Morgunblaðið - 24.11.1966, Page 12
12
MORGUNBLAÚIÐ
’ Fimmtudagur 24 nóv. 1966
IZsitS'kvæzziszEi srelsslsssr
SklgSŒsáS^es’Siariaasa-saff
- Frá umræðum 7 samelnuðuþingi
ALÞINGI
Vegurinn um
á hefffi
annagjá
Vc
— sagbi forsætisrábherra 7 hingræbu 7 gær
Á FUNDI sameinaðs þings í
gær bar Gils Guðmundsson (K)
fram fyrirspurn tii forsætisráð-
herra um lóðaúthlutun I>ing-
vallanefndar. Var fyrirspurnin
svohljóðandi:
1. Hve mörgum lóðum undir
sumarbústaði hefur Þingvalla-
nefnd úthlutað úr landi jarð-
anna Kárastaða og Gjábakka í
Þingvallasveit?
2. Hvaða reglum hefur Þing-
vallanefnd fylgt við ráðstöfun
Icða þessara?
3. Með hvaða skilmálum eru
lóðirnar af hendi látnar?
4. Hverjir hafa fengið um-
ræddar lóðir?
5. Hver er tilgangur Þingvalla
nefndar með lóðaúthlutun þess-
ari?
6. Hefur Þingvallanefnd í
hyggju að halda áfram úthlutun
lóða á Þingvallasvæðinu?
Gils Guðmundsson (K): Árið
1928 var að forgöngu Jónasar
Jónssonar sett löggjöf um vernd
un Þingvalla, og tók hún gildi
1930. Var sett Þingvallanefnd
skipuð þremur þingmönnum, og
sæi hún um framkvæmd lag-
anna. Ekki mátti gera jarðrask
á Þingvallasvæðinu nema með
samþykki hennar. Hinsvegar tel
ég, að nefndin hafi ekki staðið á
verðinum sem skyldi, enda var
í sumar út'hlutað lóðum á Þing-
vallasvæðinu, og vakti það bæði
undrun og mótmæli. Því leyfi ég
mér að bera fram þessa fyrir-
spurn um lóðaúthlutun Þing-
vallanefndar, og vænti ég grein-
argóðs svars við henni.
Bjarni Benediktsson (S): Þó
að þetta mál heyri að formi til
undir forsætisráðherra, hefur
ihann aldrei haft neitt með þessi
mál að gera, þau hafa algjör-
lega verið í höndum Þingvalla-
nefndar. Allt frá upphafi hefur
verið úthlutað lóðum á svæðinu,
fyrst innan þjóðgarðsins og síð-
an utan. Spurning væri, hvort
ekki sé ástæða til að friða alla
strandlengjuna með vatninu, en
hins vegar er það algjörlega ó-
framkvæmanlegt að friða alla
Þingvallasveit. Þetta er kannski
orðið of seint, vegna þeirrar
byggðar, er myndazt hefur, en
þar eiga fyrstu nefndirnar ein-
hverja sök. Ég tel, að varlega
eigi að fara í úthlutun lóða á
þessu svæði.
Varðandi fyrirspurn hv. þm.
vil ég segja, að ég leitaði upp-
lýsinga hjá nefndinni og veitti
hún mér þessi svör:
Á því níu ára tímabili, sem
núv. nefnd hefur starfað hefur
hún veitt 45 umsækjendum, þar
af 29 í sumar leyfi á svæðinu
austan og vestan Gjábakka, enda
verði svæðið skipulagt og nátt-
úruverndarráð fylgzt með úthlut
un.
2. Aldrei hefur verið auglýst
eftir umsóknum, en hins vegar
hefur verið reynt að verða við
óskum þeirra, er um sækja, og I
eru umsóknir teknar fyrir eftir
því, hvernig þær berast.
3. Helztu skilmálarnir eru:
a) 2000 kr. leigugjald, en hins
hins vegar fylgir ekki veiðileyfi
í vatninu. b) leigusamningur
gerður til 30 ára. c) 10 þús. kr.
gjald, vegna skipulagningar og
að byggt verði innan tveggja
ára. Hús og aðrar byggingar
verði háðar samþykki nefndar-
innar.
4. Ég fékk skrá um þá menn,
er hafa fengið lóðir á þessu
svæði, en ég sé ekki ástæðu til
að lesa hana hér, en hins vegar
er hún ekkert launungarmál.
5. Tilgangurinn með lóðaút-
hlutuninni er m. a. að afla fjár
til viðhalds og létta þar með á
fjárveitingavaldinu og eins hins
að verða við óskum þeirra er
um sækja.
