 2-34-90.
(Fréttatilkynning frá A.F.S. i
íslandi).
¥rii kærðnr
fyrir londráð
London 22. nóv. — AP.
DAVID Frost, kunnur brezku-r
sjónvarpsmaður, skýrði frá þvl
í dag, að Ian Smith, forsætis-
ráðherra Rhódesíu, hefði þegið
boð um að koma til London og
koma fram í sjónvarpsviðtali
einhverntímann á næstunni. —-
í dag lýstu brezkir embættis-
menn því yfir, að kæmi Smith
til Bretlands yrði hann ákærð-
ur fyrir landráð.
Við getum tekið vel með farna bíla tii sýnis og sölu
!■! C/TIS CC f\ HJ U C í syningarsal okkar. — Hjá okkur geta kaupendur
^ V C I N N tlsSLi^Uri tl.i • skoðað bílana hreina og vel útlítandi, í rúmgóðum
UMBOÐIÐ
Sýningarsalurinn Laugavegi 105.
Sími 22466.
húskynnum. — Eílarnir eru tryggðir í okkar um-
sjá. — Skoðið bílaúrvalið. — Gerið góð bílakaup.
sa