6. Þingvallanefnd hyggst
halda áfrarn úthlutun lóða, enda
sé fylgzt stranglega með því.
Gils Guðmundsson (K): Ég
veitti því m. a. athygli, að aldrei
hefur verið auglýst eftir um-
sóknum og valdi ég spyrja, hvort
hafa eigi sama hátt á því. Ég tek
undir orð ráðherra, að ekki sé
liægt að friða alla Þingvalla-
sveit, en hins vegar á að gefa
strandlengjunni og næsta ná-
grenni Þingvalla meiri gaum.
Tel ég, að það verði að fara
varlega í úthlutun lóða og vil
í því sambandi minna á ummæli
Jónasar Jónssonar en hann sagði
er hann hafði forgöngu um frið-
un Þingvalla að ef ekki yrði að
gert, gæti útlit Þingvalla spillst.
Emil Jónsson (A): Aðgerðir í
sambandi við Þingvelli, hvort
heldur þær eru til góðs eða ills,
verður að skrifa á reikning
Þingvallanefndar en ekki for-
sætisráðherra, enda hefur nefnd
in haft með meðferð málsins að
gera frá upphafi.
Það má deila um, hvað eigi
að gera, en ég vil taka fram,
að strax í upphafi var gerður
hlutur, sem betur hefði verið
ógerður, þ.e. úthlutun lóða
innan þjóðgarðs. Núverandi
nefnd hefur einungis veitt 10
lönd utan hins friðlýsta svæð-
is. Farið var að úthluta lóðum,
bæði í landi Gjábakka og Kára-
staða áður en umráðaréttur
nefndarinnar kom til. Því miður
hefur sumarbústaðabyggð við
vatnið orðið mjög óskipulögð,
og óprýðir það vitanlega. Hins
vegar eru sumarbústaðabyggð-
irnar á þessum löndum svo til
í hverfi frá sjálfum Þingvöll-
um.
Bjarni Benediktsson (S): Ég
tel það fyllilega vera til athug-
unar fyrir þingheim, hvort
menn vildu gera ráðstafanir til
að friða strandlengjuna kring-
um Þingvallavatn, en það getur
vel verið að það sé orðið of
seint, vegna þess, hve byggð er
orðin víða. En auðvitað voru
mestu spjöllin unnin, þegar
byggð var leyfð suður með vatn
inu, en hins vegar vil ég viður-
kenna það ómetanlega verk, sem
gert var, er Þingvellir voru frið
aðir og Jónas Jónsson, sem átti
vissulega drýgstan þátt í því,
mun hljóta verðuga viðurkenn-
ingu fyrir.
En í framhaldi af þessu, vil
ég drepa á það, að friða þarf
hinn forna þingstað mun betur
en gert er, og hann hefur ekki
verið friðaður meðan vegurinn
liggur um Almannagjá. Það má
segja, að það að hafa bílveg um
Almannagjá er líkast því, sem
Rómverjar þefðu bílveg um For
um Romanum eða Grikkir um
Akropolis. Þetta eru hrein helgi
spjöll og ótrúlegt að þetta skuli
hafa haldizt.
Til viðbótar þessu kemur, að
allir sem kunnugir eru á Þing-
völlum, sjá að það er bein lífs-
hætta að fara um veginn sér-
staklega í stórum bílum, er
jörðin skelfur undir en klettar
hanga yiir. Nú er þingið búið
að samþykkja að gera ráðstöf-
un til að bæta úr þessu, með
því að láta leggja þjóðveg uppi
á vestari gjárbarminn og inn á
Leirurnar.
Ég tel, að þetta þing eigi bein
línis að hlutast til um, að lokið
verði þeirri vegagerð á næsta
sumri, vegna þeirrar augljósu
hættu, sem þarna er vegna grjót-
hruns, og ekki síður vegna þess,
að þegar menn eru að tala um
að gæta helgi Þingvalla, eru
mestu helgispjöllin látin við-
gangast.
Gylfi Þ. Gíslason (A): Ég vil
taka undir ummæli forsætisráð-
herra að þetta þing taki til at-
hugunar, hvort stækka eigi hið
friðaðasvæði. Vil ég jafnframt
vekja athygli á því, að athugað
verði, hvers eðlis sú friðun á að
vera, sem gild lög segja um. Ný-
lega hafa verið sett lög um nátt-
úruverndun, en óljóst er, hvort
núgildandi lög banna tiltekna
nýrækt á hinum friðuðu svæð-
um, og vil ég þar nefna sérstak-
lega skógrækt. Persónulega tel
ég, að ekki eigi að leyfa ræktun
trjágróðurs, sem ekki hefur vax-
ið þar, á Þingvöllum.
Á FUNDI sameinaðs þings í gær
flutíi Oddur Andrésson (S) fram
söguræðu fyrir þáltill., er hann
flytur ásamt Gunnari Gíslasyni
(S) um að Alþingi álykti að
skora á ríkisstjórnina að undir-
búa og leggja fyrir næsta Al-
þingi frv. til laga um öryrkja-
heimili og endurhæfingarstöðv-
ar. f greinargerð þáltill. segir,
að mikið hafi verið gert til að
hjálpa sjúkum til sjálfsbjargar
hin síðari ár, m.a. með því að
reisa endurhæfingarstöðvar. End
urþjálfun hafi verið stunduð hér
á landi í smáum stíl af ýmsum
aðilum, en hins vegar sé ekki
til neitt heildarskipulag um
slíka hluti, þótt þau skipti miklu
máli fyrir þjóðina.
Oddur Andrésson (S):
Ég er þess fullviss, að öllum
háttv. alþingismönnum er ljós
nauðsyn framgangs þess máls,
er þingsályktunartillaga sú, sem
hér er til umræðu, fjallar um.
Um það eru
ekki skiptar
skoðanir, að það
er bæði mann-
úðar- og menn-
ingaratriði að
búa sem bezt að
þeim stóra hópi
einstaklinga í
þjóðfélaginu, er
býr við ýmis-
konar orkuskerð
ingu andlega eða líkamlega. Sá
hópur stækkar ört, vegna hinna
óeðlilega hröðu breytinga nær
allra þátta þjóðlífsins.
Áhugi almennings er vissulega
mjög vakandi fyir að bæta hag
Á FUNDI sameinaðs þings í gær
flutti Halldór Ásgrímsson (F)
tölu fyrir þáltill., er hann flytur
þremur öðrum Framsóknar-
mönnum um kosningu milli-
þinganefndar til að gera tillög-
ur um endurnýjun strandferða-
skipanna og skipulagningu
strandferða.
Sagði þm, m. a. að nauðsyn-
legt væri að halda uppi strand-
íerðum, en núverandi ríkisstjórn
virtist ekki skilja það fullkom-
lega, a.m.k. sýndi stuðningur
hennar við Skipaútgerðina það
ekki. Ríkisstjórnin hafi ekkert
gert til að bæta rekstrarafstöðu
útgerðarinnar, en hafi selt tvö
skip hennar, og í staðinn hafi
hún aðeins tekið eitt skip á
leigu til sex mánaða, sem alls
ekki geti talizt nein lausn, ekki
sízt þar sem skipið geti alls. ekki
siglt til eins margra hafna og
gömlu skipin. Að vísu hafi stjórn
in sett nefnd í málið, en ekkert
hafi heyrzt frá henni. Þá sagði
ræðumaður, að þótt stjórnin
hafi nú skipað nefnd til að kanna
kaup á tveimur nýjum skipum,
þá sé það eingöngu að kenna
ótta við þessa tillögu, sem hér
væri til umræðu.
Magnús Jónsson (S): Ríkis-
stjórnin setti tvo menn til að-
stoðar forstjóra Skip&útgerðar-
innar til að kanna og finna
leiðir til úrbóta á rekstri út-
gerðarinnar. Stefnan hefur verið
að reyna að reka útgerðina með
hagsýni og tryggja viðhlítandi
þjónustu. Þessi tillaga gerir
hvorki til né frá um lausn þessa
olnbogabarna lífshamingjunnar;
það sýna hin mörgu félagssam-
tök til styrktar tiltekinna ör-
yrkjahópa, má þar til nefna:
Sjálfsbjörg, Styrktarfélag lam-
aðra og fatlaðra, Blindravinafé-
lagið, Samband ísl. berklasjúkl-
ing, Geðverndarfélagið, o.fl. o.fl.
Á vegum þessarar félaga hefur
verið unnið að endurhæfingu um
árabil með góðum árangri.
Heildarlöggjöf um þessi mál á
ekki að draga úr tilvistarþörf
slíkra félaga eða veikja starfsað-
stöðu þeirra, heldur þvert á
móti að styrkja starfsgrundvöll
þeirra og tryggja, að allir, sem
þess þurfa, fái notið sömu að-
stöðu til endurhæfingar.
Rétt þykir mér að tilfæra hér
hvernig Oddur Ólafsson, yfir-
læknir á Reykjalundi gerir grein
fyrir, hva’ð felst í hugtakinu
„Endurhæfing“ í 20. árg. tíma-
ritsins Reykjalundur.
„Endurhæfing er að verulegu
leyti skipulagning og áætlunar-
gerð um framtíð einstaklings,
sem vegna slyss, sjúkdóma eða
meðfædds örkumls, hefur minni
möguleika á að sjá sér og sínum
farborða en heill þjóðfélagsþegn,
en þar sem þó eru möguleikar á
umbótum, ef samræmdar lækn-
isfræðilegar og félagslegar að-
gerðir koma til.“
Endurhæfingu er venjulega
skipt í þrjá megin þætti:
1. læknisfræðilega endurhæf-
ingu.
2. félagslega endurhæfingu
3. atvinnuendurhæfingu“
Þarna þurfa því til að korna
máls. Það hefur þegar verið
skipuð nefnd til að kanna rekstr
argrundvöll útgerðar, og hefur
hún nú lokið störfum og er
skýrslu að vænta innan skamms.
í fjárlögum hefur þegar verið
mörkuð stefna en þar er heim-
ilað að verja andvirði seldu skip
anna til endurbóta og kaupa á
nýjum skipum, enda er nauð-
synlegt að endurnýja flotann,
þar eð hann svarar ekki lengur
kröfum tímans. Einnig þarf að
bæta aðstöðuna við Reykjavík-
urhöfn, en þar er aðstaðan mjög
slæm, og var hallinn á vöruaf-
greiðslu um 7 millj. á síðasta
ári.
Varðandi skipasöluna vil ég
segja það, að ástæðan til að
Heklan var frekar seld en Es a
er sú, að vafamál er, hvort nokk
ur möguleiki er til að selja
Esjuna, en hins vegar þótti ekki
rétt að sleppa svo hagkvæmu
tækifæri til sölu á Heklu, enda
fékkst mjög skaplegt verð,
miðað við söluverð svo gamalla
skipa. Leiguskipið Blikur er
mun hagkvæmara en bæði þessi
skip.
Stefnan er ekki að rýra út-
gerðina, heldur reka hana með
hagkværrvira móti. Skipaútgerð-
in hefur átt sífellt erfiðari af-
stöðu, enda aukast mjög fólks-
og vöruflutningar með öðrum
tækjum, flugvélum og bifreið-
um. Auk þess hafa skipaferðir
annarra skipafélaga aukizt.
Halldór Ásgrímsson tók aftur
stuttlega til máls, og var málinu
síðan ví.'iað til fjárhagsnefndar.
þrír aðilar, læknir, félagsfræð-
ingur og endurhæfingarsérfræð-
ingur. Auk þess þarf sérþekk-
ing þessara aðila að vera mjög
margbreytileg, eftir því, hverj-
ar orsakir örorkunnar eru.
Þó að velmegun og öll fjárhag3
leg afkoma fjöldans hér á landi
sé svo jöfn og góð, að hún hef-
ur aldrei betri verið, verður ekkx
hægt að tala um velferðarríki
hér, fyrr en vel hefur verið séð
fyrir heimilismálum öryrkja og
aðstöðu til enurhæfingar.
Endurhæfing er kostnaðarsöm,
svo sem öll hliðstæð þjónusta,
en hún er líka ábatasöm. Því til
sönnunar get ég tilfært, að tal-
ið er að hver rúmlegusjúklingur
á sjúkrahúsi krefjist eins hjúkr-
unarliða, svo að hver sjúkling-
ur eða öryrki, sem endurhæfing
kemur á ról, sparar vinnukraft.
Ef svo vel tekst, að starfsorka
náist, er ágóðinn enn meiri. Þó
er sá ágóðinn mestur, sem aldrei
verður í tölum talinn, því að
með endurnýjaðri orku kemur
trú á lífið og möguleikar til lífs
hamingju.
Á hinum Norðurlöndunum öll-
um hafa verið sett merk lög um
þessi mál og má vel vera, að
hægt sé að styðjast verulega
við þau, við undirbúning þessa
máls hér. Undirbúningsvinna við
lagasetningu sem þessa er mikil
og hlýtur að taka nokkurn tíma,
en þörfin er brýn. Þessvegna
vænti ég þess, að málið hljóti
afgreiðslu hér á Alþingi og hæsfc
virt ríkisstjórn tryggi því áfram-
haldandi brautargengi.
Umræðu var frestað og málinu
vísað til allsherjarnefndar.
• •
• ••
lOT i
• •
® ©
r.
enaurnæíingarstðdvar
Þ'mgsályktunartillaga tveggja Sjálfstæbismanna